Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐEÐ
IÞRÓTTIR
ÞREXJUDAGUR 28. FEBRUAR 1989
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I FRAKKLANDI
Einn besti
árangur
íslenskra
íþrótta-
manna
- segirJón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ
„ÉG VAR mjög ánœgður þegar
flautað vartil leiksloka. Mér
leið mjög vel vegna þess aö
sú grfðarlega mikla vinna sem
allir hafa lagt á sig til aö ná
þessum árangri skilaði sór,“
sagöi Jón Hjaltalín Magnússon,
formaöur HSÍ, eftir sigur ís-
lands í B-keppninni á sunnu-
daginn.
Skapti
Hallgrímsson
skrifarfrá
Frakklandi
arkmið okkar í þessari
keppni var að einbeita okkur
að einum leik í einu. Ég er hrædd-
ur um að önnur lið hér hafi verið
það örugg að þau
hafi verið farin að
hugsa um úrslita-
leikinn fljótlega eftir
að þau komu, til
dæmis Vestur-Þjóðverjar."
Jón sagði að ef til vill mætti segja
að það hefði verið lán í óláni að
tapa fyrir Austur-Þjóðveijum á
Ólympíuleikunum í Seoul og lenda
því í B-keppninni: „því þetta hefur
verið frábær landkynning. Fjölmiðl-
ar hafa sýnt keppninni mikinn
áhuga, og úrslitaleiknum var sjón-
varpað um allan heim.“
Jón sagði leikgleðina hafa verið
til staðar hjá íslensku landsliðs-
mönnunum í þessari keppni, „leik-
gleðin var eins og hún á að vera
og baráttan gríðarleg. Sigurinn í
keppninni er örugglega einhver
besti árangur íslenskra íþrótta-
manna. Ef sami andinn hefði verið
í hópnum í Seoul og hér_ hefðum
við hlotið verðlaunasæti á Ólympíu-
leikunum. Ég tek á mig persónulega
hluta ástæðunnar fyrir því hvemig
fór í Seoul. Liðið spilaði of mikið
fyrir leikinn, en við vorum að vinna
að því að fá heimsmeistarakeppnina
til Islands og urðum að fara svona
að.“
Fram kom í máli formannsins
að hann vonaðist eftir því að skiln-
ingur á afreksíþróttum ykist á ís-
landi. „Það að ná svo góðum ár-
angri í hópíþrótt er nánast ótrúlegt
af svo fámennri þjóð. Hver einstakl-
ingur í liðinu þarf að vera frábær.
Þetta ætti að verða íslendingum
hvatning á öðrum sviðum, til dæm-.
is í listum, menningu og atvinnu-
rekstri. Ég vona að þessir strákar
verði allir tilbúnir að leika áfram
með landsliðinu, en við getum ekki
haldið áfram að leggja svo mikla
vinnu á afreksmenn okkar nema
styðja betur við bakið á þeim. Fyr-
ir Ólympíuleikana tókst okkur það
en ekki nú vegna fjárhagsvandræða
Handknattleikssambandsins. Ég
vonast því til að einstaklingar og
fyrirtæki sem hafa stutt okkur geri
það áfram. Þetta var þeirra sigur
líka.“
Jón vildi að endingu þakka öllum
þeim sem komu frá íslandi gagn-
gert til að sjá landsliðið spila.
„Stuðningur þeirra var ómetanleg-
ur. Það hefur vakið mikla athygli
í handknattleiksheiminum hve mik-
inn áhuga íslendingar hafa á hand-
knattleik, sem er þjóðaríþrótt okk-
ar,“ sagði Jón Hjaltalín.
Morgunblaðiö/Sverrir
Bogdan fékk flugferð eftir að sigur í B-keppninni var í höfn.
Vestur-Þjóðverjar leika í C-keppninni á næsta ári:
Mestaáfall í íþrótta-
sðgu V-Þýskalands
Petre Ivanescu hættur með vestur-þýska landsliðið
VESTUR-ÞÝSKA handknatt-
leikslandsliðið fœr slœma út-
reið í vestur-þýskum fjölmiðl-
um eftir frammistöðuna í B-
keppninni. „Mesta áfall f
fþróttasögu Vestur-Þýska-
lands“. Þessi orð mátti lesa
í mörgum dagblaðanna f gœr
hér í Þýskalandi.
