Morgunblaðið - 28.02.1989, Síða 7
Ö 7
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞRTOJUDÁGUR 28. FEBRÚAR 1989
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Dantley bytjaður með Dallas
Boston Celtic átti ekkert svar við pressuvörn New York Knicks
„Magic" Johnson hér kominn í
gildru hjá Charles Oakley og Trent
Tucker hjá New York. Leikmenn Bost-
on voru oft í þessari aðstöðu á sunnu-
dag.
KARFA
Landið
sigraði
Suðumesja-
úrvalið
Valur Ingimundarson
LIÐ Landsins sigraði Suður-
nesjaúrvalið 90:87 í stjörnu-
leiknum sem fram fór f Keflavík
á sunnudagskvöldið. Valur
Ingimundarson leikmaður
Tindastóls sem lók með liði
Landsins varvalinn besti leik-
maður leiksins og hlaut hann
að launum farseðil til útlanda
með Flugleiðum. Þá sigraði
Valur í 3ja stiga skotkeppnjnni
og ítroðslukeppninni sigraði
Teitur Örlygsson UMFN.
Lengi vel leit út fyrir að Suður-
nesjaúrvalið færi með sigur af
hólmi, í hálfleik var staðan 53:45
fyrir heimamenn sem síðan náðu
14 stiga forskoti
Bjöm 67:53. En þá fór allt
Blöndal í baklás, lið Lands-
skrífar ins náði að skora 35
stig gegn aðeins 6
stigum Suðumesjamanna og breytti
stöðunni í 75:88. Undir lok leiksins
reyndu heimamenn allt hvað þeir
gátu til að jafna metin og það hafði
þeim næstum tekist, en 3ja stiga
skot Guðjóns Skúlasonar á síðustu
sekúndunum geigaði.
Leikur liðanna var oft hin ágæt-
asta skemmtun og oft mátti sjá góð
tilþrif. Valur Ingimundarson var
besti leikmaður Landsins og maður-
inn á bak við sigur liðsins, en hjá
Suðumesjaúrvalinu var Jón Kr.
Gíslason bestur.
Stíg Suðurnesjaúrvalsins: Jón Kr. Gíslason
23, Sigurður Ingimundarson 19, Jón Páll
Haraidsson 9, Teitur Örlygsson 8, Guðjón
Skúlason 8, Helgi Rafnsson 6, Hreiðar Hreið-
arsson 6, Guðmundur Bragason 4 og Steinþór
Helgason 4.
Stíg Landsins: Valur Ingimundarson 26, Jó-
hannes Kristbjörnsson 15, Matthfas Matthfas-
son 11, Sturla Örlygsson 10, Eyjólfur Sverris-
son 9, Birgir Mikaelsson 9, Guðni Guðnason
7 og Ivar Asgrfmsson 2.
ADRIAN DANTLEY og Mark
Aguirre eru nú báöir farnir að
spila með liðum sfnum eftir
skiptin í síðustu viku. Báðir
áttu þeir í erf iðleikum í fyrstu
leikjum sínum, en á laugardag
sýndu þeir stórleiki með nýju
liðunum. Detroit átti ekki f
erfiðieikum með New Jersey
og var Mark Aguirre stiga-
hœstur í leiknum með 31 stig.
Dantley gerði enn betur með
Dallas. Hann skoraði 32 stig í
sigri yfir Washington.
Dantley, sem lét Dallas-liðið
bíða eftir sér í þijá daga, sagði
við komuna til Dallas að hann hefði
viljað fá tryggingu frá Dallas að
hann yrði ekki seld-
Gunnar ur frá félaginu. Þá
Valgeirsson tryggingu fékk
skrífar hann á föstudag og
kappinn steig beint
um borð í næstu flugvél og mætti
eldrhress á æfingu.
Sacramento Kings var stórtækt
í skiptum í síðustu viku. Skiptin
virðast við fyrstu sýn ætla að feoma
vel út fyrir liðið. Kings vann góðan
sigur í Seattle á laugardag, en þar
er gjaman erfitt að vinna leik. Indi-
ana, sem einnig skipti um marga
leikmenn, vann ömggan sigur yfír
sorglegu liði San Antonio Spurs á
föstudag. Spurs hefur nú tapað tíu
leikjum í röð. Skipti Indiana í
síðustu viku virðast einnig hafa
komið vel út fyrir liðið og vann það
báða leiki sína um helgina.
Þjóðveijinn Detlef Schrempf hjá
Dallas var skipt til Indiana á
fímmtudag fyrir Herb Williams.
Schrempf hefur átt erfitt uppdrátt-
ar í vetur hjá Dallas eftir uppskurð
sem hann gekkst undir á fæti.
Sam Bowie hefur nú hafíð leik
að nýju með Portland. Bowie er
mjög góður miðvörður sem átt hef-
ur við þrálát meiðsl að stríða undan-
farin þijú ár. Nái hann sér á strik
aftur getur hann hjálpað liði sínu
mikið það sem eftir er tímabilsins.
Bowie skoraði 19 stig í sínum fyrsta
leik sl. miðvikudag.
Stórleikur helgarinnar í deildinni
var viðureign New York Knicks og
Boston Celtics í New York. Það er
skemmst frá að segja að Boston
átti aldrei möguleika í leiknum.
Yfirburðir Knicks voru miklir og
átti Geltics-liðið ekkert svar við
pressuvöm heimaliðsins. New York
náði 20 stiga forystu í hálfleik,
69:49, og átti liðið í litlum erfíðleik-
um að innbyrða sigur, 122:110.
Mark Jackson (28 stig og 11 stoð-
sendingar) og Pat Ewing (26 stig,
13 fráköst og 7 varin skot) áttu enn
einn stórleikinn með Knicks.
■ Úrsllt/B6
■ Staðan/B6
TOYOTA RAFMAGNS LYFTARAR:
Láttu tölumar tala
og veldu Toyota!
48v
Rafgeymir er 48v og 560 - 800 AH
sem tryggir langan vinnslutíma á
milli hleðslu.
Allir TOYOTA lyftararnir eru
fáanlegir með lyftihæð frá 3-
6 metrum. TOYOTA lyftarar
með lyftihæð yfir 4 metrum
eru með þrískipt mastur til
þess að draga úr hæð á
mastri samandregnu.
tonn
TOYOTA framleiðir raf-
magnslyftara með burðar-
getu frá 1/2 tonni til 4 tonn.
Sérstök áhersla er þó lögð á
sérhæfða framleiðslu á lyft-
urum með burðargetu 1-3
tonn, og þar eru TOYOTA
lyftarar öðrum fremri. Enda
ekki við öðru að búast frá
heimsins stærsta lyftara-
framleiðanda.
NÝBÝIAVEGI8-200KÖPAVOGI SÍMI: 91-44144.
TOYOTA
LYFTARAR