Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 13
88ei íiaaMagaa .e HUOAauTaöa .GiGAjavíuoHOM —M0RGUNBLAÐ]D.----------™ ■TOSTUBAGUR 9. DESEMDER 1988- K/IYNDBOND Sæbjörn Valdimarsson Samtök ísienskra myndbandaleiga: VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN 1.(1) Bestseller (Skífan) 2. ( 2) The Untouchables (Háskólabíó) 3. (19) Síðasti keisarinn (Myndbox 4. ( 4) Someone to Watch Over Me . (Skífan) 5. ( 8) Nuts (Steinar) 6. ( ---) Prince of Darkness (Myndbox) 7. ( 3) Flight of the Navigator (Steinar) 8. (--) Hello Again (Bergvík) 9. ( 7) Stakeout (Bergvík) 10. ( 6) ThoughGuys Don’t Dance .... (Myndbox) 11. ( 9) Spaceballs: The Video ... (J.B. heildsala) 12. (11) JuliaandJulia (Steinar) 13. (16) Murderone (Skífan) 14. (10) TheLostBoys (Steinar) 15. (12) The Bedroom Window .... (J.B. heildsala) 16. (27) NeverTooYoungtoDie (Skífan) 17. ( 5) ET — The ExtraTerrestrial ... (Laugarásbíó) 18. (—) Backfire (Myndbox) 19. (29) Flowers in the Attic (Myndbox) 20. (13) Nadine (Steinar) 21. ( —) My Science project (Skífan) 22. (15) Making Mr. Right (Skífan) 23. (22) The Runnlng Man .... (J.B. heildsala) 24. (14) Body of Evidence (Steinar) 25. (20) Hairspray (Skífan) 26. (18) theBelievers (Skífan) 27. (17) ChinaGirl .... (J.B. heildsala) 28. (26) Predator (Steinar) 29. (24) MoneyMania .... (J.B. heildsala) 28. (*) Predator .... (J.B. heildsala) 30. (—) Visiting hours (Steinar) í svigunum er það sæti sem myndbandið var í vikunni á undan, (—) merkir að myndbandið er nýtt á listanum og (★) að myndbandið er að koma inn á listan á nýjan leik. ... rennur blóð eftir slóð ...“ sakamálamynd Murder One ★ ★ Leikstjóri Graeme Campbell. Handrit Tex Fuller, byggt á sönnum atburðum. Aðalleikarar Henry Thomas, James Wilder, Stephen Sheller, Errol Slue. Bandarísk. M-One Prod. Ltd. 1987. Skífan 1988. 91 mín. Bönn- uð yngri en 16 ára. Þessi nöturlega mynd er byggð á sönnum atburðum er gerðust í Suðurríkjunum 1973. Þá sluppu þeir hálfbræðurnir, Wayne Coleman og Carl Isaac, úr fangelsi ásamt samfanga þeirra, George Dungee. Komu síðan við á heimaslóðum og töldu litla bróður þeirra, Billy (Thomas), á að slást í för með þeim. Það augnabliks hugsunarleysi urðu mistök ævi hans. Ferðalagið einn samfelldur óhugnaður, eldri bræð- urnir ótíndir glæpamenn sem skildu eftir sig slóð morða, auk annarra afbrota. Myndin er það kaldranaleg að maður fær litla samúð með Billy, þrátt fyrir að hann sé af allt öðru sauðahúsi en hinir forhertu bræður hans. Hann hefur vissulega ekki frá miklu að hverfa, kærustu bróður síns og móður sinni, drykkfelldri vændiskonu. Hann gerir enga heið- arlega tilraun til að sleppa á brott og sekkur æ dýpra í hrikalega at- burðarásina. Þeir Wilder og Sheller standa sig þokkalega í hlutverkum eldri bræðranna, heilalausra ónytjunga, sem drepa sér til skemmtunar. Thomas (E.T.), er hinsvegar heldur meir í hlutverki litla bróður og tekst ekki að skapa trúverðuga