Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 1
fHorgtttrtTafrÍft
AKreð Gísla-
son sá besti
Alfreð Gíslason var valinn besti leikmaður
B-keppninnar. Þetta var tilkynnt í hófí eftir
að keppni lauk á sunnudaginn, en það var sérstök
nefnd sem sá um kosninguna.
„Ég bjóst alls ekki við þessu, en er auðvitað
mjög ánægður með að hafa hlotið þessa nafnbót,"
sagði Alfreð, sem lék frábærlega í vöm íslenska
liðsins í öllum leilq'um mótsins og náði sér sérstak-
lega vel á strik í sókninni þegar mikið reið á. Til
dæmis gegn Rúmenum og (úrslitaleiknum á sunnu-
daginn gegn Pólvetjum.
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I FRAKKLANDI
Stefnt að sterku
árlegujDoðsmóti
á íslandi:
World
Grand
Prix
haldið í
ágúst?
Sovétmönnum,
SvíumogTékkum
boðin þátttaka
AÐ SÖGN Jóns Hjaltalíns
Magnússonar, formanns HSÍ,
er stefnt að því að koma á
sterku boðsmóti sem haldið
verður árlega — og kalla það
World Grand Prix á íslandi.
Menn sem við höfum hitt hér
hafa mikið talað um hve
Flugleiðamótið var vel heppnað í
ágúst, og spurt hvort það verði
ekki haldið aftur. Við höfum í
hyggju, í framhaldi af því, að koma
á þessu World Grand Prix-móti,
breyta Flugleiðamótinu," sagði Jón
Hjaltalín í gærmorgun.
Landsllðum frá Japan
og S-Kóreu boðlð
Um boðsmót verður að ræða og
sagðist Jón, formaður HSÍ, hafa
hug á því að bjóða liðum Japan,
Suður-Kóreu og Bandaríkjanna
ásamt þremur sterkum Evrópuþjóð-
um. í því sambandi hafa Sovét-
menn, Tékkar og Svíar verið nefnd-
ir. Þá yrðu A- og B-landslið íslands
með á mótinu. Stefnt er að því að
hafa tvo fjögurra liða riðla, í
Reykjavík og á Akureyri.
Hálf mllljón króna
fyrlr fyrsta sætl
Stefnt er að háum peningaverð-
launum fyrir efstu sæti mótsins og
nefndi Jón 10.000 dollara (hálfa
milljón íslenskra króna) fyrir fyrsta
sæti.
•Forráðamenn HSÍ hafa (nokkurn
tíma gengið með þá hugmynd í
maganum að koma á fót sterku
boðsmóti á íslandi, en eru nú sem
sagt ákveðnir að hrinda hugmynd-
inni í framkvæmd. „Við viljum
koma á árlegu móti sem ekki yrði
álitið minna en World Cup í Svíþjóð
og Super Cup í Vestur-Þýskalandi.
Að halda slíkt mót verður Kka góð-
ur undirbúningur fyrir okkur áður
en við höldum Heimsmeistara-
keppnina árið 1993,“ sagði Jón
Hjaltalín.
I 9 ii l 11
1 * Úé 1
Morgunblaöiö/Sverrir
Sigri fagnað í París
íslenska landsliðið í handknattleik sigraði í B-keppninni ( handknattleik, sigraði Pólveija 29:26 í úrslitaleik mótsins í París á sunnudag. Þetta var fyrsti sigur
islenska landsliðsins á stórmóti.
Bogdan ætlar
að hugsa málin
Hefurekki ákveðið hvað hann tek-
ursérfyrirhendur
Bogdan Kowalczyk, landsliðs-
þjálfari íslands, var að von-
um ánægður í París á sunnudag-
inn og sagði íslenska liðið hafa
leikið mjög vel í keppninni. „Leik-
menn náðu að einbeita sér sér-
staklega vel í hveijum einasta
leik. „Slæmi leikurinn" kom aldr-
ei. Ég held að þetta hafí verið
besta mótið sem við höfum tekið
þátt í - allt gekk upp, og ég er
á því að þetta lið eigi möguleika
á að ná mjög góðum úrslitum í
heimsmeistarakeppninni næsta
ár. Þessi B-keppni var að mínu
mati álíka sterk og handknatt-
leikskeppni Ólympíuleikanna í
Seoul. Það sýnir hve styrkleiki lið-
anna er mikill að Vestur-Þjóðveij-
ar skuli falla niður í C-flokk,“
sagði Bogdan.
„Ég er auðvitað mjög ánægður,
en nú heyrir þessi árangur sög-
unni til. Ahorfendur eiga eflaust
eftir að tala um þennan leik og
úrslitin næstu árin, en þjálfari
verður alltaf strax að fara að
hugsa um framhaldið. Það tekur
alltaf eitthvað nýtt við hjá hon-
um“.
Óljóst er hvað Bogdan tekur
sér fyrir hendur nú. „Það eru
margir möguleikar fyrir hendi,“
sagði hann á sunnudaginn. „Ég
mun setjast niður í rólegheitum
og hugsa málin. Taka mér góðan
tlma til að ákveða mig.“ Spurður
um hvort hann gæti hugsað sér
Bogdan sést hér (t.h.) með pólska landsliðsþjálfaranum Zenon Takomy.
að starfa áfram á íslandi, svaraði
Bogdan: „Það er erfitt að segja
til um það. Ég get ekki sagt neitt
um það í dag.“
Þegar hann var beðinn að líta
til baka yfír þau sex ár sem hann
hefur verið landsliðsþjálfari sagði
Bogdan þetta hafa verið mjög
ánægjulegan tíma. „Við höfum
náð góðum úrslitum. Hér eru allir
að tala um hve fallegan hand-
knattleik íslenska liðið leiki. Við
náðum nú fyrsta sigri okkar á
stórmóti, og ég er því gríðarlega
ánægður."