Morgunblaðið - 19.02.1989, Page 31
af elsta syni okkar þegar hann var
um þriggja ára, bað Hanna bróður
sinn að taka af honum í garðinum.
Þar stendur hann í blómaskrúði og
brosir til Hönnu (á þeim tímum
voru litmyndir fátíðar). Aðra mynd
á ég af Hönnu í garðinum þeirra.
Þar heldur hún á litlum bróðursyni
og annar stendur við hlið hennar
ásamt tveimur af okkar sonum og
vini þeirra í næsta húsi. Þeir komu
oft í garðinn til hennar.
Hanna fylgdist vel með þegar
tveir af sonum okkar fóru sem
kristniboðar ásamt fjölskyldum
sínum til Afríku. Hún bað fyrir
þeim og gladdist við að fá kort frá
þeim. Hún færði bömum þeirra
gjafir þegar hún kom í heimsókn
til þeirra er þeir höfðu ársdvöl hér
heima áður en þeir héldu út aftur.
Það var henni mikið gleðiefni að
vera með á hátíðarstundum. Hún
hélt mikið upp á dóttur okkar og
varð ákaflega glöð þegar hún
kynnti kærastann sinn fyrir henni
og talaði oft um það. Svo fagnaði
hún með okkur í brúðkaupi þeirra
og síðar yfir litlu dóttur þeirra.
Hanna giftist ekki og átti ekki
böm en hún sýndi bræðrabömum
sínum mikla umhyggju og eins okk-
ar bömum og bamabömum.
Hanna var heilsulítil í mörg ár
og oft kom hún til mín þegar hún
átti við svefnleysi og kvíða að stríða
og bað mig að biðja fyrir sér. Þann-
ig kom hún til mín síðastliðið vor
rétt fyrir hvítasunnu og bað mig
að koma með sér til læknis sem hún
átti að fara í skoðun hjá og kveið
fyrir. Hún lagðist svo inn á Land-
spítalann strax eftir hátíðina og var
skorin upp. Allt gekk vel. Þá var
mikið beðið fyrir henni og við vinir
hennar fengum að sjá hvemig hún
fékk styrk og kraft frá Guði til að
ganga í gegnum þessi veikindi og
lyfjameðferðina.
Svo var það í haust að hún varð
mjög þjáð svo hún varð að halda
sér við rúmið mikið til í nokkrar
vikur heima en var svo aftur komin
á Landspítalann í lyfjameðferð. Hún
kom heim í nokkra daga núna í
janúar en eftir að hún kom á spítal-
ann aftur fór að draga mjög af
henni þar til hún lést.
Ein minning er mér mjög kær
frá heimsóknum mínum til hennar.
Það var aðfangadagur jóla um eftir-
miðdaginn. Þá fékk ég að lesa fyr-
ir hana jólaguðspjallið úr 2. kafla
Lúkasarguðspjalls. Hún tók undir,
sérstaklega þegar ég las „yður er
í dag frelsari fæddur sem er Krist-
ur Drottinn í borg Davíðs." Og svo
fengum við að taka undir lofsönginn
„Dýrð sé Guði í upphæðum og frið-
ur á jörðu með þeim mönnum sem
hann hefur velþóknun á“ og við
báðum saman og þökkuðum fyrir
að eiga Jesú Krist sem frelsara
okkar sem frelsar frá synd og dauða
og gefur eilíft líf á himnum með
sér. Þetta voru heilög jól sem ég
átti við rúmið hennar.
Ég vil svo senda Gísla bróður
hennar, dætrum hans og öðrum
ættingjum hennar mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur og bið Drottin
að blessa ykkur öll og styrkja.
Vilborg Jóhannesdóttir
Blómastofa
Friöfinm
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öil tilefni.
Gjafavörur.
