Morgunblaðið - 08.11.1988, Side 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUbAGUR 8. NÓVEMBER 1988
HANDKNATTLEIKUR / IHF-KEPPNIN
FH-ingar
nýttuvel
tímann!
Guðjón Árnason tryggði Hafnfirð-
ingum farseðilinn í 2. umferð Evr-
ópukeppninnará síðustu sekúndu
FH KOMST áfram í 2. umferð
Evrópukeppni félagsliða með
glæsilegum sigri á norska lið-
inu Fredensborg/SKI — eftir
ótrúlegar lokasekúndur — í
seinni leik liðanna sem fram fór
í íþróttahúsinu í Hafnarfirði á
sunnudag. Lokatölur leiksins
urðu 29:24 og fer FH áfram á
reglunni um fleiri mörk skoruð
á útivelli, en fyrri leik liðanna
sem háður var í Noregi lauk
með sigri FSB/SKI 30:25. Guð-
jón Arnason skoraði 29. mark
FH á síðustu sekúndu leiksins.
FH-ingar hófu leikinn staðráðnir
í að leggja allt í sölumar til
að vinna upp forskot Norðmann-
anna úr fyrri leik liðanna. FSB/SKI
lék vörnina framar-
Sigurjón lega frá upphafi,
Einarsson nokkuð sem olli FH
skrifar erfiðleikum i fyrri
viðureigninni. Lars
Tore Ronglan gætti Héðins Gilsson-
ar eins og sjáaldurs augna sinna,
en um leið losnaði um aðra leik-
menn FH liðsins. Þrátt fyrir gæsl-
una reif Héðinn sig upp, skoraði
falleg mörk í byijun leiks og FH
náði strax undirtökunum.
Góð byrjun
Norðmennimir virkuðu þungir og
FH-ingar gengu á lagið. Mátti sjá
tölur eins og 4:1 og 9:5 á markatöfl-
unni. Það voru Óskar Ármannsson
og Guðjón Ámason, sem vom hvað
atkvæðamestir í sókninni. Vörnin
var góð hjá FH-ingum framan af
með þá Þorgils Ottar og Óskar
Helgason í öndvegi. En þegar tíu
mínútur voru eftir af fyrri hálfleik
kom slæmur kafli hjá FH. Vörnin
opnaðist oft illa, sóknimar urðu
fálmkenndar og Norðmennirnir
breyttu stöðunni úr 11:7 í 11:11 á
skömmum tíma. FH-ingar réttu þó
úr kútnum fyrir hlé og vom yfir í
hálfleik 15:13.
Baráttuviljl
I seinni hálfleik var það sama
upp á teningnum og í þeim fyrri.
Norðmennimir tóku Héðin áfram
úr umferð, og sóknimar hvíldu á
þeim Oskari Armannssyni og Guð-
jóni. Þorgils Ottar var í strangri
gæslu á línunni og hafði lítið svig-
rúm. Munurinn á liðunum var þetta
tvö til þrjú mörk gegnum gangandi
í síðari hálfleik, og virtust Norð-
mennimir ætla að geta hangið í
FH-ingum — var eins og herslu-
muninn vantaði hjá FH. En baráttu-
viljinn var mikill í Hafnfírðingunum
og hann réði úrslitum í þessum leik.
Takmarklnu náð
Þegar um fímm mínútur voru til
leiksloka, náðu FH-ingar fjögurra
marka foiystu. Þorgils Ottar skor-
aði fallegt mark, staðan 27:23 og
fór að fara um hina fjölmörgu
áhorfendur. Norðmennimir misnot-
uðu sókn, Héðinn Gilsson sendi
þrumufleyg í markið og fímm
marka takmarkinu var náð, 28:23.
Norðmennimir hófu sókn og Ronald
Johansen minnkaði muninn. Þegar
FH - FSB/SKI
29 : 24
íþróttahúsið í Hafnarfírði, IHF-keppn-
in í handknattleik, sunnudaginn 6.
nóvember 1988.
Gangur leiksins: 2:0, 2:1, 4:1, 5:2,
6:3, 7:4, 8:5, 9:5, 9:7, 11:7, 11:11,
12:11, 14:11, 14:12, 15:12, 15:13,
16:13, 17:14, 17:16, 20:16, 21:17,
21:19, 23:19, 23:21, 24:21, 24:22,
25:23, 27:23 28:23, 28:24, 29:24.
Mörk FH: Óskar Arm annsson 10/4,
Guðjón Ámason 7/1, Gunnar Bein-
teinsson 4, Héðinn Gilsson 4, Þorgils
Óttar Mathiesen 2, óskar Helgason 2.
Varin skot: 11 skot.
