Alþýðublaðið - 30.12.1958, Blaðsíða 3
EMIL JÓNSSON, forsætis-
ráðherra, flutti eftirfarandi út-
varpsávarp daginn sem hin
nýja ríkísstjórn Alþýðuflokks-
ins tók viS völdum:
Eins og kunnugt er, rofnaði
samstarf þeirra flokka, er stóðu
að fyrrverandi ríkisstjórn fyr-
ilr tæpum mánuÖi. J’ilraunir
þær, sem gerðar hafa verið
síðan til að mynda meirihluta-
stjórn, hafa ekki tekizt. For-
seti íslands óskaði þá eítir því
við mig, að ég gerði tilraun til
mvndunar þingræðisstjórnar,
sem ég tók að mér að revna að
gera. Þessar tilraunir rAÍnaf
hafa nu borið þann árangur, að
mynduð hefur verið minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins,
eins og fram kemur í bréfi því
eða aug'lýsingu, sem ég var nú
að lesa. Leitað var eftir stuðn-
ingi allra flokka við þessa
stjórn, en aðeins Sjálfstæðis-
flokkurinn gaf kost á að veita
þennan stuðning. Þessi stjórn
nýtur því stuðnings Sjálfstæð-
isflokksins, og á þann hátt, að
hann hefur tekizt á hendur að
bægja frá vantrausti, ef fram
kemúr á meðan verið er að
freista að leysa þau bráðu og
aðkallandi vandamál, sem fyr-
ir liggja. Er þar fyrst að geta
samningaumleitana þeirra,
, sem nú bíða við bátaútvegs-
menn, bátasjómenn og aðra
skylda starfsemi. Er það mál
svo aðkallandi, að það þolir
enga bið. Liggur við borð að
bátaflotinn stöðvist, ef ekki
næst samkomulag. En ríkis-
stjórnin mun þegar á morgun
skipa menn til þessara samn-
inga og freista þess að ljúka
þeim á svo skömmum tíma,
sem mögulegt er, enda er hver
dagur, sem þar tapast, mikið
tjón fyrir þjóðarbúið, sem leit-
azt verður við að koma í veg
fyrir.
Annað verkefni,. sem ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að
beita sér fyrir lausn á, er
breyting á kjördæmaskipun-
inni. Það er 4 allra vitorði, að
sú löggjöf, sem nú gildir um
það mál, er mjög ranglát og
krefst lagfær:'gar hið bráð-
asta. Alþýðuf okkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn hafa því
ákveðið að beita sér fyrir því
fallegf jélairé
Fregn til Alþýðublaðsins,
Siglufirði í gær.
HÉR var allt með kyrrum
kjörum um jólin. Veður var all-
gott, en nú er komin slydda og
Norð-Austan átt.
Á Ráðlhústorgi stendur hið
fallega1 10 m. jólatré sem vina-
bær Siglufjarðar, Herning, —
færði Siglufirði að gjöf. Jóla-
tréð var afhent 1- sunnudaginn
í jólaföstu af formanni nor-
ræna félagsins hér, Sigui'ðl
Gunnlaugssyni. Sigurjón Sæ-
mundsson bæjarstjóri veitti
trénu móttöku. — Kirkjukór
Siglufjarðar söng undir stjónn
Páls Eggertssonar og Lúðra-
sveit Siglufjarðar lék undir
;stjórn SigUrsv/eins D. Krist-
inssonar.
S.
að landinu verði skipt í fá stór
kjördæmi með hlutfallskosn-
ingum og uppbótarþingmönn-
um til jöfnunar milli þing-
flokka. Hvað, sem afgreiðslu
kjördæmamálsins líður, verða
kosningar látnar fara fram í
vor til þess að þjóðinni gefist
kostur á að segja sína skoðun
á því máli og öðrum vandamál-
um, sem fyrir liggja.
Ég tel mig mega segja. að aí-
greiðsla kjördæmamálsins hafi
að verulegu levti vaidið því, að
ekki tókst nú að mynda meiri-
hlutastjórn. Og er því þess að
vænta, að þegar það mál er
leyst, fáist meirj möguleikar
en nú til fastrar meirihluta-
stjórnar, sem af alvöru og festu
geti snúið sér að aðkallandi
verkefnum.
í utanríkismá’um mun þessi
ríkisstjórn fylgja svipaðri
stefnu og undanfarandi ríkis-
stjórnir hafa gert í raun, en
deilumál á innlendum vett-
vangi mun ríkisstjórnin reyna
aö leiða hjá sér og fresta, sem
unnt er, önnur en þau tvö, sem
nefnd hafa verið, þar til fast-
ari' grundvöllur hefur fengizt
undir störf ríkisstjórnarinnar
eða þó öllu heldur annarrar, er
við tæki af þessari.
