Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 16

Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 Kærufrestur vegna „skattlausa“ ársins að renna út: Hveijir geta enn átt von á skattlækkun eða bótum? eftirSnorra Olsen Þann 29. júlí sl. lauk álagningu opinberra gjalda á árinu 1988 og var lögð fram álagningarskrá. Álagning ársins 1988 er að mörgu leyti sérstök vegna þess að hinn 1. janúar sl. var tekin upp stað- greiðsla skatta. Þetta hefiir það í för með sér að við áiagningu árs- ins 1988 er felld niður innheimta á álögðum tekjuskatti og útsvari af launatekjum ársins 1987. í álagningarskrá kemur m.a. fram álagður tekjuskattur og útsvar sem kemur til innheimtu og sú §árhæð sem felld er niður. Álagð- ur tekjuskattur einstaklinga nam 1.292.832 þús. kr. Af þessari fjár- hæð er um 2/a vegna áætlana sem líklega, verða felldar niður eftir að kærur frá viðkomandi einstakling- um hafa verið afgreiddar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda ársins 1988 að kirkjugarðs- gjöldum undanskildum, þurfa að hafa borist skattstjóra eða um- boðsmanni hans eigi síðar en 27. ágúst nk. í tengslum við álagningu opin- berra gjalda ákvarðar skattstjóri bamabætur, bamabótaauka, hús- næðisbætur og vaxtaafslátt. Bamabætur á árinu munu nema um 2.317 milljónum kr. og skipt- ast þær á milli rúmlega 70 þús. einstaklinga með eitt bam eða fleiri á framfæri. Bamabótaauki nemur um 677 milljónum og skipt- ist hann á milli tæplega 25 þús. einstaklinga. Húsnæðisbætur nema um 410 milljónum og skipt- ast þær á milli tæplega 10 þús. einstaklinga. Vaxtaafsláttur nem- ur um 680 milljónum kr. og skipt- ist hann á milli rúmlega 25 þús. einstaklinga. Húsnæðisbætur Þeir sem eiga rétt á húsnæðis- bótum á árinu 1988 eru eingöngu þeir sem keyptu eða hófu byggingu íbúðarhúsnæðis á árunum 1984— 1987, til eigin nota í fyrsta sinn. Hjón og sambúðarfólk sem skatt- lagt er saman á árinu 1988 og hafa keypt eða byggt saman íbúðar- húsnæði á árunum 1984—1987 og uppfylla skilyrði um rétt til hús- næðisbóta, eiga hvort um sig rétt á húsnæðisbótum. Bygging íbúðarhúsnæðis telst hafin þegar vottorð (úttekt) bygg- ingafulltrúa liggur fyrir um að und- irstöðum byggingar sé lokið eða þegar samningur er gerður um byggingu og þá miðað við að hús- næðið verði fokhelt í eigu rétthafa bótanna. Eftirfarandi reglur gilda um það hvað telst vera fyrsta íbúðarhús- næði einstaklings: 1) Ef um er að ræða fyrsta íbúðar- húsnæði sem einstaklingurinn eignast. 2) Hafi einstaklingur átt íbúð áður, en selt hana, afhent eða afsalað sér henni fyrir 1. janúar 1978 og hafi hann ekki átt íbúð frá þeim tíma til og með 1983 telst íbúð sem hann keypti eða hóf byggingu á á árunum 1984— 1987 vera fyrsta íbúðarhúsnæði hans. 3) íbúð sem einstaklingur á eða átti og hann keypti eða byggði 1987 eða síðar telst ekki vera fyrsta íbúð hans ef eignarhluti hans er/var undir 10%. 4) íbúð sem einstaklingur eignaðist fyrir arf eða gjöf 1987 eða síðar telst ekki vera fyrsta íbúð hans ef eignarhluti hans eftir arftök- una eða gjöfina er innan við 34%. 5) Hafi einstaklingur keypt eða byggt íbúðarhúsnæði á árunum 1978 til og með 1983 en selt það, afhent eða afsalað sér fbúð- arhúsnæðinu og eignarhaldstími hans hefur varað skemur en 2 ár áður en hann keypti eða byggði íbúðarhúsnæði á árunum 1984—1987 telst síðara íbúðar- húsnæðið vera fyrsta íbúðar- húsnæði í eigu hans. Eins og áður er greint frá hafa skattstjórar úrskurðað um hús- næðisbætur á árinu 1988. í ein- hveijum tilvikum hafa skattstjórar synjað umsækjendum um hús- næðisbætur. Þeir umsækjendur sem hafa fengið synjun skattstjóra um húsnæðisbætur geta gert at- hugasemdir við ákvörðun skatt- stjóra og skulu þær berast til skatt- stjóra viðkomandi umdæmis fyrir 1. september nk. V axtaaf sláttur Heimild samkvæmt skattalögum til þess að draga frá tekjum vaxta- gjöld vegna öflunar íbúðarhúsnæðis féll úr gildi 1. janúar