Morgunblaðið - 18.04.1989, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
Landslidið til
Hollands?
Leikur gegn Groningen í boði
Stjóm KSÍ vinnur nú að því að koma á vináttu-
leik milli íslenska landsliðsins í knattspymu
og hollenska liðsins Groningen. KSÍ hefur leitað
að verkefnum fyrir landsliðið og fékk um helgina
boð frá Groningen um að leika ytra þann 24. apríl.
„Það hefur ekkert verið ákveðið ennþá en báðir
aðilar hafa áhuga á því að leika þennan leik,“
sagði Ellert B. Schram, formaður KSÍ. „Við eigum
enn eftir að komast að samkomulagi um ýmis-
legt, þar á meðal kostnað. Það má búast við því
að þessi ferð, ef af henni verður, muni kosta okk-
ur hátt í milíjón," sagði Ellert.
1989
ÞRUUUDAGUR 18. APRIL
BLAÐ
-B
KORFUBOLTI
Guömundur Bragason.
Landslið-
id sigraði
Csepel
örugglega
jr
Islenska landsliðið í körfu-
knattleik sigraði ungverska
liðið Csepel í gær í vináttuleik
i Njarðvík, 110:82. Csepel er
sterkasta lið Ungverjalands en
átti ekkert svar við mjög góðum
leik islenska liðsins.
Þess má geta að Laszlo Ne-
meth, landsliðsþjálfari íslands,
þjálfaði lið Csepel fyrir nokkrum
ámm.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 32,
Tcitur Örlygsson 20, Valur Ingimund-
arson 17, Guðni Guðnason 12, J6n Kr.
Gíslason 9, Magnús Guðfinnsson 6,
Falur Harðarson 4, Tómas Holton 4,
Guðjón Skúlason 4 og Axel Nikulásson
2.
Liðin mætast að nýju á morg-
un í Laugardalshöllinni.
HANDKNATTLEIKUR
Slavko Bambir tekur við
stjóm Víkingsliðsins
JÚGÓSLAVINN Dr. Slavko
Bambir var í gærkvöldi ráðinn
þjálfari Víkingsliðsins í hand-
knattleik. Hann skrifaði undir
tveggja ára samning eftir að
hafa verið á fundi með leik-
mönnum Víkings. „Bambir er
þjálfari í f remstu röð og bind-
um við miklar vonir við starf
hans hjá Víking,“ sagði Hallur
Hallsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Víkings í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Bambir hefur þjálfað kvenna-
landslið íslands undanfarið ár.
Hann mun þjálfa meistaraflokk og
2. flokk karla og hafa umsjón með
þjálfun yngri flokka Víkings. Bam-
Slavko Bambir ásamt Halli Hallssyni,
Víkings, t.v., á fundi í gærkvöldi.
Morgunblaðiö/Sverrir
formanni handknattleiksdeildar
bir byrjar að þjálfa hjá Víkingi 1.
maí og mun þjálfa meistaraflokkinn
fram í júní. Þá verður tekið sum-
arfrí, en síðan byijar Bambir að
þjálfa af fullum krafti 1. ágúst.
Bambir er fyrrum leikmaður með
Zagreb og þá lék hann með lands-
liði Júgóslaviu. Hann þjálfaði
kvennalið Zagreb 1980-1983 og og
varð liðið Evrópumeistari undir
hans stjóm. Bambir þjálfaði síðan
við karlaliði Zagreb 1983-1986 og
þjálfaði liðið þegar það lék gegn
KR í Evrópukeppninni um árið.
Þess má geta að Bambir var
boðið að taka við landsliði Júgó-
slavíu fýrir stuttu, en hann hafnaöi
því boði.
Spænsk og frönsk félög
vilja fá Alfreð Gíslason
„EG reikna ekki með að taka
tilboði Essen og leika með lið-
inu næsta keppnistímabil,"
sagði Alfreð Gíslason, lands-
liðsmaður í handknattleik úr
KR, þegar hann var spurður út
í frétt sem var í Kickerí gær,
en blaðið segir að Alfreð gefi
Essen ákveðið svar í dag.
Það em önnur lið inn í mynd-
inni og þá er ekki 100% ákveð-
ið að ég fari aftur út til að leika
handknattleik," sagði Alfreð.
Frönsk og spænsk félög hafa haft
samband við Alfreð að undanfömu.
„Ég get ekki sagt hvaða félög þetta
em, þar sem enginn fastur flötur
er kominn á viðræðurnar," sagði
Alfreð Gíslason.
Kicker sagði frá því að danski
landsliðsmaðurinn Erik-Veje Ras-
mussen myndi ekki leika áfram með
Essen, en hann tók stöðu Alfreðs
hjá félaginu. Þá var sagt frá því
að Essen væri búið að kaupa hægri-
handarskyttuna Frank Arens frá
Bayer Leverkusen. Arens er 1.96 m
á hæð.
KNATTSPYRNA
Knattspyrnumenn úr FH á ferð og flugi:
Mæta úrvalsdeildarlid-
inu Haarlem í Hollandi
FH-INGAR fara til Hollands á
morgun í boði úrvalsdeildarfé-
lagsins Haarlem, leika vináttu-
leik gegn því síðdegis og koma
síðan aftur til landsins á
fimmtudag.
að er óhætt að segja að FH-
ingar séu á ferð og flugi þessa
dagana, því þeir em nýkomnir úr
æfinga- og keppnisferð til mið-
Ameríku.
Landslið íslands lék æfingaleik
gegn Haarlem í fyrravor, og lyktaði
þeim leik með jafntefli, 1:1. Haarl-
em er nú í 9. sæti hollensku úrvals-
deildarinnar. „Mikil og góð sam-
skipti hafa verið á milli hollenskra
félaga og íþróttadeildar Samvinnu-
ferða/Landsýnar,“ sagði Þórir
Jónsson, formaður knattspyrnu-
deildar FH og starfsmaður SL, en
það fyrirtæki sá einmitt um að
koma á fyrrnefndum leik Haarlem
og landsliðsins í fyrra. „Síðan hafa
verið ágæt samskipti okkar á milli,
og þeir buðu okkur nú að koma og
spila," sagði Þórir.
Alfreð Gíslason.
HANDBOLTI
Modrow-
ski hættir
hjáVal
ívor
Þorbimi Jenssyni
boðið að þjálfa
liðið næsta vetur
PÓLVERJINN Stanislav
Modrowski, sem verið hefur
þjálfari 1. deildarliðs Vals
síðustu tvö ár, mun ekki
þjálfa liðið næsta vetur.
Samingur þjálfarans við Val
rennur út í lok þessa keppn-
istímabils. Valsmenn hafa farið
þess á leit við Þorbjöm Jensson
að hann taki við liðinu og við-
ræður þar að lútandi eru í gangi.
Modrowski tók við liði Vals
haustið 1987. Fyrra árið sigruðu
Valsmenn tvöfalt, í deildar- og
bikarkeppninni. Valsmenn urðu
einnig Islandsmeistarar í vetur
og eru komnir í undanúrslit bik-
arkeppninnar.