Alþýðirflokknum er ljóst, að
þessi ríki^tjórn getur ekki
unnið að lausn mála eftir
fiokks’ínum Alþýðuflokksins.
En hann mun gera sitt ítrasta j
til að þoka málum sem lengst |
í þá átt að til heilla horfi fyrir '
þióðina alla. Til þessa óskar
ríkisstjórnin eftir stuðningi
þingmanna allra og þjóðarinn-
ar í heild.
Gleðilég jól, gott og farsælt
-ýár.
TAFLFÉLAG Reykjavíkur
hefur nú samið við Breiðfirð-
ingaheimilið og verða því skák-
æfingar, hraðskákamót og
Skákþing Reykjavíkur haldin
þar.
Taflæfingar verða í Breið-
firðingaheimilinu sem hér seg-
ir; Sunnudaginn 4. jan. kl. 2 e.
h. og alla sunnudaga til 29.
marz. Fimmtudaginn 8. jan.
kl. 8 e. h. og alla fimmtudaga
til 29. jan.
Hraðskákamót Haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur verður
að þessu sinni haldið í Breið-
firðingaheimilinu dagana 5. og
7. janúar. Fyrstu verðlaun eru
Píanólónleikar
ÞÝZKI píanóleikarinn Gerd
Kámper hélt í gær tónleika á
vegumi Tónlistafyfélagsins í
Austuíbæjarbíói. Á efnis-
skránni voru verk eftir Schu-
mann, Chopin, Beethoven og'
Dussek, a<uk þess sem hann lék
Scarlatti sem aukalag.
I mörgum verkanna sýndi
Kámper góð tilþrif, t. d. var
mjög hæfilega lítinn ,sentíment
alisma' að finna í Chopin og
Beet'hoven var að mörgu leyti
vél spilaður, en í sumum hinna
verkanna vildi brenna við, að
nótum væri ekki haldið nægi-
lega aðskildum.
Þrátt fyrir þetta var margt
gott um tónleika þessa. Túlk-
un verkanna í heild var í flest-
um tilfellum góð, þótt finna
mætti að í smáatriðum.
G. G.
fallegur bikar, sem vinnst til
eignar. Þátttakendur eru beðn-
ir að láta skrá sig' sunnudaginn
4. janúar á æfingu hjá T. R.
Skákþing Reykjavíkur hefst
þann 26. janúar. Sem fyrr verð
ur teflt í meistaraflokki, 1. fl.
2. fl, og unglingaflokki. Ráð-
gert er að tvær umferðir verði
tefldar í viku auk biðskáka. —
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að tilkynna þátttöku
sína til stjórnarinnar á taflæf-
ingum í félaginu.
Heiðursmerki.
FORSETI ÍSLANDS hefur í
dag sæmt eftirtalda íslendinga
heiðursmerkjum hinnar ís-
lenzku fálkaorðu.
Séra Friðrik Rafnar, vígslu-
biskup, stjömu stórriddara,
fyrir embættisstörf.
Gizur Bergsteinsson, hæsta-
réttardómara, stjörnu stórridd-
ara, fyrir embættisstörf.
Þórð Eyjólfsson, hæstarétt-
ardómara, stjörnu stórriddara,
íyrir embættisstörf.
Ungfrú Ástu Magnúsdóttur,
ríkisféhirði, stórriddarakrossi,
fyrir embættisstörf.
Davíð Ólafsson, fiskimála-
stjóra, stórriddarakrossi, fyrir
embættisstörf.
Reykjavík, 23. des. 1958.
(Fréttaíilk. frá orðuritara)
droítningu?
Jón Sigurbjörnsson (Basilo) og Kristinn Hallsson (dr. Bartolo)
jóladðg
Á JÓLADAG var framið inn
brot og þjófnaður hér í bæn-
um. Brotizt var inn í íbúðar-
bragga í Kamp Knox meðan|
fjölskyldan brá sér í jólaboðj
til kunningjafólks, og fimmtán
hundruð krónum, sem hús-!
bóndinn átti þar geymt, stolið. I
Ekki hafði þjófurinn náðst í
gærkvöldi, en málið er í rann- ,
sókn.
KRISTILEGT samband
kvenna í Kanada hefur vítt til-
tæki brugghúss nokkurs í Tor-
onto, en það gaf út jólakort
með mynd af Elísabetu drottn-
ingu og Filippusi, þar sem þau
stíga þjóðdans.
Brugghúsið hafði þó fengið
leyfi til að hafa þessa mynd.
— Ég álít þetta á engan hátt
niðurlægjandi fyrir drottning-
una og hún ætti að vera hafin
yfir slíkt, segir formaður fé-
lagsdeildarinnar í Toronto, frú
I. H. Perigoe.
Talsmaður utanríkisráðuneyt
isins í Ottawa greinir svo frá,
að umsókn brugghússins um
að nota myndina hafi verið
gaumgæfilega rædd, áður en
leyfið var veitt.
