Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 5
B 5
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
MORGUNBLAÐH)
IÞROTTIR ÞRJÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
FRAKKLAND 1989
■ ÞAÐ urðu fagnaðarfundir í
búningsklefa íslenska liðsins eftir
úrslitaleikinn, er hópur kvenna kom
þar inn. Þetta voru eiginkonur og
unnustur islensku leikmannanna.
Þær fóru út í boði ferðaskrifstof-
unnar Sögu, á sunnudagsmorgun.
■ UNNUSTUR tveggja leik-
manna, línumannanna Þorgils Ótt-
ars Mathiesen og Geirs Sveins-
sonar, komust ekki út. Þær voru
veðurtepptar á Akureyri og kom-
ust ekki til Keflavíkur.
■ KRISTJÁN Arason og Al-
freð Gislason voru kallaðir í lyfja-
próf eftir úrslitaleikinn. Einnig
Tlyszynski bræðurnir, Zbigniew
(númer 7) og Andrzej (númer 9)
úr pólska liðinu.
■ „ VID gerum okkar, gerum
okkar, gerum okkar, gerum okkar
besta ...“ ómaði um ganga Borcy-
hallarinnar, eftir úrslitaleikinn.
Þegar íslensku leikmennimir komu
að búningsklefa sínum hófu þeir
upp raust sína og sungu kröftug-
lega. Fleiri lög vom rifjuð upp, t.d.
„Það er allt að verða vitlaust", sem
þeir sungu inn á hljómplötu fyrir
Ólympíuieikana í Los Angeles
1984.
■ BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari, kemur til íslands í dag
með liðinu. Hann ætlaði beint til
Póllands frá Frakklandi, en
þekktist boð ferðaskrifstofunnár
Samvinnuferða-Landsýnar um að
koma til landsins með liðinu vegna
þessa frábæra árangurs.
■ jyÖLD/heillaóskaskeyta beið
á hóteli íslenska liðsins er það kom
heim eftir úrslitaleikinn. Þau vom
m.a. frá Jóni Baldvin Hannibals-
syni, utanríkisráðherra, íþrótta-
sambandi fatlaðra, Svavari Gests-
syni menntamálaráðherra, Knatt-
spymufélaginu Tý og Helgu
Magnúsdóttur fyrir hönd landsliðs
kvenna í handknattleik.
■ ALFREÐ Gíslason fékk sér-
stakt skeyti frá utanríkisráðherra,
Jóni Baldvin, en þeir em flokks-
bræður. Sagði þar að flokkurinn
væri sérlega stoltur yfír afrekum
Alfreðs. Þess má geta að Alfreð
var í framboði fyrir Alþýðuflokk-
inn á Akureyri fyrir síðustu bæjar-
stjómarkosningar, þó hann væri
búsettur í Vestur-Þýskalandi.
I VALDIMAR Grímsson var
ekki með í úrslitaleiknum gegn
Póllandi. Hann var settur út úr
hópnum þrátt fyrir að hafa leikið
mjög vel í keppninni. Bjarki Sig-
urðsson kom því aftur inn og lék
mjög vel.
■ ÍSLENSKI hópurinn; leik-
menn, þjálfari og forráðamenn liðs-
ins, ásamt eiginkonum, fóm á veit-
ingastaðinn Lido á sunnudags-
kvöldið, til að halda upp á sigurinn.
■ ANDERS Dahl Nielsen,
þjálfari danska landsliðsins, sat
fyrir svömm danskra blaðamanna
á laugardagsmorguninn. Þar ræddi
hann um framtíð dansks handbolta,
og sagði að Danir yrðu að söðla
um og fara að gera meira fyrir leik-
menn en gert er í dag. „Þjóðir eins
og ítalia, Portúgal og Frakkland
eru komnar með atvinnulið. Ef
við gerum ekkert fyrir okkar
leikmenn verða þessar þjóðir
orðnar betri en við eftir stuttan
tíma,“ sagði Anders Dahl. Á fund-
inum minntist Anders Dahl einnig
á íslenskan handknattleik. Sagði
áhugann geysilegan á fslandi, og
ástæðuna fyrir stórauknum áhuga
undanfarinna ára vera eina:
„Ástæðan heitir Jón,“ sagði And-
ers Dahl og átti þar við Jón
Hjaltalín Magnússon, formann
„Uðið hefur
aldrei spilað
betur“
— segir Alfreð Gíslason, sem kjörinn
var besti leikmaður B-keppninnar
Skapti
Hallgrímsson
skrifarfrá
Frakklandi
„LIÐIÐ spilaði frábœrlega í
keppninni. Ég held að það hafi
aldrei spilað betur," sagði Al-
freð Gíslason í samtali við
Morgunblaðið eftir B-keppn-
ina.
