Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
Sigurður Jónsson, atvinnuknattspyrnumaður hjá Arsenal:
Þolinmæði þraut-
ir vinnur allar
SIGURÐUR Jónsson, knattspyrnukappi frá Akranesi, gekk til liðs
við Englandsmeistara Arsenal á dögunum, eftir að hafa leikið
með Sheffield Wednesday frá 1984. Þeir sem þekkja Sigurð segja
að hann sé vandanum vaxinn. „Sigurður var strax ungur byijað-
ur að hlaupa með knöttinn á tánum út um allt. Ef hann var ekki
úti á knattspymuvelli var hann úti á bletti heima hjá sér með
knöttinn. Mönnum var þá strax ljóst að Sigurður ætti eftir að
verða góður knattspyrnumaður," sagði Karl Þórðarson, fyrrnm
atvinnuknattspymumaður og leikmaður með Skagaliðinu. Karl
er frændi Sigurðar.
Sigurður, sem er 23 ára, er
nýgiftur Kolbrúnu Hreiðars-
dóttur. Skaust heim á milli leilqa
í Englandi sl. vetur til að gifta sig
í Akranesskirkju. Hann er nú að
nálgast hápunkt knattspyrnufer-
ils síns. Það var stór áfangi hjá
honum að ger-
ast leikmaður
með Arsenal.
„Sigurður
getur hæglega
gert góða hluti
hjá Arsenal.
Hann hefur fram til þessa ekki
látið frægðina stíga sér til höf-
uðs. Hann hefur mætt til dyra
eins og hann er klæddur, en ekki
verið að leika neinn stórkarl.
Hann hefur bein í nefinu og mun
berjast af kappi til að vinna sér
fast sæti í Arsenalliðinu. Hann
hefur áður tekið sæti sér eldri og
reyndari leikmanna. Sigurður var
aðeins 15 ára þegar hann tók
stöðu Jóns Alfreðssonar, fyrrum
landsliðsmanns, á miðjunni í Akr-
aneliðinu og skilaði hlutverki sínu
stórvel. Varð bikarmeistari með
okkur sama ár,“ sagði Jón Gunn-
laugsson, fyrrum landsliðsmaður
Skagaliðsins.
Sigurður vakti fijótlega mikla
athygli sem knattspyrnumaður og
hóf hann að leika með hinu sigur-
sæla Skagaliði aðeins 15 ára og
298 daga gamall. Skagamenn
unnu þá bæði deildakeppni og
bikarkeppnina
1983 og 1984.
Eftir það var
hann kominn í
sviðsljósið og
fréttir í erlend-
um knatt-
spyrnublöðum, sem sögðu að lið
eins og Glasgow Rangers, Celtic,
Aberdeen, Feyenoord, Liverpool,
Ajax, Bayem Munchen og Barcel-
ona hefðu áhuga á honum. Hvað
sagði Sigurður um þessi skrif?:
„Ég er mjög ánægður með að
mörg fræg knattspyrnufélög hafa
áhuga á að fá mig til að leika
fyrir sig. En þau vita að ég hef
ákveðið að ljúka námi í skóla -
þannig að þau verða að bíða. Ef
til vill verð ég orðinn betri leik-
maður næsta ár,“ sagði Sigurður
í viðtali við knattspymublaðið
Match.
Að námi loknu ákvað Sigurður
að freista gæfunnar og gekk hann
þá til liðs við hið kunna lið Sheffí-
eld Wednesday. Það var harður
skóli fyrir þennan unga leikmann,
því að hann varð oft að sýna mikla
þolinmæði í keppni til að vinna
sér fast sæti hjá félaginu. Þolin-
mæði þrautir vinnur allar og tvö
sl. keppnistímabil hefur Sigurður
verið einn af bestu leikmönnum
Sheffield-liðsins. Sl. vetur fékk
hann tilboð frá skosku félögunum
Glasgow Rangers og Celtic, en
hafnaði þeim báðum. Sagðist ætla
að leika með Sheffield út keppn-
istímabilið og leggja sitt af mörk-
um til að bjarga félaginu frá falli.
„Sigurður er meiriháttar félagi.
Það er alltaf létt yfír honum og
stutt í grínið, en þegar hann fer
út á völl og alvaran byijar, er
hann harður fyrir. Ég hef trú á
því að hann eigi eftir að standa
sig hjá Arsenal. Það tekur hann
tíma að aðlagast nýjum aðstæðum
og hann mun ekki gefast upp þó
að hann komist ekki strax inn í
Arsenal-liðið. Það hefur hann sýnt
hjá Sheffield Wednesday. Þolin-
mæði hans þar var með ólíkind-
um,“ sagði Heimir Guðmundsson,
leikmaður Akranessliðsins.
Sigurður er yngsti knatt-
spymumaðurinp sem hefur klæðst
landsliðspeysu íslands. Varnýorð-
inn 16 ára þegar hann lék með
landsliðinu Evrópuleik gegn Möltu
á Laugardalsvellinum 5. júlí 1983.
Sigurður er jafnframt yngsti leik-
maðurinn sem hefur leikið í Evr-
ópukeppni landsliða.