Vestur-Þjóðverjar voru mjög
sigurvissir eftir fyrstu tvo
leiki sína í B-keppninni og voru
famir að gæla við sigur í A-
keppninni á næsta
FrðJóniH. ári. Síðan kom tap
Garóarssyni gegn Sviss og
ÍÞýskalandi Jitla“ íslandi og
þótti það meiri-
háttar áfall. Liðið lék síðan til
úrslita við Dani um 7. sætið, þar
sem sigur þýddi áframhaldandi
veru í B-keppni, en tapaði og
færist því í C-styrkleikaflokk. Það
er í fyrsta sinn sem Vestur-Þjóð-
verjar leika í C-keppni í hand-
knattleik og kemur það sér illa á
50 ára afmæli þýska handknatt-
leikssambandsins.
Ivanescu hwttur
Petre Ivanescu hefur hætt sem
þjálfari vestur-þýska landsliðsins.
„Þetta eru mestu vonbrigði sem
ég hef orðið fyrir á mínum þjálf-
araferii og ekki annað hægt en
að segja af sér,“ sagði Ivanescu.
Mikið er rætt um arftaka hans
og er Vlato Stensel, sem gerði
V-Þjóðveija að heimsmeisturum
1978, nú efstur á óskalistanum.
Þeir Heiner Brand, þjálfari Gum-
mersbach og Horst Bredemeier,
þjálfari Dusseldorf, hafa einnig
verið nefndir en þeir hafa ekki
áhuga á þjálfarastöðunni.
Fjárhagslegttap
Fjárhagslegt tap Vestur-Þjóð-
veija er mikið við það að falla í
C-styrkleikaflokk. Vestur-þýska
íþróttaráðuneytið, sem hefur
greitt þjálfaralaun fyrir þær
flokkaíþróttir sem eru í A og B-
styrkleikaflokki, greiðir ekki
þjálfaralaun í C-flokki. Forráða-
menn handknattleikssambandsins
verða nú að finna aðrar tekjuleið-
ir og er talið að það verið erfitt
eftir útreiðina í Frakklandi.
Gullverðlaunum fagnað
Morgunblaðið/Sverrir
Nokkur hundruð íslendinga fóru til Parísar um helgina gagngert til að sjá úrslitaleik íslands og Póllands í B-keppn-
inni. íslensku áhorfendumir hvöttu sína menn óspart og þeir fögnuðu að vonum ákaft, er gullverðlaunin voru í höfn.
„Held að Tiede-
mann komi ekki“
- sagði Langhoff, þjálfari Austur-Þjóð-
verja, eftirsigur íslendinga í B-keppninni
„ÍSLENSKA liðið er f rábœrt, en
einhverra hluta vegna held ég
aðPaul Tiedemann komi ekki
til íslands til að taka við þjélfun
liðsins," sagði Klaus Langhoff,
þjálfari Austur-Þjóðverja, við
Morgunblaðið skömmu eftir að
íslendingar höfðu tryggt sér
gullverðlaunin í B-keppninni.
Langhoff sagði að Tiedemann
hefði verið þjálfari lengi, en
vissi ekki hvað hann tæki sér nú
fyrir hendur. „Ég get ekki svarað
því — veit það ekki.“
Langhoff var á því að besta liðið
hefði sigrað í B-keppninni. „Það var
allt annað að sjá til íslenska liðsins
í þessari keppni en á Ólympíuleikun-
um. Og í raun er það frábært hjá
Bogdan að ná liðinu upp á ekki
lengri tíma. íslenska liðið var áber-
andi best og verður erfíður keppi-
nautur. Því er ljóst að við höfum
mikið verk að vinna ef við ætlum
ekki að sitja eftir,“ sagði eftirmaður
Tiedemanns.
Þjálfarinn sagði að íslenska liðið
hefði tekið ótrúlegum breytingum
frá því í Seoul í haust. „Leikgleðin,
samvinnan og breiddin hjá íslenska
liðinu gerði hér gæfumuninn og
kom mér á óvart eftir það sem á
undan hafði gengið. Allir vita að
einstaklingamir eru sterkir, en að
ná upp réttum liðsanda á innan við
fímm mánuðum er stórkostlegt,
sérstaklega eftir áfall eins og gerð-
ist á ðlympíuleikunum," sagði
Langhoff.