Morgunblaðið - 19.02.1989, Page 20
20 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
C 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
GÁRUR
eftir Elínu
Pálmadóttur
Blíðviðrí á bökkum Signu
eðrlð er ógeðslega gott . . .
mátti lesa í frönsku dag-
blaði i síðustu viku. Gekk alveg
fram af ferðalangi, sem lagt
hafði af stað heiman af íslandi
i býtið um morguninn eftir gler-
hálum Keflavíkurvegi og kaf-
aldshrið á vellinum. Á svona
vetri er gott að eiga sér fína flug-
stöð með kolkrabbaörmum út í
flugvélina, svo farþegar verði
ekki úti milli stöðvar og flugvél-
ar. Fljótt gekk að fá farmiða hjá
Arnarflugi um Amsterdam og
þjónustubanki Landsbankans í
hinni ný]u alþjóðlegu flugstöð
átti heila 110 franka á' lager.
Nóg lausafé fyrir lestarfarinu af
flugvelli inn í París. Ekki þó fyr-
ir leigubíl. Afgreiðslustúlka
Landsbankans sagði svo fáa
franka koma í kassann hjá
þeim. Kannski ekki von að þjón-
ustuviðhorf hafi enn fylgt á eftir
fínheitunum i nýrri flugstöð. í
viðeigandi loðkápu og stigvélum
fyrir islenskt vetrarveður reynd-
ist létt að skilja orðalagið ógeðs-
lega gott veður, þar til hægt var
að losna úr dúðunum í París.
Allan þann tíma sem krappar
lægðir hafa þrætt sína þröngu
leið yfir ísland milli hæðanna
yfir meginlandi Evrópu og
Grænlandi með tilheyrandi
ofsaveðrum, hafa Evrópubúar
lifað í vorveðri. Svo maður
sprangaði því í blíðviðrinu á
bökkum Signu í léttri dragt og
opnum skóm fram á kvöld. Ekk-
ert jafnrétti hjá þeim sem út-
deilir veðrum á þessum vetri.
Snjónum heldur ekki bara dengt
á þá sem eiga hitaveitukynnt
hús og geta flúið til Spánar þeg-
ar þeim tekur að leiðast veðrið.
Onnur þjóð fær líka úthlutað
stórum skömmtum af snjó-
komu. Sama laugardaginn sem
birtist í Morgunblaðinu viðtal,
tekið þessa sömu daga í París
við franskan diplomat og
islenska konu hans er síðust
sluppu frá Kabúl, tók að kyng|a
niður snjó á flugvöllinn, þar sem
þyrlur fluttu burt síðustu rússn-
esku hermennina. Kom í veg
fyrir að hjálparflugvélar Sam-
einuðu þjóðanna gætu lent með
lyf og matarbirgðir fyrir svelt-
andi, umkringda borg. Þama
sitja borgarbúar nú eins og skor-
dýr á skálarbotni og af bröttum
fjallabörmunum allt um kring
kemur ein og ein eldflaugasend-
ing niður í skálina í bland við
snjókornin. Þrátt fyrir stöðugar
sjónvarpsmyndir verður skelfi-
leg aðstaða þessa fólks svo
miklu nærtækari við frásagnir
þeirra sem þetta hafa upplifað.
hjónin og nýkomna franska
blaðamenn. Þessar 2-3 milljónir
manna, kvenna og barna geta
ekkert flúið. Sitja bara á skálar-
botninum. Vita ekkert hvað nú
getur yfir dunið. Ekkert hvort
tekst að koma matarbirgðum til
sveltandi fólks. Ekkert hvort
hægt verður að koma í veg fyrir
að íbúarnir rífi hvern annan á
hol fyrir nokkra brauðmola.
Ekkert hvort eða hvenær and-
spyrnuhreyfingarmennirnir i
háfjöllunum í kring koma niður
yfir og taka borgina. Ekkert
hvort þeir em nógu margir í
dulargervum inni í borginni til
að taka hana innan frá. Ekkert
hvort þá verður alls heijar blóð-
bað. Ekkert hvort stund hefnd-
arinnar er upprunnin yfir borg-
arbúa sem búið hafa við aðra
stjórn og erlendan her. Ekkert
hvort heittrúarmennirnir verða
ofan á og ajatola-ástandi írans
verði neytt upp á þá. Þeir sitja
í gildru á púðurtunnu og öll efn-
in í hana hafa hlaðist þarna upp
í 9 ár. Ekki þarf nema neista til
að ekki verði við neitt ráðið,
hafði frönsk blaðakona eftir
Afgana. Þeir biða því örlaga
sinna i snjókomu í Kabúl.
