Morgunblaðið - 18.10.1988, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRHXIUDAGUR 18. OKTÓBER 1988
Reynsluakstur
Mazda 626 Turbo Touring Sedan (með öllum fáanlegum búnaði,
nema flórhjólastýri)
Umboð á Islandi: Bílaborg hf
Verð (áætlun) kr. 1.950.000
PUNKTAR
Reynsluakstur á góðum vegum og vondum, möl og biki, alls
eknir rúmir 300 kflómetrar.
Vél og kram
Vél er þýðgeng og geysiöflug. Aflmælingar benda til að uppgefin
hestaflatala framleiðanda sé langt fyrir neðan raunveruleikann.
Sjálfskiptingu er hægt að stilla á hagkvæmni eða snerpu. Skiptir
harkalega í annan á inngjöf. Hægt að sleppa flórða. Kemur mjög vel út
í akstri, einkum ef bíliinn er hlaðinn að geta sleppt íjórða.
Drif er að framan og tekur nokkuð í stýrið, ef gefið er hraustlega í
beygjum, annars án veikleika.
Undirvagn
Stýri er með hjálparafli og aldeilis hæfilega létt, beygjuradíus er nokk-
uð stór, rásfesta framúrskarandi.
Fjöðrun er frábær.
Öryggisbúnaður
Boddýbygging er styrkt utan um farþégarými og sérstaklega með
tifliti til þess að bfllinn haldi rásfestu þótt mikið álag sé á yfírbygging-
unni.
Hemlar eru framúrskarandi góðir, ABS kerfíð virkar fullkomlega,
einnig þegar hemlað er með aðra hlið bílsins á möl, hina á biki.
Belti eru með ameríska laginu, í framsætum er efri hluti þeirra sjálf-
virkur og fer yfír öxlina þegar dyrum er lokað. Aftari belti góð.
Klæðning er lagleg, þægileg og alls staðar vel bólstruð, þar sem
hætta er á höggum.
Útsýni er gott til allra átta.
Ljós eru óaðfínnanleg, góð inniljós.
Þurrkur eru með ameríska laginu eins og beltin, þ.e. hægt er að
stilla biðrofann með nánast stiglausum stilli, geta varla verið betri.
Læsingar eru samhæfðar og mjög góðar.
Stjómtæki
Rofar eru vel staðsettir og auðveldir í notkun, en fímamargir ef allt
er talið, það tók langan tíma að læra á þá alla!
Mælaborð er mjög gott, jafnvel stafrænu mælamir eru skýrir og
auðvelt að fylgjast með framvindu akstursins. Hægt er að skipta á
milli mflu og kflómetramælingar á hraðamæli og ferðamæli, en aðalt-
eljari er beintengdur og aðeins með mílur.
Fótstig eru óaðfinnanleg.
Skiptir er sérlega góður. *
Þægindi
Rými er mjög vel nýtt og nægir fyllilega, höfuðrými gott, stillanleg
hæð ökumannssætis leyfír bæði stærstu og minnstu menn.
Hljóðeinangrun er helsti galli bflsins, mikill hvinur frá grófum veg-
um. Þama á Mazda eftir að læra af Ameríkönum. Vélarhljóð og vind-
hvinur eru í lágmarki.
Miðstöð er frábær, stillanlegt hitastig (Air Conditioning) og marg-
stillanlegur blástur. Engum vandkvæðum bundið að hafa fulla stjóm
á hitastiginu inni í bílnum.
Innstig/útstig er mjög gott.
Farangursgeymslan er mjög rúmgóð og aðgengileg, fellanleg fram-
sæti auka enn á notagildi hennar, sérstakur kostur að hægt er að
læsa sætisbökin uppi, gott öryggisatriði.
Smámunageymslur eru góðar.
