Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 30
30 C f* r> M1 NNINg/^^w A^8fíúAW9 Hanna Sigmjóns- dóttir - Minning Fædd 28. desember 1921 Dáin 12. febrúar 1989 Jesú nafn er. - niðarlind, - dýrlegs frelsis fyrirboði, - friðardagsins morgunroði, - iæknisdómur dýr við synd, - styrkur reikum, stoð í þrautum, - stjama vonar hjörtum blíð, - himneskt Ijós í harmabrautum, - heiisa' og iíf i dauðatið. (H. Hálfd.) Gott er að sannreyna enn einu sinni þessi huggunarríku játningar- orð í hryggð og sárum söknuði við andlát okkar kæru Hönnu frænku á Þórsgötu 6, sem var okkur svo góður og tryggur vinur allt frá æsku- og unglingsárum. í hörðu stríði við óvæginn sjúkdóm undan- farin misseri varðveitti hún hugarró í fullri vissu og sannfæringu um að „Guð er oss hæli og styrkur og örugg hjálp í nauðum". (Sálm. 46, 2-3). Kvöldið áður en hún andaðist voru saman komnir við sjúkrabeð hennar á Landspítalanum nokkrir nánustu ættingjar hennar og ást- vinir. Þá var lesinn úr Gídeontesta- menti sjúkrastofunnar 23. Davíðs- sálmurinn, þar sem m.a. segin „Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú, Drottinn, ert hjá mér“. Síðan var Hanna falin góðum Guði með bless- unar- og bænarorðunum: Drottinn blessi þig og varðveiti þig, Drottinn liti sína isjónu lýsa yfir þig og sé þér niðugur. Drottinn upplyfti sínu augiiti yfir þig og gefí þér frið. í nafhi Guðs, föður og sonar og heilags anda. Amen. 0g í friði fékk hún að sofna að morgni hins komandi Drottinsdags. Öllum sem kynntust Hönnu þótti vænt um hana og því trega hana nú margir, en gleðjast jafnframt yfir góðri heimför hennar og við hugsum til þess, er segir í friðsælum söng látins vinar hennar og okkar allra, sr. Magnúsar Runólfssonar, „Viðfætur Jesúégfæmér sess ... „Og eftir diiitia ævistund, fæ ég að sji hann i iífsins grund. Ég hitti Jesú í himins borg. Með honum stíg ég hin gullnu torg“. Hanna var fædd á Lindargötu hér í Reykjavík, en fluttist þaðan með fjölskyldu sinni 12 ára gömul á Þórsgötu 6, þar sem heimili henn- ar var til æviloka. Foreldrar hennar voru sæmdar- hjónin Anna Ágústa Halldórsdóttir og Siguijón Gíslason, lengi starfs- maður Olíufélagsins hf., og áður HÍS. Þau önduðust bæði árið 1964. Böm þeirra voru 5 talsins, 4 synir og ein dóttir. Þau eru nú öll látin nema næstyngsti sonurinn, Gísli flugvélstjóri. Elstur bamanna var Halldór flugvélstjóri, en eftirlifandi kona hans er Halldóra Elíasdóttir. Næstur var Ólafur, lengi starfsmað- ur Samvinnutiygginga. Eftirlifandi eiginkona hans er Kristín Magnús- dóttir. Hanna var næst í röðinni. Hún var ógift. Þá kom Gísli, sem kvæntur var danskri konu, Wennie Schubert, sem látin er fyrir 12 árum, og yngstur var Gunnar mál- ari, en eftirlifandi kona hans er Hildigunnur Gunnarsdóttir. Bræðraböm Hönnu em 11 talsins og bar hún hag þeirra allra mjög fyrir bijósti. Þau reyndust henni öll umhyggjusöm og góð og heim- sóttu hana að staðaldri í veikindum hennar og sama gilti um mágkonur hennar. Hanna var vinmörg, átti margar tryggar og hugulsamar vin- konur, sem vitjuðu hennar og veittu henni styrk og gleði. Góðvild og gleði rfkti jafnan á Þórsgötu 6 hjá Önnu og Sigutjóni og bömum þeirra og þar var gott að koma. Hanna stundaði framhaldsnám frá 1937 í 3 vetur við Kvennaskól- ann í Reykjavík og lauk þaðan prófí með góðum árangri. í allmörg ár starfaði hún hjá Efnaverksmiðjunni