Morgunblaðið - 18.09.1988, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
Grænmetisforréttir
Grænmeti notum við íslendingar helst með físki eða kjöti, eða stundum sem sjálfstæðan aðal-
rétt, en grænmetisforréttir eiga yfírleitt mjög vel við og geta þeir hvort sem er verið soðnir eða
þá úr hráu grænmeti. Víða erlendis eru slíkir réttir algengir sem forréttir. Hægt er að búa
til þessa rétti úr næstum hvaða grænmeti sem er. Raða litauðugu grænmeti lystilega saman og skera
til og setja í ísvatn til að það vindi sig allavega. Hægt er að fá ails konar hnífa til að skera grænmetið
með, þótt ekki sé stórkostlegt úrval af slíku hérlendis.. Grænmetisforréttir eru mjög skemmtilegir.
Þeir eru góð byijun á máltíð, og þeir sem ekki vilja borða mikið af þungum aðalrétti, geta verið lengi
að borða grænmetisforréttinn, og borðað síðan minna af því sem á eftir fylgir. Réttir úr hráu græn-
meti jafnt sem soðnu getum við líka borðað sem aðalrétt og haft nýbakað brauð með og jafnvel að
íslenskum sveitasið fengið okkur mjólkurgraut í ábætisrétt. Óllum líður vel eftir slíka máltíð, og hún
veitir okkur auk þess öll þau næringarefni, sem við þörfnumst.
Grænmeti á að sjóða sem minnst, og það
á ekki að vera hálfhrátt, eins og víðast er á
matsölustöðum hér nú í seinni tíð. Munur er
á mauksoðnu og hálfhráu. Gæta þarf sérs-
takrar varúðar við suðu á öllu grænmeti, það
á að vera stökkt, en gulrætur harðar undir
tönn, eins og eru hér á matsölustöðum, eru
ekkigóðar.
Forréttir úr hráu
grænmeti með sósu
Salatið:
4 meðalstórir tómatar
2 litlir salatlaukar (hvítir, fást
víða)
V2 gúrka
1—2 mjóar langar papríkur, hvaða
litur sem er
smábiti kfnakál eða nokkur blað-
salatblöð, jafnvel hvítkál .
grænar ólífur (má sleppa)
væn grein steinselja
1. Takið §óra diska fram.
2. Þvoið tómatana, skerið í
þunnar sneiðar og raðið í hring á
diskunum.
3. Afhýðið gúrkuna, skerið í
sneiðar og raðið innan við tómat-
sneiðamar, þannig að þær liggi
örlítið upp á sneiðunum.
4. Takið steina úr papríkunum
og skerið í sneiðar. Raðið sneiðun-
um á sama hátt innan við gúrku-
sneiðamar.
5. Afhýðið laukinn, skerið í
örþunnar sneiðar, setjið á sama
hátt innan við papríkusneiðamar.
6. Klippið eða skerið salatið í
strimla og setjið inn í grænmetis-
hringinn.
7. Setjið ólífúr ofan á salatið.
Sósan:
Safí úr V2 sítrónu
V2 dl matarolía
5 dropar tabaskósósa
1 tsk. hunang
salt milli fíngurgómanna
V2 lítill hvítlauksgeiri
8. Kreistið safann út sítrón-
unni, setjið í skál.
9. Setjið matarolíu, tabaskós-
ósu, salt og hunang út í, þeytið
með þeytara.
10. Meijið hvítlauksgeirann og
setjið út í. Hrærið saman við.
11. Hellið í smáflösku og berið
með salatinu, eða hellið yfír sala-
tið og berið fram.
Næsta uppskrift, Skorið græn-
meti í ísvatni, hefur birst hér áður
í þættinum, en þó ekki sem for-
réttur, en þetta grænmeti er mjög
fallegt og hentar mjög vel til slíks.
Skorið grænmetí í
ísvatni með ídýfu
20 radísur
3 sellerístönglar
2 stórar gulrætur
lítil gul, græn og rauð papríka
V2 gúrka
5 litlir salatlaukar (hvítur laukur,
fæst víða). Notið oddmjóan, beitt-
an hníf og kartöfluhníf (með rauf)
Radísur:
Skerið legginn og rótina af
radísunum. Skerið síðan skurði í
radísumar eins og sýnt er á með-
fylgjandi mynd. Rennið síðan
hnífnum undir flipann og losið
örlítið frá. Setjið radísumar sfðan
í ísvatn eða kalt vatn úr kranan-
um. Setjið síðan í kæliskápinn.
Látið standa í vatninu í 5—10 klst.
Sellerístönglar:
Þvoið sellerístönglana og skerið
frá skemmdir ef einhveijar eru.
Skerið síðan í 8—10 sm bita. Sker-
ið sfðan á nokkrum stöðum rifur
djúpt f báða enda. Gætið þess þó
að skera ekki alveg í sundur. Ef
selleríið er þykkt, má skera þvert
á skurðina þannig að ræmumar
verði þynnri, kljúfa þær. Setjið í
ísvatn eða kalt vatn úr krananum.
Setjið sfðan f kæliskápinn. Látið
standa í vatninu í 5—10 klst.
Gætið þess að setja ekki annað
grænmeti með í skálina með sel-
leríinu. Það smitar bragðið.
