Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 12

Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ MANIULIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 p£2j~yC Barst fyrsta lífræna efnið með loftsteinum til jarð- arinnar \ÍSXHD\/Liggja rcetur jarönesks lífs úti ígeimnumf Lífafhimnum ofan Fátt er áhugaverðara í vísindum nútímans en spumingin um upp- haf lífsins. Allt sem einkennir lífið er flókið og enn sem komið er hafa lífvísindin ekki nema takmarkaða þekkingu á þeim ferlum sem voru undanfari jafnvel einföldustu lífvera. Vitanlega hefur nútíma lífefnafræði tekið gífurlegum framförum á und- eftir dr. Sverri anfömum áratug- Ólafsson um og mörg merki- leg skref hafa verið tekin í áttina að sannfærandi vísindalegri skýringu á upphafi lífsins. Flestir vísindamenn eru þeirrar skoðunar að einn dag verði slík skýring hluti af haldgóðri vísinda- legri þekkingu. Eitt af þeim vandamálum sem þarfnast lausnar er það hvort tilkoma lífsins sé óhjákvæmileg afleiðing af almennum eða sérstökum eiginleikum efnisins, eða hvort um óendanlega ólíkleg atvik sé að ræða, sem átti sér stað fyrir einstaka tilviljun. Afgerandi svar við þessari spumingu mundi rtiarka tímamót í viðureign vísindanna við spuminguna um upphaf lífsins. Mikiivægar framfarir sem átt hafa sér stað á sviði fræðilegrar varma- og eðlisefnafræði á undanfömum ámm benda frekar til þess að fyrri mögu- leikinn sé réttur, en gefa Iitlar sem engar upplýsingar um þann tíma sem forleikur lífsmynduriarinnar hefur tek- ið eða hvar hann átti sér stað. Heimsmynd okkar hefur gjaman byggst á þeirri ímyndun að sólkerfið, og sér í lagi jörðin, sé einstakur stað- ur í alheimsrúminu. Vissulega er jörð- in einstök fyrir okkur sem lifum á henni og því er eðlilegt að vísinda- menn hafi lengst af gengið út frá því sem vissu að líf jarðarinnar reki upp- haf sitt til ferla sem áttu sér stað á jörðinni sjálfri og þá trúlega í hafinu. I dag er talið að mikið magn koltví- sýrings hafi verið í lofthjúp fmmjarð- arinnar og er ólíklegt að flókin efnas- ambönd hafí orðið til undir slíkum kringumstæðum. í Ijósi þessara staðreynda hafa nokkrir vísindamenn leitt að því rök að fmmþróun jarðnesks lífs hafi ekki átt sér stað á jörðinni sjálfri heldur úti í geimnum og að lífræn efnasambönd ■ sem þar urðu til hafí síðar borist til jarðarinnar. Stuðningsmönnum þess- arar hugmyndar hefur farið fjölgandi á undanfömum ámm, sér í lagi eftir að ýmis lífræn efnasambönd hafa fundist á loftsteinum sem hafa borist til jarðarinnar. Rúmlega 60 mismun- andi amínósýmr hafa fundist á loft- steinum sem hafa verið efnagreindir, þar á meðal átta af þeim 20 amínósýr- um sem þekktar em í eggjahvítuefni, en 55 hafa aldrei fundist á jörðinni. Eins hafa litrófsmælingar stjameðlis- fræðinga sýnt að talsvert flókin kol- efnasambönd fínnast víða í geimryki vetrarbrautarinnar. Vísindamenn við Háskólann í Kali- fomíu hafa veitt þessari tilgátu frek- ari stuðning, en þeir fundu nýlega lífrænt efni á loftsteinum sem býr yfír sérstökum, áhugaverðum eigin- leikum. Þetta efni hefur tilhneigingu til að mynda næfurþunnar himnur ef það kemst í snertingu við vatn. Himnur hafa trúlega gegnt gmnd- vallar hlutverki við myndun fyrstu framstæðu forma lífsins, eins og þær hafa gert æ síðan fyrir áílt líf. Ef himn- ur myndast umhverfis lífrænar sam- eindir geta þær veitt þeim vöm gegn ýmsum skaðrænum áhrifum umhverf- isins. Slík tilhögun stuðlar að auknum stöðugleika flókinna efnasambanda. Eins hefur návist mismunandi