Helstu kostir
Framúrskarandi skemmtilegur bíll í akstri, hefur fjölmarga eiginleika
sportbílsins og tapar engum eiginleikum hins notadijúga fjöl-
skyldubfls. Hljómtækin góðu tilheyra kannski ekki beinlínis sjálfum
bflnum, en eru óneitanlega einn af hans aðalkostum, spumingin er í
rauninni ekki um hvort maður vill hafa hátt, heldur hve hátt og mú-
síkinni ræður maður svo auðvitað sjálfur, stórskemmtilegar græjur!
Helstu gallar
MilriH hávíifli frá orrnfiim vnonim
AAgongllog og rúmgóð farangursgeymsla, hægt að fella bak aftursæta niður
að hluta eða að fullu.
Morgunblaðið/ÞJ
Mazda 626 Turbo Touring Sadan lítur sakleysislega út, en það er bara yfírborðið! Sannkallaður villingur á bak
við saklaust yfirbragð.
Þríein Ofurmazda
STUNDUM sjáum við bfla aug ■
lýsta til sölu og sagt: Einn með
öllul Hvað þýðir það? Oftast
að bíllinn sé sjálfskiptur, með
rafmagnsrúðum, útvarpi og
segulbandi, rafdrifnum sætum
og stundum rafdrifnum spegl-
um, samhæfðum læsingum og
sjálfvirkum hraðastilli. Allt
mjög þægilegt. En, kannski
ekki bráðnauðsynlegt, eða
hvað? Þessi aukabúnaður er
oftasttil þæginda, breytir
stundum eiginleikum bflsins,
verður stöku sinnum til að fátt
eitt er skylt með venjulega
bilnum og þeim með allt
aukadótið.-Nema etv nafnið og
útlitið. Þannig er þessum bfl
farið, sem við skoðum nú.
Þetta er sannkölluð Ofurmaz-
da. Hún á fátt nema nafnið og
útlitið sameiginlegt með þeim
venjulegu Mazda 626 bflum
sem hér eru seldir. Byggir þó
á sama grunni.
Hér ökum við Mazda Turbo
Touring Sedan. Þeir bflar fást
ekki hingað frá Japan, eru teknir
frá fyrir Ameríkumarkaðinn. Þessi
er líka keyptur vest-
ur í Kaliforníu. Gott
og vel, hvað er svo
merkilegt við hann?
Jú, hér er kominn
einn með öllu (nema
fjórhjólastýri). Eyð-
um ekki löngum texta hér í allan
búnaðinn, enda er það gert annars
staðar á síðunni. Skoðum bara það
helsta.
Þríeinqöðrun
Sem sönnum Ameríkubíl sæmir,
er þessi Mazda undurmjúk í akstri,
líður áfram og dúar svolítið á ójöfn-
um vegarins. Hún getur líka verið
stífari, tekur þá djarfmannlega á
móti holum og hvörfum og hallast
lítið f beygjunum. Loks getur hún
verið hörkustinn rétt eins og sport-
bflar eiga að vera, lætur sér hvergi
bregða þótt hraðinn sé mikill og
vegurinn ósléttur. Hún hefur nefni-
lega stillanlega §öðrun og er breytt
um eiginleikana með því einu að
styðja á einn þriggja hnappa í
mælaborðinu. Skiptir bíllinn þá
umsvifalaust um ham eftir þvf hvort
valin er mjúk, stinn eða hörð fjöðr-
un. Þegar skipt er um stiliingu er
engu líkara en skipt hafí verið um
bfl, svo mikill er munurinn á akst-
urseiginleikunum. Þetta er þó ekki
allt sem fjöðrunin gerir, örtölva
nemur boð frá dempurunum og á
einum fímmtugasta hluta úr sek-
úndu bregst hún við og gerir demp-
arana stífari þegar þarf. Gildir þá
einu í hvaða stillingu þeir eru fyrir!
