Morgunblaðið - 03.05.1988, Side 16

Morgunblaðið - 03.05.1988, Side 16
16 B BtorcimWatlfc /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 3. MAÍ 1988 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / HANDKNATTLEIKUR KVENNA Stórátak í þjátfun landsliðsins Stjórn HSÍ ákvað í fyrra að gera stórátak í þjálfun kvenna- landsliða íslands. Einn liður í því var að ráða júgóslavneskan þjálfara, Zlavko Bambir, til að sjá um öll kvennalandslið íslands. Umsjónarmaður unglingasíð- unnar leit inn á æfingu hjá Bambir í Seljaskóla fyrir nokkru en þar stóð þá yfir æfing hjá lands- ■■^^^■i liði undir 19 ára Andrés aldri. Þama voru Pétursson tæplega 50 stúlkur skrifar mættar en þær voru valdar eftir að Bam- bir og landsliðsnefnd kvenna hafði fylgst með tveimur fjölliðamótum í 2. flokki kvenna. Hópurinn verður síðan skorinn niður í 35 stúlkur og úr þeim hóp verður sjðan það lið sem keppa mun fyrir íslands hönd á Norðurlandamótinu í Finnlandií haust, valið. Æfíngin sem blaðamaðurinn fylgd- ist með var sú fjórða sem þessi hópur hafði mætt á. Það var vel tekið á og hróp Bambirs höfðu greinilega hvetjandi áhrif á stúlk- umar. Að sögn Helgu Magnús- dóttur, sem sæti á í landsliðsnefnd, Morgunblaöið/Andrés Pétursson Landsllðshópur stúlkna 19 ára ogyngri ásamt þjálfaranum Zlavko Bambir, lengst til vinstri í aftari röð, og Helgu Magnúsdóttur, sem sæti á í landsliðsnefnd. er mikill áhugi hjá stúlkunum og almenn ánægja ríkir með þjálfa- rann. Ráðinn hefur verið aðstoðar- þjálfari en það er hinn kunni hand- knattleikskappi úr Breiðablik, Kristján Halldórsson (Sissi), en hann þjálfar Gróttuna í 2. flokki kvenna. Eftir að æfíngunni lauk spjallaði blaðamaðurinn við fjórar stúlkn- anna og þar að auki ræddi hann við Bambir þjálfara. Höfum lært mikið RAGNHEIÐUR G. Jóhannes- dóttir úr ÍR og Berglind Ómars- dóttir úr ÍBV voru þreyttar en ánægðar eftir æfinguna þegar blaðamaðurinn ræddi við þær. Berglind var að vísu tímabund- inn því vélin hennar til Vest- manneyja átti að fara fljótlega. Það er víst ekki ofsögum sagt af áhuga íþróttafólks úr Eyjum og það sem þeir leggja á sig til að ná langt í íþrótt sinni. Berglind tjáði okkur að um 18 æfðu að jafnaði með 2. flokki kvenna í Vestmannaeyjum. Hún sagði að góður árangur meist- Fleiri æfanú STÚLKUR tvær úr Hafnarfirði, Helga Elín Sigurðardóttir FH, og Björg Bergsteinsdóttir úr Haukum voru sammála að koma Bambirs hefði hleypt nýju blóði í kvennahandbolt- ann. m Aður var alltaf verið að tala um að gera eitthvað en aldrei varð neitt úr framkvæmdum. Nú hefur loksins eitthvað verið gert og það sést strax á auknum fjölda þeirra sem æfa,“ sagði Björg. Helga sam- sinnti því og bætti við: „Bambir hefur kennt okkur mikið þennan stutta tíma sem við höfum verið hjá honum. Það vantar sorglega mikið á grunnþjálfunina hjá mörg- um stelpum og meira segja sumar araflokkanna tveggja í vetur ýtti undir áhugann á handbolta í Vest- mannaeyjUm. Berglind tjáði okkur að venjulega spiluðu þijár 2. flokks stúlkur með meistaraflokksliðinu en margar fleiri bönkuðu á dymar. Sagðist hún hafa lært mikið af Bambir og þjálfunaraðferðum hans og sagðist hún vona að þetta myndi koma sér til góða síðar. Ragnheiður sagði að um 15 stúlkur æfðu reglulega með 2. flokki ÍR. þeirra sem hafa verið valdar til æfinga kunna varla að grípa bolta.