Gulrætur:
Afhýðið gulrætumar, skerið
síðan langsum með kartöfluhníf í
þunnar langar sneiðar. Vefjið
sneiðamar upp 0g stingið tann-
stöngli f rúllumar til að halda
þeim saman. Setjið í ísvatn eða
kalt vatn úr krananum. Látið
standa í vatninu í 4—6 klst. Tak-
ið þá úr vatninu og fjarlægið tann-
stönglana, en rúllumar hafa
stífhað og haldast þannig.
Gúrka:
Skerið gúrkuna í 10 sm langa
bita. Skerið sfðan hvem bita f stafí
með riffluðu jámi, sem er ætlað
til að skera með grænmeti. (Þetta
jám fæst í búsáhaldabúðum og
er ódýrt.)
Papríka:
Skerið papríkumar í sneiðar,
Qarlægið steina og hvítar himnur.
Salatlaukur:
Afhýðið laukinn, skerið sfðan
djúpt í hann niður að rót, skerið
marga skurði. Setjið í ísvatn eða
kalt vatn úr krananum. Látið
standa í vatninu í 8—12 klst.
ídýfan:
1 dós sýrður ijómi
1 msk. oiíusósa (mayonnaise)
1 marinn hvítlauksgeiri
1 tsk. sitrónusafí
5 dropar tabaskósósa
2 kúfaðar tsk. karry
Nokkur graslauksstrá (má sleppa)
Blandið öllu saman, setjið í
skál.
Stingið 3 stuttum graslauks-
stráum á þrem stöðum ofan í sós-
una.
Raðið grænmetinu á smádiska.
Berið sósuna með.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Setjið með sveppunum á pönnuna.
Seljið með beikoninu í skálina.
6. Skerið óðalsostinn í litla bita
og setjið saman við.
7. Setjið oregano, pipar og sax-
aða steinselju út í.
8. Pyllið sveppina með mauk-
inu. Stráið parmesanosti ofan á.
9. Hitið bakaraofn í 190 ★ C,
setjið sveppina í ofninn og bakið
í 10 mínútur.
10. Setjið 2 sveppi á smádiska,
skerið sítrónuna í báta og setjið
með.
11. Kreistið sítrónusafa yfír
sveppina um leið og þið borðið þá.
Kryddaður kaldur
blaðlaukur
3 stórir biaðlaukar,
3 msk. sítrónusafí,
4 dl gott kjötsoð,
10 piparkom,
15 korianderkom.
1. Þvoið blaðlaukinn vel, skerið
síðan rótina neðan af og það af
grænu blöðunum, sem er Ijótt og
gróft. Skerið hinn hlutann í 10
sm langa bita.
2. Hitið kjötsoðið ásamt pipar-
komum, korianderkomum og
sítrónusafa. Leggið laukinn f soð-
ið og sjóðið við hægan hita í
10—15 mínútur. Kælið.
3. Skiptið í litlar skálar, látið
safann og kiyddkomin vera með.
Meðlæti: Snittubrauð, skorið
að endilöngu og smurt með
hvítlaukssmurosti og hitað.
Fylltir tómatar
4 frekar stórir tómatar,
20 g smjör,
20 g hveiti,
IV2 dl kaffiijómi
100 g óðalsostur,
l/% tsk. rifíð múskat,
V4 tsk. salt,
Vs tsk. pipar,
2 eggjarauður,
2 eggjahvítur.
1. Þvoið tómatana, skerið sfðan
sneið ofan af þeim.
2. Holið tómatana með skeið.
Notið innvolsið í annað. Setjið
tómatana á hvolf á grind og látið
renna vel úr þeim.
3. Setjið smjör f pott, hrærið
hveitið út í, þynnið með ijómanum
og búið til uppbakaðan jafning.
4. Rífíð ostinn og setjið út í
jafninginn. Setjið síðan salt, pipar
og múskat út í. Kælið örlítið.
5. Hrærið rauðumar út í. Þey-
tið hvítumar og setjið varlega
saman við.
6. Leggið Iokið sem þið skáruð
ofan af tómötunum f botn þeirra.
Setjið síðan jafninginn í tómatana
og fyllið þá alveg.
7. Leggið tómatana á eldfast
fat.
8. Hitið bakaraofn f 180° C,
setjið skálina með tómötunum f
miðjan ofninn og bakið í 20—25
mínútur.
Meðlæti: Ristað brauð. Gott er
að bera fram þunnt sneidda
skinku með þessu.
Fylltir sveppir:
10 stórir sveppir
15 g smjör (1 smápakki)
1 stór sneið beikon
1 msk. sherry
20 g rifínn óðalsostur
1 harðsoðið egg
fersk steinselja
V4 tsk. oregano
1 msk. parmesanostur
nýmalaður pipar
1 sítróna í bátum
1. Holið sveppina að innan, eða
takið stilkinn af þeim, þá á að
vera nægilega stór hola inn í
sveppina. Þerrið sveppina vel með
eldhúspappír. Leggið sveppina í
eldfast fat.
2. Saxið leggina af sveppunum
smátt.
3. Skerið beikonið smátt. Hitið
pönnu og hálfsteikið beikonið á
pönnunni. Það á ekki að brúnast
mikið. Takið það síðan og setjið
f skál.
4. Setjið söxuðu sveppaleggina
á pönnuna, setjið smjörið saman
við. Sjóðið í 5—7 mínútur. Setjið
sherry út í.
5. Harðsjóðið eggið, takið af
því skumina og skerið smátt.