lífrænna efnasambanda, innan ákveð- inna himna, fljótlega leitt til efna- fræðilegs umhverfís sem hefur verið ólíkt ástandinu utan himnunnar. Himnur gefa því lífrænum sameindum möguleika til að þróast og. mynda „lífræna einingu" sem nýtur vamar gegn eyðandi áhrifum umhverfisins. Eining af þessari gerð er mikilvægt upphafsskref á langri leið til myndun- ar lífs. Vatn er nauðsynlegt til himnu- myndunarinnar, en það hefur trúlega verið fyrir hendi þar sem flestir loft- steinar hafa að geyma leirkennd efni sem geta ekki myndast nema við til- vist vatns. Strax eftir að jörðin var komin til sögunnar, fyrir u.þ.b. fjögur- þúsundmilljón áram, varð hún trúlega að þola stöðuga skothríð loftsteina og annarra smástima sem mikið var af í sólkerfinu. Það er ekki útilokað að með þeim hafi borist þau efni sem stuðluðu að myndun lífsins ájörðinni. Sú hugmynd, að lífíð hafí borist til okkar utan úr geimnum, virðist því standa traustari fótum í dag en nokkru sinni áður. HAGFRÆÐI///// taprekstur oghávextir einkunnarorb efnahagsstefnunnarf Fjallið tókjóðsótt ÆTL A MÁ að víða hafí gætt nokkurrar eftirvæntingar á fyrsta samkomulagi Alþingis mánudaginn 6. febrúar sl., en boðað hafði verið að tilkynnt yrði um aðgerðir í efhahagsmálum eftir all- langt jólaleyfi. Þinghléið átti að skapa svigrúm til að ganga frá varanlegum aðgerðum í framhaldi af ráðstöfunum til bráða- birgða frá í september. Komið hafði fram að markmið aðgerða yrðu í meginatriðum tvíþætt: að rétta við rekstrarstöðu útflutn- ings- og samkeppnisgreina og að lækka vexti. Ræða forsætisráðherra tók yfír nær þijár síður hér í blaðinu. Efnið reyndist ekki í samræmi við umfangið. Tilkynnt var um eina aðgerð í efnahagsmálum: breyt- ingu á gengi krónunnar um 2,5%. Fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús. Fram hefur komið að rekstr- arhalli á meðal- fiystihúsi nemi 2,5%. Greiddar eru 5% bætur úr Verðjöfnunarsjóði fískiðnaðarins á freðfísk, svo að hallinn er í raun nær 7,5%. Gera má ráð fyrir að viðskiptahallinn í ár verði á annan tug milljarða með samsvarandi aukningu erlendra skulda. Þessar staðreyndir era til marks um að enn hefur ekki verið ráðið til lykta því verkefni að laga þjóðarbúskapinn að breyttum ytri skilyrðum og innlendum kostnaðar- hækkunum sem orðið hafa á liðnum misserum. Forsætisráðherra lét svo um mælt í ræðu sinni á Alþingi að gengisbreytingar á undanförnu ári hefðu komið stóram hluta sjávarút- vegsins að litlum notum. Spyija verður á móti: Hvemig telur for- sætisráðherra að væri umhorfs í greininni og í sjávarplássum um land allt ef ekki hafði verið ráðist í aðlögun gengisins í febrúar og maí á síðasta ári? Er hægt að veij- ast þeirri ályktun að fyrirtæki sem ekki þolir leiðréttingu á rekstrar- skilyrðum eigi sér í raun ekki við- reisnar von? Gengisbreyting gerir þá ekki annað en að draga þá stað- reynd fram. Og eins og allir vita geta engin ráð bjargað gjaldþrota fyrirtæki. Varla er það stefna for- sætisráðherra að meina fyrirtækj- um, sem svo er ekki ástatt um, að spjara sig sjálf á grundvelli nýrrar rekstrarstöðu. Yfírlýsing forsætisráðherra um aðgerðir í efnahagsmálum kemur í bága við ummæli hans allt frá byijun árs 1988 um vandann í efna- hagsmálum. Hann sagði fyrir ári að Róm brynni, þar næst kom hinn hræðilegi blóðvöllur, þá hengiflugið og loks boðaði hann þjóðargjald- þrot á neyðarfundi fískvinnslunnar í nóvembermánuði. Telur hann nægja nú þegar hann ber ábyrgð á efnahagsmálum þjóðarinnar að bregðast við slíkum voða með 