Morgunblaðið - 08.09.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIFTLXIVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
B 5
HANDHÆG — Ljósritun-
arvélin fer vel í hendi og ekki
tekur langan tíma að ná tækninni
við að ljósrita, eins og sést hér á
myndinni. Vélin er 10 sm á hæð,
14,3 á lengd og liðlega 5 sm á
breidd. Þyngd vélarinnar er rétt
innan við hálft kíló. Hún nýtist
því vel þeim sem þurfa að ljósrita
eitthvað smávegis á ferðalögum,
en samfelldur ljósritunartími vél-
arinnar er 20 mínútur.
Á markaðinum
Ný handljósritunarvél
VERIÐ er að setja á markað hér
á landi litla handhæga ljósritunar-
vél frá japanska rafeindarisanum
Mathushita Electric. Vél þessi
nefnist Panasonic Electronic
Handy Copy, er mjög fyrirferð-
alítil og er einkum talin henta
kaupsýslumönnum á ferðalögum,
þar sem vélin kemst auðveldlega
fyrir í handtösku en einnig fjöl-
miðlafólki, fræðimönnum og jafn-
vel námsmönnum. Sem sagt öllum
sem geta þurft að taka afrit af
einhveijum fróðleiksmolum eða
minnisatriðum nánast fyrirvara-
laust.
Handljósritunarvélin frá Pana-
sonic er ekki stærri en svo að hún
fer vel í hendi.
Pappírinn í vélina er á rúllum,
svipað því og þekkist frá reiknivél-
um, en renningurinn er tæplega 7
sm. breiður og 10 metra langur.
Samfelldur ljósritunartími er sagður
20 mínútur, miðað við að verið sé
að ljósrita af dagblaðapappír við
stofuhita. Vélin er með hleðsluraf-
hlöðum og fylgir henni því hleðslu-
tæki. Samkvæmt lýsingum framleið-
anda tekur um 8 klst að fullhlaða
vélina.
Panasonic Electronic Handy Copy
er mjög einföld í notkun. Takkar og
stillingar eru lágmarki eða fjórir alls,
þ.e. takki sem setur vélina í gang,
annar sem opnar hólf til að draga
út pappírinn, hinn þriðji til að stilla
skerpuna og loks stór takki á hlið
sem setur vélina af stað til að ljós-
rita.
Eilítinn tíma tekur að ná leikni
við að ljósrita á þennan hátt með
handaflinu. Vélinni er haldið upp á
endann og sett yfir það sem á að
ljósrita. Haldið er í renningsendann
en síðan ýtt á takka þann sem hefur
ljósritunina. Síðan er farið af stað
áleiðis eftir fletinum sem á að ljós-
rita og er mælt með að farinn sé
um einn sentimetri á sekúndu. Mikið
ríður á að hreyfingin sé jöfti og stöð-
ug, því að annars skekkjast stafímir
sem verið er að lósrita. Vafasamt
er því að ljósritunin heppnist í fyrsta
sinn en eftir 2-3 tilraunir ættu menn
að vera búnir að ná laginu.
Það er fyrirtækið Rafborg sf. sem
er með heildsöludreifíngu á Pana-
sonic handljósritunarvélinni en gert
er ráð fýrir að tækið kosti hér út
úr búð í kringum 15 þúsund krónur.
Fólk í atvinnulífinu
Ráðinn útibússtjórí Út-
vegsbankans íKeflavík
fN
EIRÍKUR Alex-
andersson hef-
ur verið ráðinn
útibússtjóri Út-
vegsbanka ís-
lands í
Keflavík.
Akvörðun þessi
var tekin á
fundi bankar-
áðs bankans 1.
september sl.
en ekki er
ákveðið hve-
nær Eirikur hefur störf hjá
bankanum.
Eiríkur Alexandersson er rótgró-
inn Suðumesjamaður, fæddur í
Grindavík 13. júní 1936. Hann var
kaupmaður i Grindavík um 11 ára
skeið, áður en hann tók við em-
l
Eiríkur
bætti sveitarstjóra í Grindavík
1971, en þvi starfi gegndi hann þar
til hann varð bæjarstjóri Grindavík-
ur 1974. 1983 réðist hann sem
framkvæmdastjóri til Sambands
sveitarfélaga á Suðumesjum og
hefur starfað þar siðan.
