Morgunblaðið - 18.04.1989, Page 8
ÍÞfémR
BORÐTENNIS / ISLANDSMOTIÐ
Kjartan Briem, KR,
vann íslandsmeist-
aratitlinn í einliða-
leik annað árið í
röð. Ragnhildur
Sigurðardóttir, sem
keppti nú fyrir
Stjömuna, gerði
enn bestur og vann
í einliðaleik kvenna
í níunda sinn.
Morgunblaðiö/Einar Falur
„Rafmagnsleysið
kom mér í gang“
- sagði Kjartan, sem varði titilinn í einliðaleik karla.
RagnhildurSigurðardóttirsigraði í 9. sinn í kvennaflokki
„ÉG hef ekki spilað vel að und-
anförnu. Álagið hefur verið
mikið, ég hef æft stíft og spilað
mikið — er þreyttur. En ég reif
mig upp í undanúrslitunum —
rafmagnsleysið kom mér í
gang,“ sagði KR-ingurinn Kjart-
an Briem við Morgunblaðiðeft-
ir að hann hafði varið íslands-
meistaratitilinn í einliðaleik
karla íborðtennis á sunnudag,
en mótið fór fram í Laugardals-
höll um helgina.
Kjartan vann félaga sinn,
Hjálmtý Hafsteinsson, 3:2 í
jöfnum og spennandi úrslitaleik.
Hjálmtýr lék mjög vel og yfirvegað
■■■■■■■■ á mótinu, sigraði í
Steinþór tvíliðaleik með Tóm-
Guðbjartsson asj Guðjónssyni, en
varð enn einu sinni
að láta í minni
pokann í úrslitum einliðaleiks.
Kjartan lék gegn Tómasi Sölva-
syni í undanúrslitum og tapaði
tveimur fyrstu lotunum, 13-21 og
16-21. Þá fór rafmagnið, hlé var
gert á keppni í tæpan hálftíma,
Kjartan kom tvíefldur til leiks á ný
og vann næstu þrjár lotur, 21-16,
21-5 og 21-14.
„Sigurfyrir KR“
Kjartan, sem stefnir á að ljúka
stúdentsprófí um næstu áramót og
fara síðan til Svíþjóðar til að æfa
borðtennis, sagði að breiddin á
meðal þeirra bestu væri sífellt að
aukast. „Keppnin var opnari en oft
áður og hver sem var af sex efstu
gat sigrað. En mótið í heild var
fyrst og fremst mikill sigur fýrir
KR. KR-ingar voru í fjórum efstu
sætunum í einliðaleik karla, áttu
bæði úrslitapörin í tvenndarkeppni,
og sama var uppi á teningnum í
tvíliðaleik karla. Þá sigraði KR í
tvíliðaleik kvenna, lék til úrslita í
einliðaleiknum og sigraði í flokka-
keppninni 14 árið í röð,“ sagði
Kjartan.
„Fékk enga keppni"
Ragnhildur Sigurðardóttir hefur
verið nánast ósigrandi í einliðaleik
kvenna síðan 1978 og sigraði nú
frekar auðveldlega. Hún varð ís-
landsmeistari 1978, 1979, 1980,
1981, 1983, 1985, 1987 og 1988.
„Ég fékk enga keppni og þannig
hefur það verið í vetur. Breiddina
vantar og sennilega væri best að
ungu stelpurnar æfðu með og léku
gegn strákum til að ná enn meiri
framförum," sagði íslandsmeistar-
inn.
Ragnhildur, sem er 25 ára nemi
í íþróttakennaraskóla íslands og
tveggja bama móðir, hafði mikla
yfirburði. „Reyndar hef ég ekkert
æft borðtennis í vetur og ætlaði að
hætta, en hef mætt á mótin með
því hugarfari að sigra og það hefur
tekist. Keppnisskapið hefur nægt,“
sagði Ragnhildur, sem hefur keppt
fyrir Stjömuna í vetur, en var áður
í UMSB.
