Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 Kjarvalsstaðír fái ákveðnari svip Rœtt við Gunnar B. Kvaran listráðunaut Reykjavíkurborgar um stefnubreytingar og áœtlanir nœsta árs Nokkrar breytingar á fyrirkomulagi sýningahalds á Kjarvalsstöðum hafa staðið yfir undanfarið undir stjórn Gunnars B. Kvaran listráðunautar Reykjavíkurborgar. Þá hafa orðið gagngerar skipulagsbreytingar á stjórnunarfyrirkomulagi safna í. eigu Reykjavíkurborgar, stjórn Kjarvalsstaða hefur boðað aukið frumkvæði af hálfu safnsins í sýningahaldi og að efnt verði til fleiri sýninga á vegum Kjarvalsstaða en áður. Vafalaust eru skiptar skoðanir um þessar breytingar; sé vel á spilum haldið ættu Kjarvalsstaðir að skapa sér ákveðnari sess en áður sem Iistasafn og sýningahús. Á hinn bóginn þrengjast möguleikar einstakra listamanna til að fá inni með sýningar sínar þar sem aukið hlutfall sýningartíma Kjarvalsstaða fer nú til sýningahalds á vegum hússins. Morgunblaðið hitti GunnarB. Kvaran að máli á dögunum og bað hann að gera grein fyrir þessum breytingum og reifa jafnframt þær hugmyndir sem að baki liggja. síðasta ári samþykkti Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar sýn- ingaráætlun fyrir þetta ár, þannig að við höfum verið að vinna undanfarið sam- kvæmt gamalli áætlun að því leyti er varðar listamenn sem fengið hafa sali hússins leigða. Aftur á móti hafa Kjarvalsstaðir haft veg og vanda af stærri yfirlitssýningum sem hér hafa verið eins og Sjálfsmynda- sýningunni, Maðurinn í forgrunni og Kjarvalssýningunni sem verið hefur í Austursal hússins í sumar. í lok síðasta árs þegar ég kom til starfa hér á Kjarvalsstöðum sam- þykkti menningarmálanefnd borgar- innar að sameina undir eina stjóm Ásmundarsafn og Kjarvalsstaði. Starfsheiti mitt er því listráðunautur listasafna Reykjavíkurborgar og undir það falla Ásmundarsafn, Kjarvalsstaðir, Kjarvalssafn, sem er sérstök safneining innan Kjarvals- staða, og útilistaverk í eigu Reykjavíkurborgar. Við þessa breyt- ingu fjölgar í starfsliði við hveija einingu vegna þess að starfsliðið héma, sem er auk mín tveir safn- verðir og ritari, vinnur allt við hveija einingu eftir ákveðnu skipulagi. Þetta er því miklu hagkvæmara kerfi en áður var. Þessar breytingar leiddu einnig af sér að menn fóru að hugsa meira um prófíl Kjarvalsstaða sem lista- safns. I eigu Reylqavíkurborgar er mikið safn listaverka sem geymd eru víðsvegar um borgina og utan um þessa listaverkavörslu er haldið hér á Kjarvalsstöðum. Það sem við höf- um sérstakan áhuga á eru sýningar hér á Kjarvalsstöðum. I því efni eru til tvær meginhugmyndir, annars vegar að leigja út sýningarpláss í húsinu rétt eins ogtjaldstæði í Laug- ardalnum, þar sem menn fá sinn reit, hengja upp sín verk og sýna fullkomlega á eigin ábyrgð. Stjóm safnsins yrði þá mjög umburðarlynd hvað varðar tegund og gæði viðkom- andi listaverka. Hin hugmyndin er sú að Kjarvalsstaðir sjái eingöngu um val, uppsetningu og frágang á þeim sýningum sem hér eru settar upp.