Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.10.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 B 3 Haraldur Ólafsaon setti nýtt íslandsmet i óiympiskum lyftingum á móti i Áiaborg um helgina. Haraldur setti íslandsmet íÁlaborg HARALDUR Ólafsson, lyftlnga- maðurfrá Akureyri, setti nýtt íslandsmet í ólympfskum lyft- ingum á móti f Alaborg f Dan- mörku um helgina. Haraldur jafnhattaði 175 kg í 82.5 kg flokki og snaraði 132.5 kg. Samtals iyfti hann hann 307.5 kg. Haraldur bætti gamla ÞÓ Maradona hafi alltaf sagt að það vœri ekki eingöngu hon- um að þakka þegar Napólf lóki vel, er liðið vœgast sagt Iftils virði þegar hann er ekki á vell- inum. Napólftapaði fyrir Lecce, en AC Milanó án Gullit heldur velli, og Pescara 3-1. Inter Milan átti góðan leik gegn Pisa, vann 4-1. Leik Juventus og Cesena lauk með jafntefli 2-2, en þó hafði Juve yflrhöndina allan tfmann. Za- varov átti frábæran leik og er einn af sterkustu leik- Brynja mönnum deildarinn- Tomer ar. Þrumuskot hans skrifarfrá eru óveijandi. Za- varov skoraði fyrsta markið á 27. mínútu með vinstri fótar spymu, en Cesena jafnaði á 35. mínútu. Eina vítaspyman sem dæmd var í deildinni var dæmd á Cesena. De Agostini skoraði úr víta- spymunni á 40. mínútu, en á 35. mfnútu seinni hálfleiks komst Cut- tone í gegnum vöm Juve og skoraði. AC Mílanó er heilsteyptasta og sterkasta lið deildarinnar það sem af er. Gullit lék ekki með um helg- ina og var Virdis sterkasti maður leiksins gegn Pescara. Hann fékk sendingu frá Van Basten á 30. mínútu og skoraði fallegt mark. Van Basten skoraði annað markið á 62. mínútu og Ancelotti skoraði svo þriðja markið sjö mfnútum síðar. Edmar skoraði eina mark Pescara undir lok leiksins. metið sitt um eitt kg í jafnhöttun og samanlögðu. íslenskir lyftingamenn fengu þrenn gullverðlaun. Haraldur sigr- aði f sínum flokki og einnig þeir Guðmundur Sigurðsson, ÍR og Þor- valdur Rögnvaldsson, KR. Baldur Borgþórsson, KR, fékk brons í sfnum flokki. Inter Milan vann Pisa 4-1 í stór- skemmtilegum leik. Bemazzani skoraði mark Pisa í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik fóm Inter-menn heldur betur af stað og skomðu 4 mörk. Brehme skoraði fyrsta mark- ið á 54. mfnútu, og Diaz annað mark á 75. mfnútu. Taccola skoraði þriðja mark Inter á 83. mínútu og þremur mfnútum síðar skoraði Matthaús. Þtjóskan f Maradona Eins og greint var frá hér að framan, lék Maradona ekki með um helgina. Lfklega verður hann að taka sér tveggja mánaða frí frá vellinum, því hann ofreyndi sig í sfðustu viku. Bianchi þjálfari Nap- ólf fór þess á leit við Maradona að hann léki ekki með í fyrsta leik deildarinnar vegna meiðsla. Mara- dona tók það hins vegar ekki í mál, sagðist vilja leika, og fór svo til Spánar á miðvikudaginn og lék vináttulandsleik Argentínu og Spánar. Þetta var of mikið álag á Maradona. Hann verður sennilega að vera frá f tvo mánuði - tognað- ir lærvöðvar sem ekki má ofreyna, því hætta er á vöðvasliti. Þijóskan, að vilja endilega leika f fyrsta leikn- um, varð honum því dýrkeypt, og liðið er eins og vængbrotinn fugl þegar hann er ekki með. Napólí var ótrúlega sundurlaust um helgina f leiknum gegn Lecce, sem í