Kemia. Ung að árum gekk hún í Kristi- legt félag ungra kvenna og var það trúr liðsmaður alla tíð. Á yngri árum sínum lék Hanna í marga vetur undir söng í Sunnudagaskóla KFUM og í yngri deildum KFUK. Tryggðin og hugulsemin ein- kenndu Hönnu. Aldrei gleymdi hún afmælisdögum eða öðram merkis- dögum í fjölskyldunni og marga hugvitsamlega og vel valda og fal- lega gripi gaf hún ættingjum sínum og vinum, sem nú og í framtíð munu minna á hana og allt sem hún var og gaf okkur af sjálfri sér, okkur öllum, sem sárt söknum hennar nú, en gleymum henni ekki og munum ávallt minnast hennar með þökk og hlýju. Hana felum við ást og náð Guðs og hann biðjum við að blessa ástvini hennar alla, ekki síst feðginin á gamla heimilinu á Þórsgötu 6, bróðurinn Gísla og yngstu dóttur hans, Þóra, sem var Hönnu sérstaklega hjartfólgin. Inga og Hermann „Sæll er sá, er situr í slgóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka, sá er segir við Drottin: Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á“ Þessi orð úr 91. Davíðssálmi komu í huga minn, þegar ég heyrði andlát Hönnu Siguijónsdóttur, Þórsgötu 6. Ekki ætla ég að rekja æviferil Hönnu, heldur með nokkr- um orðum að tjá henni þakklæti mitt fyrir trúmennsku og einlæga vináttu öll árin, sem við störfuðum saman í KFUK. Hanna hafði ein- lægan áhuga á að starfa að því sem heyrir Guðsríki til og það var henn- ar gæfa. Eg þakka Hönnu minni fyrir hve vel hún sótti fundina í Kristniboðs- flokki KFUK og allar aðrar stund- ir, sem við áttum saman á fundum og samkomum og sungum Guði lof og dýrð. Nú get ég ekki lengur hlakkað til að Hanna og Inga frænka henn- ar komi í heimsókn til mín, en við höfum átt margar ánægjustundir að ógleymdri rifsbeijatínslunni hjá Hönnu. Þá var oft gott að vera boðin inn og ylja sér á heitum kaffí- sopa. Nú er þetta liðin tíð, en geym- ist í safni minninganna. Já, allt hefur sinn tíma. „Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma“, eins og stendur í Prédikaran- um. Tími Hönnu til að deyja var kominn og brátt kemur minn tími. Þetta er gangur Kfsins. Ég þakka Guði fyrir allar kærar minningar. Að lokum legg ég orð Páls post- ula í munn Hönnu: „Ég hefí barist góðu baráttunni, hefí fullnað skeið- ið, hefí varðveitt trúna. Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins, sem Drottinn mun gefa mér á þeim degi, hann hinn réttláti dómari." (II. Tím. 4, 7-8.) Gísli og dætur, ég þakka ykkur góð kynni og votta ykkur og öðram ættingjum mína dýpstu samúð. Guð blessi ykkur. Jóna Þorsteinsdóttír Okkur systumar langar að minn- ast föðursystur okkar, Hönnu frænku, eins og hún var alltaf köll- uð af öllum bræðrabömum hennar. Hún var dóttir hjónanna, Önnu Ágústu Halldórsdóttur og Siguijóns Gíslasonar. Hún átti Ijóra bræður og var faðir okkar einn þeirra, en hann er látinn. Hanna var fædd og uppalin í Reykjavík og bjó lengst af á Þórsgötu 6. Við minnumst allra kvöldanna þegar við voram yngri, þá biðum við spenntar, kemur Hanna frænka í kvöld? Því það vora miklar gleði- stundir þegar hún kom í heimsókn. Hanna var mikið fyrir að gleðja aðra og gefa gjafír og það fylgdi alltaf hugur gjöfum. Þegar hún lá á spítala um síðastliðin jól þá minnt- ist hún á það, hvað hún væri nú heppin að vera búin að kaupa allar gjafimar löngu fyrir jól. Hanna var mikið á heimili móður okkar eftir að faðir okkar