JÖoSÖuÍíSÖðÍð MINNINS^ft^SUNNUDAOTít-19^-PEBR
JOflOM
FEBRÚAR 1989
3 08
C 31
Hjónaminning:
*
Anna J. Armanns-
dóttir og Bóas Sig-
urðsson Eydal
Fædd26. febrúar 1892
Dáin 16. febrúar 1989
Fæddur 17. júní 1891
Dáinn 20. maí 1968
Mig langar að senda hinstu
kveðju og þakkir til minningar um
hjónin á Borg í Njarðvík á Borgar-
firði eystra, Önnu Jakobínu Ár-
mannsdóttur og Bóas Sigurðsson
Eydal. Þessir vinir mínir eru nú
horfnir yfir móðuna miklu og jausir
við þjáningar ævilokanna. Ég sé
þau fyrir mér þar sem þau standa
á strönd lióss og hamingju og líta
til baka. Oskadraumar þeirra hafa
rætst í fallegum hópi bama þeirra,
sem lifa í sátt og samlyndi. Þau
hafa erft það besta frá báðum for-
eldrum sínum. Hvemig þau reynd-
ust þeim til æviloka gæti verið
mörgum til fyrirmyndar. Lengi býr
að fyrstu gerð. Heimilið á Borg var
sérstakt. Þegar ég sem bam flækt-
ist milli ættingja minna, eftir skiln-
að foreldra minna, bam sem hvergi
átti heima, fannst ég allstaðar vera
til óþæginda, enda óþæg, óskaði ég
mér oft að ég mætti eiga heima á
Borg. Anna var alltaf tilbúin að
svara öllum spumingum mínum og
strauk tár af kinn er mér leið verst
og þráði ijölskyldu mína og þá
mest pabba. Kvöldstund á Borg
man ég enn í dag. Amma, Elín
Björg, sat á rúmi sínu með tóvinnu.
Ég fékk að stinga fótum undir
sængina hennar og hún sagði mér
sögu. Anna sem ætíð var með verk
milli handanna lagði það frá sér og
greip bók og las upphátt fyrir okk-
ur. Bóás tók upp vasahnífinn og fór
að skera út. Ég held það hafi varla
farið svo ýsubein af borði að það
hafi ekki orðið að fugli, sel eða
öðrum dýmm. Mér þótti það ævin-
týri að sjá hann skera út. Oft sagði
hann mér af ferðum sínum út í hinn
stóra heim. Ég sagði að hann væri
fallegasti og besti maður á Borgar-
fírði, eftir að pabbi minn var far-
inn. Það var víst fátt sem Bóas gat
ekki. Smíðað 'hús og amboð. Á
stríðsárunum var hann ætíð sóttur
ef tundurdufl rak á land. Hann var
sá eini sem kunni til verka við að
gera þau óvirk.
Anna var einstök hannyrðakona
og lék allt í höndum hennar.
Kvennaverk vel af hendi leyst þykja
svo sjálfsögð að það er jafnvel tek-
ið betur eftir því sem úrskeiðis fer.
Böm Önnu og Bóasar hafa erft
snilld þeirra. Ef það vantar að opna
hús, bíla eða stress-tösku þá er víst
að Karl sonur þeirra leysir þann
vanda eins og ótal dæmi sanna er
lögreglan hefur til hans leitað. Þá
má geta þess að veiðiflugur hans
eru rómaðar. Þær Elín, sem m.a.
saumar í Þjóðleikhúsinu, og Aðal-
heiður systir hennar eru hreinir
snillingar í saumaskap og öllum
sínum verkum. Þeir Sigurgeir og
Ámi em báðir miklir smiðir og
hagleiksmenn. Á Borg gefur Sig-
urður bóndi föður sínum ekkert eft-
ir, eins og sjá má er komið er í hlað
á Borg. Fyrir nokkm kom ég þang-
að austur. Við Anna gengum þá
niður að sjó. Þar vom ótal steina-
tegundir og hafði Anna nöfn þeirra
á hraðbergi. Hún sagði mér nöfn
þeirra bæja sem þar vora í nánd í
eina tíð og sýndi mér gömlu bæjar-
stæðin. Nú vom þar eftir aðeins
tveir bæir. Anna sagði mér frá
lífsbaráttu þessa fólks skilmerki-
lega og lifandi. Með einstökum
hætti var öll umgengni hennar við
dýr. Mér er minnisstætt er hún eitt
sinn kom með nýborið lamb í svuntu
sinni úr fjárhúsinu. Mér sýndist það
ekki lengur lifandi. Hún vafði utan-
um það heitt stykki, hellti ofaní það
heitri mjólk og setti það við ofninn.
