Morgunblaðið - 18.04.1989, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 18. APRÍL 1989
B 3
KORFUKNATTLEIKUR / ARSÞING KKI
Útlending
ar leyfdir
Leikjum fjölgað í úrslitakeppninni
KORFUKNATTLEIKUR
Jóhannes og
Ástþór til liðs
við IMjarðvík
„Eina félagið sem kemurtil greina,"
segirJóhannes Kristbiömsson
Á ÁRSÞINGI KKÍ sem haldið
var um helgina var ákveðið að
leyfa erlenda leikmenn í ís-
landsmótinu í körfuknattleik
eftir sex ára hlé. Tillaga þess
efnis var samþykkt með mikl-
um meirhluta atkvæða en að-
eins fjórir fulltrúar af rúmlega
50 voru henni mótfallnir.
Erlendir leikmenn eru því lögleg-
ir með íslenskum liðum næsta
vetur, en geta ekki skipt um félag
á meðan á keppnistímabilinu stend-
ur. Að því loknu er þeim heimilt
að skipta um félag, svo framarlega
að félagið sem þeir voru hjá sé því
samþykkt. Ef liðið er því mótfallið
er leikmaðurinn ólöglegur í átta
mánuði með öðru liði.
Erlendir leikmenn léku síðast í
deildinni fyrir sex árum. Þá þótti
ljóst að breyta þyrfti lögum KKÍ
um erlenda leikmenn, enda ástandið
orðið slæmt. Erlendir leikmenn voru
því bannaðir og það er ekki fyrr
en nú að þeir eru leyfðir aftur. Eins
og sést á reglunum er ýmislegt
gert til að ekki fari eins og síðast.
Dregiðí riðla
Á þinginu var einnig dregið í
riðla. Reyndar voru aðeins tvö lið
eftir, Valur og Njarðvík. Því var
dregið um hvort liðið færi í A-riðil
og hvort í B-riðil. Valsmenn tóku
sæti í A-riðli og þótti það reyndar
vel sloppið því þar voru þijú Suður-
nesjalið fyrir! Riðlaskiptingin er því
þannig:
A-riðill:ÍBK, Valur, Grindavík, ÍR
og Reynir Sandgerði.
B-riðill: KR, Njarðvík, Haukar,
Tindastóll og Þór.
Keppnisfyrirkomuleg er það
sama og í fyrra en leikjum í úrslita-
keppninni hefur verið fjölgað. í
undanúrslitum er leikið þar til ann-
að liðið hefur sigrað tvisvar, eins
og hefur verið, en í úrslitaleiknum
verður að sigra í þremur leikjum.
Þá var ákveðið að ferðakostnaði
dómara yrði dreift jafnt á öll félög
deildarinnar.
Ein breyting varð á stjórn KKÍ.
Jón Þór Hannesson kom í stað Ing-
vars Krisinssonar sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs.
Kolbeinn Pálsson var endurkjör-
inn formaður KKI á ársþinginu um
helgina.
ÁSTÞÓR Ingason, sem lék með
Grindavík í fyrra, hefur ákveðið
að fara aftur heim til Njarðvíkur
og leika með liðinu næsta vet-
ur. Þá hefur Jóhannes Krist-
björnsson ákveðið að hætta í
KR og fer líklega til Njarðvíkur
ef hann á annað borð heldur
áfram að spila.
Eg er að minnsta kosti hættur
í KR og hef ekki ákveðið hvort
ég held áfram eða hætti að spila.
Ef ég held áfram þá kemur aðeins
eitt félag til greina og það er
Njarðvík," sagði Jóhannes Krist-
bjömsson. „Ég ætla að æfa í sumar
og sé svo til í haust hvað ég geri,“
sagði Jóhannes.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Marwood skaut Arsenal á toppinn
Brian Marwood tryggði Arse-
nal, 1:0, sigur gegn New-
castle í 1. deild ensku knattspym-
unnar um helgina. Við sigurinn
endurheimti Arsenal efsta sætið.
Vonir West Ham um áfram-
haldandi vem í deildinni minnk-
uðu til muna er liðið tapaði, 2:1,
heima gegn Southampton. Rod-
ney Wallace skoraði fyrir gestina,
þegar 33 sekúndur vora liðnar,
en Liam Brady jafnaði úr víta-
spymu. Paul Rideaout gerði sigur-
markið snemma í seinni hálfleik.
Luton og Coventry gerðu 2:2
jafntefli og sáu heimamenn um
að skora. John Dreyer og Danny
Wilson skoraðu í rétt mark, en
Steve Foster og David Beaumont
gerðu sitt sjálfsmarkið hvor.
Derby vann Manchester Utd.,
2:0. Gary Micklewhite og Paul
Goddard skoraðu.
Tottenham vann Wimbledon,
2:1,. Paul Stewart og Chris
Waddle skoraðu fyrir Tottenham
en Eric Young fyrir Wimbledon.
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
Kristján áfram hjá Teka
„EG reikna fastlega með að
ég verði áfram hér í Santand-
er og leiki með Teka,“ sagði
Kristján Arason, landsliðs-
maður i handknattleik. Að
undanförnu hafa þrjú félög í
V-Þýskalandi haft samband
við Kristján og óskað eftir því
að fá hann«sínar raðir. Félög-
in eru Gummersbach, Dorma-
gen og Milbertshofen.
W
Eg kann vel við mig hér í Sant-
ander,“ sagði Kristján, sem
hefur nú fengið formlegt boð frá
Teka um að hann leiki einnig með
félaginu næsta keppnistímabil.
