Morgunblaðið - 24.01.1989, Page 1

Morgunblaðið - 24.01.1989, Page 1
56 SIÐUR B 19. tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Að minnsta kosti eitt þúsund manns biðu bana i jarðskjálfta í Tajikístan: Ibúar sváfu er tvö þorp grófust undir aurskriðu Sovétrfkin 0 800 1 1 ▲ N km Skjálfta- ~| Kfna- :$im miöja liDúshanbe llik lilT LKaspí- haf f-I-V^íJvc.vX-X-X-X-XvXv.' V . . > íra n Mfganistan ' t /-^Pakistan KRTN Moskvu. Reuter. SOVÉZKA fréttaatofan TASS sagði f gærkvöldi að a.m.k. eitt þúsund manns hefðu beðið bana í jarðskjálfta f lýðveldinu Tajikístan f Mið- Asfu. Hinir látnu hefðu flestallir verið í svefni er skjálftinn reið yfir klukkan fimm að staðartfma f gærmorgun. Tvö þorp hefðu grafizt undir aurskriður sem skjálftinn hefði hrundið af stað og hefðu flestir þorpsbúa beðið bana. Um tfma sagði TASS að 1.415 manns hefðu beð- ið bana en lækkaði sfðan töluna án skýringa. Að sögn TASS fréttastofunnar átti skjálftinn upptök 50 km suðvest- ur af borginni Dúshanbe. Hljóp eins milljarðs rúmmetra aurskriða fram sem flóðbylgja í kjölfar hans. Var flóðveggurinn talinn hafa verið allt að 15 metra hár. Skall hann á byggð og grófust þorpin Sharora og Okuli- Olu að öllu undir. í fyrmefnda þorp- inu voru 150 íbúðarhús og 70 í því síðamefnda. Hrifsaði skriðan með sér rafmagnslínur og brýr og eyði- lagði ræktunarlönd. Hún var sögð átta kílómetra breið og 2,5 km löng. Ekki höfðu borizt fregnir frá af- skekktum Qallaþorpum á skjálfta- svæðinu og var því talið að tala þeirra, sem týndu lífi af völdum skjálftans, gæti átt eftir að hækka. Að sögn TASS var algengt að hús á skjálftasvæðunum löskuðust enda mörg hver byggð úr leir samkvæmt aldagamalli hefð. Ekkert tjón varð á umdeildri vatnsaflsvirkjun, sem Leoníd Brezhnev, fyrrum Sovétleið- togi, lét byggja á sjöunda áratugnum á skjálftasvæðinu. Tugir lækna og sérþjálfaðra björg- unarmanna voru sendir frá Moskvu og Dúnshanbe til þeirra svæða, sem verst urðu úti. Á annað hundrað slas- aðra manna voru fluttir á sjúkrahús í Dúnshanbe í gær. Sovézkir leið- togar lýstu harmi sinum og hétu skjótri endurreisn á skjálftasvæðun- um. Sovézkir jarðvísindamenn hafa varað við nýjum jarðskjálftum í Arm- eníu og hefiir viðvörun þeirra verið komið á framfæri við íbúa þar. Reuter Salvador Dali látinn Figueras. Reuter. SALVADOR Dali, siðasti stór- arinnar. Dali var einnig þekktur málarinn úr röðum súrrealista, lést í gær á sjúkrahúsi f heimabæ sinum Figueras f Katalóniu k- Spáni. Dali, sem var fluttur á sjúkrahús á miðvikudag, lést af hjarta- og lungnameini, 84 ára að aldri. Yfir- læknir sjúkrahússins sagði að Dali hefði verið með meðvitund þar til hann lést. Dali þótti draga upp frumlegar myndir af draumaheiminum og undirmeðvitundinni og í myndum hans var fáránleikinn oft sýndur í bland við hámákvæmt raunsæi. Hann var af kynslóð listamanna sem olli straumhvörfum í listaheim- inum á þriðja og fjórða áratug ald- fyrir umdeildar yfirlýsingar og sér- stæða framkomu. Dali hafði ekki málað í fimm ár vegna taugaveiki og óviðráðanlegs handskjálfta. Eftir andlát konu hans, sem hét Gala og var af rússn- eskum ættum, hrakaði honum mjög basði andlega og líkamlega og var hann aldrei samur maður eftir það. í samúðarskeyti Jóhanns Karls Spánarkonungs segir að óviðjafn- anlegra verka Dalis verði ávallt minnst sem sérstaks kapítula í listasögunni. Menningarmálaráð- herra Spánar, rithöfundurinn Jorge Semprun, sagði að Dali hefði verið „ástríðufullur Spinverji" og „skap- að heim ljóðrænu og þversagna sem byltu listinni á okkar öld“. Reuter Björgunarmenn að störfiun í þorpinu Sharora á skjálftasvæðunum í Tajikístan í Sovétríkjunum í gær. Aurskriða lagði þorpið í rúst en íbúar úr næsta nágrenni reyndu að koma þorpsbúum, sem