Að lítilli stundu liðinni lifnaði það
við fannst mér, sem bam. Fannst
mér Anna hafa gert kraftaverk.
Ætli það hafi ekki verið æði mörg
kraftaverkin. Ætli það hafi ekki
verið æði mörg kraftaverkin sem
konumar þama unnu í mikilli ein-
angmn með böm sín og bú á með-
an bændur þeirra vora í vinnu fjarri
heimilinu, til sjós á vertíðum. Eng-
inn læknir nær en uppi á Héraði
og ljósmóðir suður í Víkum. Lífið
var bara svona.
Með þakklátum huga hugsa ég
til baka til þessara góðu vina minna,
þakka allt sem þau gerðu fyrir mig.
Ánægjulegt væri ef við gætum á
næsta sumri, á afmæli Bóasar, efnt
til ættarmóts í Njarðvík. Þar gæfist
bömum okkar tækifæri til að kynn-
ast og þau gætu kynnst sögu Önnu
og Bóasar á Borg og lífsbaráttu
þeirra.
Megi Guð gefa ykkur gæfu og
framtíð í þeirra anda.
Laufey Jakobsdóttir
t
Móðir mín og amma,
BRYNHILDUR BJÖRGVINSDÓTTIR
frá Áslaugarstöðum,
Lónabraut 23,
Vopnafirðl,
lóst í Fjórðungssjúkrahúsinu ó Akureyri fimmtudaginn 16. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Áslaug Magnúsdóttlr,
Árni Þórhallur Leósson.
t
Systir mín og fósturmóðir okkar,
EINARA GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis á Köldukinn 18,
Hafnarfiðl,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi að morgni 17. febrúar.
Benedlkt Björnsson,
Elfn Benediktsdóttir,
Björn Benedlktsson,
Guðbjörg Benedlktsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURBJÖRN JÓNSSON
frá Ingunnarstöðum,
til heimllls á Fálkagötu 3,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Garpsdalskirkju laugardaginn 25. febrúar
kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 21. febrúar kl. 10.30.
Bjarnl Sigurbjörnsson, Ingibjörg Ingólfsdóttir,
Helga Slgurbjörnsdóttir, Gylfl Guðmundsson,
Jón Sigurbjörnsson, Valgerður Elnarsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
hjartkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
GRIFFITH DAVID SCOBIE,
Torfufelli 42.
Einnig þökkum við læknum, hjúkrunar- og starfsfólki Landakots-
spítala fyrir bestu umönnun og hlýhug.
Asta Hansen Scobie
Stephanie G. Scoble, Grlffith J. Scoble,
Ásta Denise S. Bernhöft, Robert S. Scobie,
Gayle Scobie, Richard S. Scobie,
Marion Scobie, . William J. Scobie,
tengdabörn og barnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar og tengdamóöir,
RANNVEIG HILDIGUNNUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
ölduslóð 12,
Hafnarflrðl,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriöjudaginn 21. febrúar
kl. 15.00.
AAalsteinn Knudsen,
Sesselja Kjærnested, Einar Hafsteinn Árnason,
Rannveig Kjœrnested, Guðni Krlstjánsson.
Systir min, t HANNA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Þórsgötu 6, Reykjavlk,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju, mánudaginn 20. febrúar
kl. 15.00. Gfsll Slgurjónsson.
t
Þökkum af alhug samúð og vináttu okkur sýnda við andlát og
jarðarför
SINDRA SIGURJÓNSSONAR.
Slgrfður Helgadóttir,
I synir, tengdadætur, barnabörn
og Anna Þ. Sveinsdóttir.
t
Alúðarþakkir sendi óg öllum þeim er sýnt hafa samúö og vinar-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR BJARNFINNSDÓTTUR,
Búðarstfg, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Selfoss og kirkjukórs
Ey ra rba kkakirkj u.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Valgeir Ólafsson.
t
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug
viö andlót og útför systur okkar,
HÖLLU RANNVEIGAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Saurhóli.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Halldórsson,
Ellert Halldórsson,
Ólafur Halldórsson.