Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 Póstur og sími: Jarðstöð með fáum öryggisrásum keypt Nýr Skyggnir kostar um 300 milljónir PÓSTUR og sími hefur ákveðið að kaupa litla jarðstöð með fáum öryg’gisrásum og er reiknað með að hún kosti nokkur hundruð þúsúnd krónur. Að sögn Þorvarðar Jónssonar framkvæmdastjóra tæknisviðs Pósts og síma, er hér fyrst og fremst um öryggisbúnað að ræða, sem tryggja á flugmálastjórn öruggt samband á flugstjórn- arsvæðinu. Gert er ráð fyrir að ný jarðstöð svipuð Skyggni rísi árið 1990 og að hún kosti um 300 milljónir miðað við verðlag i dag. „Við erum með í athugun að setja upp stöð fyrir fáar öryggislín- ur fyrir flugmálastjóm. Litla vara- stöð sem yrði tengd Marintime- gervitunglinu, sem þjónar skipum og flugvélum. Er reiknað með að hún verði sett upp fljótlega," sagði Þorvarður. „Þetta yrðu eitt eða fleiri öryggissambönd, sem sett yrðu upp og séð til þess að flug- málastjómin verði ekki sambands- laus þegar svipað ástand kemur upp og var síðastliðinn sunnudag." Gámur fauk yfir Súg- andafjörð í óveðrinu um helgina fauk. 40 feta gámur af viðlegukanti á Suðureyri, flaut yfir Súg- andaQörð og upp í flöru á Norðureyri, hinu megin fjarð- arins. Gámurinn, sem var tóm- ur, er mikið skemmdur eða jafnvel ónýtur, að sögn Ró- berts Schmidt á Suðureyri. 50 metra olfuleiðsla á sama við- legukanti fauk einnig upp. í veðurofsanum gekk sjórinn tugi metra inn á land og með fylgdi gijót og þari. Vegurinn inn í Staðardal grófst í sundur. Stórt gat kom á gamla skreiðar- og veiðarfæraskemmu í eigu Fiskiðjunnar Freyju hf. og gekk sjór þar inn. Á Skyggni í dag eru 230 línur tengdar en þær gætu verið þrisvar til íjórum sinnum fleiri. „En örygg- ið næst ekki með því að tengja fleiri línur," sagði Þorvarður. „Það fæst ekki nema með nýrri jarðstöð og það yrði ekki fullkomið ef nýja stöðin risi við hliðina á Skyggni. Þá yrði hún til dæmis fyrir sömu rafmagnstruflunum og sama veð- urham. Mesta öryggið fengist með því að nýja stöðin ætti ekkert sam- eiginlegt með Skyggni. Þar af leið- andi þarf að athuga vel staðsetn- ingu hennar. Stöðin gæti verið hvar sem er á landinu en það verð- ur að finna stað, sem hentar skil- yrðum fyrir loftnet með tilliti til gervitungla og á okkar hættulega landi, ekki á mjög miklu jarð- skjálfta- og eldgosasvæði. Hér eru fleiri hættur en sjórok." Hnífsdalur: Morgunblaðiö/Sverrir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, leikur fyrsta leikinn í skák þeirra Þrastar Þórhallssonar og sovéska stórmeistarans Eingorns á Fjarkaskákmótinu sem hófst í gær. Fjarkaskákmótið: Sigurður Daði vann Watson SIGURÐUR Daði Sigfusson vann enska alþjóðlega meistar- ann Watson á Fjarkaskákmóti Skáksambands íslands sem hófst á Hótel Loftleiðum í gær. Þátttakendur f mótinu eru Qórtán talsins, þar af sex stór- meistarar og sex alþjóðlegir meistarar. Teflt er daglega frá klukkan 17 til 23. Önnur úrslit í fyrstu umferð urðu þau að enski stórmeistarinn Hodgson vann norska alþjóðlega meistarann Tisdall, Helgi Ólafs- son vann Björgvin Jónsson, jafn- tefli gerðu Margeir Pétursson og Jón L. Ámason, Þröstur Þórhalls- son og sovéski stórmeistarinn Eingom, Karl Þorsteins og sov- éski stórmeistarinn Balasjov. Sævar Bjamason og Hannes Hlífar Stefánsson vom enn að tefla klukkan 21.30 í gærkvöldi og Hannes Hlífar var þá peði yfir. Ibúar krefjast þess að sorp- eyðingarstöð verði lokað Hollustuvernd telur ösku frá stöðinni hættulegan eftiaúrgang Fimmsóttuum