Morgunblaðið - 24.08.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
35
Nýr flugvélahreyfill
„frumsýndur“ á Islandi
ÍSLENDINGAR fengu fyrstir
Evrópubúa að líta eigin augum
nýjustu tækni í þróun farþega-
flugvéla á Keflavíkurflugvelli sl.
sunnudag. Tækniundrið er flug-
vél af gerðinni McDonnell Dougl-
as MD-8I, sem er búin nýrri gerð
flugvélahreyfils, General Electr-
ic „Unducted Fan“ (UDF) skrúfu-
hverfli öðrum megin og venju-
legum þotuhreyfli hinum megin.
Þessi nýja gerð hreyfils samein-
ar kosti þotuhreyfilsins og loft-
skrúfunnar og sem dæmi um
eldsneytisnotkun mun framtíðar-
flugvél knúin tveimur UDF-
hreyflum (McDonnell Douglas
MD-92) nota innan við helming
af því sem Boeing 727 200 notar.
Nýi hreyfillinn er ennfremur tal-
inn mun hljóðlátari en þotu-
hreyflarnir sem knýja farþega-
flugvélar í dag.
Viðkoma sýningarflugvélar
McDonnell Douglas og General
Electic á Keflavíkurflugvelli er
sögulegur atburður því þetta er í
fyrsta sinn sem flugvél þessi er
sýnd almenningi, en hún er nú á
leiðinni á alþjóðaflugsýninguna í
Famborough í Bretlandi, sem hefst
4. september nk.
Aðstandendur nýju flugvéla-
tækninnar, McDonnell Douglas og
General Electric, héldu kynningar-
fund í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
sl. sunnudag fyrir fulltrúa Flug-
málastjómar, flugfélaganna og fjöl-
miðla þar sem þeir gerðu grein fyr-
ir tilraunum sínum í máli og mynd-
um.
General Electric-hreyfíllinn er sá
fyrri af tveimur „Ultra High By-
pass“-hreyflum sem verða reyndir
á MD-81-þróunarvélinni, en í haust
hefjast tilraunir með hreyfil sem
fyrirtækin Pratt & Whitney og Alli-
son hafa hannað í sameiningu.
Þessir hreyflar eru hannaðir utan
um háþróaðan hverfílkjama sem er
framan við tvær raðir af breiðum
og sveigðum loftskrúfublöðum sem
snúast í gagnstæðar áttir. Hreyfl-
amir em með það sem kallast mjög
hátt framhjáhlutfall, eða „Ultra
High Bypass Ratio“, en það er hlut-
fall lofts sem streymir í gegnum
hverfilkjamann og loftið sem
streymir í gegnum spaðana. í full-
komnum þotuhreyflum sem em í
notkun á farþegaflugvélum í dag
er þetta hlutfall einn á móti sex,
en er einn á móti þijátíu og sex í
„UHB“-hreyflum.
Tilraunaflug með General Electr-
ic-hreyfílinn hófust í marsmánuði á
sl. ári og stóð fyrri hluti reynslu-
flugsáætlunarinnar yfir í heilt ár.
Síðari hluti reynsluáætlunarinnar
hófst í síðasta mánuði og em sýn-
ingarflug innifalin í þeim hluta til-
raunanna.
Nýju „UHB“-hreyflamir frá Gen-
eral Electric og Pratt & Whitn-
ey/Allison munu væntanlega knýja
nýja kynslóð farþegaflugvéla sem
McDonnell Douglas er nú að bjóða
flugfélögum: MD-91 sem mun taka
114 farþega og MD-92 sem mun
taka 165 farþega. Þessar flugvélar
em ætlaðar til notkunar á stuttum
og miðlungslöngum flugleiðum og
byggja á reynslu McDonnell Dou-
glas sem hófst með smíði DC-9-
farþegaþotunnar. Þegar hafa mörg
flugfélög lýst yfír áhuga á MD-90-
kynslóðinni, en fyrstu flugvélar
knúnar General Electric-UDF-
hreyflum geta verið tilbúnar til af-
hendingar árið 1993. Ennfremur
er McDonnell Douglas með áform
um að bjóða flugfélögum lang-
dræga útgáfu af MD-92-vélinni,
sem gæti flogið um 5.200 km leið
með 180 farþega.