sfðastliðinn. Þess í stað voru tekin upp ákvæði um húsnæðisbætur sem greint var frá hér að framan og sérstök ákvæði um vaxtaafslátt sem gilda í sex ár frá og með álagningarárinu 1988. Einstaklingar sem keypt hafa eða hafið byggingu íbúðarhúsnæðis til eigin nota á árinu 1987 eða fyrr og eiga ekki rétt á húsnæðisbótum eiga rétt á sérstökum skattafslætti, vaxtaafslætti, í allt að sex ár talið frá og með álagningarárinu 1988 ef hann hefði á þeim árum haft vaxtafrádrátt samkvæmt þeim reglum sem giltu fyrir 1. janúar 1988 um vaxtafrádrátt. Vaxtaaf- sláttur er reiknaður þannig út að hann nemur 40% af frádráttarbær- um vöxtum þegar frá þeim hefur verið dregin fjárhæð sem svarar til 7% af tekjuskattsstofni hvers manns. Sé um hjón að ræða er framangreint hlutfall reiknað af samanlögðum tekjuskattsstofnum þeirra beggja. Hámark er á því hve frádráttarbærir vextir geta orðið og breytist það í samræmi við skattvísitölu. Barnabætur Á árinu 1988 greiðir ríkissjóður / bamabætur með hveiju bami sem er innan 16 ára aldurs sem heimilis- fast er hér á landi og er á fram- færi þeirra manna sem skattskyldir era hér á landi samkvæmt 1. gr. laga nr. 75/1981. Bamabætur era greiddar út með fjóram ársfjórð- ungslegum greiðslum. Bamabætur greiðast frá og með fyrsta ársfjórð- ungi eftir að bam fæðist eða öðlast heimilisfestu hér á landi til og með þeim árs^órðungi að 16 ára aldri er náð eða heimilisfesti er slitið. Skattstjóri ákvarðar bamabætur. Telji einhver að bamabætur sínar séu ekki rétt ákvarðaðar getur hann leitað til skattstjóra með skriflega beiðni um leiðréttingu. Skal beiðnin lögð fram eigi síðar en 30 dögum eftir útborgun bótanna. Ákvörðun skattstjóra skal liggja fyrir við upp- haf næsta útborgunartímabils bamabóta. Barnabótaauki Með hveiju bami innan 16 ára aldurs á árinu 1987, sem heimilis- fast er hér á landi og er á fram- færi þeirra manna, sem era skatt- Snorri Olsen skyldir hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 75/1981, greiðir ríkissjóður bamabótaauka til framfæranda bamsins. Bamabótaauki skerðist eftir því sem tekjur og eignir fram- færanda fara upp fyrir ákveðnar fjárhæðir. Skerðingarhlutfallið mið- að við tekjuskattsstofn er breytilegt eftir því hve mörg böm era á fram- færi viðkomandi aðila. Skerðingar- hlutfallið er 7% fyrir 1. bam, 6% fyrir 2. bam, 5% fyrir 3. bam og 4% fyrir böm umfram það. Bamabótaauki er ákveðinn af skattstjóra við álagningu. Athuga- semdir við ákvörðun skattstjóra um bamabótaauka má kæra til skatt- stjóra viðkomandi umdæmis innan tilskilins kærafrests. Höfundur er deildarstjóri í tekju- deild fjármálaráðuneytisins. Dæmi: Hjón sem hafa samanlagðan tekjuskattsstofn að fjárhæð 1.000.000 kr. og greiða 400.000 kr. í frádráttarbæra vexti fengju 90.000 kr. í vaxtaafslátt. 400.000 x 40% = 160.000 1.000.000 x 7% = - 70.000 Vaxtaafslátturerþákr. 90.000 Einstaklingur sem hefur tekjuskattsstofn að íjárhæð 700.000 kr. og greiðir 350.000 kr. í frádráttarbæra vexti fengi 91.000 kr. í vaxtaafslátt. 350.000 x 40% = 140.000 700.000 x 7% = - 49.000 Vaxtaafslátturerþákr. 91.000 Á árinu 1988 er vaxtaafsláttur greiddur út og stafar það af því að verið er að taka upp staðgreiðslu skatta. A áranum 1989 til 1993 mun vaxtaafsláttur ekki verða greiddur út. Því meira sem til er af ein- hverju, því minna virði... eftir Pétur Björnsson Lögmálið, „því meira sem til er, því minna virði er hver eining" á jafnt við peninga sem vöra, þjón- ustu, hugmyndir o.s.frv. Öll hagkerfi era grandvölluð meira eða minna á þessu lögmáli. Skortur á „pólitískum ag-a“ Við Islendingar rekum þjóðarbú- skap sem býr við árvissan halla á fjárlögum, vegna þess að við lifum einfaldlega um efni ffarn og getum ekki staðið undir þeim kerfum og skuldbindingum, sem við höfum stofnað til og ríkið þarf að greiða. Þetta hefur það í för með sér að rétta þarf af gengi krónunnar á hveiju tímabili, svo hægt sé að