Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
25
Tlvolí í ReiðhöUinní
yfír sumartímann?
STJÓRN Reiðhallarinnar hf. hefur að undanfbrnu átt viðræður við
eigendur leiktækja úr Tívolíinu í Hveragerði um rekstur tívolís í
Reiðhöllinni yfir sumartímann þegar hestamennska er ekki stunduð
þar. Viðræður liggja nú niðri en búist er við að þær heQist aftur að
loknum aðalfundi Reiðhallarinnar.
Sigurður Líndal stjómarformaður
Reiðhallarinnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að honum litist vel á
þessa hugmynd. Ekki sist vegna
þess að svo virtist sem enginn áhugi
væri á sýningahaldi í Reiðhöllinni
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Viðræður eru nú einnig í gangi
við ríkisstjómina um hugsanlega
stækkun Reiðhallarinnar með það
fyrir augum að halda þar Heims-
meistaramótið í handknattleik árið
1995. Að sögn Sigurðar kemur þó
ekki til greina að Reiðhöllin rúmi
nema um 4000 manns, en ekki 8000
eins og lofað hefur verið. Búist er
við að fulltrúar frá Alþjóða hand-
knattleikssambandinu komi hingað
til lands fljótlega til að kanna að-
stæður.
myndinni ”Tucker“.
Jeff Bridges
í Bíóborginni
BÍÓBORGIN hefur tekið tíl sýn-
inga kvikmynd með Jeff Bridges,
Joan Allen og Martin Landau í
aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Francis Ford Coppola.
Eftir síðari heimsstyijöld leiddi
könnun í Bandaríkjunum í ljós, að
það sem mikill meirihluti þjóðarinnar
óskaði sér að hildarleiknum loknum,
var að eignast nýjan bíl. En vildu
menn gömlu tegundimar aftur eða
stóð hugur þeirra til bíls, sem væri
nýr í orðsins fyllstu merkingu, segir
í fréttatilkynningu frá Bíóborginni.
Regnbogiim sýnir
„I innsta hring“
REGNBOGINN hefur tekið tíl
sýninga myndina „í innsta hring“.
Með aðalhlutverk fara: Donovan
Leitch, Joe Pantoliano og Jenni-
fer Runyon. Leikstjóri er Mark
Rosenthal.
Del Green er einn í hópi fjöl-
margra unglinga sem dreymir um
að komast í dansflokk Perry Perk-
ins, segir í frétt um efni myndarinn-
ar. Þessi dansflokkur kemur reglu-
lega fram í sjónvarpinu og mesta
athygli vekja aðaldansaramir, þau
Vicky og Dugan.
Donovan Leitch og Jennifer
Runyon í hlutverkum sinum i
myndinni „í innsta hring'1.
Mývatnssveit:
Fjölmenni við útfor
Helgu Stefánsdóttur
^ Björk, Mývatnssveit.
ÚTFÖR Helgu Stefánsdóttur var
gerð frá Skútustaðakirkju síðast-
liðinn laugardag að viðstöddu
Qölmenni. Séra Orn Friðriksson
prófastur á Skútustað flutti út-
fararræðu og jarðsöng.
Helga var fædd 14. apríl 1922.
Foreldrar hennar voru Stefán Sig-
urðsson og Kristbjörg Jónsdóttir.
Þau bjuggu alla sfna búskapartfð á
Geirastöðum. Böm þeirra voru sex
og var Helga elst.
Fyrr á árum vann Helga á ýms-
um stöðum utan heimilis, bæði hér
í sveitinni, f Reykjavík og á Akur-
eyri. Hún var prýðilega greind, las
mikkið og fróð um marga Hluti. Þá
var hún vel hagmælt þó hún flíkaði
því lítt. Síðustu ár átti Helga við
mikla vanheilsu að stríða og andað-
ist á sjúkrahúsinu á Húsavfk 1.
febrúar.
Kristján
Fiskverð á uppboðsmörkuAum u. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hassta Laagsta Meðal- Magn Halldar-
varð varð varð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 71,00 69,00 • 69,60 10,000 696.000
Ýsa 90,00 90,00 90,00 0,403 36.316
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,005 68
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,116 1.748
Langa 15,00 15,00 15,00 0,003 46
Samtals 69,75 10,627 734.176
Selt var úr Bjarna Glslasyni SF. I dag verða meöal annars seld
25 tonn af blönduöum afla úr Núpi ÞH, 2,2 tonn af ýsu, 0,5
tonn af steinbft og 0,2 tonn af lúöu frá Stakkholti hf. I Ólafsvlk.