Eiríkur er ekki heldur með öllu
ókunnur bankastarfsemi, þvi hann
starfaði í tvö ár hjá svokölluðu
Suðumesjaútibúi Landsbanka ís-
lands í Grindavík og jafnframt hef-
ur hann setið i stjóm Sparisjóðs
Keflavíkur frá árinu 1986. Þá var
hann fyrsti formaður Lionsklúbbs
Grindavíkur og hefur starfað mikið
í Lionshreyfíngunni.
Eiríkur Alexandersson er kvænt-
ur Hildi Guðrúnu Júlíusdóttur og
eiga þau tvo syni.
Fræðsla
Námskeið í hugbúnaðargerð
Á vegum Endurmenntunarnefndar Háskóla íslands, i samvinnu við
Félag íslenskra iðnrekenda og Skýrslutæknifélag íslands verður i vet-
ur boðið upp á röð námskeiða fyrir þá sem starfa við hugbúnaðar-
gerð. Markmið þessarar samvinnu er að efla islenskan hugbúnaðariðn-
að.
Á námskeiðunum verða kynntar
nýjungar í tölvunafræðum, nýjar
aðferðir við þróun og framleiðslu
hugbúnaðarkerfa og kennd verður
verkefnastjómun við hugbúnaðar-
gerð.
Námskeiðin hafa skipulagt þeir
Oddur Benediktsson, Páll Jensson
og Helgi Þórsson frá Háskóla ís-
lands, Bjami Júlfusson og Björgvin
Schram fiá hugbúnaðariðnum og
Bergur Jónsson frá Verslunarbanka
íslands.
Morgunblaðið hafði samband við
Odd Benediktsson prófessor í tölvun-
arfræði við Háskóla íslands og innti
hann eftir þessum námskeiðum.
„Hver er ástæðan fyrir þvf að
þessir aðilar taka sig saman um þetta
verkefni nú?“
„í skýrslu Rannsóknarráðs ríkisins
frá árinu 1986 um tölvu- ogupplýsin-
gatækni á íslandi var sérstök áhersla
lögð á það að styrkja þyrfti sfmennt-
un á þessu sviði, m.a. í hugbúnaðar-
verkfræði og annarri aðferðafræði
við framleiðslu hugbúnaðar. Með
þessu átaki eram við að stíga fyrsta
skrefíð og teljum það reyndar löngu
tímabært."
„Hafa margar nýjungar- komið
fram á þessu sviði á sl. áram?“
„Já, það hefur t.d. orðið veraleg
áherslubreyting hvað þau „hug-
búnaðarverkfæri" varðar, sem notuð
era við framleiðsluna og talsverðar
nýjungar era á þvf sviði. Erlendis era
lagðar gífurlegar flárhæðir t.d. í
Efnahagsbandalaginu að bæta og
samræma aðferðir f þessum iðnaði.
Hér á Islandi fara nú þegar allt að
eitt þúsund ársverk í hugbúnaðar-
gerð og því augljóst að miklu skiptir
að vel sé að verki staðið."
í október verða haldin námskeiðin
Hlutbundin forritun og Unix kynn-
ing. í nóvember Þátttaka notenda
{kerfisgerð, Verkefnastjórnun við
hugbúnaðargerð og Tölvusam-
skipti. Áætluð era fímm námskeið
eftir áramót.
Allar upplýsingar um námskeiðin
má fá á skrifstofu endurmenntunar-
stjóra Háskóla íslands, en skráning
þátttakenda er á aðalskrifstofu Há-
skólans, f slma 694306.