lést. Hún stytti henni stundimar og gladdi með vera sinni. Á móðir okkar ljúf- ar endurminningar um Hönnu mág- konu sína. Þær vora mjög samrýnd- ar alla tíð. Þær vora margar ferðimar sem Ég féll með útbreiddan faðminn í fang mér jörðin tók. Og nam þegar nánd þeirrar tignar sem er nafnlaus í ræðu og bók. (Ljóðaþýð. Magnús Ásgeirsson. Höf óþekktur.) Nú er hann Eyji bekkjarbróðir okkar horfínn á braut en minningin um góðan dreng lifír um ókomna tíð. Eyji var vinsæll á meða! bekkjar- félaga sinna sem og annarra. Strax í bamaskóla setti hann mikinn svip á bekkjarheildina og í skólaferða- laginu var hann ómissandi. Hann spilaði í nokkur ár í skóla- hljómsveit Neskaupstaðar og var þar góður félagi jafnt á æfíngum sem í ferðalögum. Hann varð virkur í félagslífi eftir að í Verkmenntaskólann kom og er sárt til þess að hugsa að við fáum ekki framar að njóta starfs- krafta og hugmyndaríki hans þar. hún fór með okkur og fjölskyldum okkar í sumarbústað í Munaðar- nesi. Þar var mikið hlegið og margt rifjað upp frá í gamla daga, hennar verður sárt saknað í næstu ferðum. í maí sl. fann Hanna fyrst fyrir sjúkdómi þeim, sem leiddi hana til dauða. Allan þennan tíma sýndi hún mikinn dugnað og kom það okkur oft á óvart hversu sterk hún var. Hanna skilur eftir sig hlýjar og ljúf- ar minningar í hjörtum okkar, og bama okkar. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss nú hljóta skalt (V. Briem) Margrét og Jóhanna Ólafsdætur Mig langar með nokkram orðum að minnast Hönnu Siguijónsdóttur, vinkonu minnar og nágranna. Við höfum búið hér í húsunum hlið við hlið á Þórsgötu 4 og 6 í um 40 ár. En allt að 10 áram áður hófust kynni okkar í KFUK. Þar eignuð- umst við trúna á Drottin Jesúm Krist sem frelsara okkar. Sunnudaginn 12. febrúar þegar ég frétti lát Hönnu fletti ég upp í lítilli hugvekjubók sem ég vissi að hún hafði svo oft lesið úr sér til uppbyggingar. Versið sem var yfír- skrift fyrir þennan dag stendur í Heilagri ritningu í Filippíbréfí 1.6: „Og ég fulltreysti einmitt því að hann sem byijaði í yður góða verk- ið muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists." Ég veit að sá Drottinr sem hún eignaðist trúna á sem ung stúlka varðveitti hana í samfélagini við sig allt til þess dags er hanr tók hana til sín. Hanna var trúföst að sækja fund og samkomur í félögunum okkai KFUM og K og kristniboðssamkom- ur. Það veitti henni mikla blessur að geta verið í Vindáshlíð í kvenna- flokkunum. Hún var líka mjög kirlcjurækin. Við voram nokkrar vinkonur frá unglingsáranum sem heimsóttum hver aðra, hvort sem leiðin lá til Hafnarfjarðar, inn í Kringlumýri, sem þá var í útjaðri bæjarins, eða hingað í gamla miðbæinn. Með áranum hefur það þróast þannig að við heimsækjum hver aðra á afmælisdögum okkar. Vina- hópurinn stækkaði þegar nokkrar af okkur giftu sig og mennimir okkar bættust í hópinn. Við eigum ávallt góðar stundir saman og syngjum gjaman sálma úr söngbók félaganna. Á þessum stundum var Hanna alltaf fljót að velja sálma sem henni þótti vænt um. Og nú síðast þegar við voram samankomin á heimili mínu söknuð- um við Hönnu en mundum eftir söng sem hún valdi oft og við sung- um saman. Alltaf þegar gera átti annál fyrir þorrablót skólans var leitað til hans og ekki brást hann í þeim efnum frekar en öðram. Hann var orð- heppinn, skemmtilegur og mjög viljafastur. Það var gaman