FAXAMARKAÐUR hf. f Reykjavík
Þorskur 64,00 64,00 64,00 0,658 42.112
Ýsa 103,00 103,00 103,00 0,322 33.166
Ýsa(smá) 96,00 95,00 95,00 0,616 58.520
Steinbítur 42,00 36,00 38,86 0,084 3.264
Lýsa 22,00 22,00 22,00 0,016 352
Samtals 81,02 1,696 137.414
Seldur var afli úr Ifnubáti. I dag veröa meöal annars seld 8 tonn
af steinbít og 1,5 tonn af kola úr Krossnesi SH og 6 tonn af
þorski úr Farsæli SH og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(ósl.) 48,50 48,50 48,50 2,000 97.000
Ýsa 36,00 26,00 25,83 0,987 25.495
Ýsa(óst) 102,50 95,00 95,98 2,300 220.760
Ufsi 5,00 6,00 5,00 0,017 85
Karfi 37,50 5,00 9,49 2,032 19.274
Hlýri+steinb. 9,00 9,00 9,00 0,189 1.701
Grólúða 40,00 40,00 40,00 0,396 15.840
Samtals 47,99 7,921 380.145
Selt var aðallega úr Jóhannesi Jóhannessyni GK, Gnúpi GK og
Reyni GK. i dag veröa meöal annars seldir 332 kassar af þorski,
23 kassar af ýsu, steinbitur, karfi og fleiri tegundir úr Hrafni
Sveinbjarnarsyni GK og óákveðið magn úr öörum bátum.
Fundur
um mennt-
unarmál
fóstra
Fóstrufélag íslands stendur
fyrir opnum fiindi um mennt-
unarmál fóstra fimmtudaginn
16. febrúar nk. klukkan 16.00
til 18.00 í húsi BSRB á Grettis-
götu 89.
Tilefni fundarins er nefndarálit
Fósturskólanefndar menntamála-
ráðuneytisins, sem út kom í des-
ember 1988. Framsögu flytja
Selma Dóra Þrosteinsdóttir, form-
aður Fóstrufélags íslands og full-
trúi FÍ í fósturskólanefndinni, og
Gyða Jóhannsdóttir, skólastjóri
Fósturskóla íslands og fulltrúi
skólanefndar í nefndinni.
Eftir framsögu verða pallborðs-
umræður þar sem félagsmenn
geta borið fram fyrirspumir um
menntunarmál fóstra í nútíð og
framtíð. Á pallborði sitja Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra,
Gyða Jóhannsdóttir, skólastjóri
Fósturskóla íslands, Óttar
Proppéj fulltrúi frá Kennarahá-
skóla Islands, Bima Siguijóns-
dóttir, fulltrúi frá skólamálaráði
Kennarasambands íslands, Selma
Dóra Þorsteinsdóttir, formaður
Fóstmfelags íslands og fulltrúi
frá fræðslu- og menntaráði Fós-
trufélags íslands, Margrét Vallý
Jóhannsdóttir.
Thorvald Nilsson.
Sænskur gítar-
kennarí með
námskeið
Gítamámskeið verður haldið
dagana 18. og 19. febrúar næst-
komandi í samvinnu við Féiag
tónlistarkennara. Leiðbeinandi
verður sænski gitarleikarinn
Thorvald Nilsson.
Námskeiðið verður haldið í
Hraunbergi 2, í húsnæði Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar og
hefst kl. 13. Námskeið er öllum
opið og geta þátttakendur verið
virkir, þ.e. spilað, eða verið áheyr-
endur. Nánari upplýsingar veitir
Símon ívarsson.
Thorvald mun einnig spila á
tónleikum ásamt Símoni laugar-
daginn 25. febrúar kl. 16 í Krists-
kirkju.
Arshátíð
Snæfellinga
FÉLAG Snæfellinga og Hnapp-
dæla I Reykjavík er 50 ára á
þessu ári. Af þvi tilefiii verður
efiit til árshátíðar í Sigtúni 3,
laugardaginn 18. febrúar næst-
komandi.
í frétt frá félaginu segir að
boðið verði upp á skemmtiatriði,
söng og grín en heiðursgestir á
árshátfðinni verður Sturla Böð-
varsson bæjarstjóri í Stykkishólmi
og kona hans.
Þá er áformað að halda sér-
stakan hátíðarfund í tilefni af-
mælisins í desember næstkom-
andi.
(Úr fréttatilkynningu.)
Ferðafélagið
skipuleggur
yfir 200 ferðir
FERÐAÁÆTLUN FÍ fyrir árið
1989 er nýlega komin út og í
henni er að finna upplýsingar
um ferðir Ferðafélags Islands,
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs,
Ferðafélags Akureyrar og
Ferðafélags Skagfirðinga.
Ferðafélag íslands skipuleggur
yfir 200 ferðir fyrir árið 1989, sem
skiptast í dagsferðir, helgarferð-
ðir og sumarleyfísferðir. Fjöl-
breytnin er mest í dagsferðunum,
þar er ýmissa kosta völ og hægt
að velja um gönguferð á láglendi,
fiöll eða í fjöru. Skíðagönguferðir
verða alla sunnudaga þann tíma
sem nægur snjór er til slíkra
gönguferða.
Helgarferðir verða með nokkuð
hefðbundnu sniði og oftast miðað
við að nota sæluhús félagsins í
óbyggðum til gistingar. Regluleg-
ar helgarferðir til Þórsmerkur,
Landmannalauga og á Hveravelli
heflast um leið og fjallavegir opn-
ast.