Mörk FSB/SKI: Lars T. Ronglan 6,
Roger Kjendalen 4, Oystein Havang
4/1, Ronald Johansen 4, Dag V. Han-
stad 3, Roger Johansen 2 og Knut
Haland 1.
Varin skot: 12.
Dómarar: Henrik Mortensen og Niels
Knudsen frá Danmörku.
Áhorfendur: Um 1000 — troðfullt hús.
rétt rúm mínúta var til leiksloka,
fékk Þorgils Ottar sendingu inn á
línuna, en vamarmenn FSB/SKI
þrengdu að honum og Pal O. Tjerns-
haugen markvörður varði skot
hans. Þar með virtist vonin úti hjá
FH. Fredensborg hóf sókn, reyndi
að tefja tímann, fékk dæmd auka-
köst og klukkan tifaði. Átta sekúnd-
um fyrir leikslok skaut svo Ronald
Johnsen að marki FH-inga, en
Magnús Amason varði skot hans.
Magnús sendi boltann umsvifalaust
langt fram völlinn, á Þorgils Ottar.
Þorgils sendi hann áfram í hægra
homið á Guðjón Amason, sem skor-
aði með góðu skoti í sömu andrá
og dómaramir flautuðu leikinn af.
Hreint ótrúlegur endir á miklum
baráttuleik. Iþróttahúsið í Hafnar-
fírði ætlaði hreinlega að rifna af
fögnuði áhorfenda og leikmanna
FH enda ekki oft sem fólk verður
vitni að eins spennandi lokamínút-
um og ánægjulegum endalokum,
og á varð raunin í þessum leik.
Uðsheildin sköp slgur
Leikmenn FH eygðu von allt til
síðustu sekúndu og baráttan var
geysileg. Leikur þeirra var samt
köflóttur, en það var liðsheildin sem
skóp sigurinn. Mikið mæddi á þeim
Oskari Armannssyni og Guðjóni
Amasyni í sókninni. Gunnar Bein-
teinsson var sömuleiðis góður og
Héðinn Gilsson sýndi falleg tilþrif
þau fáu skipti sem hann slapp úr
strangri gæslu Norðmannanna.
Þorgils Ottar stýrði liði sýnu afar
vel í vöminni, en hann átti erfiðara
um vik inni á línunni enda tekin
föstum tökum. Sömuleiðis átti
Oskar Helgason góðan leik í FH
vöminni.
Norska liðið var áþekkt því sem
búist var við. Það saman stendur
af sterkum einstaklingum, og ber
þar hæst þá Roger Kjendalen, Oy-
stein Havang, og Dag V. Hanstad.
Það var vægast sagt dauft í leik-
mönnum Fredensborg/SKI eftir
leikinn, og virtist sem leikmenn
ættu bágt með að trúa því sem
gerst hafði. Danskir dómarar leiks-
ins dæmdu þokkalega, gerðu mis-
tök, en dæmdu vel þess á milli.
Sigurmarkið!
Guðjón Amason skorar sigurmarki á síðustu sekúndunni. Eftir að hafa fengið knöttinn frá Þorgils Óttari þrumaði hann knettini
- sagði Guðjón Árnason, eftir að hafa skorað á síðusti
góðum degi.“
Vlggó Slgurðsson:
Guðjón Amason:
„Það var ólýsanleg tilfínning að
sjá boltann í netinu og ég hef ekki
almennilega áttað mig á þessu enn-
þá. Þetta er nokkuð sem gerist
bara einu sinni á ferlinum, og er
örugglega mikilvægasta markið
sem ég hef skorað hingað til. Leik-
urinn var afar köflóttur hjá okkur
en miklu betri en úti í Noregi. Þetta
norska lið er svona þokkalegt, en
ég er sannfærður um að við eigum
að geta unnið það hvar sem er á
„Þetta var virkilega sætur sigur,
sem liðsheildin skóp. Lið Fredens-
borg/SKI lék mjög áþekkt þv! sem
það lék úti, en það vorum við sem
lékum allt annan og betri leik. Við
áttum von á því að þeir tækju Héð-
in úr umferð, og við höfðum undir-
búið okkur vel fyrir það. En leikur-
inn var engan veginn án mistaka
af okkar hálfu. Það var ýmislegt í
þessu sem við verðum að bæta fyr-
ir átökin I vetur. Dómaramir voru
nokkuð góðir, við högnuðumst svo-
lítið á þeim I fyrri hálfleik og Norð-
mennimir í þeim seinni. Eg var
orðin ansi heitur þama á tímabili í
síðari hálfleik, og áminningin var
réttmæt."
borglls Ottar IMathleson:
„Eg vil fyrst og fremst þakka
áhorfendum fyrir frábæran stuðn-
ing. Þeir hafa ekki svo lítið að segja
I leik sem þessum, og þeir voru frá-
bærir í kvöld. Tæpara gat það ekki