fyrra var f einu af neðstu sætum deildar- innar. Vamarmaður Lecce, Baroni, skoraði markið með skalla á 10. I mínútu. ■ TVEJR þjálfarar hafa sótt um framkvæmdastjórastöðuna hjá WBA. Það eru John Bond, fyrrum stjóri Man. City og Tony Barton, sem var við sljómvölinn hjá Aston Villa um tíma. D RON Atkinson, sem hætti á dögunum hjá WBA, fylgdist með sfnu nýja liði, Atletico Madrid á Spáni, um helgina og sá það sigra Espanol á heima- FráBob. velli, 6:1. Hennessy D ATKINSON iEnglandi mælti með því áður en hann fór til Spánar að WBA fengi Joe Royle frá Oldham sem eftirmann sinn. Brian Talbot, fyrirliði WBA, hefur nú sagt að hann hafl áhuga á að verða stjóri félagsins. D BOBBY Mimms, markvörður Tottenham, hefur verið harðlega gagnrýndu upp á sfðkastið fyrir að standa sig ekki nógu vel. En leik- menn félagsins standa með honum og hafa Terry Fenwick og fyrirlið- inn Gary Mabbutt báðir beðið Terry Venables, sfjóra félagsins að selja ekki markvörðinn. D PETER Barnes, hinn vfðförii útheiji sem var f enska landsliðinu hér á árum áður, hefur verið rekinn frá Portimonese í Portúgal. Hann hafði gert tveggja ára samning við félagið en hefur aðeins verið þar f sex vikur. D NEWCASTLE var reiðubúið að greiða 200.000 pund í skaðabæt- ur til Derby ef félagið fengi Art- hur Cox sem framkvæmdastjóra, en hann er nú stjóri Derby. Fyrir Qórum og hálfu ári hætti Cox sem stjóri Newcastle í fússi vegna ósamkomulags um samning. Hann á nú þrjú og hálft ár eftir af samn- ingi sínum við Derby, og ætlar sér að vera áfram hjá Derby þrátt fyr- ir gott tilboð frá Newcastle. D JACKŒ MHburn, einn fræg- asti leikmaður Newcastle í gegnum tíðina, lést á dögunum, 64 ára að aldri. Hann var goðsögn í Norður- Englandi. Milburn gerðist blaða- maður eftir að ferli hans sem leik- maður lauk, og lagði pennan ein- mitt á hilluna í sumar. Fljótlega eftir það veiktist hann og lést fyrir skömmu. Ösku hans var dreift yfír St. James’s Park, leikvöll New- castle. ■ NÝLEGA var tekin í notkun ný og glæsileg stúka, sem kostaði 4,5 milljónir punda. Forystumenn félagsins hafa ákveðið að hún verði kölluð Milburn-stúkan f höfuðið á leikmanninum. D EINN stjómarmanna Derby flaug á dögunum til SevíUa á Spáni til viðræðna við Jock Wallace. Hann var áður stjóri m.a. hjá Glas- gow Rangers, en réðist síðar til Sevilla. Eftir að hann var rekinn frá félaginu hélt hann þó kyrru fyrir f borginni, hefur búið þar. Ferð Derby mannsins er talið renna stoðum undir að félagið sé tilbúið að láta Arthur Cox fara, og hafi þá áhuga á að næla í Wallace sem eftirmann hans. Ron Atklnson, sem hætti á dögun- um hjá WBA, fylgdist með sfnu nýja liði, Átletico Madrid á Spáni um helg- ina. D ÍTALSKA liðið Bologna hef- ur áhuga á að kaupa Brasilfu- manninn Mirandhina frá New- castle. Hann er sagður mjög ósátt- ur við að Willie McFaul skyldi rek- inn úr stjórastarfínu, en McFaul keypti Brasilíumanninn til New- castle. D JESPER Olsen er sennilega á förum frá Manchester United. Hann er ekki inni f framtfðarmynd- inni hjá Alex Ferguson, sem hefur sagt Dananum að hann geti farið ef hann flnnur sér nýtt lið. Olsen, sem er 27 ára, giftist stúlku frá Manchester sfðastliðið sumar og hefur