Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
B 3
Héðinn
áfram
með FH
næsta
vetur
HÉÐINN Gilsson, stórskytt-
an unga úr FH, segist nœr
örugglega leika með Hafn-
arfjarðarliðinu áfram nœsta
vetur.
Það hafa verið þreifingar í
gangi um að ég færi út,
en ég verð örugglega heima
næsta vetur. Ég var spenntur
fyrir Þýskalandi, en Þjóðveijar
duttu niður í C-flokk, þannig
að ef ég færi þangað gæti orðið
erfítt að vera með í undirbún-
ingi fyrir A-keppnina í Tékkó-
slóvakíu," sagði Héðinn á
sunnudaginn. Láð frá Frakk-
landi, Sviss og Vestur-Þýska-
landi hafa haft samband við
Héðin og vilja fá hann — en
ekkert verður af því að hann
fari fyrir næsta tímabil. Hann
segist ekki vera spenntur fyrir
því að leika í Sviss eða Frakk-
landi.
Vestur-Þjóð-
verjar mega
helst ekki
detta niður
í C-flokk!
- sagði Svíinn Kurt
Wadmarkvið Danina
fyrir úrslitaleikinn við
Vestur-Þjóðverja
Kurt Wadmark, Svíinn sem sæti
á í stjóm alþjóða handknatt-
leikssambandsins, var ekki vinsæll
í herbúðum danska landsliðsins fyr-
ir leikinn gegn Vestur-Þjóðveijum
um 7. sætið á sunnudaginn. Hann
sagði við Danina að það mætti helst
ekki gerast, handknattleiksins
vegna, að Vestur-Þjóðveijar féllu
niður í C-flokk.
Ljóst var að það lið sem tapaði
dytti niður í C-flokk.
Danimir sögðu íslendingum frá
þessum ummælum Wadmarks eftir
leikinn — og sögðu: „Við urðum
alveg bijálaðir þegar hann sagði
þetta. Urðum enn ákveðnari en
áður að leggja Þjóðveijana að velli
— og „IHF-mafíuna“ í leiðinni."
Þegar Jón Hjaltalín, formaður
HSÍ, heyrði um ummæli Wadmarks
varð honum að orði: „Þama var
hann að fremja sjálfsmorð hvað
varðar áframhaldandi setu í stjóm
IHF.“
Einarmeð
sl'itin liðbönd?
Einar Þorvarðarson meiddist
snemma úrslitaleiksins og
varð að fara af velli. Taiið er
að liðband hafi slitnað í vinstra
hné hans.
óhappið var er Einar vanði
glæsilega skot eins Pólveijans
af línu. „Ég lenti illa — og hnéð
small úr liðnum,** sagði Einar.
Það á eftir að skoða hversu al-
varleg meiðsli hans eru, en ekki
er ljóst hvort hann^getur spilað
með Val strax og Islandsmótið
hefst að nýju í vikunni.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Dean Saunders, markaskorari Derby, hefur skorað sextán deildarmörk.
Arsenal og
Norwich að
stingaaf
ARSEN AL og Norwich sigruðu
í leikjum sínum í 1. deildinni í
Englandi um helgina og hafa
nú fjarlægst önnur lið í deild-
inni. Arsenal stendur þó betur
að vígi og hefur fjögurra stiga
forskot á Norwich. Næsta lið
er Millwall sem hefur hlotið 8
stigum færra en Norwich.
Arsenal sigraði Luton 2:0 á
Highbury. Það var þó ekki
fyrr en á 63. mínútu að fyrsta
markið kom en þá skoraði Perry
Groves með hjólhestaspymu. Alan
Smith bætti svo öðru marki við
rétt fyrir leikslok.
Norwich sigraði Manchester
United, 2:1. Vamarmaðurinn Ian
Butterworth kom Norwich yfír á
13. mínútu og Malcolm Allen bætti
öðru marki við fyrir leikhlé. Paul
McGrath náði að klóra í bakkann
með marki níu mínútum fyrir leiks-
lok.
Millwall skaust í 3. sæti með sigri
á Coventry, 1:0. Tony Cascarino
tryggði Millwall sigurinn fímm
mínútum fyrir leikslok.
