Morgunblaðið - 16.11.1988, Síða 1
72 SIÐUR B
263. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Veiðar EB á NV-Atlantshafí:
Vilja 110 þúsund
tonna þorskkvóta
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fróttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins leggur til að veiði-
heimildir fiskiskipaflota banda-
lagsins á þorski á Norðvestur-
Atlantshafi verði 110.000 tonn á
næsta ári. Það er 85.000 tonnum
meira en Norðvestur-Atlantshafs-
nefiidin (NAFO) gerir ráð fyrir i
tilllögum sínum.
í tillögum framkvæmdastjórnar-
innar er gert ráð fyrir óbreyttum
veiðiheimildum á Norðvestur-Atl-
antshafi og við Grænland. Hins veg-
ar vantar í tillögumar allt sem varð-
ar samninga við Svía, Norðmenn og
Bandaríkin:
Brady áfi’am
fjármála-
ráðherra
Washington. Reuter.
GEORGE Bush,
verðandi for-
seti Banda-
rikjanna,
skýrði frá því í
gær að hann
hygðist fá Nic- [■k?'' , ' jgl
holas Brady, [ Sfe-. vjijl
sem nú gegnir ÍHJLAI
stöðu flármála- Nicholas
ráðherra, til að Brady
gegna þeirri stöðu áfram eftir
að Bush tekur við völdum i jan-
úar næstkomandi.
Brady er 58 ára að aldri og tók
við embættinu af James Baker í
ágúst síðastliðnum en Baker verður
utanríkisráðherra í stjóm Bush.
Brady hefur verið fylgjandi sam-
ræmdum aðgerðum á alþjóðavett-
vangi til að koma í veg fyrir frek-
ara fall dollarans.
Færeyinga vegna þess að samráðs-
fundum þessara aðila er ekki lokið.
Tillögumar em því lagðar fram
hálfkaraðar til að þær nái tilskildum
fyrirvömm fyrir ráðherrafund sem
haldinn verður 28. þ.m.
Evrópubandalagið hefur undan-
farin ár ákveðið einhliða veiðiheim-
ildir sínar í Norðvestur-Atlantshafi
fyrst og fremst vegna ágreinings við
Kanadamenn um niðurstöður fiski-
fræðinga. Kanadamenn em sakaðir
um að leggja undantekningarlaust
til lægstu heimildir án þess að skoð-
aðir séu aðrir möguleikar eða tekið
tillit til efnahags- eða félagslegra
aðstæðna. Evrópubandalagið hefur
og lagt áherslu á að það geti ekki
fallist á yfirráðarétt einstakra þjóða
á alþjóðlegum hafsvæðum utan 200
mílna lögsögu. í Kanada hefur því
verið haldið fram að veiðar EB á
þessu svæði stefni þorskstofninum í
Norður-Atlantshafí í umtalsverða
hættu og í rauninni séu aðferðir
þeirra óþolandi.
Reuter
Yasser Arafat (t.h.) og Georges Habash (t.v.) sjást hér fagna því að Arafat hefur lýst yfir stofiiun sjálf-
stæðs rikis Palestínumanna á fundi Þjóðarráðs Palestínu í Algeirsborg. Habash er í hópi róttækra skæru-
liðaleiðtoga sem voru andvigir þeirri stefiiu Arafats að samþykkja ályktun SÞ frá 1967 en i sam-
þykktinni felst óbein viðurkenning á ísrael.
Sjálfstæðisyfírlýsing Þjóðarráðsins í Algeirsborg:
Mikill fögriuður meðal Pal-
estínumanna um allan heim
Arafat hvetur Israela og Bandaríkjamenn til
að koma til móts við Þjóðarráðið og semja um frið
Algeirsborg, Jerúsalem, Washinpton, Amman. Reuter. Daily Telegraph.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna,
PLO, lýsti yfir stofiiun sjálfstæðs
rikis Palestínumanna á fiindi
Þjóðarráðs Palestinumanna sem
lauk í Algeirsborg í gær. ísraelar
Kosið íPakistan
Reuter
Lýðræðislegar þingkosningar fara fram í Pakistan í dag í fyrsta
sinn eftir 11 ára herstjórn. Flestir stjórnmálaskýrendur búast við
því að lítill munur verði á fylgi tveggja helstu stjórnmálafylking-
anna, Þjóðarflokks Benazirs Bhuttos og íslömsku lýðræðisfylking-
arinnar. Á myndinni sést Bhutto (t.h. með gleraugu) taka við ör
úr hendi fylgismanna sinna en örin er kosningatákn flokks henn-
ar. Sigri Bhutto verður hún fyrst kvenna til að ná völdum í
múslimariki á síðari timum.
