Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 7

Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 7 Jón Guðmundsson sérfræðingxir í frærækt og Ólafur Eggertsson bóndi skoða lúpínufræið úr tanki kornskurðarvélarinnar. Unnt að hefja stórátak í landgræðslu með lúpínu Fræuppskeran í ár nægir til uppgræðslu á 1000-1500 hekturum Selfossi. FRÆUPPSKERA af lúpínuökr- um á Suðurlandi verður um tvö tonn í ár. Með þeirri uppskeru verður unnt að hefja stórátak í uppgræðslu lands með lúpínu. í ár er fræuppskeran fengin af um 20 hektara ökrum en á næstu árum bætast stórir fræakrar við, þannig að eftir fjögur ár verða þeir um 150 hektarar og mögu- leg fræuppskera 15 tonn. Þau tvö tonn af lúpínufræi sem fást í ár munu nægja til upp- græðslusáningar í 1000-1500 hekt- ara lands. Fræið í ár er fengið af 15 hektara akri við Stórólfsvelli og um fimm hektara akri í Gunnars- holti, ásamt litlum akri á Skóga- sandi. Á næsta ári bætast við 20 hektara fræakrar og á Skógasandi eru 30 hektarar sem verða tilbúnir til frætöku eftir 3-4 ár. í vor var svo sáð í um 67 hektara akur í Gunnarsholti og má gera ráð fyrir fræuppskeru af honum eftir þrjú ár. Fræuppskeran er árangur svo- nefndrar lúpínuáætlunar hjá Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins en vinna að henni hófst 1986. Akurinn við Stórólfsvelli er sá fyrsti sem sáð var í 1986. Jón Guðmundsson, sér- fræðingur í frærækt sem vinnur að lúpínuáætluninni, sagði að með því að búið væri að leysa fræöflunina og ræktunina væri unnt að gera stórátak í uppgræðslu með lúpínu. Kominn væri efniviður í land- græðslu og væntanlega yrðu gerðar tilraunir með sáningu fræs úr flug- vél næsta vor, en auk þess yrðu aðrar aðferðir reyndar. Hann sagði slátt á fræakri tekur vélin upp 100 kíló af fræi á klukkustund en slík afkastageta kemur sér vel á stórum fræökrum. Hjá Rannsóknarstofnun land- búnaðarins eru unnið að því að finna út hvar lúpínan er hentug til upp- græðslu og hvers vegna hún hopar úr landinu þegar það tekur að gróa. Sig. Jóns. að í því efni yrðu tekin fyrir mjög rýr svæði innan landgræðslugirð- inga á Suðurlandi. Við frætökuna er notuð afkasta- mikil kornskurðarvél í eigu Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri. Vélin slær lúpínuna og skilar fræinu hreinu í innbyggðan tank á vélinni. Fræið er síðan flutt að Gunnars- holti þar sem það er verkað. Við Morgunblaðið/Sig. Jóns. Lúpínan er slegin við Stórólfsvelli með afkastamikilli kornskurðarvél. BORGUM STRAX betra fyrir alla Losnum við óþægindi og kostnað vegna aukastöðugjalda. 1 ®Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar HEÐah Sé9reittjt ilFGoodrich Bjóðum nú þessi frábæru kjör: B Útborgun 25% Eftirstöðvar á 4-6 mánuðum. Fyrsta afborgun í október. 10% staðgreiðsluafsláttur. LT225/75R16 33xll,5R16LT LT 215/75R15 32xll.50R15LT 235/85R16LT LT235/75R15 33xl2.50R15LT 31xl0.50R16.5LT 30x9.50R15LT 35xl2.50R15LT 33xl2.50R16.5LT 31xl0.50R15LT 255/85R16LT 35xl2.5R16.5LT /MdRTsf Jeppadekkin sem duga. Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.