N-Múlasýslu FIMM sóttu um embætti sýslu- manns í Norður-Múlasýslu. Þrír óskuðu nafnleyndar en hinir eru Þorfinnur Egilsson lögmaður og Jón Magnússon aðalfulltrúi sýslumannsins í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Þá sóttu tveir um embætti bæjar- fógeta á Neskaupstað. Annar ósk- aði nafnleyndar en hinn er settur bæjarfógeti á staðnum, Ólafur K. Ólafsson. „ÞAÐ ER mikil mengun frá sorpeyðingarstöðinni á Skarfrskeri, hún er ólögleg þvf hún hefur ekki starfsleyfi og þess vegna höfum við íbúar f Hnífsdal fúllan rétt á að kreQast þess að henni verði lokað,“ sagði Anna María Antonsdóttir, fbúi f Hnífedal. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri á ísafirði, segir að þetta mál sé f skoðun og verið sé að kanna ákveðnar lausnir. Samkvæmt lögum er skylt að sækja um leyfi fyrir slíkri starfsemi. Hollustuvemd ríkisins sendi frá sér greinargerð vegna umsóknar eig- enda stöðvarinnar, sem em ísafjörð- ur, Bolungarvík og Súðavíkurhrepp- ur. Hollustuvemd leggur til að stöðin verði lögð niður í núverandi mynd, vegna mengunar sem frá henni stafar. í greinargerðinni kemur fram, að aska frá slíkum stöðvum er víða erlendis flokkuð sem hættulegur eftiaúrgangur. Við sorpbrennslu myndast til dæmis efni, sem geta verið krabbameinsvaldandi, valdið fósturskaða og áhrifum á ónæmis- kerfi líkamans. Þá segir að óeðlilega mikil og heilsuspillandi reykmengun sé frá sorpbrennslustöðinni. „Stærstu rykkomin falla fljótt til jarðar, en þau smærri geta verið í loftinu dögum og jafnvel mánuðum saman. Mengun af þessu tagi getur valdið ýmsum óþægindum og sjúk- dórnurn," segir í greinargerðinni. „Hollustuvemd hefur sagt að eng- in ástæða sé til að gera hér mengun- armælingar, það væri einungis tfma- og peningaeyðsla, því þegar væri ijóst að mengunin er mikil," sagði Anna. „Náttúruvemdarráð og Um- hverfis- og náttúruvemdamefnd ísa- fjarðar hafa einnig lagst eindregið gegn rekstri stöðvarinnar í núverandi mynd, en þrátt fyrir það eru engar úrbætur í sjónmáli. í bæjarstjóm Isa- Qarðar hefur verið rætt um að hækka skorsteininn á stöðinni, en sam- kvæmt mínum upplýsingum kemur það að engu gagni." Anna sagði að íbúar í Hnífsdal væru orðnir langþreyttir á mengun- inni. „Það eru mjög oft sótflygsur í loftinu. Oftar en einu sinni hef ég þurft að þvo aftur þann þvott sem hefur hangið á snúmnum hjá mér eina dagsstund. Snjórinn hér er oft svartur af sóti og lyktin í bænum óbærileg. Það kemur einnig fram í greinargerð Hollustuvemdar að þessi mengun á greiða leið í vatnsból. Ég er nú að hefja undirskriftasöfnun meðal íbúanna, því við viljum hvetja heilbrigðisráðherra til að láta loka stöðinni," sagði Anna María Antons- dóttir. „Við emm að kanna þetta mál og ómögulegt að segja til um það nú hvað verður gert," sagði Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri á ísafirði, er hann var inntur eftir því til hvaða ráða yrði gripið þar sem sorpeyðing- arstöðin hefur ekki starfsleyfi. Skoðanakönnun meðal stúdenta: Þriðjungur nemenda Rafinagn komið á um land allt síðdegis í gær RAFMAGN átti að vera komið á að nýju á langflestum stöðum á landinu um miðjan þriðjudag, að sögn Krisljáns Jónssonar forsljóra Raf- magnsveitna rikisins. Sfðast komst á straumur á nokkrum bæjum í Borgarfirði en þar urðu viðgerðarflokkar frá að hverfr vegna illviðr- is aðfaranótt þriðjudagsins. Hafist var aftur handa við viðgerðir strax um morguninn. Þá komst um hádegið á straumur í Biskupstungum, Vestur-Landeyjum, Þorlákshöfn