Morgunblaðið - 18.04.1989, Side 2
2 B
I11 8 t * M * v'FI * Fí
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 18. APRÍL 1989
LYFTINGAR / NORÐURLANDAMÓT
Sex íslendingar á verðlaunapallinn
„MÓTIÐ hér á Akureyri er
besta Norðurlandamót sem
ég hef starfað við,“ sagði
Jörgen Moritzen, formaður
lyftingasambands Norður-
landa, eftir NM í ólympískum
lyftingum, sem fór fram á
Akureyri.
w
Eg er mjög- ánægður með
framkvæmd mótsins. Það
Haraldur Ólafsson fjórði stigahæstur
eina sem skyggði á mótið var son var ekki langt frá því að
hvað fáir áhorfendur komu,“ næla sér í gullverðlaun. Hann
■■■■■■ sagði Birgir Borg- hafði ekki heppnina með sér í
Reynir þórsson, formaður síðustu jafnhöttun sinni. Guð-
Eiríksson Lyftingasambands mundur fékk silfur. Það fengu
skrífar íslands. 34 kepp- einnig þeir Haraldur Ólafsson og
endur tóku þátt í Agnar Jónsson. Snorri Arnalds-
mótinu. son, Tryggvi Heimisson og Guð-
Sjö íslendingar tóku þátt í mundur Sigurðsson fengu brons.
mótinu og komust sex þeirra á Svíar fengu flest stig, eða 102.
verðlaunapall. Guðmundur Helga- Norðumenn fengu 82, Islendingar
57, Danir 35 og Finnar 24.. Ja-
arli Pirkkio frá Finnlandi varð
stigahæstur með 393,533 stig, en
Haraldur Ólafsson varð fjórði
stigahæsti keppandinn með
359.252.
■ Úrslit/B6
SKÍÐI / ALÞJÓÐLEGT SKÍÐAMÓT Á ÍSLANDI
„Kem aftur næsta
vetur til ad
vevja titilinn“
- sagði Sverre Melby frá Noregi sem vann Flugleiðabikarinn
íHémR
FOLX
■ ÞORVALDUR Orlygsson
skoraði eitt mark fyrir Paterborn,
þegar félagið vann Verl í West-
falen-áhugamannadeildinni í V-
Þýskalandi. Félag-
ið, sem var í næst
neðsta sæti, færðist
upp um tvö sæti við
sigurinn.
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
■ SAMPDORÍA á Ítalíu er til-
búið að borga Kaiserslautem níu
millj. ísl. kr. fyrir v-þýska landsliðs-
manninn Wolfram Wuttke.
■ JÚRGEN Hartmann hefur
framlengt samning sínum við
Stuttgart um tvö ár.
M ESSEN Ieikur til úrslita í
Evrópukeppni bikarhafa gegn
franska félagið Créteil. Erik-Veje
Rasmussen átti stórleik þegar Ess-
en vann Bidasoa fá Spáni, 29:22,
um helgina. Hann skoraði 9/2
mörk. Stefan Hecker, markvörður
Essen, hélt upp á þrjátíu ára af-
mælisdag sinn með því að veija
17/2 skot í leiknum.
■ TÉKKNESKI markvörðurinn
Barda varði mjög vel þegar
Diisseldorf vann Caja Madrid,
24:17, í IHF-keppninni.
SVERRE Melby frá Noregi varð
stigahæstur í mótröð Skíða-
sambands íslands sem lauk í
Bláfjöllum á laugardaginn og
vann Flugleiðabikarinn 1989.
Hann hlaut samtals 105 stig
úr FIS mótunum sex. Valdimar
Valdimarsson, Akureyri, varð
annar með 98 stig og Michael
Lichtenegger frá Austurríki
þriðjimeð71 stig.
Síðast mótið fór fram í Bláfjöll-
um á laugardag og var keppt
í svigi. Þar sigraði Valdimar Valdi-
marsson, Akureyri. En hann sigraði
■■■■■■ einnig í fyrsta svig-
ValurB. mótinu á Akureyri
Jónatansson 0g kemur árangur
skrífar hans nokkuð á
óvart. „Ég er mjög
ánægður með þessi mót. Þetta
framtak Skíðasambandsins hefur
heppnast frábærlega og verður að
vera framhald á. Ég hugsaði nú
ekki mikið um fyrsta sætið í sviginu
á laugardaginn, heldur að komast
klakklaust í mark því ég vissi að
ég átti möguleika á að vinna bikar-
inn,“ sagði Valdimar sem varð að
láta sér lynda annað sætið í keppn-
inni samanlagt.
Norðmaðurinn, Sverre Melby,
varð annar á laugardaginn og
nægði það honum til að vinna Flug-
Ieiðabikarinn. „Þetta hefur verð
mjög skemmtilegt mót. Ég er
ákveðinn í að koma hingað aftur
næsta vetur til að veija •titilinn,"
sagði Melby. Hann er 20 ára og
keppir fyrir skíðafélga í Osló. Hann
er einn af fimm bestu svigmönnum
Norðmanna.
Örnólfur Valdimarsson,
Reykjavík, sigraði í sviginu í Blá-
fjöllum á föstudaginn og varð þriðji
á laugardaginn, en þá hafði hann
besta tímann eftir fyrri umferð.
Hann hlaut samtals 64 stig og varð
Ijórði samanlagt. Daníel Hilmars-
son, Dalvík, varð fimmti hlaut sama
stigafjölda og Örnólfur.
