Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 7

Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 "7 Nýr Herjólfnr fyrir helming áætlaðs verðs Vestmannaeyjum NOKKUR ár eru nú liðin siðan ha Heijólfi til fiutninga milli lands oj Heijólfs fram teikningar af nýju að veltast i kerfinu. Eftir að stjóm Heijólfs lagði fram teikningar af nýja skipinu, sem er nálægt þvf helmingi stærra en nú- verandi Heijólfur, setti ríkisstjómin á fót nefnd til þess að kanna málið frekar. Meðal þess sem nefndin at- hugaði voru kaup á notuðu skipi en ekkert heppilegt fley fannst. fin var umræða um smíði á nýjum- ■ Eyja. Fyrir rúmu ári lagði stjórn skipi en síðan hefiir málið verið Þegar fyrir lá að ekkert notað skip kæmi til greina hélt stjóm Heijólfs áfram að vinna að undir- búningi á smíði nýs skips, Nú hefur stjóminni borist óformlegt tilboð, frá Póllandi, í smíði á skipi sam- kvæmt þeim teikningum sem til- búnar voru fyrir ári. Tölur þær sem Pólvetjamir eru að tala um em öllu lægri en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Samkvæmt kostnaðaráætlun, sem gerð var, átti smíði nýja skips- ins að kosta 700 til 800 milljónir króna en hið óformlega tilboð frá Póllandi hljóðar upp á tæpar 500 milljónir króna. Aætlaður smíðatími á nýju skipi eru 30 til 40 mánuðir þannig að ef hafist yrði handa strax við smíði á nýju skipi yrði sá Heijólfur er nú Heijólfur annar öllum fiutningum milli lands og Eyja. siglir milli lands og Eyja orðinn 15 ljós ríkisstjómarinnar slokkni og ára gamall þegar nýtt skip kæmist grænt ljós verði gefíð á að hefja í gagnið. Stjóm Heijólfs bíður því smíði á nýju skipi. í startholunum eftir því að hið rauða - Grímur Verðhækkanir á ís- físki í Þýzkalandi: Meiri eftir- spurn þrátt fyrir mótmæli „ÞRÁTT fyrir mótmæli Græn- friðunga í Vestur-Þýskalandi í haust gegn hvalveiðum íslend- inga jókst eftirspurn eftir íslenskum karfa á vestur-þýsku fiskmörkuðunum og verð á hon- um hækkaði. Ástæðan er trúlega minnkandi framboð þar á karfa frá Noregi og aukin fiskneysla Vestur-Þjóðveija,“ sagði Vil- hjálmur Vilhjálmsson, fulltrúi hjá Landssambandi islenskra út- vegsmanna, i samtali við Morg- unblaðið. „í Bretlandi hefur framboð af kola o g ýsu minnkað og valdið verð- hækkun á þessum tegundum. Þar hefur hins vegar fengist lélegt verð fyrir þorsk að undanfömu. Þorskur- inn hefur verið léleg söluvara vegna þess að hann hefur bæði verið smár og í loðnu,“ sagði Vilhjálmur Vil- hjálmsson. í Vestur-Þýskalandi fékkst í jan- úar síðastliðnum 3,85 marka meðal- verð fyrir kg af karfa og 3,08 marka meðalverð fyrir ufsa en árið 1988 fékkst þar 2,50 marka meðalverð fyrir karfa og 2,06 marka meðal- verð fyrir ufsa. í Bretlandi fékkst í sama mánuði 0,88 punda meðal- verð fyrir kg af þorski, 1,40 punda meðalverð fyrir kg af ýsu og 1,40 punda meðalverð fyrir kg af kola. Árið 1988 fékkst þar hins vegar 0,91 punda meðalverð fyrir kg af þorski, 1,03 punda meðalverð fyrir kg af ýsu og 0,92 punda meðalverð fyrir kg af kola. Iðnlánasjóð- ur vill nánari upplýsingar STJÓRN Iðnlánasjóðs tók ekki endanlega afstöðu til umsóknar Stálvíkur um ábyrgðir vegna smíða á 14 togurum fyrir aðila Dubai á fiindi á mánudag. í bréfi sem stjórnin ritaði forráðamönn- um skipasmíðastöðvarinnar er óskað frekari upplýsinga og verður erindið afgreitt endan- lega þegar þeirra hefiir verið aflað, að sögn Braga Hannesson- ar framkvæmdastjóra Iðnlána- sjóðs. Ábyrgðir þær sem skipasmíða- stöðin hefur sótt um eru í fyrsta lagi verkefnaábyrgðir og hins vegar & móti fyrirframgreiðslum kaupenda togaranna. Að sögn Braga Hannessonar nema ábyrgð- imar alls 298 milljónum króna. Ráðgert er að 10 skipanna 14, sem Dubai-menn hyggjast kaupa af Stálvík, verði smíðuð í Egyptalandi en 4 þeirra hérlendis. BMW 3-lincm ffyrir þá sem gera miklar kröfur JMHPPW BMW 316i árgenö 1989. Nú er hann kominn til landsins, nýi BMW’ inn 316i árgerö 1989. Árgerö 1988 seldist upp á mettíma og fengu færri en vildu. BMW 316i er búinn nýrri 102 hestafla, 4ra strokka vél meö beinni innspýtingu. BMW 316i hefur glæsilegt yfirbragö innan sem utan, hvort sem er í 2ja dyra- eöa 4ra dyra útfærslu. í BMW kemst aksturinn næst því aö vera fullkominn, því hann er gerður fyrir kröfu- haröa ökumenn sem kunna aö meta þaö besta. Kunnir þú aö meta þaö besta, skaltu ekki hika við aö hafa samband og bóka tíma í reynsluakstur sem fyrst. Þá séröu hvers vegna BMW er svona góö Ijárfesting. Nú er BMW 316i árgerö 1989 til afgreiðslu strax á hágstæðara veröi en nokkru sinni fyrr. Bíllinn er búinn öllum sjálfsögöum þægindum. * Verö miðast viö staögreiöslu aö viöbættu gjaldi fyrir ryövörn og skráningu. Þú getur eignast nýjan BMW á hagstæö- um greiðslukjörum og við tökum gamla bíl- inn þinn jafnvel sem greiöslu upp í nýjan. Þaö er einfalt mál aö semja við okkur. Dæmi um verð: BMW 316i, 2ja dyra, kostar frá kr. 1.130* þúsund. BMW 316i, 4ra dyra, kostar frá kr. 1.180* þúsund. Haföu samband viö sölumenn strax í dag. Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá kl. 13—17. Njóttu þess besta, — eignastu BMW. Bílaumboðið hf BMW einkaumboð á íslandi Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 68663S fyrir kröfuharða!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.