Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 8
ÍÞROmR
íÞféim
FOLK
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN í ALPAGREINUM
Girardelli hefur nú hlotið sam-
tals 363 stig í heimsbikam-
um og getur enginn náð honum
að stigum þegar aðeins fjórar
greinar eru eftir. Pirmin Zúr-
briggen kemur næstur með 257
stig og Markus Wasmeier, V-
Mare Qirardalll frá Luxemborg tryggði sér sigur í heimsbikamum saman- Þýska|andi er þriðji með 154 stig
lagt með sigri í risastórsvigi á sunnudag.
Girardelli vann
heimsbikarinn
Þrenna hjá Gunde Svan
Finnska stúlkan Mario Matikainen hlautfimm verðlaun á mótinu
Wolf slgraðl
Konumar kepptu í risastórsvigi
í Steamboat Springs í Banda-
ríkjunum og þar sigraði Sigrid
Wolf frá Vestur-Þýskalandi. An-
ita Wachter frá Austurríki varð
önnur og Michela Figini, sem
tryggði sér heimsbikarinn í bruni
kvenna er hún sigraði í síðustu
brunkeppni á föstudag, varð
þriðrja.
Vreni Schneider frá Sviss, sem
keppti ekki í risastórsviginu, hefur
enn forystu í kvennakeppninni
með 286 stig þegar fjórum grein-
um er ólokið í Japan. Figini hefur
hlotið 239 stig og Maria Walliser
er þriðja með 224 stig.
SÆNSKI skíðagöngukappinn,
Gunde Svan, vann þriðju gull-
verðlaun sín á heímsmeistara-
mótinu f norrœnum greinum í
Lahti í Finnlandi er hann sigr-
aði örugglega í 50 km göngu
karla á sunnudag. Hann hafði
áður unnið 15 km göngu með
frjálsri aðferð og boðgöngu.
Gunde Svan, sem er sérfræðing-
ur í skautatakinu svokallaða,
hafði mikla yfirburði í 50 km
göngunni og virtist afslappaður er
hann kom fyrstur í mark á 2:
15.24,9 klukkustundum. Landi
hans, Torgny Mogren, varð annar
á 2:16.09,2 klukkst. og ólympíu-
meistarinn sovéski í 30 km göngu,
Alexei Prokurorov, þriðji á 2:
16.18,8 klukkustundum.
Svan var eini keppandinn sem
vann þrenn gullverðlaun á heims-
meistaramótinu sem stóð yfir í 10
daga. Hann er ókrýndur konungur
göngumanna og hefur nú unnið til
tíu gullverðlauna á ólympíuleikun-
um og heimsmeistaramóti, fem á
ÓL og sex á HM.
Sænski gulldrengurinn hafði náð
mínútu forskoti á næsta mann er
gangan var hálfnuð og var sigurinn
aldrei í hættu eftir það. Mogren,
sem var í 5. sæti eftir 25 km, náði
sér vel upp í restina og vann sig
upp í annað sæti.
Welssflog slgraðl í stökki
Jens Weissflog frá A-Þýskalandi
þurfti ekki einu sinni að setja á sig
skíðin er hann varð úrskurðaður
sigurvegari í stökki af 70 metra
palli á sunnudaginn. Stökkkeppnin
átti að fara ffarn á föstudag, en
var frestað vegna veðurs. Á laugar-
dag tókst stökkvurunum einungis
að fara fyrri umferðina vegna veð-
urs. Síðari umferðin átti að fara
fram á sunnudag en slæmt veður
kom í veg fyrir það og því var fyrri
umferðin látin gilda.
Weissflog stökk 89 m og hlaut
114,3 stig, Ari Pekka Nikkola frá
Finnlandi varð annar, stökk 87,5
metra og hlaut 110,5 stig, og Heinz
Kuttin frá Austurríki varð þriðjí,
stökk 87,5 m og hlaut 108,5 stig.
Ólympíumeistarinn, Matti Nykanen
frá Finnlandi, varð í flórða sæti,
stökk 85,5 metra og hlaut 107,5
stig.
Matlkalnon hlaut flest
verðlaun í Lahtl
Finnska stúlkan Maijo Matikain-
en varð fyrst kvenna til að vinna
til fímm verðlauna á sama heims-
meistaramóti á laugardaginn.
Henni tókst þó ekki að næla sér í
gullverðlaunin í 30 km göngu
kvenna - sem er sú lengsta sem
fram hefur farið i kvennaflokki á
stórmóti - heldur fékk hún bronsið.
Það var Elena Vialbe frá Sovétríkj-
unum sem vann önnur gullverðlaun
sín á mótinu og landi hennar, Lar-
isa Lazutina, varð önnur.
Flnnar bestir
Finnar hlutu flest verðlaun á
mótinu, sex gull, fimm silfur og
fem bronsverðlaun. Sovétmenn
komu næstir með þrenn gull, þrenn
silfur og tvenn bronsverðlaun. Svíar
urðu í þriðja sæti með þrenn gull,
tvenn silfur og tvenn bronsverð-
laun.