Motið tókst mjög vel í alla staði
og voru allir erlendu keppendumir
á einu máli um að framkvædin
hafi verið íslendingum til fyrir-
myndar. Alls voru 24 erlendir kepp-
„Mótið á eftir að
verða mun sterk-
ara í framtíðinni“
- Herwig Demschar, þjálfari og
fararstjóri Austurríkismanna
Mótið tókst í alla staði mjög
r r vel og það var gaman að
sja hversu hart mótshaldarar lögðu
sig fram. Ég hef trú á því að mó-
tið eigi eftir að verða mun sterkara
í framtíðinni, en þetta tekur allt
sinn tíma,“ sagði Herwig Demsc-
har, þjáflari og fararstjóri aust-
urrísku keppendanna.
Demschar, sem hefur starfað hjá
austurríska skíðasambandinu í þijú
ár, kom ekki einungis vegna þessa
móts, heldur einnig til að kanna
aðstæður til æfinga fyrir aust-
urríska landsliðið sem er eitt það
sterkasta í heiminum í dag. „Að-
stæður hér hafa komið mér
skemmtilega á óvart. Snjórinn er
góður og brekkumar eins og best
verður á kosið fyrir svig í Bláfjöllum
og svig, stórsvig og risasvig á Akur-
eyri.“
Hann mun gefa austurrís'ka sam-
bandinu skýrslu um heimsókn sína
til íslands. „Ég reikna með að við
sendum hingað mann í sumar til
að kynna sér aðstæður í Kerlinga-
fjöllum. Ef honum líst vel á þær
má búast við að við reynum að
senda hingað austurríska A-Iands-
liðið í haust til æfinga. Undanfarin
ár hefur snjóleysi háð skíðamönnum
í mið-Evrópu og því tilvalið tæki-
færi að kanna aðstæður hér betur.
Við höfum þurft að fara alla leið
til Ástralíu til æfinga á haustin en
því ekki að koma til íslánds.“
endur sem tóku þátt í mótinu auk
íslendinganna sem vom 32.
■ Úrslit/ B6
Morgunblaðið/Þorkell
Valdimar Valdimarsson frá Ak-
ureyri (til vinstri) og Örnólfur Valdi-
marsson, Reykjavík.
Morgunblaðið/Þorkel!
Sverre Melby frá Noregi hampar hér Flugleiðabikarnum.
■ LEMOG vann þýðingarmikinn
sigur, 20:18, yfir Göppingen í
Bundesligunni. Fallbaráttan er hörð
þar. Hofweier er gott sem fallið,
með 15 stig. Lemgo, Göppingen
og Leutershausen em með 18 stig
og Milbertshorfen 19 stig.
■ CELTIC gerði þijú mörk á
fyrstu 28 mínútunum í bikarleikn-
um gegn Hibernian í undanúrslit-
um á sunnudaginn. Celtic, sem er
núverandi bikarmeistari, fékk sann-
kallað óskastart. Mörkin þijú gerðu
Mick McCarthy, Mark McGhee
og Andy Walker, en Steve Arc-
hibald minnkaði muninn fyrir Ed-
inborgarliðið í síðari hálfleik.
■ CHRIS Morris, varnarleik-
maður Celtic, leikur ekki meðírum
gegn Skotum í heimsmeistara-
keppninni í Dublin 26. apríl. Lands-
liðshópur írlands er skipaður þess-
um leikmönnum: Pat Bonner og
Gerry Peyton, markverðir og varn-
arleikmennirnir Chris Hughton,
Mick McCarthy, Kevin Moran,
Steve Staunton, Paul McGrath
og David O’Leary. Miðvallarspilar-
ar eru: Ronnie Whelan, Ray Ho-
ughton, Kevin Sheedy, Andy
Townsend, Liam Brady og sókn-
arleikmenn eru: Niall Quinn, Tony
Cascarino, Frank Stapleton,
Tony Galvin og John Aldridge
■ ÍSLANDSMÓTIÐ í pútti
verður haldið í Brodaway sunnu-
daginn 23. apríl. Keppni hefst kl.
18 og um kl. 21 mun landsliðs-
þjálfarinn í golfi, John Garner,
halda púttsýningu.
Valdimar bestur íslendinganna
VALDIMAR Valdimarsson frá Akureyri var
sá íslendingur sem stóð sig best á FIS
mótunum. Hann sigraði tvívegis í svigi og
varð einu sinni annar.
Valdimar sagði að árangurinn hafi ekki komið
sér svo mjög á óvart. „Ég æfði vel s.l. sumar
og kom því vel undirbúinn til leiks. Veðrið setti
þó strik í reikninginn framan af vetri, en ég hef
verið að finna mig vel upp á síðkastið,“ sagði
Valdimar.
„Ég bryjaði níu ára að æfa og hef alltaf æft á
Akureyri fyrir utan einn vetur á ísafirði. Ég hef
náð að bæta mig verulega á þessum mótum frá
því sem ég átti áður, hef nú 64 stig í svigi og 82
í stórsvigi."
Valdimar segist stefna að því að bæta sig enn
og komast á ólympíuleika eða heimsmeistaramót.
„Þetta er bara rétt að byija hjá mér og er bjart-
sýnn á framtíðina.“
En er skíðaíþróttin á uppleið hér á landi? „Já,
ég held það. Það eru að koma upp mjög sterkir
árgangar og það eru fleiri sem æfa en áður. Ef
rétt verður haldið á málunum hjá Skíðasambandinu
þá held ég að betri árangur eigi eftir að skila sér
í framtíðinni."
Valdimar, sem sigraði í bikarkeppni SKÍ, vildi
taka það fram að þjálfari sinn, Júgóslavinn Florian
Jacodek, ætti stóran þátt velgengni sinni. Eins
væru vinnuveitendur hans mjög velviljaðir í hans
garð, en hann starfar hjá Kjarnafæði á Akureyri.