Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 1
225. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
Prent8miðja Morgunblaðsins
PaJdstan:
Óeirðirnar
breiðast út
Karachi. Reuter.
HUNDRIJÐ óeirðaseggja lögðu
eld að verslunum og bifreiðum á
götum borgarinnar Karachi í gær
þegar fi-éttir breiddust út um
Qöldamorðin í Hyderabad á föstu-
dag. Að sögn lækna voru a.m.k.
145 mohírar skotnir í Hyderabad
og talið er að minnst 26 manns
hafi látist í óeirðunum í borginni
Karachi.
Yfirvöld komu á útgöngubanni í
mörgum hverfum Karachi og í Hyd-
erabad-borg allri og skipuðu her- og
lögregiumönnum að skjóta á óeirða-
seggi. Hundruð mohíra, innflytjenda
fiá Indlandi, söfnuðust saman í fá-
tækrahverfum Karachi og réðust á
lögreglumenn.
Fimm hópar manna, vopnaðir
sjálfvirkum byssum, hófu skothríð á
fólk víðs vegar um Hyderabad á
föstudag. Borgarbúar sögðu að rúm-
lega 200 manns hefðu særst eða
fallið.
Bretland:
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
UR MYVA TNSSVEIT
Gorbatsjov kjörinn forseti Sovétríkjanna:
Krefst ákveðnari og mark-
vissarí skrefa í umbótaátt
Moskvu. Reuter.
MÍKHAIL Gorbatsjov var í gær kjörinn forseti Sovétríkjanna í
stað hins 79 ára gamla Andrejs Gromykos á skyndifundi í Æðsta
ráði Sovétríkjanna sem stóð aðeins í 45 mínútur. Gorbatsjov, sem
var kjörinn án mótatkvæða, gegnir jafhframt stöðu aðalritara
flokksins. Fleiri mannabreytingar voru ákveðnar og m.a. lét Vikt-
or Tsjebríkov af störfúm sem yfírmaður leyniþjónustunnar, KGB.
Við tók KGB-maðurinn Vladímír Krútsjkov sem áður var einn af
sex æðstu aðstoðarmönnum Tsjebríkovs.
Lev Zaijkov, sem er flokksfor-
maður í Moskvu og á sæti í stjóm-
málaráði flokksins, stakk upp á
Gorbatsjov er tilkynnt hafði verið
um afsögn Gromykos. Gífurleg
fagnaðarlæti bmtust út meðal
hinna 1.500 fundarmanna er skýrt
var frá því að Gorbatsjov hefði
verið kjörinn einróma og leiðtoginn
sjálfur brosti breitt.
Að loknu kjörinu flutti Gorbatsj-
ov tíu mínútna ávarp. Hann sagði
m.a. að „...umbótaáætlunin (per-
estrojka) [væri framkvæmd] vegna
sögulegrar ákvörðunar ... er hefur
það að markmiði að gera landið
nútímalegra og koma til leiðar
gagngeram endurbótum á lífskjör-
um þjóðarinnar... Það sem við þurf-
um núna era raunhæf skref fram
á við...Þjóðin skilur stefnu okkar
en krefst ákveðnari og markvissari
skrefa.“
Næsta vor er fyrirhugað að
breyta stjómarskránni og gera for-
setaembættið, sem nú er tignar-
staða án raunveralegra valda, að
mun mikilvægara embætti með
sterku framkvæmdavaldi. Fær for-
setinn yfirstjóm utanríkismála í
sínar hendur samkvæmt tillögun-
um er samþykktar vora á flokks-
ráðstefnu í júní síðastliðnum.
Stjómmálaskýrendur álíta að vart
verði hróflað við völdum Gor-
batsjovs þegar búið verður að stað-
festa stjómarskrárbreytingamar.