Sigurður Jónsson
Þótt ungur væri bar Sigurður
enga virðingu fyrir frægum köpp-
um og hann varð fyrir barðinu á
Graeme Souness, fyrrum leik-
manni Liverpool og núverandi
framkvæmdastjóra Glasgow
Rangers, þegar Souness sparkaði
Sigurð niður á Laugardalsvellin-
um í landsleik íslands og Skot-
lands 1985. Sigurður hefur fengið
há peningaboð frá blöðum á Bret-
landseyjum fyrir að hann segði
frá ruddabroti Souness, en hann
hefur hafnað þeim öllum. „Ég
hafnaði öllum boðum blaðanna og
sagði blaðamönnunum að fyrir
mér tilheyrði atburðurinn for-
tíðinni," sagði Sigurður eitt sinn
í viðtali við Morgunblaðið. Þetta
sýnir vel hugsunarhátt Sigurðar
- hann vill frekar vera í sviðsljós-
inu á knattspymuvellinum.
SVIPMYND
eftir Sigmund Ó. Steinarsson
A
Islenska stál-
félagið byggir
verksmiðjuhús
BYGGING verksmiðjuhúss fyrir
íslenska stálfélagið hf. hefst eftir
helgina. Að sögn Hjartar Torfa-
sonar, eins eiganda fyrirtækisins,
er áætlað að húsið verði risið fyr-
ir næstu áramót. Verksmiðjan
mun standa í landi HafnarQarðar
í iðnaðarhverfi sunnan Reykjanes-
brautar.
*
Iverksmiðju íslenska stálfélagsins
á að bræða allt brotajárn er fellur
til hér á landi erí það eru um 15 til
20 þúsund tonn á ári. Að sögn Hjart-
ar Torfasonar mun framleiðslugeta
verksmiðjunnar verða mun meiri eða
80 til 100 þúsund tonn á ári. Athuga
á hvort innflutningur brotajáms get-
ur reynst hagkvæmur kostur. Verk-
smiðjan verður 2400 fermetrar að
stærð en við hlið hennar verður kom-
ið fyrir sérstökum reykhreinsibúnaði.
Tvö erlend fyrirtæki eiga hlutafé
í íslenska stálfélaginu. Þau eru
breska fyrirtækið Ipasco Ltd. og
sænska fyrirtækið Axel Johnson Int-
ernational. Gengið hefur verið frá
samningum við sænska fyrirtækið
um sölu stáls á markaði í Norður-
Evrópu. Stofnkostnaður við uppsetn-
ingu verksmiðjunnar er ááetlaður
nálægt 400 milljónum króna. Starfs-
menn íslenska stálfélagsins verða
20 til 30 talsins.
Forsetinn
til Kanada
FORSETI íslands frú Vigídís
Finnbogadóttir hélt í opinbera
heimsókn til Kanada í gær, laug-
ardag. Forsetinn fór fyrst til St.
Johns.
Frú Vigdís tekur við heiðurs-
doktorsnafnbót við Manitoba
háskólann og leggur sveig við stytt-
una af Jóni Sigurðssyni í Winnipeg.
Hún heimsækir byggðir Vestur-
Islendinga í Kanada.
Skákþing Norðurlanda;
Sex skákmenn beij-
ast um sigurinn
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 V. Sæti
1. Simen Agdestein X 1 'h 1 1 1 0 % 1 'h % 7 1-4
2. MargeirPétursson 0 X 1 1 1 1 1 0 k % 1 7 1-4
3. BentLarsen . k 0 X 1 1 'h 1 k 1 0 1 ffi 5-6
4. LarsKarlsson 0 0 0 X 'h 1 1 'h k % 1 5 7-8
5. HeikkiWesterinen 0 0 0 h X 0 0 1 k 0 'k 24 12-14
6. TomWedberg 0 0 \ 0 1 X 0 k 1 0 1 4 10
7. ErlingMortensen 1 0 0 0 X 'h k 0 'h % 0 3 11
8. Jonathan Tisdall h 1 'h k X k 'h 'h 0 0 1 5 7-8
9. J6nL.Ámason 0 \ 1 'h 'k X 0 0 0 0 0 24 12-14
10. JouniYijölá h 1 % 1 'h 1 X % k 'h 1 7 1-4
11. Harry Schussler h 0 0 % % 1 k X il 'k 'k 4'k 9
12. CurtHansen 0 'k k 1 k 1 1 'h 'k X 1 84 5-6
13. HelgiÓlafsson it 1 'h 1 0 1 1 1 'h 'h X 7 1-4
14. BergOstenstad 'h 0 0 0 k 0 1 0 k 0 X 24 12-14
Karl Þorsteins
ÞAÐ STEFNIR í æsispennandi
lokauppgjör í landsliðsflokki á
Skákþingi Norðurlanda sem hald-
ið er í Esbo í Finnlandi. Fjórir
skákmenn eru efstir og jafnir í
baráttunni um sigurlaunin á mót-
inu sem lýkur á mánudaginn; þeir
Margeir Pétursson, Helgi Olafe-
son, J. Yijola og Simen Agdestein.