“ Er það ekki einmitt þetta sem breytingarnar snúast um? „Breytingamar felast aðallega í því að samræma þessar tvær hug- myndir. Kjarvalsstaðir hafa séð stór- um hópi listamanna fyrir sýningar- aðstöðu á undanfömum árum. Þetta hefur líka breyst vegna þess hversu mörg fín gallerí eru komin hér í borginni sem bjóða listamönnum upp á mjög góða sýningarsali og eru miklu áhrifaríkari sem auglýsinga- maskínur fyrir viðkomandi lista- menn en við getum verið. Kjarvals- staðir eru bara rammi um slíkar sýningar. Á þessu sumri höfum við tekið fyrsta skrefið i þá átt að sam- ræma þessar tvær hugmyndir; við höfum valið listamenn til að sýna hér samkvæmt hinu hefðbundna fyr- irkomulagi en einnig höfum við tek- ið upp áætlun sem á að gefa ákveðna mynd af Kjarvalsstöðum, þannig að sem menningarstofnun hafí Kjar- valsstaðir viss séreinkenni." Geturðu gefið okkur tölulegan samanburð á milli þessa árs og næsta til að gefa hugmynd um umfang þessara breytinga? „Á þessu ári verða alls fímm sýn- ingar á vegum Kjarvalsstaða en á næsta ári verða þær alls átta og þær sýningar verða ennfremur mun stærri í sniðum og taka yfir lengri tíma en sýningar þessa árs. Sem dæmi um þetta má nefna að Kjar- valssýningin í ár tók yfir tvö sýning- artímabil en á næsta ári tekur Kjar- valssýning yfír þijú tímabil. Hvert sýningartímabil tekur yfír þijár helgar. Þá verður stór yfírlitssýning á verkum SÚM-listamannanna. Sú sýning mun standa í mánuð og vera í öllu húsinu. Hvað varðar saman- burð á ú'ölda sýninga einstakra lista- manna þá eru salir Kjarvalsstaða leigðir út til 31 aðila á þessu ári en á næsta ári verða þeir 18. Það er því ekki um neina byltingu að ræða en þetta er áþreifanleg breyting. Hvað varðar þær sýningar sem Kjarvalsstaðir taka að sér á verkum einstaklinga þá munum við sjá um hluta af vali verka á sýninguna ásamt listamanninum sjálfum, enn- fremur tökum við að okkur uppsetn- ingu, kynningar og sýningarskrá sem yrði þá í veglegri kantinum. Við erum einnig í mjög góðum tengslum við listasöfn annars staðar í Evrópu og sérstaklega í Skand- inavíu og núna standa yfír viðræður um það að sýningar á vegum húss- ins fari einnig utan. Við höfum t.d. samið við Norrænu listamiðstöðina í Sveaborg í Finnlandi að sýning Kjarvalsstaða næsta vor á verkum Helga Þorgils fari þangað þegar henni lýkur hér heima. Á sama hátt er verið að semja um að senda fyrir- hugaða sýningu Kristjáns Guð- mundssonar utan. Þannig hefur þetta tvíþættan tilgang, annars veg- ar hefur slíkt ákveðna þýðingu fyrir Kjarvalsstaði en einnig viljum við beita áhrifum safnsins til að gera eitthvað fyrir listamennina í stærra samhengi. Það er mjög eðlilegt að svona menningarstofnun hafí slíka stjórn á sinni starfsemi. Hinu má líkja við það t.d. ef Borgarleikhúsið leigði út húsnæðí sitt helming leikársins til einstaklinga sem vildu tjá sig á leik- rænan hátt í salarkynnum hússins. Ég tel að það sé nauðsynlegt að nýta þetta fagfólk sem er til staðar í stofnun eins og Kjarvalsstöðum og að það beri ábyrgð á hluta af því prógrammi sem þar fer fram.“ Er ekki hættan sú með þessu fyrirkomulagi að Kjarvalsstaðir verði ásakaðir fyrir að hampa sumum listamönnum á meðan aðrir eru settir hjá? Það verður aldrei komist framhjá því að í þessu felist ákveðið val. Eg held að það sé til bóta þegar á heild- ina er litið til langframa. Einnig verður að hafa í huga aukið framboð á sýningaraðstöðu fyrir listamenn með tilkomu galleríanna. Kosturinn við þetta fyrirkomulag er sá að Kjarvalsstaðir geta nú einbeitt sér betur að þeim listamönnum sem þar sýna. Þá má líka hafa í huga að íslenskir myndlistarmenn eru ekki það margir að jafnvel þótt Kjarvals- staðir stýrðu alfarið vali á listamönn- um þá kæmust ansi margir að. Við myndum á tveimur til þremur árum komast yfír að bjóða obbanum af öllum þeim innlendu listamönnum, sem almennt eru taldir atvinnumenn í list sinni, að