GENGI VIKURNAR BREYTINGAR Á GENGI GREIDDUR ARÐUR
Reikn. ár Rekstrar- tekjur Rekstrar- hagnaður Nettó hagnaður V/H margf. HPH 36-37 Frá 31.12. 1987 Relkn.ár Fyrra ár
Staðgreiðsla Innra virði KAUP SALA sfðustu skrán. 12mán. af nv. af e.f. af nf. af e.f. Fjöldi hluthafa
Eimskip 87 4.419,00 321,00 272,00 6,25 50,37 3,44 3,00 3,15 9,00% 69,35% 126,62% 10,00 1,45 10,00 1,37 13000
Flugleiðir 87 7.733,00 (194,00) 14,5 81,79 3,07 2,51 2,40 2,51 3,72% 47,65% 92,09% 10,00 2,66 10,00 1,31 3717
Hampiðjan 87 632,2 40,2 25,6 8,11 15,17 1,90 1,17 1,23 6,03% 11,41% 30,30% 10,00 4,21 10,00 3,59 152
Iðnaðarbankinn 87 2.241,00 n.m. 106,8 7,18 22,69 1,47 1,54 1,63 0,00% 30,93% 40,93% 9,50 5,19 8,00 3,53 1935
Verslunarbankinn 87 1.530,00 n.m. 40,6 10,44 12,65 1,32 1,28 1,32 1,54% 22,60% 30,39% 10,00 6,08 7,00 4,05 1000
Umboðssala*
Almennar T ryggingar 87 307,4 n.m. (15,5 ) neg. -27,58 1,08 1.1 1,16 0,00% -10,77% 0,00% 0,00 0,00 10,00 7,10 250
Alþýðubankinn hf. 87 814,1 n.m. 43,00 3,63 27,52 1,21 0,90 1 0,00% 22,02% 22,02% 5,00 3,39 0,00 0,00 850
fsl. Útvarpsfélagið 87 85,8 1,23 2,2 18,32 10,81 1,44 1,89 1,98 0,00% n.m. n.m. 10,00 5,51 10,00 6,51 164
Olfufélagið hf. 87 3.908,8 84,08 53,3 17,16 16,90 5,04 2,76 2,9 0,00% -50,29% -42,00% 10,00 1,65 10,00 1,59 203
Samvinnubankinn hf. 87 1.595,2 n.m. 48,3 7,11 14,07 1,33 0,90 1 0,00% 13,64% 25,00% 5,00 3,01 0,00 0,00 1509
Skagstrendingur hf. 87 389,1 37,97 39,1 2,68 62,70 4,85 1,59 1,68 0,00% 24,44% 26,45% 10,00 1,47 10,00 1,24 240
Tollvörugeymslan 87 80,9 5,43 7,6 11,60 8,62 1,20 0,95 1 0,00% 20,19% 25,00% 10,00 6,68 10,00 5,93 592
Útgerðarfél. Akur Tilboð** 87 922,00 158,43 131,5 3,16 39,91 1,45 1.1® 1,26 0,00% 8,62% 15,24% 5,00 2,30 5,00 2,33 775
T ry ggingamiðstöðin 87 406,40 n.m. 28,8 3,38 26,67 1,29 1,32 1,35 0,00% 1,25% 1,25% 10,00 5,17 10,00 6,51 88
islenskur Markaður + 86-87 138,2 6,89 1.4 131,91 6,82 . 7,79 8,80 9 0,00% 0,00% 0,00% 26,65 3,42 29,05 3,70
* Hlutabréf tekin f umboðssölu. Uppgefið gengi er sfðasta sölugengi. Engar hlndranir með viðskipti bréfanna skv. samþykktum féiaganna.
** Siðasta skráða sölugengi hlutabréfa sem seld eru skv. tilboðsgerð. Takmörk eru sett með viðskipti bréfanna skv. samþykktum félaganna.
*** Innra vlrði = Heildareigið fé pr 1 kr. I hlutafé sbr. ársreikning. Ekkl er teklð tillrt til framtíðartekna.
V/H: er núverandi virði hlutabréfanna skv. sölutiiboði hlutabréfanna deilt með nettó hagnaði ársins.
HPH: er hagnaður ársins á hverjar 100 kr i nafnverði eftir jöfnun.
+ Tilboð óskast i þessi hlutabréf.
HBBwwwnWiaalAl
FJARFESTINGARFELAGIÐ
VERBBRÉFAMARKAÐUR
Hafnarstræti 7 101 Reykjavik S (91) 28566, Kringlunni 103 Reykjavik 8(91)689700
Ráðhústorgi 3 600 Akureyri 8 (96) 25000