Tómas enn á toppnum
Tómas Guðjónsson og Hjálmtýr
Hafsteinsson, KR, sigmðu í tvíliða-
leik karla eins og fyrr segir, en
Tómas, sem hefur verið yfirburðar-
maður í íþróttinni hérlendis í rúman
áratug, fékk einnig gullverðlaunin
í tvenndarkeppni ásamt Berglindi
Sigurjónsdóttur. „Ég æfi og keppi
mér til gamans en ekki með
langtímamarkmið í huga. Hins veg-
ar er ljóst að til að ná aukinni
breidd og framfömm verður að
huga meir að uppbyggingunni og
' efla hana,“ sagði Tómas.
Friðrik Ragnarsson.
ítfémR
FOLK
■ JAKOB Jónsson, handknatt-
leiksmaður úr KA, er nú á Græn-
land. Hann var ráðinn til að þjálfa
lið K-1933 fyrir meistarakeppnina
þar í landi í vor. Hugsanlegt er að
Jakob leiki með liðinu í keppninni,
en hann kemur síðan heim aftur í
vor.
■ SVO gæti farið að hvorki
Haukur Torfason né Magnús Jón-
atansson, knattspyrnudómarar frá
Akureyri, yrðu í eldlínunni í sum-
ar, en þeir vom í 20 manna hópnum
sem valinn var til starfa í 1. og 2.
deild í sumar. Dagur segir frá því
að hvomgur komist í þrekpróf dóm-
ara 21. þessa mánaðar — Haukur
vegna vinnu og Magnús vegna
meiðsla, en hann var skorinn upp
á hné nýlega.
■ BJARNI S. Konráðsson,
íþróttakennari, kynnir í kvöld á
Akureyri ritgerð sína um þjálfun
fjögurra 1. deildarliða í knatt-
spymu, sem hann skrifaði sem loka-
verkefni við íþróttaháskólann í
Köln í Vestur-Þýskalandi. Fund-
urinn í kvöld verður í KA-heimilinu
og hefst kl. 20. Niðurstöður ritgerð-
arinnar verða kynntar og ræddar.
Allir em velkomnir.
■ FRIÐRIK Ragnarsson var
stigahæstur á Norðurlandamóti
unglingalandsliða, sem fór fram
íFinnlandi um helgina. Hann skor-
aði 100 stig. Islenska liðið vann
sinn fyrsta leik í tíu ár á NM, þeg-
ar það vann norska liðið, 77:66.
Aftur á móti tapaði liðið fyrir
Svíum, 75:79, Dönum, 68:90,
Finnum, 64:124. Nökkvi Jónsson
tók næst flest fráköst á mótinu.
GLIMA / SVEITAGLIMA ISLANDS 1989
Kristján stöðv-
aði sigurgöngu
Ólafs Hauks
Hörður
Magnússon
skritar
Þingeyingar komu, sáu og
sigraðu í sveitaglímu íslands.
Sigur þeirra kom þó ekki á óvart,
þar sem þeir hafa verið ósigrandi
til margra ára.
Sigurinn var þó
naumur því harð-
skeyttir KR-ingar
veittu þeim harða
keppni og úrslit réðust ekki fyrr
en í lokaglímunum. Mikið gekk á
í glímunum og mesta athygli vakti
þegar gömlu kempunni Kristjáni
Yngvasyni tókst að leggja_ Olaf
Hauk Ólafsson að velli, en Ólafur
Haukur hafði ekki tapað glímu
síðan 1987. Var gaman að sjá til
Kristjáns. Þrátt fyrir að vera kom-
inn á fimmtugsaldurinn lætur
hann engan bilbug á sér fínna og
er í mjög góðri æfingu. Þessi
glíma réði úrslitum og getur Ólaf-
ur nagað sig í handabökin.
Keppt var í ijóram flokkum og
kepptu tvær sveitir í hverjum
flokki. HSK hafði mikla yfirburði
í yngsta flokkinum enda mikil
gróska í unglingastarfínu fyrir
autan Qall.
Urslit/B6
>/•■
Morgunblaöið/Einar Falur
Þingeyingar komu, sáu og sigmðu í sveitaglímu íslands sem fram fór um helgina. Úrslitin réðust í síðustu
glímunni er Ólafur H. Ólafsson, KR, tapaði sinn fyrstu glímu í tvö ár. Á myndinni er sigursveit HSÞ.
GETRAUNIR: 1X1 X 2 X 212 X 1 X
LOTTO: 2 3 8 15 18 +20