Morgunblaðið - 02.10.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
JK
Útsýn frá Hesthól í Óxney ýfir bæjarhús, Úteyjar og til Qalla á Snæfellssnesi.
SIGURÐUR BJARNASON FRA VIGUR
Haust
Straumar eru harðir í minni H vammslj arðar; hér sér milli Galtareyjar
og Gagneyjar.
ast á sker og hólma. Hann beygir
fímlega inn Stofuvog, þar sem for-
feður hans hafa lent bátum sínum
við klappimar í Öxney. Þetta er
hans bæjarvík. ^Hann er kominn
heim með okkur, Kjartan Ragnars,
fv. hæstaréttarlögmann og sendi-
fulltrúa og Guðrúnu systur sína.
Ferðin frá Stykkishólmi hefur tekið
um 50 mínútur.
Búskaparhættir í Öxney
Fyrir tæpum 30 árum heimsótti
ég Vestureyjar Breiðaíjarðar,
sem tilheyra Flateyjarhreppi í
Barðastrandarsýslu. Lagt var af
stað frá Stað á Reykjanesi og stefnt
út í Hvailátur. Logn var um allan
sjó, svo varla örlaði á steini. Heiður
himinn, §'öll vafín blámóðu, hvít
jökulhetta, þúsundir eyja og hólma
fljótandi á sólroðnum flóanum, eins
og furðuskip í ævintýri. Fuglar og
seiir sveima allt um kring. — Fjöll-
in í landi lækka, eyjamar verða að
veruleika. Þær svífa fram hjá eins
og litkvikmynd á stórbrotnu breið-
tjaldi, ólgandi af lífí og báráttu fjöl-
skrúðugasta fuglalífs á íslandi.
Þetta gerðist að vorlagi fyrir þrem-
ur aratugum.
Ég hafði aldrei heimsótt Suður-
eyjar Breiðafjarðar en oft hugsað
til þeirra. Um helgina 16.-20. sept-
ember sl. átti sá draumur að ræt-
ast. Ferðinni var heitið út í Öxney,
þar sem vinur minn og skólabróðir
Jóhann Jónasson, fyrrverandi for-
stjóri Grænmetisverzlunar land-
búnaðarins og bústjóri á Bessastöð-
um í 10 ár, hefur sumarsetur.
Lagt var upp frá Stykkishólmi á
mánudagsmorgni á litium vélbáti
Öxneyjarbóndans, eftir að hafa
skoðað Hólminn undir leiðsögn míns
gamla og góða fréttaritara Áma
Helgasonar. Stykkishólmur, sem
stendur yzt á hinu fræga Þórsnesi,
er eitt fegursta og myndarlegasta
kauptún landsins. Þar getur að líta
nýtízku hús og gamlar byggingar,
sem segja merkilega sögu frá liðn-
um tíma. Öllu er vel við haldið,
götumar steinsteyptar, höfnin svip-
mikil og sérkennileg. Menningar-
bragur er á staðnum.
Breiðafjarðareyjar blasa við og
setja sinn svip á umhverfið. Helga-
HEIMSOKN
í ÖXNEY OG
GALTAREY
fell rís í nágrenninu með kirkju sinni
og veglegum minnisvarða um Guð-
rúnu Ósvífursdóttur, ástir hennar
og harma.
Stefiit inn Breiðasund
En nú erum við komin út á sjó
og stefnum norður Breiðasund frá
Stykkishólmi til eyjanna í mynni
Hvammsfjarðar. Út af Stykkishólmi
eru meðal annarra eyja Elliðaey,
Þormóðsey, Fagurey, Bíldsey, Skor-
eyjar og Skjaldarey. I Fagurey er
talið að Sturla Þórðarson, sagnarit-
arinn frægi, hafi búið um skeið. í
Elliðaey bjó síðastur Ólafur Jónsson
frá Garðsstöðum í Ögursveit. Bræð-
ur hans vom þeir Jón Auðunn Jóns-
son, lengi alþingismaður Norður-
ísfirðinga, og Kristján Jónsson, er-
indreki á ísafirði, sem nokkrum
sinnum var í kjöri á móti mér í
N-ís. fyrir Framsóknarflokkinn.
Smágjóstur er af norðri á móti
okkur inn Breiðasund. En veður er
bjart og útsýn til eyjanna hið feg-
ursta. Einnig upp til fjallanna á
Snæfellsnesi og vestur að Klofningi
milli Fellsstrandar og Skarðstrand-
ar í Dalasýslu. Eftir því sem nær
dregur áfangastað okkar þrengist
sundið unz við erum komnir milli
smáeyja og skeija á alla vegu. Hér
þekkir Öxneyjarbóndinn umhverfi
æsku sinnar. Hann þarf ekki að
draga úr hraða af ótta við að rek-
Bæjarhúsin í Öxney standa rétt.
við sjóinn. Þar getur að líta reisu-
legt þriggja hæða íbúðarhús úr
timbri. Var það byggt árið 1883
af afa Jóhanns. Hefur því verið vel
við haldið og það stækkað af föður
hans, Jónasi Jóhannssyni, sem bjó
í Öxney síðastur manna til ársins
1970. Síðan hefur aðeins verið búið
í eynni á sumrum.
Jónas Jóhannsson var myndar-
bóndi, vel ritfær og fróður um bún-
aðarhætti við Breiðafjörð og fleira.
Segir Jóhann að faðir sinn hafi
haft um 200 íjár í eynni ásamt 8
kúm og 2-3 hestum.
Allmikið æðarvarp var þá í eynni.
Fengust þar þá um 50 pund af
dún. En frostaveturinn 1918 þvarr
dúntekjan stórlega og hefur lítil
verið síðan. Nú fást þar aðeins um
tvö pund af dún á ári. Þegar við
gengum um eyna fundum við þar
eitt kolluhreiður með dún ofarlega
á eynni. Síðustu ár hefur minkur
verið þar og þarf þá ekki að sökum
íbúðarhúsið í Öxney, byggt 1883.
Skarfar á Baulu.
Oxneyjarsystkini og Kjartan Ragnars á bæjarrústum
Eiríks rauða.
ulitliutliJiuiuiiitHiHitiiinuuHiuiiiiiumiUHUHítiuniiiiumnináMiiiiauuiMiiuuuumiiiuujmiiuuuiii