Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐG) IÞROTTIR ÞRIÐ.IUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Olafur ekkimeð? Ólafur Þórðarson og HalldórÁskels- son meiddust báðir á æfingu í gær og Friðrik meiddist í leik með B 1909 ÓLAFUR Þórðarson, sem átti mjög góðan leik gegn Tyrkjum á dögunum í Istanbul, meiddist á lœri undir lok síðari œfingar- innar í Austur-Berlín í gœrdag. Þá meiddist Haildór Áskelsson einnig — lenti ítœklingu á morgunœfingunni, og þurfti aö hætta. Fékk sparkframan á rist. ÆT Olafur, sem lagði upp markið sem Guðmundur Torfason skoraði í Tyrklandi, fékk högg framan á lærið. Að sögn Guðna Kjartanssonar, aðstoðarmanns Sigi Helds, í gærkvöldi, er ekki ljóst hvort Ólafur getur leikið á morgun — „en við gerum auðvitað allt sem við getum til að fá hann góðan af þessum meiðslum. Við verðum að vona það besta," sagði Guðni. Friðrlk mekldist á læri í leik f Danmörfcu Friðrik Friðriksson, sem stóð sig frábærlega í markinu í leiknum gegn Tyrkjum — varði m.a. víta- spymu — meiddist í leik með B 1909 í Danmörku á laugardaginn. Friðrik fékk högg á læri og stakk hann við þegar hann kom til móts við landsliðið í Vestur-Berlín á sunnudaginn. Friðrik meiddist í Ieik gegn Skov- bakken. Staðan var 0:1, fyrir Skov- bakken þegar hann fór af leikvelli. Þar sem Friðrik er eini markvörður B 1909, varð útispilari að fara í markið og mátti sá hirða knöttinn þrisvar sinnum úr netinu hjá sér, en Skovbakken sigraði 4:0. Leik- menn B 1909 léku lengstum aðeins tíu, því að einn leikmaður liðsins fékk að sjá rauða spjaldið. Tveir aðrir leikmenn íslenska landsliðsins áttu við smávægileg meiðsli að stríða, er þeir komu til Frförlk Frlörlksson meiddist í leik í Danmörku um helgina. móts við liðið um helgina. Gunnar Gíslason fékk spark í hægri fót í leiknum gegn Tyrklandi og Atli Eðvaldsson fékk högg á læri. „Meiðsli þeirra eru ekki alvarleg. Þeir verða klárir í slaginn gegn Austur-Þjóðvetjum," sagði Gylfi Þórðarson, formaður landsliðs- nefiidar KSÍ. „Hugur f mönnum“ Gylfí sagði að það væri enn óljós^ hvort að Friðrik verði orðinn góður fyrir leikinn. „Það er því mikill styrkur fyrir okkur að fá Bjama Sigurðsson," sagði Gylfí. Landsliðið æfði tvisvar í gær - I gærmorgun í V-Berlín og í gær- kvöldi í A-Berlín. Tvær æfíngar verða í dag og fer önnur þeirra fram á vellinum sem Ieikið verður á - í flóðljósum. „Það er mikill hugur í mönnum og leikmenn eru ákveðnir að láta ekki söguna endurtaka sig frá því í Evrópukeppni landsliða, þegar Austur-Þjóðveijar unnu stór- sigur, 0:6, á Laugardalsvellinum," sagði Gylfí. Ólafur Þóröarson, sem lék mjög vel I Tyrklandi á dögunum, meiddist á æfingu í gær og óvíst er hvort hann verði með á morgun. Guðni Kjartansson vonast þó til að svo verði. ■ SIEGFRIED Held, þjálfari knattspymulandsliðsins og Atli Eðvaldsson, fyrirliði, vöknuðu snemma í gærmorgun, eða klukkan sex. Ástæðan fyrir því að þeir risu svo snemma úr rekkju var að þeir mættu kl. 7 í viðtal, sem var sýnt í gærkvöldi í sjónvarpstöðinni í Vestur-Berlín. ■ LEIKMENN landsliðsins voru ekki yfír sig ánægðir þegar þeir sáu sjónvarpsþátt frá London á sunnu- daginn. I þættinum var verið að ræða um þá tólf leiki í heimsmeist- arakeppninni, _ sem verða leiknir annað kvöld. í þættinum var talað um tvo auðvelda leiki fyrir heimalið- in. Það voru leikur Póllands og Albanfu og leikur A-Þýskalands og íslands. Sagt var að Pólveijar og A-Þjóðveijar ættu ekki að eiga í vandræðum með mótheija sína. ■ ÍSLENSKA landsliðið mun æfa á leikvelli Dynamo Berlín í dag kl. 17. Landsleikurinn fer fram á vellinum á morgun. Völlurinn heitir Friedrich-Ludwig-Jahn- Sportpark og tekur 25.000 áhorf- endur. ■ LEIKMENN landsliðsins ósk- uðu eftir því á sunnudaginn, að þeir myndu yfírgefa