Valdamissir Tsjebríkovs, sem nú
gegnir aðeins stöðu yfírmanns
nýrrar laganefndar stjómmála-
nefndarinnar, og Jegors
Lígatsjovs, sem fær að kljást við
landbúnaðarmálin en hefur verið |
talinn næstvaldamesti maður
landsins, era ljósasti vottur þess |
að fylgismenn umbótastefnunnar
hafa styrkt stöðu sína; þessir tveir
hafa verið í fararbroddi andstæð-
inga perestrojku. Eftirmaður
Tsjebríkovs hjá KGB á ekki sæti
í stjómmálaráðinu og á því leyni-
þjónustan ekki lengur fulltrúa í
æðstu forystunni.
Á fundi Æðsta ráðsins var Ana-
tolíj Lukjanov lqorinn fyrsti vara-
forseti Sovétríkjanna en Lulqanov,
sem er 58 ára gamall, hlaut á
föstudag sæti í stjómmálaráðinu,
án atkvæðisréttar. Hann tekur í
báðum tilvikum við stöðum Pjotrs
Demítsjovs, sem lengi var menn-
ingarmálaráðherra á Brezhnev-
áranum og þótti dæmalaus aftur-
haldsseggur. Aleksandra Biij-
úkova, sem hlaut sæti án atkvæðis-
réttar í stjómmálaráðinu á föstu-
dag, var á fundi Æðsta ráðsins
kjörin fyrsti aðstoðar-forsætisráð-
herra. Svo hátt hefur kona ekki.
komist í sovéska valdastigann
síðan Jekaterína Fúrtséva komst
til metorða á valdaáram
Khrústsjovs.
Sjá forystugrein á miðopnu.
Aðgerðir sér-
sveita dæmd-
ar löglegar
Daily Telegraph.
LIÐSMENN SAS, sérsveita breska
hersins, gerðust ekki brotlegir við
lög þegar þeir skutu þijá óvopn-
aða hermdarverkamenn í írska
lýðveldishemum sem fyrirhuguðu
sprengjutilræði i Gibraltar i mars,
að þvi er kviðdómur úrskurðaði á
föstudag.
Veijandi hermannanna sagði að
þeir hefðu þar með verið hreinsaðir
af ákæranni. Talsmenn breska vam-
armálaráðuneytisins fögnuðu einnig
úrskurðinum og sögðu að með honum
væri málið úr sögunni. Lögfræðingur
fjölskyidna hermdarverkamannanna,
vísaði því hins vegar á bug að her-
mönnunum hefði verið veitt uppreisn
æra.
Meirihluti kviðdómsins úrskurðaði
að hermennimir hefðu ekki brotið lög
og ekki ætlað að yfirlögðu ráði að
drepa hermdarverkamennina.
Discovery:
Geimferðin sögð
ánægjuleg útilega
Houston. Reuter.
ÁHÖFN bandarísku geimfeijunnar Discovery, sem skotið var á
loft á fimmtudag, líkti geimferðinni við ánægjulega útilegu á
föstudag eftir að hafa leyst minniháttar vandamál sem komu upp.
Gervihnattardiskur festist í saman í 27 gráður.
festingu sem skagaði út frá fjar-
skiptabúnaði geimfeijunnar en
geimföranum tókst að leysa hann
með fjarstýringu; snera diskinum
þannig að þeir náðu honum inn í
geimfarið. Kælingarkerfið stíflað-
ist einnig vegna ísingar sem varð
til þess að hitinn komst í 30 gráð-
ur á Celsíus í áhafnarklefanum
en geimföranum tókst að þíða
ísinn og hitinn lækkaði smám
Leiðangursstjórinn, Milt Heflin,
sagði að þessi vandamál hefðu
ekki verið alvarleg og ferðin hefði
annars gengið vel til þessa. „Hér
er hópur manna í ánægjulegri
útilegu," sagði hann við starfs-
menn í stjómstöð Geimrann-
sóknastofnunar Bandaríkjanna,
NASA. Fyrirhugað er að geim-
farið lendi í Kalifomíu á mánudag.