Morgunblaðið - 02.10.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
Islendingur í björgunarflugi eftir fellibyl:
Erfítt flug en
engin hetjudáð
— segir Brynjar Þórðarson, flugvélstjóri
ÍSLENSKUR flugvélstjóri, Bryiýar Þórðarson, var ásamt félögum
sínum hylltur á síðum breskra blaða eftir þeir flugu með nœrri
500 breska ferðalanga frá Jamaica til Manchester-borgar i Eng-
landi eftir að fellibylurinn Gilbert hafði gengið yfir eyjuna og
valdið gífurlegum usla. Brynjar, sem býr I Lúxembúrg, sagði f
samtali við Morgunblaðið að flugið hefði ekki þurft á miklum hetju-
skap að halda, þó að aðstæður hefðu vissulega ekki verið eins og
best væri á kosið og farþegamir fagnað mikið að komast heim
eftir hamfarimar. Það hefði verið ógnvænleg lífsreynsla að dvefj-
ast á Jamaica á meðan Gilbert gekk yfir, en breskir Qölmiðlar
hefði faert söguna í stílinn.
„Hetjur í fellibyl! Fífldjarfír flug-
Þannig var sagt frá flugafrekinu í brezkum blöðum.
menn feqa 470 manns frá ham-
faraeyjunni" sagði Manchester
Evening News í fyrirsögn um flug
Boeing 747 risaþotunnar sem þeir
Eddie Klein, Frank Morran og
„Binni Thordarson" stjómuðu.
Blaðið segir þá hafa lent risa-
þotunni og síðan flogið burt með
farþegana á flugvelli þar sem eng-
in flugumferðarstjóm var vegna
þess að fellibylurinn hafði stór-
skemmt flugtuminn. Haft er eftir
yfirmanni ferðaskrifstofunnar
Airtours: „Áhafnir okkar hafa gert
kraftaverk með því að fljúga til
og frá Jamaicu við ótrúlega erfiðar
aðstæður."
Brynjar segist hafa verið ný-
kominn til Montego Bay á Jamaica
þegar GUbert gekk yfir, en hann
átti að fljúga með farþegana heim
til Bretlands. Hann segir að það
hafi orðið litlar skemmdir á hverf-
inu þar sem hótelið hans var og
það hefði ekki verið fyrr en hann
fór að kanna aðstæður daginn eft-
ir að hann gerði sér ljóst hve hrika-
legur eyðileggingarmáttur felli-
bylsins var. Hann hefði lent í
óveðri í flestum heimshomum en
aldrei séð neitt í likingu við Gilbert.
Hann sagði að flugstjórinn,
Eddie Klein, hefði sýnt áræði og
dugnað þegar hann fór að reyna
að ná sambandi við umheiminn
eftir að mesta veðurofsanum slot-
aði, en Montego Bay var þá algjör-
lega sambandslaus við umheiminn.
Hann hefði farið á bát og loksins
fundið skip með Qarskiptatæki og
þannig getað látið vita að allir
væm heilir á húfí og óhætt væri
að koma og sækja ferðamennina
500.
Brynjar sagði að flugvöllurinn
sem notaður var væri n\jög lélegur
og Gilbert hefði ekki bætt þar um.
Eftir fellibylinn hefði verið 30 cm
vatnslag yfir vellinum og flugtum-
inn óvirkur, en aðstæður hefðu
verið heldur skárri þegar þotunni
var lent. Flugtuminn hefði þá ver-
ið kominn í lag að hluta og þó að
ekki hefði verið hægt að nýta öll
sigiingatæki Boeing-vélarinnar
væri slíkt vandalaust þegar veðrið
væri þokkalegt og ósköpin gengin
yfir. Það væri því vafasamt að
kalla flug þetta hetjudáð, en far-
þegamir hefðu verið geysilega
fegnir að sleppa burt og hefðu
klappað við hvert einasta orð sem
heyrðist úr flugstjómarklefanum.
Brynjar Þórðarson hefur búið í
Lúxembúrg i 18 ár, þar sem hann
flýgur á vegum Cargolux og Lion-
Air, en hann segist alltaf koma til
íslands tvisvar á ári. Hann segist
hins vegar ekki munu bjóða sig
aftur fram að fara til staðar þar
sem von er á fellibyl. „Á íslandi
fáum við stundum lárétta rigningu
en það er ekkert til móts við þessi
ósköp."
Ávöxtun:
40% krafiia
hafa boríst
SKILANEFND Ávöxtunar-
sjóða hafá nú borist kröfúr í
um 40% af útgefnum bréfúm
úr sjóðum Ávöxtunar hf., mið-
að við nafnvirði, sem er um
210 mifíjónir.
Innköllunarfrestur er til 16.
desember og að sögn Sighvats
Halldórssonar starfsmanns skila-
nefiidar berst nefndinni fjöldi fyr-
irspuma daglega frá kröfuhöfum.
S-Þingeyjasýsla:
Arekstur á
Laxárbrú
FÓLKSBÍLL lenti á milli
hjóla malarflutningabíls með
tengivagni á brúnni yfir Laxá
í Suður-Þingeyj arsýslu um
klukkan 14 á föstudaginn og
keyrði hann með fólksbflinn
á undan sér um 100 metra
vegalengd þar sem bflarnir
fóru út af veginum.