Alfreð var einmitt lq'örinn besti
maður keppninnar, og sagðist
vera „sæmilega ánægður“ með
sjálfan sig þegar litið væri á keppn-
ina í heild.
„Ég byijaði illa
gegn frekar lélegum
liðum, Kúvait og
Búlgaríu — átti líka
í vandræðum með öxlina, vegna
meiðslanna. En ég held að ég hafi
spilað vel gegn Rúmenum, Sviss-
lendingum, Vestur-Þjóðveijum og
gvo Pólveijum í dag.“
Eins og áður sagði telur Alfreð
liðið ekki hafa spilað betur áður:
„Ég held að leikir okkar gegn Rúm-
enum, Þjóðverjum og Pólveijum
hafí verið bestu leikir sem þetta hð
hefur spilað. Við unnum alla leikina
nema gegn Rúmenum, og ef dómar-
amir hefðu ekki hjálpað þeim hefð-
um_ við unnið þá líka.“
Áður hefur komið fram í blaðinu
að Alfreð hyggist nú hætta að leika
með landsliðinu. „Ég fór með því
hugarfari í leikinn í dag að þetta
væri minn síðasti leikur. Ég tel að
tímabili okkar Atla Hilmarssonar
sem leikmanna fyrir utan vinstra
megin sé að ljúka. Það er kominn
tími til að Héðinn og Júlíus taki
við.“ Alfreð sagði ennfremur að sér
þætti leiðinlegt að Páll Ólafsson,
Atli og Brynjar Kvaran hefðu ekki
getað tekið þátt í keppninni. „Þeir
eiga þátt í þessum árangri okkar —
voru með i því að byggja þetta
upp,“ sagði hann.
Alfreð sagðist telja þessa B-
keppni ámóta og handknattleiks-
keppni Ólympíuleikanna í Seoul.
„Handboltinn sem hér er spilaður
er ekki verri en í Seoul. Styrkleik-
inn hér sést best á því að Vestur-
Þjóðveijar skuli detta niður í C-
flokk. Við lögðum mikið á okkur
fyrir Ólympíuleikana, en eftir það
voru margir sem beinlínis gerðu
grín að okkur. Mér fínnst því mjög
gaman að við gætum svarað fyrir
okkur hér með þessum hætti. Og
þetta var sérstaklega ánægjulegur
endir fyrir mig. Það var algjör topp-
ur fyrir mig persónulega að enda <
landsliðsferilinn svona.“
Alfreð sagðist ekki vera orðinn
góður af axlarmeiðslunum sem hafa
htjáð hann undanfarið. „Ég vona
að þetta lagist fljótt ef ég get hvílt
mig. Ég veit reyndar ekki hvenær
það á að verða því deildin byijar
strax eftir að við komum heim.“
Alfreð sagði litlu hafa munað að
hann hætti við að taka þátt í úrslita-
leiknum, er hann var að hita upp,
svo kvalinn var hann í öxlinni.
Morgunblaöiö/Sverrir
Alfreð Gfslason og Guðmundur Guðmundsson fagna eftir að sigurinn gegn
Pólveijum var í öruggri höfn.
Island
íöðrum
styrk-
leikafloklci
ÍSLENSKA landsiiði verður í öðrum styrk- ú
leikaflokki þegar dregið verður í riðla f
hei msmeistarakeppninni í Tékkólsóvakfu.í
þeim flokki eru einnig A-Þjóðverjar, Svíar e
og Tékkar, þannig að öruggt er að íslending-
ar verða ekki í riðli með þessum þjóðum.
Ífyrsta styrkleikaflokki eru Sovétríkin, S-Kórea,
Júgóslavía og Ungveijaland. í þriðja flokkberu:
Pólland, Rúmenía, Sviss og Spánn og í fjórða sfyrk-
leikaflokki eru Frakkland, og lið frá Afríku, A.síu
og Ameríku.