sýna hér í húsinu. Þetta mætti gera þó öllum stefnum og því myndmáli sem listamennimir vinna í væri sýnd jöfn virðing. En á sama tíma og svona breyting á sér stað verður að viðhafa ákveðna víðsýni. í sýningaáætlun fyrir næsta ár má sjá að við höfum reynt að velja textíl, myndlist, skúlptúr og leirkerasmíði; ennfremur höfum við reynt að hafa ákveðna breidd í aldri og myndmáli listamannanna, án þess þó að leggja gæðakröfur að veði. Við getum ekki tekið upp á því að loka Kjarvalsstöðum sem borgar- stofnun og sýna bara eintóma mínimallist, eða einungis konkretlist eða abstraktlist. Slíkt gæti ekki gengið. Þannig höfum við reynt í krafti þekkingar okkar og reynslu að velja hæfasta fólkið en auðvitað hafa margir, sem eiga fullt erindi hingað inn, orðið útundan við skipu- lagningu næsta árs. En þá er til þess að líta að Kjarvalsstaðir munu starfa mörg ár enn.“ Er sú hætta fyrir hendi að þeir listamenn, sem ekki selja mikið og eru því kannski Iftt spennandi kostur fyrir galleríin, eigi erfið- ara með að koma sér og verkum sínum á framfæri með því að sýn- ingarplássum fækkar á Kjarvals- stöðum? „Það getur verið eitthvað til í þessu. En Kjarvalsstaðir velja ekki listamenn inn í húsið með tilliti til væntanlegrar sölu þannig að þessir listamenn ættu að eiga fullt erindi hingað svo framarlega sem verk þeirra bera frumleika og listrænum hæfíleikum vitni. Auðvitað er það rétt að galleríin stýrast að nokkru leyti af sölusjónarmiðum — þau hljóta að gera það — en samt má segja að íslenskur listmarkaður sé sérstakur fyrir það hversu opinn og óskilgreindur hann er.“ Er íslenskur listmarkaður að færast í það horf að listfræðingar og gallerístjórar ráði því að miklu Ieyti hvaða listamenn séu ofan á og hveijir teljist góðir hverju sinni? „Nei, það er af og frá. í fyrsta lagi er það vegna þess að galleríin hafa ekki einokun, né stjóm á um- fjöllun fjölmiðla. Það er þetta sem einkennir gallerí erlendis. Ákveðin gallerí eru nánast með einokun á umfjöllun listtímarita — eiga jafnvel hlut í þeim — og hafa einnig mjög góð tengsl við ákveðin dagblöð. Þessi stjóm á milliliðnum milli markaðar- ins og listamannsins er mjög sterk í Evrópu. Héma aftur á móti getur nánast hver sem er komið sér á framfæri í dagblöðum og það er sama þó viðkomandi sé að sýna í kjallaraholu í Vesturbænum; ef hann er bara nógu frakkur og málglaður þá getur hann fengið um sig miklu stærri grein og lengra viðtal en ein- hver annar, sem er hæverskari og óframfæmari, en kannski öllu merkilegri listamaður. Á meðan þetta er ekki undir einhverri stjóm galleríanna geta þau ekki starfað af fullum krafti. Kraftur gallería erlendis liggur fyrst og fremst í þess- ari einokunaraðstöðu sem þau reyna að komast í, bæði með samningum við listamenn og síðan með sterkum ítökum í pressunni. Hér veit ég ekki til þess að í gangi séu samningar milli listamanna og gallería. Gall- eríin héma eru frekar eins og list- munaverslanir og til dæmis hafa þau ekki tekið upp ákveðnar liststefnur; ekki alið upp ákveðna listamenn né hafa þau farið út í faglegar útgáfur á listaverkaritum sem em aðals- merki gallería erlendis." Kjarvalsstaðir sem listasafn hafa ákveðna fjármuni til umráða til listaverkakaupa á ári hveiju. Hvað ræður listaverkainnkaupum borgarinnar? Gunnar B. Kvaran listráðunautur F Eitt nýlegra verka eftir Helga Þorgils. Hann sýnir í boði Kjarvals- staða næsta vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.