kynnu að leynast á lífi í rústunum, til hjálpar. Kortið að ofan sýnir skjálftasvæðið, sem liggur að Afganistan. Hætta á miklu meng- unarslysi í Norðursjó Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttarítara M HÆTTA er á gífurlegu mengun- arslysi i Norðursjó en á föstudag misstu starfsmenn oliufélagsins Sögu stjórn á olfubrunni á Eko- fisk-svæðinu. Óttast sérfræðingar að olian og gasið geti þá og þegar brotið af sér alla hlekki og streymt stjórnlaust út í sjóinn. lindum í Norðursjó. Borpallurinn „Treasure Saga“ hef- ur nú verið dreginn burt af svæðinu og í staðinn eru komin skip með dælur og annan búnað. Hann mun þó koma að litlu haldi ef illa fer og eins og vindar blása nú ræki olíuna í austurátt. Olíufélagið Saga hafði farið með rúmlega 1,1 milljarð ísl. kr. í brunninn og líklega eru þessir peningar tapaðir því trúlega verður hann ekki nýttur framar. Þar að auki mun það kosta félagið mikið fé að ganga frá brunninum aftur, svo ekki sé minnst á hugsanlegt stórslys í náttúrunni. Evrópuþingið: Aðgangur að mörkuðum EB í stað veiðiheimilda Brussel. Frá Kristófor Má Krífítinsfíyní, fróttarítara Morgunblaðsins. EVRÓPIJÞINGIÐ samþykkti i Starfsmenn á olíuborpallinum „Treasure Saga“ höfðu borað niður á 4.700 metra dýpi þegar þeir fundu nýtt olíu- og gassvaeði undir miklum þiýstingi. Um hríð virtist sem ekki yrði neitt við ráðið en á síðustu stundu tókst þó að koma öryggisloka fyrir á hafsbotni. Á þessum slóðum er sjávardýpið 68 metrar. Sérfræð- ingar norska olíumálaráðuneytisins segja hins vegar, að þrýstingurinn sé svo mikill, að lokinn muni ekki standast hann lengi. Ef hann brestur mun gas og allt að 50.000 olíuföt streyma út í sjóinn dag hvem. Bandaríkjamaðurinn Boots Hans- en, sem hefur mikla reynslu af því að loka olíubrunnum, hefur nú verið kallaður til en árið 1977 tókst honum að stöðva rennsli úr brunni við Bravo-pallinn á Ekofisk-svæðinu ásamt öðrum kunnum landa sínum Red Adair. Segist Hansen viss um, að hann geti unnið þetta verk en það muni hins vegar taka hann margar vikur. Til að létta á þrýstingnum verður meðal annars að bora annan brunn ofan í olíulindina, sem er eins og fyrr segir næstum fimm km und- ir hafsbotni. Er það mjög óvenjulegt og yfirleitt er miklu grynnra á olíu- síðustu viku ályktun, þar sem hvatt er til þess að sjávarútvegs- stefiia Evrópubandalagsins (EB) verði endurskoðuð. Þar er meðal annars lögð áhersla á að tengja enn frekar aðgang rikja að mörk- uðum EB og veiðiheimildir innan lögsögu sömu ríkja fyrir skip frá EB-löndum. fslensk stjórnvöld hafa staðið gegn slikri tengingu. Ályktun Evrópuþingsins, sem hef- ur ráðgefandi vald í málum sem þess- um, um sjávarútvegsmál er í 97 lið- um. Frú Nicole Pery, þingmaður franskra sósialista, lagði ályktunina fram. Þar er tekið á flestu því er fiskveiðar varðar, svo sem nýtingu afla og eftirliti með þvi hvemig að veiðum sé staðið. Þingið vill að sér- stökum sjávarútvegssjóði verði kom- ið á fót til að standa straum af kostn- aði við framkvæmd stefnu EB í þess- um málaflokki. Þá fái EB aukið umboð til að kaupa físk á mörkuðum til að jafna framboð. Þingmennimir leggja til að hafín verði útgáfa veiðileyfa til að tryggja afla fyrir íbúa þeirra svæða sem eiga allt sitt undir fiskveiðum. Þá vill þingið að samskiptin við Kanada verði endurskoðuð vegna þess að skip EB-landa fá ekki lengur að veiða í kanadískri lögsögu og Kanadamenn neita að hefja viðræður um endumýj- un á fiskveiðisamningi, sem rann út 1987. Loks er lögð áhersla á, að framkvæmdastjóm EB taki upp þá reglu í samningum við ríki utan EB, að fyrir aðgang að mörkuðum banda- lagsþjóðanna komi aðgangur skipa þeirra að fiskimiðum viðkomandi ríkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.