Morgunblaöiöi/Sverrir
Þorglls Óttar Mathlesen sést hér skora eitt af mörkum sínum.
Þorgils Ottar
í heimsliðið
ÞORGILS Óttar Mathiesen, fyrirliði landsliðsins, hefur verið val-
inn í heimsúrval sem á að mœta Portúgölum í sumar.
Tilefni þessa leiks er 50 ára afmæli portúgalska handknattleikssam-
bandsins. Leikurinn fer fram í Lissabon 8. júlí í sumar. Fimmtán
lönd munu eiga fulltrúa í heimsúrvalinu og valinn verður einn leikmaður
frá hveiju landi.
Ekki fékkst uppgefið hveijir verða í liðinu með Þorgils Óttari, þar sem
ennþá hefur ekki fengist staðfest svar frá neinum nema Þorgils.
3> &■ A& C'^ÉéML '•
IAMPIONNAT DU MONDE FRANCE 198
íslenska landsllðið sést hér vera komið á verðlaunapallinn í París. Þorgils Óttar Mathiesen tekur á móti sigurlaunum.
GULLIÐí
rhendur
Glæsilegur og sanngjarn sigur íslands á Póllandi
í úrslitaleik B-keppninnar
Morgunblaöiö/Sverrir
ÞAÐ var aldrei spurning hvort
liðið sigraði f úrslitaleik B-
keppninnar. ísland náði góðri
forystu strax í byrjun leiksins.
Pólverjar náðu nokkrum sinn-
um að klóra í bakkann og
minnka muninn, en aldrei að
jafna. Glœsilegur og sanngjarn
sigur íslendinga varð stað-
reynd.
Fyrsti sigur íslands á stórmóti
verður lengi í minnum hafður.
íslenska liðið lék frábærlega vel
alla keppnina, „slæmi leikurinn"
leit aldrei dagsins
ljós og gullið lenti í
réttum höndum. Um
það held ég að allir
hér hafí verið sam-
mála. Málið var einfalt: ísland átti
besta liðið í keppninni, þó af mörg-
um sterkum væri að taka.
Urslitaleikurinn var stór-
skemmtilegur. Stemmningin geysi-
leg í höllinni og bar þar mest á
íslendingum sem fjölmenntu til
Parísar. Leikurinn bauð upp á allt
það besta sem hægt er að sjá í
handknattleik. Stórglæsileg mörk
með þrumuskotum, fallegt línuspil,
stórbrotnar leikfléttur, góða mark-
Skapti
Hallgrímsson
skrífarfrá
Frakklandi
Island-Pólland
29 : 26
B-keppnin I handknattleik, úrslitaieik-
urinn í Bercy-höllinni ( Parls, sunnu-
daginn 26. febrúar 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 2:1, 3:1, 3:2,
5:2, 5:3, 6:3, 6:5, 10:5, 10:6, 11:6,
11:8, 12:8, 12:9, 13:9, 13:12, 15:12,
15:13, 16:13, 16:14, 17:14, 17:15,
21:17,
23:22,
28:24,
19:17,
23:20,
25:24,
21:19,
24:22,
28:25,
22:19,
24:23,
29:26,
19:15,
22:20,
25:23,
29:26.
ísland: Alfreð Gíslason 7, Kristján
Arason 6, Þorgiis Óttar Mathiesen 5,
Bjarki Sigurðsson 4, Sigurður Sveins-
son 4/4, Sigurður Gunnarsson 2, Jakob
Sigurðsson 1, Guðmundur Guðmunds-
son, Geir Sveinsson, Héðinn Gilsson.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 3,
Guðmundur Hrafnkelsson 8.
Utan vallar: 20 mínútur.
Pðlland: Andrzej Mlocznski 8, Zbigni-
ew 6/1, Zbigniew Plechoc 4, Bogdan
Wenta 3, Grzegorz Subocs 3, Adam
Dawidziuk 1, Ryszard Antczak 1.
Varin skot: Wieslaw Goliat 6, Mariusz
Dudek 4/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: 14.000.
Dómarar: Jug og Jeglic frá Júgúslaviu.
vörslu og svo mætti lengi telja.
Bæði lið reyndu hvað þau gátu til
Sigurður Sveinsson
hæltir með landsliðinu
SIGURÐUR Sveinsson segist
ákveðinn í því að hœtta með
landsliðinu nú eftir B-keppnina.