Þ J ÓÐLEIKHÚ SIÐ frum
sýndi á annan jóladag óperuna
Rakarinn í Sevilla eftir Gioa-
chino Rossini. Tónlistarstjóri
var Róbert Abraham Ottósson,
en leikstjóri Thyge Thygesen,
konunglegur hirðsöngvari, og
var hann eini útléndingurinn,
sem viðriðinn var sýninguna.
Þessi fyrsta óperusýning hér-
lendis með íslenzkum hljóm-
listarmönnum eingöngu tókst
mjög vel, svo vel, að hún mundi
sóma sér hvar sem væri, jafn-
vel þótt ekki sé tekið tillit til
þess, að margir söngvaranna
eru alveg óvanir að koma fram
á sviði. Þótt sönggæðin væru
prýðileg, kom manni þó ef til
vill mest á óvart hve leikurinn
var lipur og snurðulaus, svo að
hreyfingar og söngur féllu al-
veg saman, jafnvel á erfiðustu
stöðum. Þessi ópera er svo „deli
kat“, að enginn vandi er að
skemma hana með ónákvæmni,
en þarna fór allt eins og bezt
varð á kosið.
Ég vil taka það strax fram,
að söngvararnir eiga allir mik-
ið lof skilið fyrir frammistöðu
sína, bæði söng og leik, þó að
sérstaklega beri að taka Jón
Sigurbjörnsson (Don Basilio)
og Kristinn Hallsson (Doktor
Bartoló) út úr fyrir sérlega
fyndinn leik, en söng þeirra
þekkja menn áður að ágætum.
Þá ber og sérstaklega að lofa
Guðmund Guðjónsson ?Alma-
wiva), algjöran nýliða á óperu-
sviði, fyrir ágæta frammistöðu.
IHreyfingar hans eru óþvingað-
ar og söngurinn yfirleitt mjög
igóður, og það verður að telj-
ast hreint afrek að syngja á
öðrum fæti í mjög erfiðri stell-
ingu í lokaatriði fyrri þáttar,
án þess að missa niður takt eða
jgera neina skyssu. Það hefur
oft viljað brenna við, að tenór-
I ar væru líkastir spýtukörlum
á sviði, en svo er alls ekki um
Guðmund, enda góður leikfim-
ismaður.
, Frú Þuríður Pálsdóttir syng-
ur Rosinu með mikilli prýði og
hreyfingar hennar á sviðinu
eru nú miklu óþvingaðri og
-eðlilegri en áður. Prýðileg
frammistaða. Þá má ekki
gleyma okkar ágæta Guðmundi
Jónssyni, sem leikur sjálfan
, Figaro, „feitasta rakara í bæn-
, um“ (og þótt í>3ar væri leitað).
Söngur Guðmundar er að
vanda hinn ágætasti og þrátt
fyrir fyrrgreint líkamsástand
| er hann furðu léttur á sviðinu
og skilar hlutverki sínu mjög
vel. Frú Sigurveig Hjaltested
syngur vel hlutverk Bertu,
roskinnar þjónustu Bartolós,
og þeir Ævar Kvaran (Fio-
rello) og Hjálmar Kjartansson.
(varaliðsforingi) skila litlum
hlutverkum ágætlega.
Leikstjórinn, Thyge Thyge-
sen, hefur unnjið mjög gott
verk og skapað heilsteypta sýn
ingu. Þegar tekið er tillit til
, stutts tíma og óvanra leikenda,
verður þetta að teljast þrek-
virki.
I Mest lof fyrir þessa ágætu
sýningu á þó vaíalaust, og að
i öilum öðrum ólöstuðum, tónlist
’ arstjórinn Róbert Abraham
Ottósson. Hljómsveitin og kór-
inn eru mjög vel æfð og þá er
ekki síður honum að þakka hve
íiákvæmar eru allar innkomur
1 einsöngvara og „precisiónin“ í
öllum flutningnum. Það er
sannarlega ekki ónýtt fyrir
okkur íslendinga að eiga svo
góðan tónlistarmann og stjórn-
anda á meðal okkar.
Leiktjöld Lárusar Ingólfs-
sonar féllu vel að verkefninu í
hefðbundnum stíl.
Óperan er sungin á íslenzku
og hefur Jakob Jóh. Smári
þýtt textann. Fellur hann vel
að hljómlistinni.
Eftir þessa sýningu mega
menn vera bjartsýnir um fram-
hald óperusýninga með alís-
lenzkum kröftum, ef heimtur
verða góðar á þeim söngvurum,
sem við eigum. — G. G.
«
Húseigendur.
Önnumst allskonar vatns-
og hitalagnir.
Hitalagnir s.f.
Sírnar: 33712 og 12899.
Alþýðublaðið — 30. des. 1958 3