Túrbínan togar
Það einkennir bfla með túrbínum,
að afl þeirra skilar sér ekki að fullu
um leið og gefíð er í. Tekur nokkr-
ar sekúndur fyrir túrbínuna að ná
snúningi og þjappa bensínblönduðu
loftinu inn á vélina. Ofurmazdan
er óvenju snögg upp, í byijun er
aflið þokkalegt, en svo kemur túrb-
ínan inn. Þá er eins og bifreiðin
hafí verið sett í risastóra teygju-
byssu. Aflið líkist því að togað sé
með jafnt vaxandi átaki, hratt vax-
andi, og ökumaðurinn fær um nóg
að hugsa við að horfa fram á veg-
inn og gæta sín að fara ekki of
geyst! Það hjálpar til, að vélin hefúr
tölvustýrðan gangráð, þar á meðal
er bein innspýting, einnig að ventl-
amir eru þrír á hvem strokk. Þrátt
fyrir aflið er vélin gangþýð, þar
hjálpar að vökva-„undirlyftur“ eru
innbyggðar í rokkerarmana.
Ótrúlegt hljómkarfl
Það þykir tilheyra í sportbílum
nútímans að geta þanið græjumar
með músík og haft hátt! Ekki síst
í svona bíl, sem er í rauninni ekki
sportbíll, heldur fjölskyldubíll með
sportbílaeiginieika. í þessum bíl eru
engin vandræði með að útiloka hver
þau hljóð önnur sem maður vill.
Útvarpið, segulbandið eða geisla-
spilarinn geta séð til þess með að-
stoð sex hátalara ogtvöfalds magn-
arakerfís. Ótrúlegt hljómkerfí, eng-
in heyranleg brenglun á mesta
styrk, sama hvort hlustað er á talað
mál eða músfk. Það kostar líka sitt,
130.000 krónur, og er okkur þó
sagt að það sé langt frá því að
vera það fullkomnasta og dýrasta
sem fæst í bfla! En þetta kemur í
bílnum frá verksmiðjunni og er ekki
að heyra að nokkru þurfí við að
bæta!
Ofurbfll
Venjuleg Mazda 626 er bara
venjulegur. bfll. Ágætis bíll og
stendur fyrir sínu. Kannski ekkert
sérstakur bfll. Svo kemur Mazda
626 Turbo Touring Sedan og stillir
sér upp við hiið venjulegu Möz-
dunnar. Felgumar og dekkin eru
öðruvísi, stuðaramir líka. Sé grannt
skoðað má sjá á hliðum síðamefnda
bílsins GT merki og aftan á honum
TURBO merki. Þá er nánast talinn
sá munur sem sést á þessum bflum.
En sé þeim ekið, fer maður óðara
að efast um að þeir séu sömu gerð-
ar, slíkur er munurinn. í fáum orð-
um sagt, er Ofurmazdan framúr-
skarandi leikfang bfladellumanns-
ins og heldur um leið öllum kostum
flölskyldubflsins, nema að vera ódýr
í innkaupum! Allan tímann sem við
ókum bflnum var hann eins og hug-
ur manns. Aksturseiginieikar að
eigin vali, í stffari stillingunum var
sama hvemig vegurinn var, sléttur,
holóttur, hvörf, allt gekk upp,
bfllinn hreinlega límdur við veginn.
Inni eru þægindin með ágætum,
þama er allt sem manni getur dot-
tið í hug að hafa í bíl, til þæginda,
gagns, gamans, eða allt í senn.
Plássið er gott eins og í venjulegri
Mözdu og sætin fín, kannski heldur
þröng sessan í framsætunum. Eitt
er þó til vansa. Það er með Of-
urmözduna eins og marga aðra bíla
í þessum stærðarflokki, að mikill
hvinur er frá grófum vegum um
hjólabúnaðinn. Leiðindahávaði og
þreytandi. En, svo er auðvitað hægt
að smeygja Van Halen diski í spilar-
ann og skrúfa vel upp - þá heyrist
ekki mikill veghvinur!
BÍLAR
Þórhallur
Jósepsson
skrifar