2,5% lækkum á gengi krónunnar að við- bættu óljósu tali sem ekki er hönd á festandi? Eða vora yfírlýsingam- ar e.t.v. full stórkarialegar? Hvað sem því líður hefur sú stefna orðið ofan á að atvinnufyrir- tækin skuli rekin með tapi. Þetta tap er að hluta greitt með milli- færslum úr sjóðum. Meðan þessi stefna er við lýði er fyrir það girt að fyrirtækin reisi eiginfjárstöðuna við og létti á skuldabyrðinni. Til þess að það megi gerast verða þau að hagnast. Þótt þetta sjóðafargan og kák gangi e.t.v. einhvem tíma enn verður ekki lengi undan því vikist að skapa vel reknum fyrir- tækjum möguleika á að standa á eigin fótum. Fólk sættir sig ekki við lífskjör á borð við þau sem hljót- ast af því að halda atvinnuvegunum í úlfakreppu til langframa. Öllum ber saman um að rík ástæða sé að freista þess að lækka vexti. En frómar óskir ríkisstjóm- arinnar í þeim efnum bæta ekki fyrir aðgerðir hennar sem eins og rakið var í grein minni fyrir hálfum mánuði halda uppi háum vöxtum, sem leggjast þungt á fyrirtæki og heimili. Fram hafa verið lögð ýmis framvörp sem yfírleitt virðast ætla að skapa lagagrundvöll fyrir aukna íhlutun opinberra aðila á sviði vaxtamála. Fomeskjutaut af þessu tagi þekkist ekki lengur í Vestur- Forsætisráðherra flytur ræðu sína „lítið gagn í gengisfellingun- um“? Evrópu og mun reynast gagns- laust. Vextir lækka ekki nema sköpuð séu skilyrði fyrir því að jafnvægi takist á fjármagnsmark- aði við lægra vaxtastig. En íslend- ingum virðist ætlað að lifa upp á nýtt ömurlega reynslu af miðstýr- ingunni sem var við lýði í þessum efnum. Eftir að fjármálaráðherra skýrði frá því að ráðherramir væra með áþekka kímnigáfu og „mjög góðir brandarar" væra lagðir yfir ríkis- stjómarborðið mátti búast við því að ríkisstjómin sýndi á sér gaman- sama hlið. Það hefur hún gert í vaxtamálinu. Þegar komið hefur í ljós að spariskírteini ríkissjóðs selj- ast ekki á 7% vöxtum afræður ríkis- stjómin að reyna að örva söluna með því að bjóða þau á 5%. Heldur fjármálaráðherra að íbúð sem selst ekki á ijórar milljónir seljist frekar á fímm? eftir Ólaf ísleifsson TRÚMAL/ Er bcenin adeins bamalegt rellf Að kvabba á Guði HVAÐA meining er í því að vera að kvabba á Guði um hvað sem er? Mér finnst þetta, sem þið kallið bæn, vera eins og hvert annað barnalegt rell. Haldið þið að Guð hafi ekki annað að gera en að snúast kringum ykkur, ef hann er þá til! etta er vel útilátinn skammtur, spyijandi góður. Og kannski ekki eins vondur á bragðið og þú kannt að halda. Ekki heldur sérlega sjaldgæfur. Ef bæn berst í tal, hvort sem vikið er að henni af meiri eða minni alvöru, má gera ráð fyrir, að þetta sjónarmið þitt komi fram. Og það er vel þess vert að taka það til greina og íhuga það. Kristnir menn gangast hiklaust við því, að þeir „kvabbi" á Guði sínum. Af því að hann er þeim veru- leiki. Þeir umgangast hann eins og lifandi persónu. _0g þeir vita það um hann fyrst og fremst, að til hans er allt að sækja, smátt og stórt. Við þiggjum lífið úr hendi hans frá einni andrá til annarrar. Hann gaf þér lífið þitt óbeðinn og endumýjarþað með hverjum andar- drætti. Hann lætur sól sína renna upp yfir vonda og góða og rigna yfir réttláta og rangláta. Þetta seg- ir Jesús. Og hann segir líka: Yðar himneski faðir veit, hvers þér þarfn- ist. En Jesús leggur samt þyngstu áherslu á það, að við skulum biðja þennan föður, segja honum, hvað okkur vantar, hvers við þörfnumst. Vegna hvers? Hvaða meining er í því? Náið samfélag manna felur það í sér m.a., að hvor segir