að vera í návist Eyja því alltaf var stutt í góða skapið og glaðlyndið. Ávallt var gott að koma í heim- sókn til hans. Þar var manni vel tekið jafnt af honum sem og fjöl- skyldu hans. Eyji var hæfileikaríkur og lýsti það sér mjög vel í teikningum hans sem vora áhrifamiklar og góðar. Hann var ágætur námsmaður þó að áhuginn hafí verið misjafn eftir námsgreinum. Eyji var duglegur til vinnu og eftirsóttur af vinnuveit- endum sem eflaust eiga eftir að sakna hans bæði sem ágæts drengs og duglegs vinnumanns. Þó að orðin séu svo lítil og van- máttug viljum við þakka Eyja sam- fylgdina í gegnum árin sem reynd- ust því miður alltof fá, en þau EyleifíirÞ. Gísla- son — Kveðjuorð Fæddur 5. janúar 1973 Dáinn 12. febrúar 1989 Ég metið get alls ekki alla þá umsjá sem Drottinn mér ljær. Sem daggperlur dýrlegar falla Hans dáðir - og ljóma sem þær. Ég metið get alls ekki alla þá umsjá sem Drottinn mér Ijær. Hanna var einn af meðlimum kristniboðsflokks KFUK. Fundirnir í kristniboðsflokknum era okkur meðlimunum afar blessunarríkir þar sem við komum saman um Guðs orð, biðjum saman og fáum fréttir af kristniboðunum og þeim sem ferðast um landið og boða Guðs orð. Það kom varla fyrir að Hönnu vantaði á fund þar til í haust að hún veiktist aftur og var lögð inn á Landspítalann í lyfjameðferð sem dugði ekki við sjúkdómnum. Á fundi hjá okkur í kristniboðs- flokknum 10. febrúar báðum við meðal annars fyrir sjúkum félags- systram og þá sérstaklega Hönnu. Þá vissum við að hún ætti ekki langt eftir. Á þessum fundi fóram við hver fyrir aðra vers úr Passíusálm- unum sem okkur þótti sérlega vænt um. Þá mundi ég hvað oft Hanna hafði sagt við mig að henni fyndist að það ætti að lesa úr Passíusál- munum á hveijum fundi í aðaldeild KFUK um föstutímann. Á þessíim fundi fannst okkur himinninn svo nærri þegar ein af okkur las úr 25. sálminum meðal annars: En með því út var leiddur alsærður lausnarinn gjörðist mér vegur greiddur í Guðs náðarríki inn og eilíft líf annað sinn; blóðskuld og bölvan mína burt tók Guðs sonar pína. Dýrð sé þér Drottinn minn. Önnur úr hópnum fór með vers úr 48. sálminum: Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má, Guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna og sjá, hryggðarmyrkrið sorgar svarta sálu minni hverfur þá. Sú vinkona sem fór með þetta vers hafði verið hjá Hönnu þremur dögum áður þar sem þær gátu tal- að saman góða stund. Hanna gerði sér grein fyrir því hve langt hún var leidd og sagði að hún vissi að Jesús væri hjá sér í gegnum dimma dalinn. Vinkonan las úr Guðs orði og bað bæn. Það var þetta sem Hanna bað okkur vinkonumar oft um, að biðja fyrir sér og það var gott að leggja hana í hendur hans sem hefur allt vald á himni og jörðu. Ég nefni hér í upphafí þessara orða að við hefðum verið nágrannar í um 40 ár. Þess vegna var þessi vinkona mér afar kær. Við röbbuð- um oft saman yfír vegginn milli húsanna. Hún gladdist með okkur á gleðistundum og fylgdist með bömunum okkar hjóna allt frá fæð- ingu og sýndi þeim mikla um- hyggju. Fyrstu litmyndina, sem tekin var ánægjulegu kynni sem við höfðum af honum hefðum við ekki viljað vera án. Við vottum foreldram Eyja og aðstandendum okkar dýpstu samúð og vitum að minningin um góðan dreng mun hjálpa þeim í þeirra sára sorg. Bekkjarfélagar l

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.