Morgunblaðið - 08.09.1988, Page 2
2 «
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPri AIVINNULÍF 1UMMTUDSGUR 8. SEPTEMBER 1988
Samgöngur
Eimskipafélagið hefur
farþegaflutninga að nýju
Með tilkomu nýrra ekjuskipa
EIMSKIPAFÉLAG íslands mun
í nóvember taka í rekstur tvö
ekjuskip, sem félagið festi kaup
á fyrr á þessu ári. Skipununum
verða gefin nöfnin Brúarfoss og
Laxfoss. Nýtt siglingakerfi tekur
þá gildi og í tengslum við þær
breytingar mun Eimskip skila
skipunum Tinto og Dorado úr
leigu og unnið er að sölu á ekju-
skipunum Álafossi og Eyrarfossi.
Verða þetta stærstu skipin í eigu
félagsins, en hvort um sig er rúm-
lega 10 þúsund lestir, og geta þau
flutt rúmlega 700 gámaeiningar
hvort. Til samanburðar má geta
þess, að stærstu skip félagsins í dag
geta flutt liðlega 400 gámaeining-
ar. Umtalsverðar breytingar verða
gerðar á þessum tveimur skipum,
sem miða að því að gera þau sem
fjölhæfust til flutninga á bílum og
gámum.
Helstu breytingar verða þær að
Brúarfoss og Laxfoss verða í viku-
legum siglingum til meginlands
Evrópu og Bretlands. Bakkafoss og
leiguskipið Alcyone, sem til þessa
hafa verið í Ameríkusiglingum
verða í vikulegum siglingum til
SIGLINGAR — Teikning af nýju skipum Eimskipafélagsins.
Norðurlanda og Bretlands, með við-
komu í Vestmannaeyjum. Skógar-
foss og Reykjafoss verða í Ameríku-
siglingum, en voru áður í siglingum
til Norðurlanda. Dettifoss og Urr-
iðafoss verða í föstum áætlunar-
ferðum til Eystrasaltslanda með
viðkomu á Reyðarfirði og í Færeyj-
um. Mánafoss og Ljósafoss verða
áfram í strandsiglingum.
Þessi nýju skip munu auka af-
kastagetuna í meginlands- og Norð-
urlandasiglingum og Ameríkusigl-
ingum fjölgar, sem eykur mögu-
leika á viðskiptatengslum þar.
Einnig verða reglubundnar hálfs-
mánaðarlega siglingar til Eystra-
saltslanda, en til þessa hafa einung-
is verið ferðir mánaðarlega til þess-
ara landa.
í Brúarfossi og Laxfossi verða
innréttaðir sex tveggja manna kle-
far og tilheyrandi aðstaða til flutn-
inga á 12 farþegum. í skipunum
verða matsalur, setustofa, lítil sund-
laug og gufublað fyrir farþega.
Skipstjóri á Brúarfossi verður
Erlendur Jónsson og yfirvélstjóri
Gísli Hafliðason. Skipstjóri á Lax-
fossi verður Bemódus Kristjánsson
og yfírvélstjóri Hreinn Eyjólfsson.
Fyrirtæki
Verslun Gráfeldar
lögð niður
mmm
SCHAFER
v-þýsk gæðavara
G.Á. Pétursson hf.
Umboös- og heildverslun
Smiöjuvegur 30 E-gata,
Kópavogur Simi 77066
GRÁFELDUR hf. hefur ákveðið
að hætta rekstri smásöluverslun-
ar við Borgartún og eingöngu
sinna heildsölu á þeim vörum
sem fyrirtækið hefur umboð fyr-
ir. Fyrirtækið hefur um árabil
rekið verslun með húsgögn og
gjafavöru og flutti starfsemi sína
úr miðbænum inn í Borgartún á
siðastliðnu ári.
„Það er sama að gerast hjá mér
eins og öðrum. Samkeppnin er
gífurlega mikil og fjármagnskostn-
aður svo og annar kostnaður hefur
hækkað mikið," sagði Agnar Svan-
bjömsson, framkvæmdastjóri Grá-
felds í samtali við Morgunblaðið.
„Við munum halda áfram að starf-
rækja ákveðin umboð, t.d. fyrir
Lundia en ekkert hefur verið ákveð-
ið hvar fyrirtækið verður eða hvetj-
ir koma til með að selja vömmar
í smásölu. Verslunin hér í Borgart-
úni í því formi sem hún er nú rek-
in, hættir og þess vegna emm við
með rýmingarsölu þar sem allt verð-
ur selt — bæði gjafavara og hús-
gögn.“
Agnar sagði að miklu fleiri fyrir-
tæki væm á húsgagnamarkaðnum
en fyrir nokkmm ámm. Sala á skja-
lageymslum sem aðallega færi fram
gegnum tilboð hefði gengið ágæt-
lega en ekki húsgagnaverslunin.
3
jH ||ji ' ■■ ■: Í|$|? ['Ia- Xl' l >'Y- Ifði Bði |ii- ii ii iii
Morgunblað/RAX BJARNARBORG — Erfíðlega hefur gengið að selja íbúðim- ar í Bjamarborg og því nýjar hugmyndir að vakna um það hvemig nota eigi íbúðimarj
Stofnun hlutafélags
um Bjarnarborg
— til athugunar hjá Dögun sf.
