Morgunblaðið - 16.11.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988
27
Margir inúítar, m.a. á Grænlandi, hafa átt í erfiðleikum með að
aðlagast nýrri menningu og hefur það valdið mikilli fjölgun sjálfs-
morða meðal þessara frumbyggjaþjóða. Myndin er tekin við Qölbýlis-
hús í grænlenskum bæ.
„Það er ekki beinlínis ástarsorg-
in, sem veldur því, að maðurinn
tekur þann kost að skjóta sig, held-
ur er höfnunin kornið, sem fyllir
mælinn.“
Við sjálfsmorð ungu mannanna
vekur athygli, að annar hver þeirra
sviptir sig lífi frammi fyrir öðru
fólki og það oft á hrottalegan hátt.
Þegar karlar stytta sér aldur,
beita þeir oftast skotvopni. Konum-
ar hyllast fremur til að taka of stóra
lyfjaskammta. Þetta skýrir ef til
viil, hvers vegna flestir karlanna
láta lífið við sjálfsmorðstilraunir —
aðferðir þeirra eru „árangursrík-
ari“.
Ástandið verst
í A-Grænlandi
Rannsóknarstarf Thorslunds
nýtur styrkja frá Norðurlandaráði,
heilbrigðisyfirvöldum á Grænlandi
og grænlenskum bönkum. Það hef-
ur þegar leitt í ljós, að vandamál
þetta er mjög útbreitt á Græn-
landi, þó að ástandið sé sýnu verst
í austurhluta landsins. Og þar slær
Scoresbysund öll met. Það, sem
kemur ef til vill mest á óvart í þessu
sambandi, er, að enginn marktækur
munur er á sjálfsmorðatíðni í þétt-
býli og strjálbýli.
Sjálfsmorð eru algengust í hópi
atvinnulausra Grænlendinga. Þar á
eftir koma veiðimenn og sjómenn.
Fátítt er hins vegar, að heimavinn-
andi húsmæður og eftirlaunafólk
svipti sig lífi. Venjan hefur hins
vegar lengi verið sú á Grænlandi,
að sjálfsmorð hafi fyrst og fremst
verið sett í samband við gamalt
fólk, sem kosið hefur að hverfa úr
þessum heimi, þegar því hefur fund-
ist sem það gæti ekki lengur orðið
að liði í daglegu lífi.
Reuter
Sovézka geimfeijan Bylur svífur inn til lendingar í Baikonur-geim-
ferðamiðstöðinni í gær eftir velheppnaða jómfrúrferð.
fjögurra manna áhöfn. Til styttri
ferða geta átta menn aðrir verið
um borð auk áhfanarinnar. Sagði
í fréttum TASS að áhafnarklefí
ferjunnar væri 70 kvaðratmetrar
en það þýðir að áhöfn Byls hefur
mun meira olnbogarými en margar
álíka stórar sovézkar fjölskyldur.
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleið-
togi, sagði í gær að geimferð Byls
væri meiriháttar sigur fyrir
sovézka vísinda- og tæknimenn.
Steudhal
Snyrtivörukynning
ámorgunfrákl. 14-18.
Snyrtistofan DANA , Keflavík
V_________________H_________________)
Sovétríkin:
Gorbatsjov hvetur til að-
gerða gegn matarskorti
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétleiðtogi hvatti til viðtækra umbóta í
landbúnaði á fundi nokkurra leiðtoga kommúnistaflokksins á
mánudag. Fundurinn, sem var haldinn i Oryol-héraði, var helgað-
ur umræðum um viðvarandi matvælaskort í Sovétríkjunum. Er
litið á hann sem helstu ógnun við perestrojku Gorbatsjovs. Moskvu-
útvarpið hafði það eftir Gorbatsjov að mikilvægasta verkefiiið í
innanríkismálum Sovétríkjanna væri að auka framboð á land-
búnaðarafurðum.
„Gorbatsjov lagði áherslu á
nauðsyn breyttrar efnahagsstjóm-
ar á landsbyggðinni sem og nýjar
reglur um ábúðartíma jarða og
leigusamninga fjölskyldna," sagði
Moskvuútvarpið. Stjórnvöld í
Kreml hafa nýlega leyft bændum
að leigja jarðir til allt að 50 ára
í senn í þeim tilgangi að auka
framleiðslu á landbúnaðarafurð-
um.
„Það skiptir engu máli hvað
þeir í efstu þjóðfélagsstigunum
gera. Það gerist ekkert nema
vinnubrögðin breytist hjá þeim
sem undirstöðurnar hvíla á,“ sagði
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi í
setningarræðunni.
Auk Gorbatsjovs sátu fjórir aðr-
ir fastafulltrúar í stjórnmálaráðinu
fundinn auk þriggja félaga þar
sem ekki hafa atkvæðisrétt. Að
sögn Tass-fréttastofunnar, var
Jegor Lígatsjov, sem nýlega var
skipaður formaður nýrrar land-
búnaðamefndar, meðal þeirra sem
sátu fundinn.
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
Hér erum við
Þegar þú kemur meö bílinn í smurningu til okkar, færöu aö sjálf-
sögðu fyrsta flokks alhliða smurningu. En þaö eru tvö atriði sem viö-
skiptavinum okkar hafa líkað sérstaklega vel og viö viljum vekja
athygli þína á. Þessi tvö atriði framkvæmum við án sérstaks auka-
gjalds á öllum bllum, sem viö smyrjum.
í fyrsta lagi smyrjum viö huröalamir og læs-
ingar á bílnum. Þetta tryggir aö hurðir og læs-
ingar verða liðugar og auöopnaðar, jafnvel I
mestu frostum.
Tryggöu þér fyrsta flokks smurningu með því aö panta I síma
695670 eöa renna við á smurstöö Heklu hf. Laugavegi 172.
í öðru lagi tjöruhreinsum viö framrúöuna,
framljósin og þurrkublööin. Þetta lengir end-
ingu þurrkublaðanna og eykur útsýni og öryggi
I vetrarumferðinni.