Austur-Berlín strax eftir leikinn gegn A-Þjóð- veijum. Siegfried Held, landsliðs- þjálfari varð við ósk þeirra. Lands- liðshópurinn heldur því yfír til V- Berlfnar strax að leik loknum. ■ ÍSLENDINGARNIR em ekki ánægðir með aðstæður á hóteli sínu í Austur-Berlfn. „Við vomm að hugsa um að vera einn dag til við- bótar í Vestur-Berlín, en eftir að hafa hringt austur á hótelið og fengið meðal annars þau svör að sjónvarp væri á hveiju herbergi, ákváðum við að fara í dag,“ sagði Guðni Kjartansson í gærkvöldi. Er á hótelið kom, kom í Ijós að ekki eitt einasta sjónvarp var að fínna, nema á herbergi Gylfa Þórð- arsonar, fararstjóra, ■ LANDSLEIKURINN verður sýndur beint í Sjónvarpinu á morg- un. Útsending hefst kl. 17. faémR FOLK ■ SIGURÐUR Halldóraaon, markakóngur 4. deildar í sumar hefur ákveðið að leika með Breiða- bliki næsta sumar. Sigurður skor- aði 22 mörk fyrir Augnablik í sum- ar. ■ EINN leikur var í v-þýsku úrvalsdeildinni í knattspymu um helgina. St. PauU og Gladbach gerðu jafntefli 1:1. Hans-Jörg Cri- ens náði foiystunni fyrir Gladbach í fyrri hálfleik og átti skömmu síðar skot í stöng. í síðari hálfleik jafn- aði Jtirgen Gronan fyrir St. Pauli. ■ BRÆÐURNIR Daníel og Grétar Einarssynir hafa ákveðið að leika með Vfði Garði í 2. deild- inni í knattspymu næsta sumar. Þeir léku með IBK í sumar en léku áður með Vfði. ■ JAN Mölby, leikmaður Liver- pool var ( gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ofsa akstur. Hann ók á 160 km hraða í gegnum íbúðarhverfí. Þetta var þriðja brot Mölby og því fékk hann þungan svo dóm. Mölby þarf því að sitja a.m.k. sex vikur í fangelsi. Stjóm Liverpool mun funda um málið en svona framkoma er ekki að skapi ráðamanna á Anfield. Tveir sigrar Þjóðveija á Júgóslövum V-Þjóðverjar með sterkt lið í B-keppninni VESTUR—ÞJÓÐVERJAR viröast vera meö mjög sterkt lið um þessar mundir. Liö þeirra œfir fyrir B-keppnina f Frakklandi f febrúar og hefur gengið vel á æfingaleikjum sínum. Um helg- ina lék liöið gegn Júgóslövum sem hlutu bronsverðlaun f Seo- ul. V-Þjóðverjar sigruðu í tveimur leikjum en einum lauk með jafntefll. Leikina dœmdu íslendingarnir Gunnar Kjart- ansaon og Rögnvald Erllngs- son. Þjóðveijar sigruðu í fyrsta leikn- um sem fram fór í Stuttgart, 29:26. Christian Fitzek skoraði 9 mörk fyrir Þjóðveija og Martin ■■■■■■ Schwalb, sem átti FráJóni mjög góðan leik, H. Garöarssyni gerði 6 mörk. Saraz- iV-Þýskalandi wevic, Puc og Smai- lagic skoruðu fímm mörk,hver fyrir Júgósiava. Jochen Fraatz skoraði 500. mark sitt fyrir v-þýska landsliðið í leik gegn Júgóslövum um helgina. 600. maifc Fraatz Annar leikurinn fór fram í Frank- furt og lauk með jafntefli, 22:22. Júgóslavar jöfnuðu nfu sekúndum fyrir leikslok. Jochep Fraatz átti mjög góðan leik og skoraði 5 mörk. Fyrsta markið sem hann skoraði f leiknum var 500. landsliðsmark hans fyrir Þjóðveija. Puc var markahæstur í liði Júgóslava með 6 mörk. Þriðji leikurinn fór fram f Karlsruhe og lauk með sigri Þjóð- veija 22:19. í leikhléi var staðan 12:10, Þjóðveijum í vil. Jochen Fraatz skoraði 8 mörk fyrir Þjóðveija og Grupe 3. Slavko Portner var markahæstur Júgó- slava með 10 mörk og Momir Rnic gerði 3 mörk. Þjóðveijum hefur gengið mjög vel í æfíngaleikjum sínum og eru bjartsýnir á sigur í B-keppninni í FVakklandi í febrúar. HANDKNATTLEIKUR Axel Nlkulásaon. Axel meiddur Axel Nikulásson leikur ekki með ÍBK f. úrvalsdeildinni í körfu- knattleik næstu vikumar. Hann meiddist f leik liðsins gegn KR og verður að taka sér fjögurra vikna frí. Leikurinn gegn KR var 100. deildarleikur Axels en strax á fyrstu mínútu lenti hann í samstuði og varð að yfírgefa völlinn. Axel verð- ur í gipsi f tvær vikur og líklegt að hann missi a£6-8 lóikjum ÍBK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.