FYRIRTÆKIÐ Dögun sf.,sem
stendur að endurbyggingu
Bjarnarborgar, hefur uppi hug-
myndir um að stofna sérstakt
hlutafélag um rekstur hússins
með aðild fleiri aðila en erf iðleik-
ar hafa verið með sölu á hús-
næðinu um all langt skeið. Dögun
sf. á um 960 fermetra af húsinu
en um 300 fermetrar voru sem
kunnugt er seldir í vor til veit-
ingahússins Alex.
„Ef það er sjáanlegt að dæmið
gangi upp og hlutabréf skiluðu arði
held ég að margir væm til í taka
þátt í rekstri hlutafélags um Bjam-
arborg. Hlutafélagið gæti farið í
frekari rekstur fasteigna sem væri
hægt að gera með litlu fjármagni
og án áhættu," sagði Hjörtur Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri Dög-
unar sf. í samtali við Morgunblaðið.
„Fyrirtækið stæði aðeins í þeim
rekstri að kaupa hús með áhvílandi
skuldum og gæti á löngum tíma
eignast digran sjóð. Innheimta hú-
saleigutekna væri í höndum banka
og viðhald með svipuðum hætti.
Rekstur fasteigna hefur um allan
heim verið talinn traustur rekstur."
Hjörtur sagði að mikil vinna
væri í gangi við húsið og ynnu nú
9 smiðir við að klæða það að inn-
an. Gert væri ráð fyrir að húsið
yrði tilbúið um áramót en í því yrði
auk skrifstofu- og verslunarhús-
næðis, íbúðir þar sem aðstaða í risi
gæti auk þess fylgt með t.d. undir
teiknistofur.
Sjávarútvegur
Ferskfiskútflutningur
1200 tonnum minni
— fyrstu 7 mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra
ÚTFLUTNINGUR á f erskum fiski
var n'imnm 1200 tonnum minni
fyrstu 7 mánuði ársins miðað við
sama tíma i fyrra. Alls voru flutt
út rúmlega 55 þúsund tonn að
verðmæti rúmar 3410 mil\jónir.
Samdrátturinn i magni er um 3%
en verðmætaaukning i islenskum
krónum um 10%. Verð i Bretlandi
FJARMALAWONUSTA
FJÁRMÖGNUNARLEIGA
689050
SUÐURLANDSBRAUT 22
108 REYKJAVÍK
Allt
í röð og reglu
- án þess að vaska upp!
Komdu kaffistofunni á hreint.
Duni kaffibarinn sparar þér bæði
tíma og fyrirhöfn. i—
Getur staðið á / Máimst
I iuui
borði eða hangið / Hötiur(iostk)
^,rr'ál(2000stk.kr
kr.
uppa vegg.
En það besta er
Ekkert uppvask.
25% söluskattur
Samtals
Duni
UMBQÐIO
FAINIIMIR HF
Bíldshöföa 14 s: 67 2511
og Þýskalandi hefur þó heldur
lækkað i erlendri mynt að þvi er
fram kemur i Fiskifréttum.
Samkvæmt upplýsingum frá LÍU
var meðalverð á öllum fiski sem flutt-
ur var út fyrstu sjö mánuði ársins
61,96 krónur fyrir hvert kíló en það
er um 13% hækkun frá sama tíma
í fyrra. Gengi krónunnar hefur verið
fellt tvivegis á þessu tímabili þannig
að sterlingspund hefur hækkað um
tæp 18% og þýskt mark um 10,5%
frá áramótum. Hæst meðalverð hefur
fengist fyrir ýsu, 74,41 kr/kg og
hafa allar tegundir hækkað í íslensk-
um krónum nema ufsi sem lækkaði
um tæpar 6 krónur hvert kíló og þá
hefur verð grálúðu staðið í stað.
Tæplega 15 þúsund tonn af fersk-
um fiski voru flutt út til Þýskalands
sem er um 24% minna magn en á
sama tíma í fyrra. Verðmæti útflutn-
ingsins nam tæpum 797 milljónum
króna eða um 19% lægri upphæð í
krónum talið en í fyrra en 25% minna
talið í þýskum mörkum. Meðalverð
á kfló í þýskum mörkum lækkaði úr
2,32 mörkum í 2,31 mörk. Meðalverð
á karfa hækkaði þó úr 2,34 mörkum
í 2,46 mörk en meðalverð á ufsa
lækkaði úr 2,39 í 2,01 mörk.
Til Bretlands voru flutt tæp 40
þúsund tonn að verðmæti tæplega
2,6 milljarðar króna og var meðal-
verð á kíló 65,29 krónur sem er 6%
hærra verð en á sama tfma í fyrra.
Verðmæti útflutnings jókst um 7%
en meðalverð fyrir hvert kfló lækk-
aði í pundum talið um 2%. Loks seg-
ir í Fiskifréttum að allar fisktegund-
ir hafi hækkað í verði í Bretlandi ef
miðað er við verð í íslenskum krónum
og útflutningur aukist á öllum teg-
undum.