■■ g er búinn að vera með landslið-
i C inu í 12 ár, þetta er orðið ágætt,“
sagði hann eftir úrslitaleikinn gegn
Pólveijum á sunnudaginn.
„Ég verð þrítugur næsta sunnu-
dag, það er ekki nema vika þar til
maður kemst á fertugsaldurinn."
Sigurður var öryggið uppmálað í
vítaköstum í þessari keppni, en það
síðasta nýtti hann ekki, þegar rúm
mínúta var eftir af úrslitaleiknum.
Pólski markvörðurinn varði. „Ég ætl-
aði að snúa boltanum framhjá höfð-
inu á honum, en hann hoppaði upp
og náði boltanum. Það var allt í lagi
að klikka á síðasta vítinu fyrst sigur-
inn var í höfn. Þetta var ágætur
punktur fyrir aftan landsliðsferilinn!“
sagði Sigurður.
að sýna sinn besta leik. Öðru þeirra
tókst það, en hitt mætti ofjarli
sínum að þessu sinni. íslenska vöm-
in hafði betur í baráttu við pólsku
sóknina.
Alfreð Gíslason og Kristján Ara-
son fóru báðir á kostum í úrslita-
leiknum. Skoruðu hvert glæsimark-
ið á fætur öðm með langskotum
og vom mjög áberandi í sóknar-
leiknum. Einnig Þorgils Óttar og
Bjarki, sem kom inn í liðið á ný og
var stórgóður. Einar meiddist og
varð að fara af velli snemma, en
Guðmundur fyllti skarð hans vel.
Varði geysilega vel þegar mest reið
á. Telja mætti upp fleiri, en einfald-
ast er að endurtaka að fyrst og
fremst einstaklega góð liðsheild
skóp sigurinn. Allir léku vel og eiga
heiður skilið fyrir frábæra frammi-
stöðu.
Pólska liðið er geysilega gott.
Leikmenn á borð við Bogdan Wenta
(8), Zbigniew Tluczjmski (7), homa-
manninn Plechoc (6), Subocs (2),
Mlocznski (3) og Dawidziuk (10)
myndu sóma sér vel í nánast hvaða
liði sem erj en á sunnudag mættu
þeir oflörlum sínum; „víkingamir"
frá íslandi sýndu þeim á eftirminni-
legan hátt hvers þeir eru megnugir.
IMuddarinn há-
grét af gleði
Tveir franskir nuddarar vom
með íslenska liðinu meðan á
síðari hluta B-keppninnar stóð, og
samglöddust þeir íslendingum
geysilega eftir sigurinn.
Báðir eru nuddaramir frá Stras-
bourg, þar sem ísland lék í milli-
riðli, en komu síðan einnig til París-
ar. Þetta em nuddarar franska
landsliðsins í fijálsum íþróttum,
kvenmaður og karlmaður: Anne
Bmat og Christian Flech. Anne var
frá sér numin af gleði eftir úrslita-
leikinn - bókstaflega hágrét af
gleði.
Guðmundur Hrafnkelsson
Ég var rosalega stressaður til
að byija með eftir að ég kom inná,
en náði mér svo á strik siðari hlut-
ann. Þá gekk þetta upp hjá mér.
Ég hef aldrei upplifað annað eins
og þetta — maður er varla búinn
að átta sig á þessu ennþá. Það
hlýtur að vera toppurinn á ferlin-
um hjá okkur að vinna þessa
keppni. I dag hafði ég alltaf á
tilfínningunni að við myndum
vinna þennan ieik. Andinn í hópn-
um var frábær fyrir leikinn, það
vom allir ákveðnir í að vinna
þetta.
Gelr Svelnsson
Þetta er toppurinn á ferlinum
hingað til. Það sem hugsanlega
gæti slegið þetta út væri að vinna
úrslitaleik í A-heimsmeistara-
keppni og á Ólympíuleikum. Það
er vart hægt að hugsa sér betri
árangur. Það er engin spuming
um að þetta er besti árangur okk-
ar. Úrslitaleikurinn var alls ekki
erfíðari en hinir. Mannskapurinn
var mjög vel undirbúinn, allir vom
ákveðnir í að gera sitt besta. Það
var slæmt að missa Einar út af,
en Guðmundur fyllti hans skarð
vel. Það sást enn einu sinni í dag,
eins og gegn Vestur-Þýskalandi,
hve breiddin er orðin mikil. Maður
kemur alltaf í manns stað.