halda hagkerfinu í jafnvægi. Svo lengi sem regla er á þessu og málum ekki slegið á frest, verða fómimar ekki eins sárar. (Samkv. lögmálinu að ofan því halli á fjárlög- um er brúaður með aukinni penin- gagrentun.) Ákveðinn hluti fjárlagahallans er til kominn fyrir bruðl hjá opinberam stofnunum og ráðuneytum, umfram Qárlög. Einnig á sér stað misnotkun (abuse) á kerfunum. Framorsakir okkar vandræða í rekstri þjóðarbúskaparins má rekja til skorts á aðhaldi, því hérlendis þekkist ekki „pólitískur agi“ eða „pólitísk prinsip". Annar stór þáttur í vandræðum okkar með þjóðarbúskapinn á rætur sínar að rekja til stjómskipulags okkar, þar sem ekki era gerð skýr skil milli löggjafarvalds og fram- kvæmdavalds í sijóm landsins, eins og tíðkást hjá öðram vestrænum þjóðum. „Rogastans'1 Ríkisstjómin bíður átekta og ýtir vandamálunum á undan sér, sem tíminn síðan magnar upp og gerir að lokum illviðráðanleg, líkt og lítill eldur sem stækkar og verður að báli, ef ekkert er að gert. Ef stjómvöld era ákveðin, eins og nú háttar málum, að halda áfram að skattleggja nýja stofna með virðisaukaskatti til þess að seðja sivaxandi halla á fjárlögum, þá koma þessar álögur til með að virka sem neikvæðir skattar, sem sam- hliða innlendum lántökum ríkissjóðs munu hrifsa burtu fjármagn frá atvinnuvegunum og sverfa svo að einstaklingum að stöðnun nær að setjast að í hagkerfinu. Stöðnunin tekur með sér langan hala gjaldþrota svo að lokum stefnir í „rogastans" (stagnflation), stöðn- un með verðbólgu, þegar hjól at- vinnulífsins hætta smám saman að snúast. — Við finnum fyrst fyrir því að við lifum um efni fram, þegar við verðum vör við að skattlagn- ing er orðin neikvæð, byrjar að bijóta niður kerfið og velta öllu úr jafnvægi. Sama niðurstaða verður upp á teningnum ef „niðurfellingarleið- inni“ er beitt af ríkisstjóminni gegn verðbólgunni. Hún mun óhjákvæmi- lega skapa ójöfnuð í kerfinu, sam- fara þungri miðstýringu ríkisvalds- ins. Hún mun kasta fyrir borð þeim árangri sem hefur áunnist gegnum þróun undanfarinna ára í átt til fijáls markaðar og afnáms ríkis- rekstrar og ríkishafta. Það er einmitt þessi þróun sem byggir sterkari grundvöll undir þjóðarframleiðslu okkar og gerir okkur kleift að standa betur að vígi gagnvart öðrum iðnvæddum þjóð- um ( vaxandi samkeppni á alþjóða- vettvangi. Á nýjuin vígstöðvum Verðmætasköpun okkar er sett í hættu með þróun mála í dag sem einkennast af verðbólgu, halla á ijárlögum og viðskiptum við útlönd og nýjum fjáröflunarleiðum rfkisins. Meðan þetta er að gerast er nýtt vandamál í uppsiglingu. Fiskurinn okkar á Bandaríkjamarkaði hríð- fellur í verði og eftirspum minnkar. Dýrkeyptur biti Bandaríkjamarkaður hefur hing- að til verið talinn okkar besti og verðmætasti markaður erlendis fyr- ir okkar fiskafurðir. Það væri mjög alvarlegt mál ef við misstum hann niður. Náttúravemdaröfl og grænfrið- ungar halda uppi mikilii áróðurs- herferð í Bandaríkjunum og hafa hvatt fólk til þess að sniðganga íslenskar afurðir, vegna hvalveiða okkar. Nú benda flestar líkur til þess að við séum að taka afleiðingunum af þrákelkni og einblíni í hvalveiði- málunum, sem getur reynst þjóðinni dýrkeyptur biti. Hran á þessum markaði getur valdið meiriháttar efnahagslegu tjóni hjá okkur og sett okkar bú- skap úr jafnvægi. Búast má við samskonar viðbrögðum hinum meg- in Atlantshafsins. Tími er kominn fyrir okkur að skoða markaðsmálin með raunsæj- um augum, og finna út hversu þungt hvalurinn vegur í framtíð okkar og velgengni. Pétur Bjömsson „Nú benda flestar líkur til þess að við séum að taka af leiðingunum af þrákelkni og einblíni í hvalveiðimálunum, sem getur reynst þjóðinni dýrkeyptur biti.“ — Allt þetta fyrir svo lítinn þátt sem hvalveiðar eiga í þjóðarfram- leiðslu okkar. — Uppgjör, g'engisfelling’ Með fæðingu verðbólgu upp úr seðlaprentun ríkisins, sem belgir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.