Morgunblaðið - 18.04.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRIL 1989
B 5
Reuter
|að í gær og fyrradag, til að votta
ann fræga. „Frá tveimur heppnum
iþátt-
ikeppni
umhverfís velli til að vernda leikmenn
og koma í veg fyrir ólæti á milli
stríðandi fylkinga.
Slysið í Sheffield er hið mestá á
íþróttavelli síðan 24. maí 1964, er
320 áhorfendur létu lífið á þjóðarleik-
vangi Perú í Lima. 72 fórust á heima-
velli River Plate í Argentínu 1968.
Næst mannskæðasta slys á Bret-
landseyjum átti sér stað á heimavelli
Glasgow Rangers í Skotlandi árið
1971, er 66 fórust. 56 manns létu
lífið, þegar kviknaði í stúku Bradford
fyrir flórum árum.
la leik-
reiu“
okkur gáfu samt til kynna hvað hafði
gerst og fljótlega gekk um völlinn
að fimm til sex væru látnir. Sú tala
hækkaði fljótt, en staðreyndirnar
lágu ekki fyrir fyrr en heim var kom-
ið,“ sagði íslenski landsliðsmaðurinn
hjá Sheffield Wednesday.
Sigurður sagði að margt væri
óljóst varðandi þetta hörmulega slys,
en athyglin beindist fyrst og fremst
að öryggismálum. „Fólk er mjög reitt
út í alla, sem hafa með öryggis-
gæsluna að gera og krefst úrbóta
strax. Beðið er um að girðingar um-
hverfis alla velli verði fjarlægðar til
að fyrirbyggja að þetta endurtaki sig,
en Ijóst er að slysið á eftir að draga
dilk á eftir sér,“ sagði Sigurður.
Áhorfandi sem missti meðvitund og rankaði við sér meðal látinna:
Það sem gerðist eftir að liðin
komu inn á völlinn var martröð
EINN áhangenda Liverpool,
sem missti meðvitund, og
rankaði við sér meðal látinna,
lýsir atburðarásinni íbréfi
sem birtist í The Times í gær.
Hann segir að áhangendur
Liverpool liðsins hafi lent í
töfum vegna vegaframkvæmda í
Pennínafjöllum og vegna fyrir-
mæla lögreglu í
GuðmundurH. Sheffield. Þess
Frímannsson vegna hafi þeir
skrífarfrá verið seinir fyrir.
Þegar hann hafí
komið inn á leikvanginn hafi hann
ekki verið fleytifullur af fólkr.
„Það sem gerðist eftir að liðin
komu inn á völlinn var martröð.
Sífellt jókst fólksfjöldinn og þrýst-
ingurinn varð meiri og meiri. Við
þrýstumst framar, sífellt nær
grindunum, fólk byijaði að hrópa
og biðja alla að færa sig aftar.
Brátt byijaði fólk að troðast und-
ir, algerlega hjálparlaust. Fólk gat
ekki andað en samt opnaði lög-
reglan ekki hliðið inn á völlinn."
Hann segist sjálfur hafa komist
næstum því í gegnum hliðið en
þá hafi hann ekki getað andað
og hann muni síðast að lögreglan
hafi náð fimm mönnum og komið
þeim í sjúkrabíl. „Það næsta sem
ég man var að ég lá á vellinum
og verið var að þrýsta á bijóstið
á mér af einhveijum ástæðum.
Eg sá átta látna i kringum mig,
einn þeirra var sjö ára strákur.“
íuémR
FOLK
■ LIVERPOOL vildi ekki leik„
undanúrslitaleikinn á Hillsborough
og bar fram mótmæli þess efnis
fyrir hálfum mánuði. Rökin voru
að ekki kæmust allir
að sem vildu. Þá
mótmælti félagið því
að stuðningsmenn
þess skyldu vera
vestan megin, því þar væru mun
færri stæði en í hinum endanum.
Liverpool fékk 24.000 miða á leik-
inn, en Nottingham Forest
28.000.
Frá
Bob
Hennessy
i Englandi
■ / STÆÐUNUM, sem eru hólf-
uð, eru lágar grindur, sem áhorf-
endur geta stutt sig við. Þær eiga
að þola 600-1000 kg þrýsting á
hvern metra, en gáfu sig sem pípu-
hreinsarar. undan þrýstingi áhorf-
enda með hinum hörmulegu afleið-
ingum.
■ Á SÍÐUSTU 10 árum hefur
verið eytt milljón pundum (um 90
milljónum ísl. kr.) í endurbætur á
Hillsborough. Völlurinn hefur ver-
ið talið einn sá öruggasti í Eng-
landi og þar hafa m.a. 20 leikir í
undanúrslitum bikarkeppni farið
fram.
■ DERBY verður fyrst félaga
til að taka mótmæli fólks til greina,
vegna girðinga umhverfis leikvelli.
Eftir slysið á Hillsborough var
helsta krafan að fjarlægja ætti
þessar girðingar til að stofna lífi
áhorfenda ekki í hættu og í dag
verður hafist handa á Baseball
Ground, heimavelli Derby. Li-
verpool vill fjarlægja allar girðing-
ar fyrir næsta leik, hvenær sem
hann verður, Wimbledon ætlar
einnig að bregðast skjótt við sem
og Tottenham.