„Það er of mikið rót að fara að
rífa sig aftur upp og fara til
V-Þyskalands.“
Kristján Arason og félagar
hans unnu Valencia, 22:20, á
sunnudaginn og halda fyrsta sæt-
inu. „Við náðum okkur ekki á
strik. Það eina sem var gott við
leikinn vora tvö stigin sem við
fengum,“ sagði Kristján, sem
skoraði eitt mark.
„Við eigum þijá erfiða leiki
framundan. Fyrst fáum við At-
letico Madrid í heimsókn og síðan
þurfum við að fara tvær ferðir til
Barcelona - til að leika gegn
Barcelona og Granollers. Við
verðum helst að ná tveimur stig-
um út úr Barcelonaferðunum,"
sagði Kristján.
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
„Rambo“ skoraði
med þrumufleyg
DORTMUND og Bayern Miinc-
hen gerðu jafntefli, 1:1, í f rá-
bærum leik í Dortmund, þar
sem markverðir liðanna kom í
veg fyrir að leikurinn færi, 5:5,
með stórgóðri markvörslu.
53.731 áhorfendi sáu Giinter
Breitzke skora fyrst fyrir
heimamenn, en „Rambo“ -
Hans Pfliigler, jafnaði fyrir Bay-
ern, með þrumuskoti af 25 m
færi.
Leikurinn var stórgóður. Pflu-
gler og Klaus Augenthaler léku
mjög vel hjá Bayern, en bestu menn
Dortmund vora Wolfgang de Beer,
markvörður og
Giinter Breitzke.
Jiirgen Klins-
mann skoraði tvö
mörk fyrir Stuttgart
- sem vann Bochum, 3:1. Eike
Immel, markvörður Stuttgart,
FráJóni
Halldórí
Garðarssynl
ÍV-Þýskalandi
meiddist í upphitun og lék hann
ekki með eins og Ásgeir Sigurvins-
son. Gudio Buchwald meiddist í
leiknum - tognaði á hné og er ta-
lið að rifa hafi komið í liðband.
Maurizio Gaudino skoraði þriðja
mark Stuttgart.
Leikmenn Köln voru afar óhress-
ir þegar gott mark var dæmt af
Pierre Littbarski, en þeir urðu að
sætta sig við jafntefli, 0:0, gegn
Leverkusen.
Pólverjinn Furtok skoraði tvö
mörk fyrir Hamburger, sem vann
Nurnberg, 3:2. Uwe Bein skoraði
þriðja markið.
Annar Pólverji var á skotskónum.
Það var Turowski, sem skoraði þrjú
mörk fyrir Frankfurt, 3:1, gegn
Karlsruher.
Kristján Arason segir nánast ákveðið að hann verði áfram hjá spænska
félaginu teka næsta vetur.
Undanúrslit í bikarkeppni HSI fara
framíkvöld
Undanúrslitin í bikarkeppni HSÍ í meistaraflokki karla fara fram í
kvöld. ÍR og FH eigast við í Seljaskóla kl. 20.00 og Valur og Stjarn-
an leika að Hlíðarenda kl. 20.30.
■FH-b og Valur-b (Mulningsvélin) leika í Seljaskóla í kvöld kl.
21.15 úrslitaleik um efsta sætið í 3. deild.
FráAtla
Hilmarssyni
á Spáni
Þjátfari
Teka með
spænska
landsliðið?
CARCIA Cvesta, þjálfari Teka,
mun að öllum líkindum taka við
stjórn spænska landsliðsins í
handknattleik. Júgóslavinn
Branislav Pokrajac hefur lengi
verið orðaður við liðið, en ekki
hafa náðst samningar.
Blöð á Spáni sögðu frá því í gær
að nú væri Cvesta kominn inn
í myndina, en hann þjálfaði lands-
liðs Bandarílqamanna á undan
Pokrajac og Banda-
rílq'amenn hafa ósk-
að eftir því að hann
komi aftur til þeirra
{ sumar. Ef Cvesta
verður ráðinn - þá mun hann
stjórna spænska landsliðinu fram
yfir Ólympíuleika í Barcelona 1992.
Teka áfram á toppnum
Teka hélt toppsæti sínu þegar
félagið vann Valencia, 22:20, um
helgina. Mela og Vialldea skoruðu
flest mörk Teka, eða sjö hvor.
Kristján skoraði eitt.
Granollers mátti þola tap, 20:21,
gegn Atletico Madrid. Heimamenn
skoraðu sigurmarkið úr horni þegar
tvær sek. vora til leiksloka.
Hermida skoraði flest mörk At-
letico, eða fjögur. Per Carlen skor-
aði fimm mörk fyrir Granollers, en
Atli tvö.
Granollers vann Lagisa stórt,
33:23, fyrir helgina. Martin skoraði
þá sjö mörk, en Atli fjögur.
Teka er efst með 11 stig, en
Atletico Madrid hefur 10. Caja
Madrid er með 9 og einn leik til
góða, Barcelona 8 og einn leik til
góða, Granollers 8, Valencia 6 og
Bidasoa og Lagisa ekkert.
Daninn Kim Jakobsen, sem leikur
með Uniexpress, hefur skorað flest
mörk á Spáni, eða 176. Hann skor-
ar ekki undir tíu mörk í leik.
Kristján er í tuttugasta sæti yfir
markahæstu menn, með 83 mörk.