Slguröur Gunnarsson
Nú er gaman að lifa! Ég bjóst
ekki við að úrslitaleikurinn yrði
þannig að við hefðum frumkvæðið
allan tímann. Það er enginn vafi
að þetta er toppurinn hjá okkur,
það er erfitt að vinna svona
keppni. Við hugsuðum fyrst og
fremst um að komast í A-keppn-
ina, en að vinna mótið var auðvit-
að frábært. Þijú efstu liðin í B-
keppni síðustu 10 árin hafa verið
'mjög sterk, og segir meira en
margt annað um hve sterk þessi
keppni er, að þrátt fyrir íjóra sigra
vorum við ekki ömggir með A-
sæti, og lfka það að Vestur-Þjóð-
veijar skuli detta niður ( C-riðil.
Þorglls Óttar Mathloson
Ég er nánast orðlaus. Þetta er
toppurinn. Árangurinn gat ekki
orðið betri en þetta og mér fannst
liðið spila eins og það getur best
í þessu móti. Við sýndum okkar
besta. Liðsheildin var sérlega góð
— hún skóp þennan sigur, allir
vom með í þessu. Við náðum góðu
forskoti strax í byijun úrslitaleiks-
ins, og það var það mikilvægasta
í þessum leik að mfnu mati. Þeir
áttu í vandræðum með að ná okk-
ur, vom alltaf að sækja og þreytt-
ust á að reyna að ná okkur.
Jakob Slgurösson
Það er óhætt að segja að þetta
sé frekar ljúft! Maður áttar sig
sennilega ekki á þessu fyrr en
einhvem tíma seinna. Það kom
mér mest á óvart hve okkur gekk
vel að eiga við þá. Byijun okkar
var mjög góð og það hafði mikið
að segja. Við vomm ákveðnir að
njóta augnabliksins, því menn
komast ef til vill ekki í svona úr-
slitaleik nema einu sinni eða tvisv-
ar á ævinni. Ákveðinn taugatitr-
ingur er alltaf til staðar fyrir leiki
en nú var hann í algjöru lág-
marki. Menn vom ákveðnir í að
standa sig, andinn var mjög góð-
ur, og allir staðráðnir í að gera
sitt besta. Ég fann að þeir vom
endanlega brotnir þegar fimm
mínútur vom eftir. Þá var komin
uppgjöf í lið Pólveijanna.
Bjarkl Sigurðsson
Þetta er alveg ótrúlegt, leikur-
inn var rosalega erfíður, en fyrir-
fram voram við virkilega ákveðnir
í að standa okkur. Við vomm
komnir þetta langt í keppninni og
því þýddi ekkert annað en að taka
vel á. Það spiluðu allir í liðinu
eins og þeir gátu, á fullu. Það
furðulegasta við þetta var að ég
var ekki vitund stressaður. Ég
bjóst við að ég yrði það, en reyndi
að hugsa um eitthvað annað og
það heppnaðist. Ég held að ekki
hafi verið hægt að finna veikan
blett á liðinu í undanfömum leikj-
um. Það vom allir ákveðnir í að
vinna þetta og stemmningin í
hópnum hefur verið frábær í þess-
ari ferð.
Hóölnn Gllsson
Þetta er alveg frábærL Það er
meiriháttar að upplifa þetta, en
maður er þó varla búinn að átta
sig á því ennþá að við höfum
unnið. Ég var frekar taugaóstyrk-
ur í úrslitaleiknum og líka gegn
Sviss, og lék ekki sérlega vel í
þeim leikjum. Ég er þó alveg sátt-
ur við mina frammistöðu í keppn-
inni. Ég var ekkert stressaður
fyrir þennan leik. Þetta var aldrei
spuming, ég var aldrei hræddur
um að þetta væri í hættu. Mér
fannst vanta einhvern neista í
Pólveijana til að þeir ættu mögu-
leika á sigri. Þeim hefur gengið
vel í keppninni fram að þessu og
hafa ef til vill verið of sigurvissir.
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN í FRAKKLANDI
HSI.
*■