sagt að hann muni ekki leika fyrir annað enskt félag en United. Heyrst hefur að Ajax f Hollandi, sem hann lék með á sfnum tíma, hafl áhuga á að kaupa hann. Þá eru sögur á kreiki þess efnis að Ron Atkinson hafl hugsanlega áhuga á að kaupa hann til Atletico Madrid en Atkinson keypti hann á sfnum tfma til United. D IAN Durrant, landsliðsmað- urinn snjalli hjá Rangers, meiddist illa í leik gegn Aberdeen á dögun- um er Neil Simpson tæklaði hann á hroðalegan hátt í deildarleik. Hann var í fjóra klukkutíma á skurðarborðinu eftir atvikið og er nú í gifsi frá tá upp að nára. Hann verður í gifsi í 8 vikur. Öruggt er að hann leikur ekki meira á þessu keppnistímabili og verði heppinn að ná upphafí næsta tfmabils. UANNAR leikmaður Rangers, John McGregor, meiddist illa og hefur orðið að leggja skóna á hill- una vegna hnémeiðsla. Hann er 25 ára. Souness, sljóri félagsins, keypti hann 1987 fyrir 100.000 pund frá Liverpool. Hann lék að- eins 26 sinnum með aðalliðinu, sfðast 8 mfnútur sem varamaður f UEFA-leik gegn Katowice á dög- unum. D BILLY Bremner neitaði til- boði frá Hartlepool f 4. deild um að gerast framkvæmdastjóri, eftir að hann var rekinn frá Leeds. Hann er nú farinn í frí með íjöl- skylduna til útlanda. D JOE Royle, stjóri Oldham, hefur borgað Hull 40.000 fyrir Peter Skipper, fyrirliða liðsins. D MIDDLESBROUGH hefur selt framheijann Trevor Senior til Reading fyrir 125.000 pund. Seni- or skoraði mikið af mörkum fyrir Reading á sínum tfma, fór þaðan til Watford og sfðan til Boro. D BIRMINGHAM hefur keypt framhetjann Carl Richards frá Boumemouth fyrir 70.000 pund. D STEVE Coppell, stjóri Cryst- al Palace, fer ekki til Sheffield Wednesday. Forráðamenn Palace hafa lýst því yfír, en Coppell er einn þeirra sem hafa verið orðaðir sem eftirmaður Howard Wilkin- sons. D CHARLTON hefur fengið miðvallarleikmanninn Colin Pates að láni í einn mánuð frá Chelsea — en reiknað er með að gengið verði frá sölu á honum fyrir 430.000 pund. Það yrði mesta upp- hæð sem Charlton hefur greitt fyrir leikmann. Bobby Robson neitaði tilboði frá Leeds um að gerast framkvæmda- stjóri félagsins. D FORRÁÐAMENN Leeds höfðu samband við Bobby Robson, einvald enska landsliðsins, strax eftir að þeir ráku Billy Bremner úr stöðu framkvæmdastjóra, og buðu honum starfið. Robson neit- aði — sagðist ekki einu sinni vilja hugsa sig um. D HEIMSMEISTARAMÓT unglinga í frjálsum íþróttum verður líklega ekki haldið í borginni Varaz- din í Júgóslavíu á næsta ári, eins og til stóð. „Við efumst um að Varazdin geti haldið keppnina. Það vantar enn mikla peninga," sagði Mehmed Sokolovic, forseti júgó- slavneska fijálsíþróttasambands- ins. Hann bætti því við að borgim- ar Ljubljana, Zagreb og Belgrad vilji halda keppnina. D ULLEHAMMER mun sjá um að halda vetrarólympíuleikana 1994. Forsvarsmenn undirbúning- nefndar fyrir leikana segja að hagn- aður verði ekki undir 21 milljarði íslenskra króna. í frumáætlunum kemur fram að heildarkostnaður við mannvirlgagerð sem tengist leikun- um muni nema um 14,5 milljörðum íslenskra króna. KNATTSPYRNA / ÍTALÍA IMapólí eins 09 vængbrotinn fugl án Maradona

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.