persónu. Einræður hans álappalega drama- tískar í allri andstyggðinni. Leik- stjórn og handriti er ábótavant, við fáum t.d. litla eða enga skýringu á því hvaða ósköp gerast innra með mannskepnunni sem fær hana til að breytast í morðóða ófreskju, firrta öllum mannlegum tilfinning- um. í myndinni Með köldu blóði, er fjallaði um áþekkt efni, voru sakbomingamir sálgreindir og at- ferli þeirra kmfið. Þar samdi líka Tmman Capote handritið upp úr ritverki sem hann byggði á eigin rannsóknum. Að baki Murder One standa lítt kunnir kvikmyndagerð- armenn, enda ná þeir ekki að rífa þetta óhugnanlega verk upp úr meðalmennskunni þó handbragðið sé laglegt og atburðarásinni sjálf- sagt fylgt samviskusamlega eftir Þyrnirós er besta band teiknimynd Sleeping Beauty ★ ★ ★ Leikstjóri Clyde Geronimi. Tónlist George Burns. Bandarísk. Walt Disney/Buena Vista 1958. Bergvík 1988. 72 mín. Ollum leyfð. Ævintýrið um Þyrnirós er eitt hið sögufrægasta og víðkunnasta og kjörið efni fýrir teiknimynda- —Зfl3 snillingana hjá Disney. Enda tóku þeir það til meðferðar fyrir rösk- um þrjátíu ámm og útkoman varð enn ein sígild teiknimynd fyrir- tækisins, og kemur nú í fyrsta sinn fyrir sjónir almennings á myndbandi. Þyrnirós er mjög hefðbundið ævintýri um átök ills og góðs, fegurðar og ljótleika. Hún er und- urfögur prinsessa undir álögum vondu nomarinnar, sem lagði á að hún skyldi sofa svefninum langa. En heilladís gat dregið ör- lítið úr áhrifamætti nornarinnar, í stað þess að deyja þarf nú Þymi- rós að bíða eftir prinsinum sínum - fagra að hann veki hana með kossi... En til þess þarf hann að komast yfir hinar erfiðustu hindranir. Á sínum tíma var Þymirós dýr- asta teiknimynd sögunnar og vissulega ber húri þess merki. Kannski ekki alveg jafn töfrandi og bestu verk Disneys, eins og Fantasia, Gosi, o.fl., en engu að síður úrvalsskemmtun fýrir unga sem aldna og tónlistin alltaf jafn falleg og skemmtileg. Afbragðs jólamynd fyrir alla fjölskylduna. Bðrnog eymundssot Barnaoe undlindasodurAB HESTURINN OG DRENGURINN HANS eftir C. S. Lewis. Gullfalleg og spennandi ævin- týri um hestinn Breka og dreng- inn Sjasta. Þeir lenda í ótrúleg- ustu ævintýrum og oftar en einu sinni reynir á þor þeirra og kjark. BÖRN OG BÆNIR Sigurður Pálsson safnaði og þýddi. Fagurlega myndskreytt bók sem inniheldur alkunn íslensk bænavers og órímaðar bænir frá ótal löndum. Kjörbók þeirra sem vilja börnum sínum það besta. Bókin gerist í smábæ úti á landi upp úr 1950. Metsölu- höfundurinn Iðunn Steinsdóttir fer á kostum í þessari bók er fjallar um það „að verða full- orðin“. Bók sem á erindi til unglinga á öllum aldri. Eftirminnilegasta barnasaga sem út hefur komið á íslensku. Hún segir frá viðskilnaði Nonna við fjölskyldu sína og för hans út í heim. Nú hefur verið gerð kvikmynd um ævintýri þeirra bræðra Nonna og Manna. VÍST ER ÉG FULLORÐIN eftir Iðunni Steinsdóttur. NONNI eftir Jón Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.