“ Þær stöllur Helga og Björg tjáðu blaðamanninum að oft vantaði aga .á æfingar hjá handboltaliðum en hjá Bambir kæmist engin upp með neitt múður. Hinsvegar væri hann Sem stendur er engin meistara- flokkur hjá liðinu einungis 2. og 3. flokkur. Ragnheiður sagðist nú samt vona að jafnvel á næsta ári gæti ÍR teflt fram liði í meistara- flokki kvenna. Sagði hún að koma Bambirs til starfa hjá landsliðinu hefði hleypt nýjum áhuga í stelp- umar og kvaðst hún vera þess full- viss að þetta myndi skila sér innan margra ára í auknum ijölda þeirra sem stunduðu handbolta. engin harðstjóri og kynni að grínast utan æfínganna. Þegar þær voru spurðar hvort þær byggjust við því að vera valdar í lokahópinn sem fer til Finnlands, brostu þær bara og sögðust vona það besta. Zlavko Bambir: Björt framtíð ef rétter haldið á spilum HANDKNATTLEIKSSAMBAND íslands réði í haust júgóslav- neskan þjálfara til að sjá um þjálfun kvennalandsliðanna. Maðurinn heitir Zlavko Bambir. Hann er prófessor í dýraiækn- ingum og starfaði sem slíkur við háskólann íZagreb áður en hann kom hingaðtil lands. Ekki hefur Bambir alveg lagt dýralækningarnar á hilluna og starfar nú við rannsóknarstofu landbúnaðarins á Keldum hálfan daginn. Ekki er það þó áætlun okk- ar að ræða um þær meinsemdir sem hijá íslensku sauðkindina, heldur um handboltaþjálfun. Fyrsta spurningin sem við lögð- um fyrir Bambir var hvemig honum hefði litist á aðstæður og getu íslenskra hanboltakvenna. „Það kom mér dálítið á óvart hve stutt margar stúlkur eru komnar á tæknisviðinu. Meira að segja sumar þeirra sem eru á landsliðsæfingu kunna ekki að grípa bolta rétt. Þetta sýnir að eitthvað er að grunn- æfingunum en þetta er nú allt á réttri leið og stúlkumar eru meira en tilbúnar að Ieggja mikla vinnu á sig til að ná árangri." Hvað er það sem þú leggur helst áherslu á með æfingum þínum? „Það er nú fyrst og fremst að sjá stúlkumar framkvæma ýmsar æf- ingar svo sem skot, hraða, grip og fleira, til þess að velja úr þær sem eiga möguleika að vera í endanlega hópnum fyrir Norðurlandamótið. Eftir .að hópurinn er kominn er Morgunblaöiö/Andrés Pétursson Zlavko Bamblr stjómar stelpunum af röggsemi á æfíngunni. stefnan að vinna með hann næstu 2-3 árin og þá ættum við vera komnir með góðan kjama í A- landslið íslands." Hvað finnst þér helst vanta hjá stúlkunum? „Það sem háir mörgum stúlknalið- unum og einnig sumum karlaliðun- um er hversu mikið vantar á grunn- atriðin. Eg var mjög undrandi þeg- ar byijaði með æfíngamar að sum- ar stúlkumar kunnu ekki að stökkva upp eða henda sér inn af línu. Þetta verður að lærast á aldr- inum 13-15 ára, annars er mjög erfitt að koma því inn hjá krökkun- um.“ Ertu bjartsýnn á árangur ungl- ingalandsliðsins í Finnlandi í haust? „Við förum auðvitað til þess að gera okkar besta en þetta er ekki byggt upp á einni nóttu. Ég hef skipulagt áætlun næstu 3-4 árin fyrir kvennalandsliðin og það sem við stefnum að er að standa okkur vel í keppni við aðrar þjóðir að þeim tíma liðnum. Það em margar mjög efnilegar handknattleiksstúlkur hér á landi og ef rétt er á spilum hald- ið er framtíðin björt hjá íslending- um í kvennahandknattleik,“ sagði Zlavko Bambir þjálfari kvenna- landsliða íslands að lokum. Helga Elfn Sigurðardóttir FH, og Björg Bergsteinsdóttir úr Haukum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.