Til stóð að sýna gestum „UHB“-
sýningarvélina að innan en vegna
rigningar og hvassviðris síðdegis á
sunnudag varð að hætta við nánari
skoðun, en engu að síður fengu
viðstaddir mjög gott innsýni í flug-
vélatækni framtíðarinnar. - PPJ
Morgunblaðið/PPJ
Vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli var breitt yfir nýtisku loft-
skrúfublöð McDonnell Douglas/General Electric „UHB“-sýningaryél-
arinnar, en enn sem komið er eru blöðin ekki búin afísingarbúnaði.
ísafjarðarflugvöllur:
Minniháttar bilun í F okkemum
Ekki nauðlending, en lent af öryggisástæðum, segir blaðafulltrúi Flugleiða
MINNI háttar bilun í aflúttaksgír
við hreyfil olli þvi að lent var af
öryggisástæðum, að sögn Einars
Sigurðssonar blaðafulltrúa Flug-
leiða. Fokker flugvél frá félaginu
þurfti að lenda aftur á ísafjarðar-
flugvelli skömmu eftir flugtak á
mánudagskvöld og hafði verið
slökkt á öðrum hreyfli vélarinnar
vegna þessarar bilunar. Einar
sagði að ekki hefði verið um
nauðlendingu að ræða, heldur
einungis verið að framfylgja
ströngum öryggisreglum, sem
gilda um flug.
Aflúttaksgírinn sem bilaði er ekki
hluti af sjálfum hreyflinum og hefur
ekki áhrif á flughæfni vélarinnar.
Gírinn knýr ýmsan aukabúnað í
flugvélinni, svo sem loftræstikerfí
og fleira. Flugvirkjar voru sendir
vestur á ísafjörð strax á mánudags-
kvöld og gerðu þeir við bilunina til
bráðabirgða. Vélinni var flogið til
Reykjavíkur í gærmorgun fyrir afli
beggja hreyfla og þar var viðgerð
lokið. Einar sagði flugvélina vera
komna í lag og í fulla notkun á ný.
Hann sagði að aldrei hefði verið
hætta á ferðum, flugvélin hefði get-
að flogið á öðrum hreyflinum ef
þess hefði þurft. Hins vegar hefði
verið fylgt ströngustu öryggisregl-
um og lent strax aftur.
Einar sagði tíðni bilana ekki hafa
aukist í Fokker vélunum, viðhald
og eftirlit væri einn stærsti kostnað-
arliðurinn í rekstri innanlandsflugs
Flugleiða. Hann sagði ennfremur
að þetta mikla eftirlit tryggði, að
t.d. hreyflar vélanna væru teknir í
gegn frá grunni með ákveðnu milli-
bili og því væru þeir í reynd yngri
en sjálfar vélamar. Eftir því sem
flugvélamar verða eldri, aukast
kröfur um viðhald og eftirlit og
sagði Einar Sigurðsson að í engu
væri slakað á kröfunum að hálfu
Flugleiða og Fokker vélamar væm
í mjög góðu ástandi.
Börn að
leik með
eldspýtur
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að
Furugrund 72 í Kópavogi í gær.
Þar höfðu börn borið eld að
barka úr tauþurrkara í kjallara
hússins og lagði nokkurn reyk
frá.
Slökkviliðið var örskamma stund
að slökkva í barkanum og fjarlægja
hann. Þurrkarinn er jafnheill eftir
og áður.
Við eigum ennþá nokkra bíla á þessu
frábæra tilboðsverði, kr. 669.500-
(hann kostaði áður 748.000-)
Samkvæmt gengisskráningu 5. júlí 1988.
VIÐ TÖKUM GÓÐA NOTAÐA BÍLA UPP í KAUPVERÐIÐ.
HONDA CIVIC SEDAN
kr. 669.500-
H HONDA
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900