og á nokkrum bæjum á Suðurlandi þar sem straumur datt út að nýju á mánudagskvöld. Kristján Jónsson sagði að vegna veðursins hefðu mest vandkvæði fyr- ir viðgerðarflokka verið að komast yfir dreifkerfið til að þrífa seltu af einangrurum. Hann sagði að veðrátt- an undanfarið væri óvenjuleg og minntust menn vart jafnlangvinnrar vestanáttar. Hann sagði að yrði framhald á þessu tíðarfári væri ekki hægt að útiloka að til frekari trufl- ana kæmi. Engin skyndiúrræði dygðu til að koma í veg fyrir slíkt. Hann sagði að undanfarin ár hefði einangrunargildi rafbúnaðarins verið aukið eftir því sem tileftii hefði gef- ist til og þörf hefði verið á en sagði að þegar veður bæri með sér jafnsalt- mettað loft og nú yrði ekki hægt að koma í veg fyrir hættu af því tagi sem menn byggju nú við. Kristján Jónsson sagði að fjár- hagstjón RARIK vegna straumleys- isins lægi ekki fyrir. Hann sagði að stærsti útgjaldaliður straumleysisins væri vegna 60 kW aflrofa fyrir Vest- mannaeyjalínu á Hvolsvelli sem hefði skemmst. Nýr rofí mundi kosta ein- hveijar milljónir króna. Þá hefðu orðið smærri skemmdir á línubúnaði og staurum víðs vegar. Kristján kvaðst þó ekki telja að heildarútgjöld mundu mælast í tugum milljóna. Aðspurður um tjón notenda vegna straumleysisins sagði hann að engar tölur um slíkt væru handbærar en sér væri ekki kunnugt um slík til- felli. Þó mætti búast við að á heimil- um þar sem lengst hefði verið straumlaust hefðu til dæmis matvæli í frystikistum spillst en hann sagði að slíkt ætti þó að heyra undantekn- ingum til. Kristján Jónsson sagði að samkvæmt lögum væri RARIK ekki bótaskylt vegna tjóns, sem notendur yrðu fýrir ef rekja mætti straumleys- ið til óviðráðanlegra orsaka eins og verið hefði í þessu tilfelli. HI býr í eigin húsnæði ÞRIÐJUNGUR nemenda við Háskóla íslands býr I eigin húsnæði, samkvæmt skoðanakönnun, sem SKÁÍS hefur gert fyrir Vökublað- ið, um afetöðu stúdenta til ýmissa mála. í úrtaki voru 200 stúdent- ar, valdir af handahófi, og svöruðu allir spurningunum. Um fyrrgreint atriði var spurt svo: Hvað telur þú að muni líða langur tími þar til þú eignast eigið húsnæði? 33,5% sögðust þegar búa í eigin húsnæði, 8% töldu að líða muni 1-3 ár, 18,5% sögðu 4-6 ár, 9% 7-9 ár, 19% 10-15 ár, 1% meira en 15 ár og 11% höfðu ekki skoð- un á málinu. Aðrar helstu niðurstöður könn- unarinnar voru að 65,5% nemenda vilja láta flytja haustpróf frá jan- úar og fram í desember. 69,5% telja að Stúdentaráð eigi að vera vettvangur umræðu um hags- munamál stúdenta en aðeins 1% telur að þar eigi að ræða þjóðmál og utanríkismál. 15% telja að ræða eigi hvort tveggja. 39,5% voru ánægð með starfsemi Stúdenta- ráðs, 19% voru óánægð en 41,5% höfðu ekki skoðun á málinu. 75% voru andvíg því að sumartekjur hafí aukin áhrif á ákvörðun náms- lána en 16,5% voru því fylgjandi. 47% þátttakenda höfðu aldrei hlustað á Útvarp Rot en 13,5% hlustuðu oft á stöðina. Þá töldu 57% aðspurðra að Háskóli íslands hefði uppfyllt þær væntingar sem þeir gerðu sér til hans sem mennta- stofiiunar. 32% voru á öndverðri skoðun. 68,5% stúdenta stunda það nám sem þeir eru í vegna áhuga á faginu, 16% vegna áhuga á starfí að námi loknu en 4,5% vegna tekjumöguleika. 54% telja sig eiga góða möguleika á starfí við hæfi hérlendis að námi loknu, 25% telja horfumar sæmilegar, 14,5% frekar litlar og 4% telja engar horfur á að þeim bjóðist starf við hæfi í sínu fagi að námi loknu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.