Derby mjakast upp töfluna eftir
sigur á Everton á heimavelli í Qör-
ugum leik. Markakóngurinn Dean
Saunders setti fyrsta markið fyrir
Derby en Graeme Sharp jafnaði
fyrir Everton á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks. Paul Goddard kom Derby
yfir að nýju skömmu eftir hlé en
Wayne Clarke jafnaði aftur. Leik-
menn Derby gáfust þó ekki upp og
Goddard tryggði liðinu sigur eftir
sendingu frá Saunders.
Tottenham vann góðan sigur á
Southampton á útivelli, 2:0. Chris
Waddle gerði fyrra markið með
þrumuskoti skömmu fyrir leikhlé
og Marokkómaðurinn Nayim, sem
kom í liðið í stað Guðna Bergsson-
ar, bætti öðru marki við á 83.
mínútu úr aukaspymu.
Charlton sigraði Aston Villa á
útivelli, 1:2 og Wimbledon sigraði
Sheffíeld Wednesday 1:0. Þá gerðu
West Ham og QPR markalaust jafn-
tefli.
ISLANDSIVIOTIÐ I KORFUKNATTLEIK
Valur—UMFT
89 : 81
íþróttahús Vals, íslandsmótið í körfu-
knattleik, mánudaginn 27. febrúar
1989.
Gangur leiksins: 2:0, 3:3, 15:10,
26:16, 33:30, 83:34, 44:44, 50:49,
58:49, 75:60, 80:70, 84:78, 87:80,
89:81.
Stig Vals: Tómas Holton 26, Amar
Guðmundsson 17, Ragnar Jónsson 14,
Matthías Matthíasson 13, Hreinn Þor-
kelsson 11, Ari Gunnarsson 6 og Bárð-
ur Eyþórsson 2.
Stig TJMFT: Valur Ingimundarson 33,
Eyjólfur Sverrisson 19, Kári Marísson
10, Haraldur Leifsson 7, Sverrir Sverr-
isson 5, Bjöm Sigtryggsson 4 og Ágúst
Kárason 3.
Dómarar: Jón Otti ólafsson og Sigurð-
ur Valur Halldórsson. Dœmdu þokka-
lega.
Áhorfendur: 46.
Tómas Holton Val.
Matthías Matthíasson Val og
Valur Ingimundarson UMFT.
Mikilvægur sig-
ur Valsmanna
VALSMENN halda enn í vonina
um sæti í úrslitakeppnina og í
gær unnu þeir dýrmætan sigur
á Tindastóli. Valsmenn hafa nú
jafn mörg stig og Grindvíkingar
og stefnir í úrslitaleik þessara
liða í Grindavfk um næstu helgi
sem sker úr um hvort liðiö
kemst í úrslitakeppnlna.
Leikurinn í gær var jafn framan
af og í leikhléi var staðan
50:49, heimamönnum í vil. í síðari
hálfleik náðu Valsmenn undirtök-
unum. Ragnar Jóns-
son skoraði fyrstu 8
stigin fyrir Val og
breytti stöðunni í
58:49. Sauðkræk-
ingum tókst ekki að saxa á forskot-
ið og lokatölumar urðu 89:81; dýr-
mætur sigur Vals í höfn.
Hörður
Magnússon
skrifar
BADMINTON
Tómas Holton átti frábæran leik,
bæði í vöm og sókn og stjómaði
liðinu eins og herforingi. MattthSas
var gríðarlega sterkur undir körf-
unni og Ragnar og Amar áttu
ágætan leik.
Sauðkrækinga skortir herslu-
muninn og lið þeirra hefur oft tapað
með litlum mun. Sókn liðsins sam-
anstóð af Val Ingimundarsyni og
Eyjólfi Sverrissyni. Þeir voru einu
mennimir sem skutu og slíkt kann
að sjálfsögðu ekki góðri lukku að
stýra.
Tveir leikir í kvöld
í kvöld em tveir leikir í íslands-
mótinu í körfuknattleik. Njarðvík
og Grindavík leika í Njarðvík og
Tindastóll og ÍR á Sauðárkróki.
Báðir leikimir hefjast kl. 20.