Farþegi í fólksbílnum handar-
brotnaði við áreksturinn en öku-
maður hans slapp hins vegar með
skrámur. Svo virðist sem eitthvað
hafi verið að bremsum flutn-
ingabflsins, að sögn lögreglunnar
á Húsavík.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Skrifetofubygging Sambandsins á Kirkjusandi hefúr reynst allmiklu dýrari en ráð var fyrir gert í upphafi.
Ríkið viðurkennir bótaskyldu vegna
mistaka við þurrmjólkurgjöf:
Fræðsla um notkun
mjólkurdufts aukin
RÍKISSJÓÐUR hefúr viðurkennt bótaskyldu vegna mistaka við með-
ferð þurrmjólkur á Sængurkvennadeild Landspítalans fyrir tæpum
tveimur árum. Þrir nýburar veiktust alvarlega vegna bakteríusýking-
ar og er talið hugsanlegt að hitunartími nýólkurblöndunnar hafi
verið lengri en fyrirmæli framleiðanda kveða á um og af þeim sök-
um hafi bakteríur, skaðlegar nýburum en ekki öðru fólki, náð að
fiölga sér.
Sambandið selur hlut
sinn í 2 fyrírtækjum
Kostnaðaráætlun við skrifstofubyggingu á
Kirkjusandi komin í 300-350 milljónir
„VIÐ SELJIJM þessa eign vegna
þess, að við erum með efnahags-
stöðu Sambandsins í stöðugri
endurskoðun," sagði Guðjón B.
Ólafeson forstjóri Sambands
íslenskra samvinnufélaga, að-
spurður um hvers vegna eignar-
hlutur Sambandsins i Hval hf.
hefði verið seldur. Hann sagði
söluna ekki standa I sambandi
við aðgerðir hvalfriðunarmanna.
SÍS hefur selt 3% eignarhluta
sinn í Hval hf., ásamt eignarhluta
í Marel hf. og í undirbúningi er að
selja frekar frá Sambandinu eignir
og rekstur sem ekki falla beint inn
í starfsemi Sambandsins, að sögn
Guðjóns. Hanri sagði rekstrarstöð-
una vera erfiða, rekstrartap Sam-
bandsins fyrstu sex mánuði ársins
hefði verið nálægt 480 milljónum
króna. Þar í vegur gengistap
þjmgst, en það var á þessum tíma
um 500 milljónir króna að sö.'gn
Guðjóns.
Nýbygging Sambandsins við
Kirkjusand gengur samkvæmt
áætlun, en kostnaður hefur farið
fram úr áætlunum. Upphaflega var
gert ráð fyrir að það kostaði 220
milljónir króna að breyta húsinu
sem keypt var og byggja við það.
Uppreiknuð til verðlags í dag er sú
upphæð um 280 miHjónir. Hins veg-
ar er endurskoðuð áætlun hærri, á
bilinu 300 til 350 milljónir, og sagði
Guðjón margvíslegar skýringar á
þessari hækkun, ýmislegt hefði
bæst við, sem ekki var haft með í
upphaflegum áætlunum.
Gert er ráð fyrir að SÍS flytji í
nýjar aðalstöðvar við Kirkjusand í
mars eða apríl á næsta ári.
Gunnar Biering yfirlæknir Vöku-
deildar Barnaspítala Hringsins, þar
sem bömin fengu meðferð eftir að
sýkingin kom upp, segir að þurr-
mjólkurduft, sem sæti réttri með-
ferð, sé bömum hættulaust Hann
sagði að í kjölfar þessa máls yrði
fræðsla til kvenna á Sængur-
kvennadeild um mjólkurduft aukin.
„Þetta mál má ekki leiða til þess
að fólk veigri sér við að nota þurr-
mjólkurduft. Það er langbesti kost-
ur sem völ er á handa þeim bömum
sem ekki fá næga móðurmjólk,"
sagði hann.
Bætur ríkisins til bamanna sem
sýktust og foreldra þeirra verða
ákveðnar að nokkrum árum liðnum,
en vegna aldurs bamanna er enn
ekki unnt að meta það tjón sem þau
hafa beðið á heilsu sinni. Gunnar
Biering vildi engar upplýsingar gefa
um heilsufar bamanna. Hann sagði,
að auk trúnaðarskyldu kæmi þar
til eindregin ósk foreldranna að um
það mál yrði ekki fjallað opinber-
lega.
KosiðíÁlfta-
mýrarskóla
Atkvæðagreiðsla um brott-
vikningu séra Gunnars
Björnssonar, fríkirkjuprests,
er í Álftamýrarskóla um helg-
ina en ekki í Betaníu eins og
sagt var í Morgunblaðinu í
gær.
Kosið er frá klukkan 10-19.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
INNLENT
Búvöruverð:
Niðurgreiðslur ákveðnar um helgina
BÚVÖRUVERÐ átti að hækka
í gær, 1. október. Að sögn Ól-
afe Ragnars Grímssonar, Qár-
málaráðherra, verður ákvörð-
un um niðurgreiðslur búvara
tekin nú um helgina, en hann
vildi ekki segja hve miklar þær
niðurgreiðslur yrðu.
„Það hefur verið áformað að
þessar hækkanir verði niður-
greiddar. Ákvörðun um það verð-
ur tekin í ráðuneytinu nú um
helgina og sú ákvörðun mun
verða tekin í samræmi við verð-
stöðvunarmarkmið ríkisstjómar-
innar," sagði Ólafur Ragnar.
Hann var spurður hvort það
þýddi að verð á landbúnaðarvör-
um yrði óbreytt. Hann sagðist
ekki svara því áður en ákvörðun
yrði tekin.