„Óbúandi á þessu landi, mað-
ur kemst varla út úr húsi“, sagði
fyrsti íslendingurinn sem heils-
aði á Keflavíkurflugvelli við
heimkomuna milli hryðja.
En framhaldið á upphafs-
setningunni hér að ofan úr
franska blaðinu„Veðrið er
ógeðslega gott, guði sé lof' var:
„og pólitiska veðrið er alveg stór-
kostlega vonti." Má sjálfsagt til
sanns vegar færa í öllum lönd-
unum þremur. Með mismun-
andi formerkjum þó. Og ólíkum
'viðbrögðum. Á sunnudagskvöld
kom Mitterrand Frakklands-
forsetí i sjónvarpsviðtal, hið
fyrsta siðan í sumar. Boðað og
undirbúið með löngum fyrir-
vara. Meira að segja skoðana-
könnun um hvaða málefnum
Frakkar vildu helst fá svör við
hjá sínum pólitíska valda-
manni. Svara' beðið með eftir-
væntingu. Þátturinn stóð hátt í
2 tíma. Og þótt Mitterrand sé
talinn einn reyndasti stjórn-
málamaður Evrópu og heljar-
mikill refur í pólitík, þá veit
hann að svona kemst hann ekki
hjá að gefa svör. Jafnvel þegar
vinir hafa komið honum í mesta
klandur. Eftir að hafa lýst dra-
matiskt hvernig vinátta hefði
myndast í fangabúðum nasista
og andspyrnuhreyfingunni,
sagði hann m.a. að ef sannaðist
misjafnt á slikan vin gæti for-
seti vitanlega ekki leyft sér um-
gengni við hann. Strax i kjölfar
viðtalsins kom fréttaskýrandi
og benti á hvað forsetinn hefði
merkilegast sagt og hvað vantað
í ýmsa þætti. Oll blöðin túlkuðu
svörin daginn eftir. Semsagt
ábyrgt viðtal valdamanns. Og
yfirlýsingar teknar alvarlega.
Af hverju ætli manni hafi fund-
ist svona mikið til um?
Málsháttur þessa dags i dag-
bókinni: Góðum foring|a er gott
að fylgja!
100 gr. af léttmjólk innihalda
adeirjs 46 hitæiningar. Og þaö eru
verðmætar hitaeiningar, því aðþeim
fylgja mörg mikilvægustu
næringarefnin. Efþú vilt grennast, þá
erbetra að draga úrþýðingarminni
hitaeiningum.
Mjöik getur dregið úr
tannskemmdum við eðlilegar
aðstæður. Hið háa hlutfall
kalks, fosfórs og magníum
veitirtönnum vemd. Eftirneyslu
sætinda eða sykurríkrar
máltíðarertd. gottaðskola
munninn með mjólk.
Beinin þroskastogstyrkjastfram
að fertugsaidri og þess vegna er
mikilvægt að þau fái nægjanlegt kalk
allan þann tíma tilþess að standa vel
að vígi þegar úrkölkun hefst um
miðjanaldur.
Góð
töká
málunum
Til þess að ná góðum tökum á líkamsþyngd
og ummáli er ein leið best: Að tileinka sér rétt
mataræði og losna við ómæld óþægindi og
jafnvel heilsubrest af völdum megrunarkúra.
Mjólk og mjólkurvörur eru mikilvægur hlekkur í
fæðuhringnum. Konur ættu að gæta þess
sérstaklega, að það er erfitt að fullnægja
kalkþörfinni án mjólkur eða mjólkurmatar, auk
Dess sem þar er á ferð einn fjölhæfasti
Dætiefnagjafi sem völ er á. Auðvelt er að velja
mjólk og mjólkurvörur með mismunandi
fitumagni og fá þannig bæði hollustuna og
hitaeiningasnautt fæði.
MJOLKURDAGSNEFND
Eftir fertugsaidurinn ernægjanlegt
kalk úr fæðunni nauðsynlegt til þess
að hamla gegn beingisnun. Tvö glös
afmjólk á dag ergóð regla.
/
Mjólkerauðug afB
vítamínum sem eru mikilvæg til
þessað t.d. húð, hár, neglur,
taugakerfi og sjón séu í góðu lagi.
Þeir sem hreyfa sig mikið virðast
nýta kalkið úr fæðunni betur og hafa
því meiri beinmassa á efri árum en
þeirsem hreyfa sig lítið.