HNEFALEIKAR
Meistarinn
ósigrandi
Bandaríkjamaðurinn Mike
Tyson sigraði Bretan Frank
Bmno í úrslitaviðureigninni um
heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt í hnefaleikum. Leikurinn
var stöðvaður eftir fímm lotur
og var þá mjög dregið af Bmno.
Tyson, sem hefur aldrei tapað
á ferlinum, hafði mikla yfírburði
og byijaði með látum. Hann sló
Bmno í gólfið strax eftir nokkr-
ar sekúndur og eftir að var
spumingin aðeins hve lengi
Bmno tórði.
Engin þarf þó að vorkenna
Brano fyrir barsmíðamar því
hann fékk í sinn hlut rúmar 100
milljónir kr. Tyson hafði þó
meira uppúr krafsinu, fékk 560
milljónir króna fyrir vikið.
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Broddi og Þorsteinn sigruftu
Broddi Kristjánsson og Þor- ust í úrslit í tvenndarleik, en töp-
steinn Páll Hængsson sigr- uðu naumlega fyrir kanadísku
uðu í tvíliðaleik karla á alþjóðlegu- pari, 9:15 og 11:15.
móti sem fram fór í Boston á laug- íslenska landsliðið lék við
ardaginn. Þeir sigmðu andstæð- bandaríska landsliðið í Boston á
inga sína sem vom frá Kanada, fímmtudag og tapaði naumlega,
15:11 og 17:15. 4:3.
Broddi og Þórdís Edwald kom-
Bayem bætti sex
ára gamalt met
Hamburger
JÚDÓ
Bjamií3. sæti
Bjami Friðriksson hafnaði i 3.
sæti á opna skoska meistara-
mótinu í júdó sem fram fór um
helgina. Bjami keppti í -95 kg flokki
en í þeim flokki vom 19 keppend-
ur. Halldór Hafsteinsson tók einnig
þátt í þessu móti og hafnaði í 8.-16.
sæti í -85 kg flokki.
Fyrst var keppt í riðlum en svo
tók útsláttarkeppni við. Bjami sigr-
aði alla andstæðinga sína í riðla-
keppninni á Ippon og vann fýrstu
glímu sína í útsláttarkeppninni.
Hann tapaði svo næstu eftir að
hafa sótt djarflega. Bjarni glímdi
svo til úrslita um 3. sætið og sigraði.
Halldór sigraði í annarri af tveim-
ur glímum sínum í riðlakeppninni
og komst því áfram. Hann tapaði
svo fyrstu glímu sinni í útsláttar-
keppninni og hafnaði í 8.-16. sæti.
„MÍNIR menn náðu að yfirspila
leikmenn Karlsruhe," sagði
Jupp Heynckes, þjálfari Bayern
Munchen, eftir að að lið hans
haf Ai lagt Karlsruhe að velli,
3:2. Bayem bætti þar með met
HSV frá 1983 — hefur ekki tap-
að nítján deildarleikjum í röð.
Roland Wohlfarth skoraði tvö
mörk fyrir Bayem — sigur-
markið á 75. mínútu - rétt eftir
að leikmenn Karlsmhe höfðu náð
gggggi að jafna, 2:2. Wohl-
FráJóniH. farth og Jurgen
Garöarssyni Wegmann komu
iÞýskaiandi Bayem yfir, en þeir
Wolfgang Trapp, úr
aukaspymu af 25 metra færi, og
Helmut Hermann jöfnuðu fyrir
Karlsmhe, sem lék sinn fjórða leik
á tólf dögum.
Ásgeir Sigurvinsson var tekinn
útaf í hálfleik er Hannover sigraði
Stuttgart, 2:0. Þetta var annað tap
Stuttgart í röð eftir vetrarfríið og
greinilegt að fjarvera Klinsmanns,
sem er meiddur, hefur slæm áhrif
á liðið.
Gladbach færist upp töfluna og
hefur ekki tapað 11 leikjum í röð.
Gladbach sigraði Leverkusen um
helgina, 2:0, með mörkum frá
Hochstatter og Budde.
Norbert Meier tryggði Werder
Bremen sigur, 1:0, á Kaiserslaut-
em.