Morgunblaðið - 16.11.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1988
Frá afhendingu gjafar Lionsklúbbs Akraness. Talið frá vinstri: Clive Halliwell hjúkrunarfiræðingur,
Guðjón Guðmundsson yfirlæknir, Ásthildur Einarsdóttir aðstoðarhjúkrunarforstjóri, Sigurður Ólafsson
framkvæmdasíjóri Sjúkrahúss Akraness, Jón Jóhannesson læknir, Þórir Bergmundsson læknir, Svavar
Óskarsson frá Lionsklúbb Akraness og Ríkharður Jónsson formaður stjórnar sjúkrahússins.
Akranes:
Sjúkrahúsinu gefin tæki
Akranesi.
SJÚKRAHÚSI Akraness var á dögunum afhentur að gjöf tækjabún-
aður að verðmæti um 700 þúsund krónur.
Það voru félagar í Lionsklúbbi
Akraness sem enn einu sinni komu
færandi hendi og afhenti fráfarandi
formaður klúbbsins, Jósef H. Þor-
geirsson, tækin fyrir hönd klúbb-
félaga. Ríkharður Jónsson formað-
ur stjómar sjúkrahússins tók við
gjöfinni og færði klúbbfélögum
þakkir fyrir hönd sjúkrahússins.
Tækin sem hér um ræðir eru
berkjusjá, kviðarholssjá og þvag-
blöðrusjá.
Það er áhaldasjóður Lionsklúbbs-
ins sem fjármagnar þessá gjöf, en
sjóðurinn var stofnaður 1958. Miklu
fiármagni úr sjóðnum hefur verið
varið til tækjakaupa fyrir sjúkra-
húsið á þeim þijátíu árum sem hann
hefur verið starfræktur. Mest af
tekjum sjóðsins hefur verið aflað
með árlegri ljósaperusölu á Akra-
nesi og nágrenni og segja má að
klúbbfélagar hafi fengið íbúa í þess-
um byggðarlögum í lið með sér með
þeim árangri sem hér hefur verið
lýst. _ jg
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hátíðarfúndinn sátu fúlltrúar allra iðnfræðsluskóla og gestir.
Samband iðnfræðslu-
skóla 40 ára
Samband iðnfræðsluskóla hélt
nýlega hátíðarfund i tilefni 40
ára afinælis sambandsins. Fund-
inn sátu fúlltrúar allra iðn-
fræðsluskóla i landinu og gestir
tengdir iðnfræðslunni. Gestir
hátiðarfúndarins voru iðnaðar-
ráðherra og ráðherra mennta-
mála.
Á aðalfundinum var Ingvar Ás-
mundsson endurlqörinn formaður
sambandsins.
— Sig. Jóns.
Ingvar Ásmundsson formaður
Sambands iðnfræðsluskóla setur
aðalfúndinn.
Dúnbændur vilja hreins-
un á Reykhóla
Miðhúsum.
AÐALFUNDUR Æðarræktarfé-
lagsins Æðarvés var haldinn á
Reykhólum 5. nóvember og er
mæting félagsmanna nær alltaf
góð. Fram kom á fúndinum að
áhugi er fyrir hendi að reisa
dúnhreinsunarstöð á Reykhólum
og mættu á fúndinn Guðmundur
Ólafsson oddviti Reykhólahrepps
og sveitarstjóri Reinhard Reynis-
son til þess að iræða málin.
Víða var aukning á dún þó að
vargur geri alltaf nokkurn usla og
einkum hjá þeim dúnbændum sem
ekki eru nógu harðir að verjá lönd
sín.
Æðarvé er deild í Æðarræktarfé-
lagi íslands. Stjómina skipa Ey-
steinn Gíslason í Skáleyjum formað-
ur, Steinólfur Lárusson í Fagradal
gjaldkeri og Þórður Jónsson í Árbæ
ritari. Að venju sá Lilja Þórarins-
dóttir um veitingar.
Félagssvæði Æðarvés nær yfir
tvær sýslur, Dalasýslu og Austur-
Barðastrandarsýslu, en það má
segja að þetta svæði sé eitt besta
æðarræktarsvæði landsins. Bæði er
að Breiðafiörður er með nær ótelj-
andi eyjar sem eru kjörið varpland
fyrir æðarfugl og reyndar margar
aðrar fuglategundir og svo er að
allar fiörur eru vaxnar þangi en
þangað sækja æðarungamir æti
sitt og em þangdoppumar kjörið
æti fyrir þá.
— Sveinn
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Ríkharður Jónsson formaður stjómar Sjúkrahúss Akraness tekur
við gjöfinni úr hendi Jósefs H. Þorgeirssonar.
RÝMINGARSALA
tekið til í kjallaranum
30-70% AFSLÁTTUR
ÚTLITSGALLAÐ EÐA HÆTT í FRAMLEIÐSLU '
borð, stólar
Ijós, lampar,
blómapottar
leirvara,
bútar-gluggatjöld
bútar-áklæði
værðarvoðir
16.-19. NÓVEMBER
epdl
FAXAFENI7-sími 687733
Stykkishólmur:
Aðalfiindur Útvegs-
mannafélags Snæfellsness
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR Útvegsmanna-
félags Snæfellsness var haldinn
í Stykkishólmi 5. nóvember sl.
og voru þar rædd hin ýmsu
vandamál útvegsins og framtíð-
arhorfúr.
Á fundinn mætti Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ, og gerði
hann grein fyrir stöðu sjávarútvegs
í dag. Umræður urðu talsverðar um
kvótamálin og hvemig bæri að haga
þeim með tilliti til þess að ýmis sjáv-
arpláss yrðu þar ekki útundan.
Ekki vom neinar samþykktir gerð-
ar. Þá var fyrri stjóm endurkjörin
og eins voru kosnir fulltrúar til að
mæta á aðalfund LÍÚ.
Eftir aðalfund var þess minnst
að Útvegsmannafélagið hefír nú
starfað í 25 ár og í tilefni þess var
fundarmönnum og mökum þeirrj^
boðið til kvöldverðar.
— Ámi