öðrum hug sinn allan. Samstillt hjón tala hvort við annað um það, sem leitar á hugann. Þau þurfa stundum ekki að nota nein orð, þau skilja hvort annað án orða. En þeim er eðlilegt og sjálfsagt að ræðast við, tjá sig opinskátt hvort við annað. Þau eiga alla hluti saman, eru þakklát fyrir það og vita, að ekkert styrkir sam- band þeirra eins og það að láta það þakklæti í Ijós. Þetta dæmi getur sagt þér nokkuð. Þó að trú vor kristinna manna sé næsta ófull- burða, þá er hún trúnaðarsamband við Guð, svo fremi að hún sé með einhveiju lífi. Hvað er þá sjálfsagð- ara en það að tala við hann í ein- rúmi um allt? Og hlusta hljóður eftir rödd hans. Þetta er bæn. Þegar ég tala við Guð um s.n. smámuni, þá er ég að tjá það, að ég vil eiga lífíð mitt með honum, eiga allt með honum, smátt og stórt. Þetta á Jesús við, þegar hann leggur sína ríku áherslu, bæði með orðum og fordæmi, á það að biðja þann föður, sem heyrir og sér og allt veit og allt gefur. Og postuli hans, Páll, segir: Gjörið í öllum hlut- um óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð (sjá Filippibréf 4,6, taktu eftir samband- inu.) Þetta er viturleg, djúpvís ráð- legging. „Guð heyrir sinum himni frá hvert hjartaslag." En hann lang- ar að við hlustum eftir hjartaslögum hans. Þegar ég geri honum óskir mínar „kunnar“, þá er ég ekki að upplýsa hann um neitt. Ég er að viðurkenna, hver hann er: Þú veist og skilur, ég vil eiga óskir mínar með þér, taktu þær í þína umsjá. Þegar maður beinir huga og máli til Guðs á þennan hátt, þá getur farið svo, að maður sjái óskir sínar í nýju ljósi, hugsanlegt og líklegt, að maður sjái betur, að þær eru skammsýnar, eigingjamar, barna- legar. Bæn er að vera hjá Guði, vak- andi huga, vitandi vits. Meira er ekki unnt að þiggja en að vita hann hjá sér, eiga hann í huga sér. Krist- in bæn er þess vegna aldrei „kvabb“, þó að hún gangi ekki á snið við neitt, sem á huga leitar og dagar og stundir færa að höndum. Ég leita Guðs sjálfs í bæn minni. „Hafi ég þig hirði ég ekki um neitt á jörðu.“ (Sálm. 73.) Og við biðjum „í Jesú nafni“. Það þýðir, að við leggjum alla hugsun, hvert orð á vald hans, hann les í málið, hann getur látið sínar óskir rætast í mér. Og þá er allt gott. Margir reyna áþreifanlega bæn- heyrslu. Það er óvefengjanlegt. Um það er meira að segja en rúmist hér. Þú gætir vafalaust beint beitt- um spjótum að mér og öðrum, sem halda að það hafi einhvern tilgang að „kvabba“ á Guði um hluti, sem ganga sinn gang eftir meira eða minna auðrekjanlegum lögmálum. Tökum veðrið til dæmi. Ég ætla til Þingvalla á sumardegi og hann er að ganga upp með hafsunnan. Ég bið Guð að gefa mér sólskin svo að ég og börnin mín geti notið dags- ins. Hvað þýðir það? Ekki er ég þá að hugsa um fólkið, sem ætlar að vera í Ásbyrgi þennan sama dag og biður þess, að blessuð sunnanátt- in haldist, svo að áfram verði sól- skin og hiti í Ásbyrgi. Samt tala ég við Guð mínar áætlanir, óskir og vonir. Og þá er ég ekki að biðja hann að setja náttúruna úr skorðum mín vegna, rugla Veðurstofuna og skemma sumarfríið fyrir öðrum. Ég er að tala við hann um það, sem hann veit að ég hugsa. Og það geri ég af því að ég vil vita, að ég og allt mitt er í hendi hans. Og hvernig sem veðrið verður, þá viðr- ar betur í barmi mínum. Það er í rauninni aðeins eitt, sem ég er að biðja um í allri beiðni og bæn: Guð sjálfur. Og svar hverrar bænar er fólgið í henni sjálfri, í því að mega tala við Guð og eiga allt með honum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.