Morgunblaðið - 18.04.1989, Page 4
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR ÞRHXJUDAGUR 18. APRÍL 1989
■:' . >■■'-■■ -
4 B
HARMLEIKURINN A HILLSBOROUGH I SHEFFIELD
Mestaslys
á breskum
íþrótta-
leikvangi
94 létu lífið í mannþrönginni
NÍUTÍU og fjórir létust, þar á
meðal mörg börn, í mesta slysi
sem orðið hefur á íþróttaleik-
vangi á Bretlandi sem varð á
Hillsborough leikvanginum í
Sheffield skömmu eftir að leik-
ur Liverpool og Nottingham
Forest í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar hófst á laug-
ardag. 44 menn liggja enn á
sjúkrahúsum borgarinnar og
er óttast um líf fjögurra þeirra.
Flestir hinna látnu köfnuðu eða
mörðust til bana þegar mörg
þúsund áhorfendur ruddust
fram í miklum þrengslum sem
mynduðust þegar fjölda manns
var hleypt inn á leikvanginn án
aðgöngumiða.
Lögreglan í Sheffield hefur sætt
mikilli gagnrýni fyrir að opna
aðgönguhlið fyrir hátt í tvö þúsund
knattspyrnuáhugamenn sem safn-
ast höfðu saman fyrir utan inn-
ganginn eftir að leikurinn hófst.
Talsmaður Royal Halamshire-
sjúkrahússins í Sheffield sagði að
um 80 manns hefðu misst útlimi
sem rifnað höfðu frá liðskálum fórn-
arlambanna í troðningnum. Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, hefur fyrirskipað opin-
bera rannsókn á orsökum slyssins.
Hlið opnað
Harmleikurinn hófst þegar lög-
regla opnaði aðgönguhlið og hleypti
hátt í tvö þúsund manns inn á yfir-
full áhorfendastæði stuðnings-
manna Liverpool liðsins. Óp kváðu
við þegar ungir knattspyrnuáhuga-
menn og böm krömdust upp við
stálgrindur sem aðskilja áhorfenda-
stæðin frá knattspyrnuvellinum.
Örvæntingarhróp deyjandi fólks
köfnuðu í hrópum stuðningsmanna
Nottingham liðsins sem gerðu sér
enga grein fyrir harmleiknum á
hinum enda leikvangsins.
Áhorfendur fyrir utan stálhliðin
reyndu að koma kafnandi fólki til
hjálpar en gátu ekkert aðhafst.
Karl og kona lýstu því hvemig þau
reyndu árangurslaust að halda lífi
í ungri stúlku sem marðist upp við
stálgrindurnar með því að blása í
munn hennar í gegnum möskva á
vímetinu. Frávita af skelfingu
klöngmðust áhorfendur upp á axlir
hvers annars og teygðu sig í girð-
inguna til að komast í skjól. Sumum
var bjargað yfir girðinguna þar sem
ráðþrota lögreglumenn, sem gátu
enga björg veitt, tóku á móti þeim.
Aðrir náðu að klifra upp á efri sval-
ir áhorfendastæðanna.
Mesta slys í íþróttasögu Bret-
lands
Þegar það rann upp fyrir mönn-
um að hér væri um að ræða mesta
slys á íþróttaleikvangi í sögu Bret-
lands spurðu margir hvernig í
ósköpunum stæði á því að lögreglan
hefði opnað hliðið, í ljósi þess að
mannfjöldinn fýrir utan leikvanginn
hafði ekki aðgöngumiða. Sumir
áhangenda Liverpool liðsins sögðu
að allur viðbúnaður fyrir leikinn
hefði verið ófullnægjandi. Þeir
sögðu að færri miðar hefðu komið
í hlut áhanganda Liverpool og þeim
hefði verið ætlað minna svæði á
áhorfendastæðunum en áhangend-
um Nottingham Forest.
Lögreglustjórinn í Suður-Yorks-
hire, Peter Wright, sagði á blaða-
mannafundi á laugardag að um leið
og hliðið var opnað hefði skyndilega
orðið vart mikils troðnings í áhorf-
endastæðunum. Hann sagðist hins
vegar ekki sjá tengsl á milli troðn-
ingsins og þess að lögreglan opnaði
hliðið. „Lögreglan taldi ekki að það
væri hættulegt lífi manna að vera
fyrir utan leikvanginn. En tii þess
'að létta álag á súlur við innganginn
var ákveðið að opna hliðið“. Lög-
reglustjórinn sagði ennfremur að
skömmu áður en leikurinn hófst
hefðu á milli 3 og 4.000 manns
streymt að leikvanginum og að
álagið á grannar súlur við inngang-
inn hefði verið orðið mikið.