MARC Girardelli frá Luxem-
borg sigraði í síðasta risa-
stórsvigi heimsbikarsins á
þessum vetri sem fram fór í
Whistler Mountain í Kanada
á sunnudaginn og tryggði sór
jafnframt sigur í heimsbikarn-
um, samanlagt. Svflnn ungi,
Lars Börje Eriksson, varð
annar og Primin Ztirbriggen,
Sviss, þriðji og vann þar með
heimsbikarinn í risastórsvigi,
annað árið í röð.
Reuter
Gulldrengurinn
Gunde Svan hafði mikla yfirburði í 50 km göngu karla á sunnudag. Hann
vann þar þriðju gullverðlaun sín á mótinu og er ókrýndur kónungur göngumanna.
SKÍÐI / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í NORRÆNUM GREINUM í LAHTI
■ GUNNAR Oddsson, sem leik-
ur með vestur-þýska utandeildalið-
inu Siegen, var tekinn útaf á 59.
mínútu er liðið tapaði fyrir Biele-
feld, 0:1. Siegen er enn í neðsta
I ÞORVALDUR Örlygsson,
sem leikur með Paderbom-Neu-
haus í sömu deild og Gunnar, var
skipt inná á 73. mínútu er liðið sigr-
aði andstæðing sinn, 4:2. Pader-
bom er í þriðja neðsta sæti deildar-
innar.
■ ODDNY Árnadóttír sigraði í
200 og 400 metra hlaupi á innan-
hússmóti í fijálsíþróttum 1 Dtissel-
dorf á laugardaginn. Hún hljóp 200
m á 25,10 sek. og er það besti
árangur hennar og rétt við íslands-
met Svanhildar Kristjónsdóttur,
24,97 sek. Oddný hljóp 400 m á
56,9 sek sem er jafnt hennar besta
árangri. Gunnar Guðmundsson,
ÚÍA, varð annar í 200 m hlaupi í
DUssldorf á laugardag, hljóp á
22,62 sek. (ísl.m. 22,47). Hann var
einnig annar í 400 m hlaupi í Dort-
mund á sunnudag, hljóp á 49,6
sek. og er það besti árangur hans.
Steinn Jóhannsson keppti í 1.500
m hlaupi á laugardag og varð í
fyrsta sæti á 4:06,79 mín. Á sunnu-
dag keppti hann í 1.000 m hlaupi
í Dortmund og varð þriðji á 2:30,9
mín.
H CARL Lewis, Ólympíumeist-
ari í 100 metra hlaupi, varð að láta
í minni pokann fyrir lítt þekktum
hlaupara, Ricardo Chacon frá
Kúbu, í 60 metra hlaupi á innan-
hússmóti í Oviedo á Spáni á sunnu-
daginn. Lewis hljóp á 6,64 sek.,
en Chacon kom fyrstur í mark á
6,57 sek. „Fyrir íþróttamann eins
og mig er stórkostlegt að sigra fljót-
asta mann heims,“ sagði hinn 26
ára gamli sigurvegari. Said Aouita
frá Marókó sigraði í 1.500 metra
hlaupi á sama móti. Hann hljóp á
3:39.70 mín. og var tæplega tveim-
ur mínútum á undan Fermin
Cacho frá Spáni, sem varð annar.
■ COLIN Jackson frá Bret-
landi setti nýtt Evrópumet í 60
metra grindahlaupi innanhúss á
fijálsíþróttamóti í Sindelfingen í
Vestur-Þýskalandi á sunnudag.
Jackson hljóp á 7,41 sek og bætti
sólarhrings gamalt met Igors Kaz-
anov frá Sovétríkjunum um 0,1
sekúndu. Það er aðeins Banda-
ríkjamaðurinn Greg Foster sem
hefur hlaupið hraðar en Jackson
en hann-hljóp á 7,38 sek. á móti í
Los Angeles fyrir tveimur árum.
Bandaríkmennirnir, Steve Lewis
og Joe Deloach voru nálægt heims-
metatímunum í 400 og 200 metra
hlaupi á sama móti. Lewis hljóp
400 m á 45,86 sek og Deloach 200
m á 20,60 sek.
■ FLORENCE GrifBth Joyn-
er, þrefaldur ólympíumeistari í
frjálsum íþróttum, hefur lagt
hlaupskóna á hilluna og ætlar að
snúa sér að öðru. Þetta tilkynnti
hún í sjónvarpsviðtali í Bretlandi
á laugardag. „Ég hef nú þegar
hlaupið mitt síðasta hlaup,“ sagði
Griffith Joyner, sem er 29 ára og
sigraði í 100, 200 og 4x100 metra
hlaupi á Óiympíuleikunum í
Seoul.
■ NOTTINGHAM Forest leik-
ur til úrslita í enska deildarbikarn-
um við annað hvort West Ham eða
Luton. Forest sigraði 3. deildarlið-
ið Bristol City, 1:0, í síðari leik
liðanna eftir framlengdan leik á
sunnudag og vann því samalagt
2:1. Það var fyrliðinn Stuart Pe-
arce sem tryggði sigurinn á elleftu
stundu.
GETRAUNIR: 211 121 12 1 X X 1 LOTTÓ: 7 10 14 25 36 + 31