Morgunblaðið - 21.07.1989, Qupperneq 7
MOfcGUftBLÍAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 211 ffÚfií'5Ið8d
B 7
forrit sem stjórnaði þroska þess.
í bók sem einn virtasti barnasér-
fræðingur þeirra tíma skrifaði á
þessum tíma og átti eftir að hafa
gífurleg áhrif stendur t.d. að ný-
fætt barn sé vera sem sé algjör-
lega ómeðvituð um sjálfa sig og
nánasta umhverfi sitt. Þetta við-
horf fól m.a. í sér að hvítvoðungur
hefði engar andlegar þarfir.
Síðan hefurorðið bylting varð-
andi viðhorf til þarfa og þroska
barna. Vitað er með vissu að barn
gerirt.d. mjög snemma greinar-
mun á móður sinni og öðru fólki í
nánasta umhverfi. Það þekkir lykt-
ina af henni, röddina og andlitið.
Spurningunni um það hvort
hægt sé að spilla kprnabarni með
dekri svarar Pia Risholm-Mot-
hander á þann veg að svo sé ekki,
þvert á móti sé ástæða til að sinna
öllum þörfum barnsins eftir því
semtökeruá.
Sjálfstæður persónuleiki
allt frá fæðingu
Sálfræðingurinn bendir á í
þessu sambandi að það sé við-
tekin skoðun að rétt eftir fæðingu
sé það mikilvægasta viðfangsefni
barnsins að aðlaga sig tilverunni
utan móðurlífsins, m.ö.o. að aðlag-
ast því að lifa í veröldinni. Barnið
þarf að finna sinn eiginn takt. Það
þarf að læra að finna jafnvægi og
stilla saman svefn og vöku, svengd
og fylli. Allt eru þetta kröfur sem
barnið hefur ekki staðið frammi
fyrir á meðan það var í móður-
kviði. Börnum gengur afar misjafn-
lega að komast upp á lag með að
verða við þessum kröfum. Sum
börn finna sinn takt svo að segja
strax. Fjögurratíma reglan hæfir
mörgum börnum ágætlega. Öðr-
um börnum veitist örðugt að finna
þennan takt og fjögurra tíma regl-
an virðist engan veginn henta
þeim.
Ekki má gleyma því að barn er
sjálfstæður persónuleiki allt frá
fæðingu. Sum eru viðkvæmari en
önnur. Börn geta t.d. verið
þannig gerð að þau eru
hvumpin og verða það alla
*tíð. Önnur eru rólynd og
kippa sér ekki auðveldlega
upp við það sem á daga
þeirra drífur.
Fyrsta viðfangsefni
barnsins er sem sé það
að finna þennan takt og
það verður það að gera
áður en það getur farið
að mynda djúpstæð
tengsl við aðrar manneskj-
ur. Að þessu leyti er móðirin
sú manneskja sem skiptir
miklu máli. Það er hún sem
hjálpar barninu að finna fyrir
þörfum sínum og að uppfylla
þær. Flestar mæður eru sem
betur fer næmar fyrir þörfum
barna sinna frá náttúrunnar
hendi og vita yfirleitt án um-
hugsunar hvernig túlka á at-
ferli barnsins; hvorttímabært
er að gefa því mat, að skipta.
um bleiu eða sjá til þess að
það geti sofnað.
Að verða við þörfum barnsins
er ekki dekur. Barnið gerir sér
enga grein fyrir að uppfylling þarf-
anna er á valdi einhvers annars
en þess sjálfs. Ungt barn upplifir
sig þannig að það hafi fullkomið
vald til að framkalla hvaðeina sem
það þarfnast. Þessi alvaldstilfinn-
ing er mikilvæg fyrir áframhaldandi
þroska einstaklingsins. Ef þessi
tilfinning er skert, t.d. með því að
þarfirnareru ekki uppfylltar; verður
barnið ringlað og fyllist angist. Ein-
kenni slíkrar angistar koma oft
fram í því í upphafi að barnið græt-
ur mikið og erfitt getur verið að fá
það til að taka til sín fæðu. Barn
sem langtímum saman er látið
vera eitt, þarf að bíða alltof lengi
eftir því að fá að borða eða að
skipt sé á því, þ.e.a.s. á því al-
mennt ekki að venjast að mark sé
tekið á þeim skilaboðum sem það
sendirvarðandi þarfirsínar, mun
kannski síðareiga í erfiðleikum
með að mynda góð og traust
tengslviðannað fólk.
Að læra að stjórna öðrum
Barn sem fær gott atlæti í upp-
hafi og viðhlítandi hjálp við að finna
sinn persónulega takt byrjar að
þroska með sér félagslega vitund
þegar það er þriggja til fjögurra
mánaða gamalt. Það fer að gera
greinarmun á fólkinu sem er að
jafnaði í kringum það. Það byrjar
að hlæja, skríkja og hjala, um leið
og tengslin við annað fólk en móð-
urina verða djúpstæðari.
