Morgunblaðið - 02.10.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1988
I
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Andleg vinna
Það eru sjálfsagt flestir sam-
mála því að öllum sé hollt að
rækta eigin sálargarð, hvort
sem um líkamlega, sálfræði-
lega eða andlega vinnu er að
ræða. Þar sem stjömuspeki er
hluti af sálræna þætti heilsu-
byltingarinnar svokölluðu er
undirritaður ákafur fylgismað-
ur sálrænnar vinnu en einnig
áhugamaður um aðra þætti
þessarar byltingar. Þrátt fyrir
það eru nokkur atriði varasöm
og kalla á umhugsun.
Bœkur og leiÖbeinendur
Þegar áhuginn á því að bæta
líf sitt vaknar er algengt að
fólk taki að leita sér þekkingar
víða. Pyrstu kynni margra af
hinum andlegu eða heilsufars-
legu málum eru í gegnum
bækur og þau næstu oft að
farið er á námskeið eða að leit-
að er til þeirra sem þegar hafa
tekið nokkur skref á braut
heilsufarslegrar og andlegrar
byltingar.
Eftiröpun
Það sem gerist hins vegar oft
og er varasamt er að leitandinn
tekur fyrirmyndina of bókstaf-
lega. I stuttu máli þá reynir
fólk of oft að lifa eftir kerfi
sem er sniðið að þörfum ann-
arra persónuleika eða hafa
mótast af aðstæðum annars
lands.
Andlegur sérfræÖingur
Nýlega hitti ég mann sem
sagði mér að hann hefði lagt
stund á hugleiðslu í mörg ár
og hefði lesið hundmð bóka
og sótt ótal námskeið. Hann
sagðist vera sérfræðingur í
andlegum fræðum. Hann var
hins vegar óhamingjusamur og
viðurkenndi að sér liði ekkert
sérlega vel.
A ndleg óhamingja?
Þetta vakti rhig til umhugsun-
ar. „Af hveiju er maður sem
hefur lagt á sig mikla vinnu
til að leita hamingjunnar
óhamingjusamur?" Ástæðuna
tel ég vera þá að hann hefur
Sól í Nautsmerkinu sem er
lífsnautnamerki, en hefur tekið
sér til fyrirmyndar erlendar
heimspekistefnur sem byggja
á sjálfsafneitun. Ástæðan fyrir
því að hann gerir slíkt er sú
að hann hefi^r sterkan Satúm-
us. Óhamingja mannsins er
hins vegar fólgin í því að hugsa
ekki nógu mikið um eigið sjálf
og sínar persónulegu þarfir.
Hann er orðinn það „andlegur"
að hann skammast sín fyrír
hið jarðbundna Naut og reynir
að uppræta það.
Gagnslaus þekking
Þetta tel ég vera mikilvægt.
Öll heimsins þekking gagnar
okkur lítið ef hún er ekki sönn
fyrir okkur sjálf, ef hún á ekki
hljómgrunn í hjarta okkar.
Ég er sérstakur
Mín persónulega skoðun er sú
að stefnur séu varasamar ef
fylgja á þeim of bókstaflega
eftir. Andlegir leiðtogar eiga
að vera okkur til hvatningar
en eiga ekki að yfirtaka líf
okkar. Hamingja er að mínu
mati fólgin í því að þekkja
sjálfan sig og vera trúr sínu
eðli, hvort sem það eðli kallar
á efnishyggju eða andlega leit.
í andlegri vinnu sem annarri
er einnig mikilvægt að gleði
sé ríkjandi. Við eigum því að
gera það sem vekur með okkur
ánægju. Ég vil því biðja alla
sem hafa áhuga á andlegum
málum að hafa eftirfarandi í
huga. Ekki gleyma sjálfum
ykkur, eða því sem hentar
ykkur persónulega. Kenningar
eru ágætar, en menn eru mis-
jafnir. Það er því ekki til neinn
einn algildur sannleikur,
hvorki „hið eina og rétta" í
mataræði eða hin eina og
sanna heimspeki. Öfgar geta
verið hættulegar og sérstak-
lega ef ást og gleði er fjarri.