lýstu þegar andstöðu sinni við
yfirlýsinguna og sögðu að Frels-
issamtök Palestínumanna, PLO,
væru enn sem fyrr hryðjuverka-
samtök. Fjölmörg ríki múslima
um víða veröld hafa þegar viður-
kennt hið nýja ríki. I sjálfstæðis-
yfirlýsingunni er ekki tilgreint
nákvæmlega hvaða landsvæði
hej^ri undir ríkið og ekki hefiir
verið sett á- laggirnar formleg
ríkistjórn. Palestínumenn á her-
numdu svæðunum í ísrael fogn-
uðu rikisstofiuminni ákaft þrátt
fyrir ógnanir israelskra yfir-
valda.
„í nafni guðs og þjóðar palest-
ínskra araba lýsir Þjóðarráð Pal-
estínu yfir stofnun ríkisins Palestínu
á landsvæði okkar, höfuðborg þess
verður Jerúsalem," sagði Arafat
frammi fyrir fundargestum er fögn-
uðu innilega orðum hans. Einn þjóð-
arráðsmanna sagði að þetta væri
vissulega aðeins byijunin; enn væru
Palestínumenn í útlegð, þjóðin liði
þjáningar en sjálfstæðisyfirlýsingin
yrði til þess að leiðin að lokatak-
markinu virtist styttri.
„Þetta eru bestu fréttir sem ég
hef heyrt í 50 ár,“ sagði aldraður
Palestínumaður í flóttamannabúð-
um í Jórdaníu og gleðitárin
streymdu niður kinnar hans. Landar
hans í Jórdaníu og öðrum araba-
löndum dönsuðu og sungu á götum
úti er þeir heyrðu fréttimar um yfir-
lýsingu Arafats. Sumir voru þó
varkárir og töldu yfirlýsinguna fyrst
og fremst hafa táknrænt gildi. „Er
þetta ríkið sem okkur dreymdi um?
Smáatriðin eru enn óljós og það eru
fyrir hendi erfiðleikar en ég vona
að við getum yfirunnið þá,“ sagði
palestínskur læknir í Kúvæt.
Nokkrum stundum eftir sjálf-
stæðisyfirlýsinguna höfðu fjölmörg
ríki múslima þegar viðurkennt Pal-
estínu, þ.á m. Alsír, írak og Jórd-
anía. Oljóst var hvort Egyptar
myndu veita fulla viðurkenningu en
þeir fóru fögrum orðum um yfirlýs-
ingu Þjóðarráðsins. íranar sögðu
samþykktimar í Algeirsborg aftur
á móti vera undanhald og Sýrlend-
ingar, sem lengi hafa verið andvígir
Arafat, hafa ekkert sagt um yfirlýs-
inguna.
Bandaríkjastjórn sagði PLO ekki
geta lýst yfir ríkisstofnun einhliða;
deiluaðilar yrðu að semja um
framtíð hemumdu svæðanna í ísra-
el. Stjómin hrósaði fundarmönnum
í Algeirsborg fyrir óbeina viður-
kenningu á tilvistarrétti ísraels en
tók fram að afstaða hennar til PLO
yrði óbreytt þar til samtökin viður-
kenndu ísrael vafningalaust og
vísuðu allri hryðjuverkastarfsemi á
bug.
Sjá ennfremur á bls. 24: „Þjóð-
arráð Palestínu ...“
Genfarviðræður um frið í Angólu:
Samið um brottflutning
kúbverska herliðsins
Genf, Lissabon. Reuter.
FULLTRÚAR Kúbveija, Angólumanna og Suður-Afríkumanna
náðu í gær samkomulagi um tímaáætlun fyrir brottflutning 50.000
manna kúbversks herliðs frá Angólu. Ríkisstjórnir landanna eiga
eftir að staðfesta samninginn.
Viðræðulotan var framlengd á
mánudag en upphaflega átti hún
aðeins að standa í þijá daga. Suð-
ur-Afríka hefur sett það sem skil-
yrði fyrir sjálfstæði Namibíu að
Kúbveijamir hafi sig á brott.
Fulltrúar UNITA-skæruliða-
hreyfingarinnar í Angólu, sem
barist hefur árum saman gegn
marxistastjórn landsins, fögnuðu
samkomulaginu. Þeir hafa ekki
tekið þátt í viðræðunum en segja
að stuðningsmenn þeirra, Banda-
ríkjamenn, er áttu frumkvæði að
viðræðunum, og Suður-Afríku-
menn, hafi gætt hagsmuna þeirra.