Ellefu aðrar sumarleyfisferðir
er um að velja. Lengd þeirra er
frá 4 dögum upp ( 10 daga og
eru þetta ýmist öku- og göngu-
ferðir eða gönguferðir með við-
leguútbúnað.
(Úr fréttatilkynningu)
Bókagerðar-
menn mót-
mæla málsókn
Trúnaðarmannaráð Félags
bókagerðarmanna hefur sam-
þykkt ályktun þar sem lýst er
yfir andstöðu við lögsókn Flug-
leiða á hendur Verslunar-
mannafélagi Suðumesja.
f ályktuninni segir að Flugleið-
ir ætli að fara sömu leið og aftur-
haldið í Englandi gagnvart verka-
lýðshreyfingunni þar, og ætli að
fá viðurkenningum á verkfalls-
brotum í gegnum Félagsdóm.
Telur Félag bókagerðarmanna
brýnt að verkalýðshreyfingin
standi saman gegn Flugleiðum í
þessu máli, og skorar trúnaðar-
mannaráðið á verkalýðsfélög og
allan almenning að beina viðskipt-
um sfnum annað á meðan þessi
deila stendur.
Athugasemd
Vegna fréttar í blaðinu á föstu-
dag af gjaldþroti Fógetans h/f,
sem rak samnefnt veitingahús í
Aðalstræti til 1. maí 1986, skal
tekið fram að gjaldþrotið tengist
ekki hlutafélaginu Tropis, sem rak
þetta veitingahús frá 1. maí 1986
til 1. desember 1988, og ítrekað
að það tengist heldur ekki þeim
aðila sem nú rekur veitingahúsið.
Arnessýsla:
Mótmæla
kjaraskerðingu
Á félagsfimdi t\já Félagi
byggingariðnaðarmanna í Ar-
nessýslu sem nýlega var hald-
inn, var meðal annars rætt um
kjaramál og málsókn Flugleiða
á hendur Verslunarmannafé-
Suðurnesja.
umræðum um lgaramál á
fundinum var gerð samþykkt, þar
sem mótmælt er harðlega þeirri
kjaraskerðingu sem lögð er á
launþega með hækkun vöruverðs
á sama tíma og bannaðar eru
kauphækkanir og samningsréttur
verkalýðsfélaga er verulega skert-
ur.
Þá mótmælir fundur Félags
byggingariðnaðarmanna I Ámes-
sýslu harðlega „síendurteknum
árásum ráðamanna Flugleiða á
hendur íslenskum launamönnum,
nú síðast með málsókn á hendur
Verslunarmannafélagi Suður-
nesja.“
Doktor í
stýrikerfiim
RÉTT þykir að bæta við þær
upplýsingar, sem fram komu
um menntun dr. Önnu Soffiu
Hauksdóttur i Svipmynd i
Morgunblaðinu fyrir skömmu.
Dr. Anna lauk Ph.d.-gráðu frá
Ohio State University í Banda-
ríkjunum og Qallaði doktorsrit-
gerð hennar um sjálfvirk stýri-
kerfi.
Dr. Anna hefur áður lokið verk-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
árið 1981 og M.Sc.-prófi frá Ohio
State University 1983, eins og
fram kom I sunnudagsblaðinu.
Ljóðakvöld á
Café Hressó
STJÓRN Útgáfiifélags fram-
haldsskólanna mun standa fyr-
ir ljóðakvöldi í kvöld klukkan
20.30 í tilefiii af nýútkominni
Ijóðabók félagsins, en í henni
má einnig finna fiöldann nllnn
af smásögum.
Bók þessi nefnist: „Flogið
stjómlaust upp úr sandkassanum"
og er afrakstur af ljóða- og smá-
sagnakeppni sem Útgáfufélagið
stóð fyrir ásamt Ríkisútvarpinu
sl. vor. Þátttakendur vom úr öll-
um framhaldsskólum á landinu.
Sérstök dómnefnd sá um að velja
efiii í bókina.
Nefitd um
starf í fram-
haldsskólum
Menntamálaráðherra hefiir
skipað nefiid sem Qalla á um
innra starf framhaldsskóla og
taka viðfangsefni hennar til
flestra þátta þess.
Gert er ráð fyrir að nefndin
ljúki störfum fyrir lö.júní nk.
10 áraafinæli
Atthagafé-
lagsins Höfða
Átthagafélagið Höfði heldur
upp á 10 ára afinæli sitt með
þorrablóti í Félagsheimili Sel-
tjamarness, laugardaginn 18.
febrúar nk. og hefet það með
borðhaldi klnkkan 20.00.
Heiðursgestir að norðan verða
séra Bolli Gústafsson, prestur í
Laufási og kona hans, ftú Matt-
hildur Jónsdóttir. Flytur séra Bolli
félagsmönnum fréttapistil úr átt-
högunum.