GARPUR
Þu STENDUH FRA/VWU F/RlfL
eeiRR.1 VÖL5EM BeiNI HAF3/ FYRUZ
LAhlGALÖhjGU. er KRAFTUR
Þ/mn fvrh? SJÁlFAN p/e-.EÐA
FyRH? AÐRA?
KRAFTUK MINN EF? OTAKMARK-
AOUR.-HVERNIG GETÉGAFSALAD
/HEgHONUM- TAFNVEL FyRlRVINt
AA'NA ?
GRETTIR
Þu HEFUÍÉVEieiPSvO P06LESUR I >
KUCNU/VI AÐ ÉSÆTIA/IDVERÐLAUNA.
t>lG
b, /VWVWA AIÍA.'ÉG ER8Ö-,
£3?M DAWS
S-ZI
BRENDA STARR
UOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
MAV I A5K VOU A
5IMPLE QUE5TI0N?
-rc
OKAV, 5ARAH..PLEA5E
TELL ME HOW I CAN
5END YOU A CHRI5TMA5
CARP IF VOU 6IVE ME
THE WR0N6 APPRE5S...
LA5T VEAR U)E HAP
ALL BLUE LI6HT5
ON OUR TREE..
-----? ■ II II' fwm I
spyija einfaldrar í dag heiti ég Sara.
•ar?
_________________ /2-22
Þá það, Sara ... gerðu svo
vel að segja mér hvernig
ég á að senda þér jólakort
ef þú lætur mig hafa rangt
heimilisfang?
í fyrra vorum við með öll
ljósin blá á trénu okkar ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Paul Lavings, þekktur ástr-
alskur spilari, vann þijú grönd
á spil NS með því að nýta mögu-
leikana í réttri röð.
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 92
♦ 65
♦ KD1084
♦ KD82
Vestur
♦ 654
♦ KD102
♦ 73
♦ 9643
Austur
♦ KD1083
♦ 73
♦ G652
♦ ÁG
Suður
♦ ÁG7
♦ ÁG984
♦ Á9
♦ 1075
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 spaði 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Útspil: spaðasexa.
Lavings leyfði austri að eiga
fyrsta slaginn á spaðadrottn-
ingu. Austur sótti spaðann
áfram og gosi suðurs átti slag-
inn. Nú var laufí spilað á kóng
og ás, og enn hélt austur spaða-
sókninni áfram.
Þegar laufgosinn kom í
drottninguna voru slagimir
orðnir átta. Lavings tók á lauf-
tíuna og fór þá loks í tígulinn.
Hann lá til §andans, svo fyrir-
hyggjusemin í laufínu hafði
borgað sig. Eftir að hafa tekið
þijá slagi á tígul spilaði Lavings
vestri inn á laufníu. Vestur fékk
að eiga næsta slag á hjarta-
kóng, en varð svo að gefa níunda
slaginn á hjartagosa.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Tilburg í Hol-
landi, sem nú er nýlokið, kom
þessi staða upp í skák Jans
Timmans, Hollandi, sem hafði
hvítt og átti leik, og Roberts
HUbners, V-Þýzkalandi.
Svartur lék síðast 21. — Bb7-c8.
22. Rxg7! - Kxg7, 23. Dg5+ -
Kh8, 24. D16+ - Kg8, 25. Hb3
- He8, 26. Hg3+ - Kf8, 27.
Hg7 - He7 (Eða 27. -De7, 28.
Dh6) 28. e6! (Eftir 28. Hxh7 -
Ke8 á svartur möguleika á að
bjarga kónginum á flótta) 28. —
Bxe6, 29. Hxh7 og svartur gafst
upp. Eftir 29. — Ke8 30. Hh8+
tapar hann hrók. Úrslit í Tilburg
urðu þessi: 1. Karpov 1002 v. af
14 mögulegum. 2. Short 8V2 v.
3.-5. Jóhann Hjartarson, Tim-
man og Nikolic 6V2 v. 6.-7.
Hiibner og Van der Wiel 5V2 v.
8. Portisch 5 v.