Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 21

Morgunblaðið - 18.09.1988, Side 21
Hfipr q'HaM'írq'H? Rr 5TH0AGTTVÍMITS .QTQAJBiWUOJIOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988 i a os b 2 r Nú eru allir pappírar tilbúnir til undirskriftar hvað varð- ar skilnað þeirra Bruce Springsteen og Júliönnu. Ekki hafði verið gerður neinn kaup- máli þegar þau giftu sig fyrir þremur árum. Hún á því rétt á að fá helming eigna hans sem nema 10 milljörðum. En hún ger- ir sig ekki ánægða með þá fimm milljarða sem koma í hennar hlut og hefur enn sem komið er neit- að að skrifa undir pappirana. Upphæðina sem hún telur sig eiga að fá hefur hún ekki nefnt. Hún er sögð öskuill vegna þeirr- ar athygli sem Bruce og Patti Scialfa, nýja kærastan hans, hafa vakið og vegna yfirlýsinga um að barnleysi hafi verið orsök skilnaðarins. Lögreglan í Bretlandi er í stökustu vandræðum með einn fanga sinn, sem hefur skipt um kyn. Ekki er hægt að taka um það ákvörðun hvort hann, já eða hún, verði geymdur með körlum eða konum í klefa. Fang- inn var semsagt kærður fyrir líkamsárás meðan hann var enn karlkyns. Hann þarf frekari hormónagjöf til þess að geta kallað sig konu, og er því eigin- lega i hvorugkynsástandi, eins og gefur að skilja. Svo fanganum verður haldið i einangrun, þar til breytingin er yfirstaðin. Heimsmeistarinn í hnefaleikum, Mike Tyson, heillaðist af LaToya, systur Michael Jackson, fyrir tveimur árum. Þau hafa marg- oft sést saman, jafnvel eftir að Tyson kvæntist Robin á síðasta ári. En kona hans er ekki hrifin af þessu sambandi enda er sagt að Tyson og LaToya eyði um fjórum tímum daglega í að tala samaní síma, og ekki um heimspeki. Nýlega voru hjónin í leikhúsi en skyndilega æddi Tyson úr sæti sínu og hringdi í vinkonu sína. Það fyllti mælinn hjá konu hans, sem skrækti og barði, beit og klóraði mann sinn, fyrir framan alla viðstadda. Hann tók árásinni með jafnaðargeði og bar konu sína út í bíl. Eftir atburðinn sagði hann blaða- mönnum að hann hafi lofað konu sinni að hætta að hitta LaToya, en að hann ætli ekki að lofa neinu hvað símasamband þeirra varðar. Svo nú velta menn því fyrir sér hvað hans ektakvinna segir við því. COSPER —Nú er ég búinn að skipta hundakofanum í einstaklingsíbúðir. Frábær barnafatnaður í sérflokki (ídi KARNABÆR f r barnadeiid Austurstrœti 22, sími 22925. Fer ínn á lang flest heimili landsins! * Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikurfyrirdansi Söngvari: Hjördís Geirs. Eldhúsinnréttingar íslensk framlelðsla á hagstæðu verðL Margir möguleikar á efni og útliti, staðlað eða sérsmíðað. Glæsileiki og frábeer geeði Sjón er sögu ríkari INNRÉTTINGA- OG HÚSGAGNAVERSLUN Verslun: Reykjavíkurvegi 68, 222 Hafnarfirði, sími 54343.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.