Blómahaf á Anfieid
Fánar blöktu í hálfa stöng á Anfield Road, heimavelli Liverpool-liðsins í gær. Þúsundir manna komu þanc
hinum látnu virðingu sína. Hér bætir öldruð kona blómsveig í blómahafið viö annað markið, viö „Kop“-end
sem ekki fengu miða,“ var áletrunin á einum þeirra þúsunda blómsveiga sem komiö var meö.
Slysið hefur ekki áhrif <
töku enskra liða í Evrópt
KNATTSPYRNUSAMBAND Evr-
ópu, UEFA, tilkynnti í gær að
slysið á Hillsborough hefði ekki
áhrif á ákvörðun UEFA í síðustu
viku þess efnis að enskum liðum
verði heimilt að taka þátt í Evr-
ópumótunum á ný keppnistíma-
bilið 1990-1991.
Akvörðun UEFA er háð samþykki
bresku ríkisstjórnarinnar, en
ensk lið hafa ekki fengið að taka
þátt í Evrópumótum siðan 39 áhorf-
endur fórust á leik Liverpool og Ju-
ventus á Heyselleikvanginum í Brúss-
el í úrslitum meistarakeppninnar
1985. í tilkynningu UEFA sagði enn-
fremur að Jacques Georges, forseti
UEFA, myndi óska eftir fundi með
breska íþróttamálaráðherranum og
eftir þann fund yrði fyrst ljóst, í hvaða
farveg málið færi. Georges hafði hins
vegar ófógur orð um stuðningsmenn
Liverpool: „Maður hafði á tilfínning-
unni að þetta væru skepnur að riðj-
ast inn á völl.“
„Ef rétt hefur verið eftir honum
haft fer hann með fleipur. Þetta er
virðingarleysi við hina iátnu og alls
óviðeigandi,“ sagði Glen Kirton, að-
stoðarritari enska Knattspyrnusam-
bandsins.
Douglas Hurd, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði að ríkisstjórnin
myndi leggja til að knattspymufélög
yrðu að setja sæti, þar sem nú em
stæði og eins yrði áfram stefnt að
því að gefa út sérstök skírteini fyrir
áhorfendur. Skírteinin eiga að tak-
marka fyölda áhorfenda og útiloka
bullur, en framkoma þeirra varð til
þess að girðingar voru settar upp
Harmleikurinn á Hillsborough
Norður-
Áhorfenda-
stæði bakvið
markið.
\ Inngangur að áhorfendastæð-
; um. Knattspyrnuáhangendur ■
flykktust inn innganginn án
þess að hafa aðgöngumiða.
Wmá
Sjónarhorn
á aðalmynd
Áhorfendur komastl
í skjól á efri svölum.
Suður-
stúka.
Norður-
stúka.
Nokkrir verða undir
í troðningi undir efri
svölum ogtýnalífi.
Margir kremjast til bana
upp við öryggisgrindur,
aðrir komast yfír grindurn-
ar í skjól.
Auglýsingaspjöld rifin laus
og notuð sem sjúkrabörur.
„Erfitt að spil
ina, sem eftii
„ÞAÐ tekur sinn tíma að jafna
sig á þessum hörmungum. Leik-
menn Sheffield Wednesday hitt-
ust á fundi á Hillsborough í
morgun [mánudagsmorgunj, en
fyrirhuguð æfing féll niður. Eins
hefur verið ákveðið að leikir fari
ekki fram á vellinum þessa viku,
en óvíst er með framhaldið. Hitt
er víst að hugurinn er ekki við
knattspyrnuna og það verður
erfitt að spila leikina, sem eftir
eru,“ sagði Sigurður Jónsson,
leikmaður Sheffield Wednesday,
við Morgunblaðið í gær.
igurður fór á leik Liverpool og
Nottingham Forest ásamt eigin-
konu sinni, Kolbrúnu Hreinsdóttur.
„Við mættum í sól og blíðu á völlinn
tuttugu mínútur í þrjú og vorum
marg oft beðin um að sína miðana á
leiðinni. Við sátum í suðurstúkunni,
rétt við hornfánann, nokkra metra
frá stæðunúm. Ég var með myndavél
og tók myndir af leikmönnum, er
þeir hlupu inn á völlinn. Skyndilega
þyrptust áhorfendur, sem voru við
endann skammt frá okkur, inn á völl-
inn og virtist um skrílslæti að ræða,
en annað kom á daginn,“ sagði Sig-
urður.
Áhorfendur voiu beðnir að halda
kyrru fyrir og að sögn Sigurðar gerðu
menn sér ekki grein fyrir hvað var í
raun og veru að gerast. „Árangurs-
lausar lífgunartilraunir fyrir framan