■ LEIKMENN Liverpool og
stjórnendur fóru á sjúkrahús í
Sheffield í gær og færðu slösuðum
gjafir. Við það tækifæri sögðu
Kenny Dalglish, framkvæmda-
stjóri 1. deildar liðs Liverpool, og
John Bames, leikmaður, að áhugi
á að leika knattspyrnu væri mjög
svo takmarkaður. „Enginn hugsar
um að leika knattspyrnu á þessari
stundu, en efst í huga okkar er að
létta undir með þeim, sem eiga um
sárt að binda,“ sagði Dalglish.
■ BOBBY Robson, landsliðs-
þjálfari, valdi fimm leikmenn Nott-
ingham Forest og þrjá frá-
Liverpool í landsliðshópinn fyrir
leik í undankeppni HM gegn Al-
baníu í næstu viku. Robson sagð-
ist vel skilja ef þessir leikmenn
gæfu ekki kost á sér.
MLIVERPOOL hefur þegar gefið
100.000 pund í sérstakan sjóð, sem
borgarstjórn Sheffield stofnaði til
styrktar aðstandendum hinna látnu.
Bmce Grobbelaar, markvörður
Liverpool, gaf sjálfur 1.000 pund,
en í gær höfðu safnast um 700.000
pund.
Reuter
Hryggur Liverpool-aðdándi situr einn og yfirgefinn á Hillsborough-leikvanginum eftir slysið. Auglýsingaspjöld,
sem liggja fyrir framan hann, voru notuð sem sjúkrabörur.
Nýr leikur háður
samþykki Liverpool
ENSKA Knattspyrnusamband-
ið ákvað í gær að setja leik
Liverpool og Nottingham For-
est í undanúrslitum bikar-
keppninnar á að nýju sunnu-
daginn 7. maí. Graham Kelly,
framkvæmdastjóri Sambands-
ins, sagði að leikurinn færi
aðeins f ram með samþykki
Liverpool, en stjórn félagsins
fundar um málið í dag.
Stjórn Liverpool óskaði eftir því
um helgina að öllum leikjum
liðsins, sem eftir eru á tímabilinu,
yrði frestað um óákveðinn tíma.
Knattspymusambandið brá skjótt
við og frestaði fyrirhuguðum leik
Liverpool og West Ham á morgun,
leik Liverpool og Arsenal, sem vera
átti á sunnudag, og einnig leik
Everton og Derby og Arsenal og
Wimbledon, sem vera áttu í kvöld.
Hvað bikarkeppnina varðar vom
skiptar skoðanir, en innan Liverpool
var ekki áhugi á að halda áfram.
„Að vera tvívegis vitni að slíkum
hörmungum á fjórum ámm er ólýs-
anlegt áfall og ég sé ekki hvernig
Reuter
Lafði Díana, til hægri, ræðir við einn þeirra sem slasaðist á Hiilsboraugh á
laugardag, og móður hans, á sjúkrahúsi í gær. Prinsessan af Wales kom þang-
að ásamt eiginmanni sínum, Karli Bretaprins.
Einkaviðtal við
Whelan á morgun
Eftir heimsókn leikmanna og
forráðamanna Liverpool til
Sheffield í gær var gefin út til-
kynning þess efnis að leikmenn-
imir ræddu ekki við fréttamenn
um harmleikinn. Bob Hennessy,
fréttaritari Morgunbiaðsins í Eng-
landi, náði hins vegar áður tali
af Ronnie Whelan, fyrirliða Li-
verpool, og birtist viðtalið í Morg-
unblíiðinu á morgun.
er hægt að halda keppninni áfram,“
sagði Peter Robinson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, áður en
ákvörðun Knattspyrnusambandsins
lá fyrir.
Kelly sagði að stjórn Knatt-
spyrnusambandsins hefði taiið rétt
að halda áfram með keppnina. „Við
virðum ákvörðun Liverpool, hver
sem hún verður, en vonum innilega
að Liverpool sjái sér fært að vera
með. Að okkar mati á úrslitaleikur-
inn að vera til minningar um hina
látnu, þar sem ekki skiptir máli
hver sigrar."
íuém
FOLX
MMARK Hughes, leikmaður
Manchester United, var kjörinn
leikmaður ársins af leikmönnum 1.
deildar á sunnudag. Steve Nichol,
Liverpool, var í 2. sæti og Bryan
Robson, Manchester United, í 3.
sæti. Til greina kom að fresta af-
hendingunni, „en hátíðin var kær-
komið tækifæri fyrir knattspymu-
menn til að votta þeim sem létust
á Hillsborough virðingu sína,“
sagði Gordon Taylor, ritari félags
1. deildar leikmanna. Að lokinni
afhendingunni var mínútu þögn, en
í stað fyrirhugaðrar skemmtunar
fór fram fjársöfnun fyrir ættingja
hinna látnu og söfnuðust 11.000
pund.
MSKOSKA Knattspyrnusamband-
ið hefur ákveðið að allur ágóði af
leik Skotlands og Kýpur í undan-
keppni HM i næstu viku, sem Guð-
mundur Haraldsson á að dæma,
renni til aðstandenda þeirra er lét-
ust í slysinu. Verði uppselt er gert
ráð fyrir að hagnaður verði um
250.000 pund.