Um þetta leyti kemst barnið að
raun um að það getur stjórnað
öðrum. Það er á þessu stigi sem
það þarf að byrja að átta sig á því
að móðirin kemur ekki ævinlega
hlaupandi á stundinni. Flún gerir
það að vísu stundum en allt eins
kann að líða smástund áður en
barnið fær þörf sinni fullnægt. Það
getur t.d. vel verið að hún þurfi
að Ijúka einhverju áðuren hún
kemst til þess að mata barnið.
Pia Risholm-Mothandertelurað
þegar barn er komið á þennan ald-
ur sé það því sjálfu fyrir bestu að
þörfum þess sé ekki alltaf — án
undantekningar — sinnt umsvifa-
laust. Barnið þarf að skilja að
móðirin erekki alfullkomin. Hún
getur verið mjög góð en hún getur
líka verið skeikul. Hún er líka
manneskja sem hefur sínar eigin
þarfir og barnið er ekki það sem
alheimurinn snýst um. Þetta kemst
barnið ekki hjá að gera sér Ijóst
smátt og smátt. Sjálfsagt er að
leyfa því að komast að þeirri stað-
reynd án þess að reka sig mjög
harkalega á.
Vert er að hafa það í huga að
það sem hæfireinu barni þarf ekki
að hæfa öðru. Mæðureru misjafn-
lega af guði gerðar rétt eins og
börnin. Flestum er þó eiginlegt að
bregðast við þörfum barna sinna
sjálfkrafa. Eðlisávísunin lætur þær
vita þegar barnið fer að styrkjast
og verður fært um að taka dálitlu
mótlæti. Þá er óhætt að láta það
bíða smástund án þess að hlaupið
sé til af minnsta tilefni. Foreldrar
sem falla í þá gryfju að hætta að
lifa sínu eigin sjálfstæða lífi þegar
barn kemurtil sögunnarfara úr
jafnvægi þannig að þeirverða
síðurfærirum að sinna nauðsyn-
legustu þörfum afkvæmisins.
(Stuðst við grein úr Vi föreldrar)
Sviti
Sól og sumri fylgir óhjákvæmi-
lega sviti, hjá því verður ekki
komist. Við hérna á höfuðborgar-
svæðinu þurfum kannski ekki að
hafa áhyggjur af þessu þetta
sumarið en þeir sem búa fyrir
norðan og austan og þeir sem
leggja leið sína til útlanda lenda
eflaust í því að svitna.
Það er þó huggun harmi gegn
að fyrir utan það að vera óþægi-
legur og illa lyktandi getur sviti
verið merki um heilbrigði. Fyrir
skömmu birti þýskt dagblað les-
endum sínum til fróðleiks nokkr-
ar spurningar og svör um svita
sem við þýddum lauslega.
1. Hversvegna svitnum við í
hitá?
Svar: Til að halda líkamshitanum
í 37 gráðum.
2 Hvernig verður sviti til?
Svar: Kælikerfi líkamans er sett
saman úr 2-3 milljónum kirtla —
svitakirtla. Flestir eru kirtlarnir í
handarkrika, á iljum, við brjóst
og kynfæri.
3. Hvað er angistarsviti?
Svar: Flestir svitna þegar þeir
reiðast, fyllast áhyggjum eða
finna til sársauka. Sviti sem
líkaminn framleiðir undir þessum
kringumstæðum er að mestu
samansettur úr eggjahvítu og fitu
enda lyktar hann verr en hitasviti.
4. Hvaða meðul virka á
hræðslusvita?
Svar: Því miður er enginn svi-
taúði til gegn angistarsvita. Það
er fyrst og fremst eigin sálarró
sem getur hjálpað. Sviti þessi er
afleiðing af álagi (stressi) og önn-
ur verri einkenni eru meðal ann-
ars hár blóðþrýstingur og jafnvel
hjartaáfall.
5. Hvernig forðast maður svita
af völdum hita?
Svar: Með svitalyktareyði sem
má fá í úðaformi, sem staut,
púður, krem eða sápu. Þeir sem
eru með viðkvæma húð ættu
samt að gæta þess að nota svita-
lyktareyði með sem minnstu
alkóhól-innihaldi. Á hreina húð
ætti svitalyktareyðir að duga í
fjórar til sex klukkustundir.
Nokkur húsráð til að
forðast svita
Ein matskeið af salvíu er
blönduð einum bolla af vatni.
Þetta á að hindra svitamyndun
að einhverju marki og einnig
hjálpa þvölum höndum og fótum.
Edik er blandað með lavender
og soðið og kælt. Þessi blanda
er sögð virka eins og svitalyktar-
eyðir. Þá er því einnig haldið fram
að ef farið er reglulega í edikbað
með fætur sem svitna gjarnan
sé vandamálið úr sögunni.
grg
mode