Morgunblaðið - 18.09.1988, Blaðsíða 1
JMfógtmlftifrttÞ
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
BLAÐ
STANISLAV LEVTSJENKO, LANDFLÓTTA KGB-MAÐUR,
f SAMTALI VIÐ MORGUNBLAÐIÐ
KGB
/
ÁRIÐ 1982 dæmdi herdómstóU í Moskvu Stanislav Levtsjenko til
dauða. Levtsjenko var yf irmaður hjá KGB i Tókýó en leitaði pólitisks
hælis í Bandaríkjunum árið 1979. Hann segist fara nyög varlega
af þessum sökum, sérstaklega þegar hann ferðast utan Banda-
ríkjanna. Til dæmis ferðaðist hann undir dulnefni þegar hann var
hér á íslandi i síðustu viku. Levtsjenko segir að dauðadómurinn
hafi ekki komið sér á óvart heldur hafi i raun verið óumflýjanlegur
eftir að hann tók þá ákvörðun að flýja vestur. Fyrr á þessu ári kom út
í Bandaríkjunum sjálfsævisaga Levtsjenkos, sem ber heitið Oa the
wrongaide og var tilgangurinn með för hans tU íslands m.a. að
kynna bókina þar sem hann hafði fengið þær upplýsingar hjá útgef-
anda sínum að liklega væri ekki tíl eitt einasta eintak af henni á
íslandi. Levtsjenko hefur ferðast um aUa Evrópu og sagðist alltaf
hafa langað til að komast tU íslands þar sem hann hefði lesið sér tíl
um sögu landsins og menningu. Þá hefði unnusta hans, sem er
menntuð i norrænum tungumálum, ferðast um ísland fyrir nokkrum
árum og hrifist nyög af landinu. Unnusta hans er sovésk og starf-
aði við sovéska sendiráðið í Washington þar tíl hún leitaði pólitísks
hælis i Bandaríkjunum fyrir tíu árum. Morgunblaðið náði tali af
Levtsjenko meðan á dvöl hans hér stóð og ræddi við hann um starf-
semi KGB og stöðu mála í Sovétríkjunum. Levtsjenko sagðist ekki
vera sérfræðingur í starfsemi KGB á Norðurlöndum en vinnubrögð
KGB væru í öllum grundvallaratriðum þau sömu um aUan heim.
Út frá þeirri forsendu væri hægt að ræða starfsemi KGB á íslandi.
Stanislav Levtsjenko var sýndur listi, sem birtist
í Morgunblaðinu fyrir skömmu, yfir sovéska
leyniþjónustumenn sem starfað hafa á íslandi.
„Nei, ég kannast ekki við þessi nöfn,“ sagði
Levtsjenko, „enda ekki nema von, þetta eru
menn sem störfuðu í öðrum heimshluta en ég.“
Levtsjenko sagðist hafa starfað sem KGB-maður
í Japan en starfsaðferðir KGB væru þær sömu
hvar sem er í heiminum. Út frá þeirri staðreynd
mætti ræða starfsemi þeirra á Norðurlöndum.
Morgunblaðið/RAX
Munurinn á KGB og vest-
rænum leyniþjónustum
„Njósn er mjög fom atvinnugrein
og flestar leyniþjónustur nota í
grundvallaratriðum sömu aðferðir.
• Munurinn á sovésku leyniþjón-
ustunni og vestrænum leyniþjón-
ustum er í fyrsta lagi stærðin. KGB
er sú fjölmennasta af þeim öllum
og hefur í öðra lagi mjög strangan
aga, þar sem þetta er hemaðarleg
leyniþjónusta. Allir KGB-menn era
hermenn, þeir klæðast ekki herbún-
ingum, en aginn er sá sami og í
hemum. Þriðji munurinn er að KGB
hefur mikið Qármagn til umráða.
SJÁ NÁNAR Á 4-5/B
styður Gorbatsjov
tíl að bjarga
kerfínu
35% SOVÉSKRA SENDIRAÐSMANNA
STARFA SEM LEYNIÞJÓNUSTUMENN