Allir hafa þeir hlotið sjö vinninga
þegar þremur umferðum er ólok-
ið. Skammt undan sitja Danirnir
Curt Hansen og Bent Larsen með
6/2 vinning. Keppikeflið er ekki
einvörðungu meistaratignin sjálf
því mótið er einnig svæðamót fyr-
ir Norðurlöndin. Það er þannig
undanfari heimsmeistararkeppn-
innar og tvö efstu sætin í Finn-
landi veita rétt til þátttöku á milli-
svæðamóti á næsta ári. Því er til
mikils að vinna og braut Jóhanns
Hjartarsonar lá einmitt um áþekkt
svæðamót og síðan millisvæðamót
fyrir tveimur árum áður en
Kortsnoj var Iagður að velli.
Mótið er mjög sterkt eins og
mótstaflan ber með sér. Níu
stórmeistar eru á meðal þátttakenda
og meðalstig keppenda telja 2510
Elo-skákstig. Óneitanlega er því súrt
í broti að einungis tvö efstu sætin
veiti áframhaldandi rétt til þátttöku.
Margeir Pétursson hefur aðeins hægt
á ferðinni eftir sex sigurskákir í röð
um miðbik mótsins. Hann er núver-
andi Norðurlandameistari og fyrir
fjórum árum ávann hann sér rétt til
þátttöku á millisvæðamóti. Það er
ljóst að hann er til alls líklegur í
mótinu nú og hið sama á við um
Helga Ólafsson. Helgi hefur teflt af
þrautseigju- í mótinu, hvergi gefið
eftir hlut sinn og taflmennskan
skarpari en oft áður. Vinningstalan
er líka óvenju glæsileg á þessari
stundu.
Sá möguleiki er fyrir hendi að
þrír íslendingar öðlist þátttökurétt á
millisvæðamótinu á næsta ári því
Jóhann Hjartarson hefur rétt til þátt-
töku eftir frækilegan árangur í ein-
víginu gegn Kortsnoj sællarminning-
ar. Auðvitað er ekki rétt að flíka
slíkum draumum nú því fleiri kepp-
endur ágimast sætin eftirsóttu.
Heimamaðurinn Jouni Yijöla hefur
komið mest á óvart með góðri
frammistöðu. Hann byijaði mjög vel
á mótinu og hefur verið í toppbarátt-
unni frá upphafí. Hefur telft manna
best á mótinu og jafnvel verðskuldað
fleiri vinninga en hlotið hefur. Hið
sama má vart segja um norska stór-
meistarann Simen Agdestein. Að
sögn er hann jafn snjall að leika með
taflmennina á skákborðinu og knött-
inn á knattspymuvellinum. Hann
hefur áunnið sér sæti í norska lands-
liðinu í knattspymu og er um leið
einn snjallasti skákmaður heims. ís-
lenskir skákmenn hafa jafnan átt í
miklum erfíðleikum í viðureignum
við hann og hans sterka hlið er þraut-
seigja í erfíðum stöðum. í mótinu
nú hefur hann bjargað ófáum slæm-
um stöðum þótt taflmennskan sé
e.t.v. ekki uppá það besta. Stiga-
hæstur keppenda samkvæmt Elo-
skákstigum hlýtur Agdestein að telj-
ast líklegur til afreka nú og þrekið
ætti a.m.k. ekki að skorta í þolraun-
inni framundan. Það er gaman að
fylgjast með framgöngu Bent Lars-
ens sem enn á ný sýnir það og sann-
ar að hann lætur hvergi deigan síga
í baráttunni gegn yngri meisturum.
Curt Hansen er að auki líklegur til
að blanda sér í baráttuna um tvö
efstu sætin. Aðrir keppendur eigi
minni möguleika á frægð og frama
nú.
Á ýmsu hefur gengið í skipulagn-
ingu mótsins í Finnlandi og hreinasta
skömm að jafn sterkt og mikilvægt
skákmót lúti slíkum skrípaleik. Ráð-
gert var að tefla 11 umferðir eftir
Monrad-kerfi en eftir hávær og
kröftug mótmæli keppenda var horf-
ið frá þeirri tilhögun og ákveðið að
bæta tveimur umferðum við þannig
að hefðbundið lokað mót, þar sem
allir keppendur tefla við hvern ann-
an, varð uppi á teningnum. Sá bögg-
ull fylgir skammrifí að keppnisstað-
inn þarf að rýma eftir mánudaginn
og frídögunum á mótinu var fórnað
svo allt gengi skammlaust fyrir sig.
Skákmennirnir mega því una því að
tefla þrettán daga sleitulaust án þess
að fá frídag. Úthaldsbesti keppand-
inn hefur því óneitanlega forskot
fram yfir aðra keppendur ekki síst
þegar haft er í huga að baráttan
hefur verið óvenju hörð á mótinu.
Að auki hefur keppnissalurinn hvergi
þá kosti sem krafíst er. Loftræsting
léleg og þegar hitabylgja leikur um
landið eru skákmennirnir ekki öf-
undsverðir innandyra. Allt vekur
þetta upp þá spurningu enn á ný
hvort samstarfið við Norðurlanda-
þjóðimar sé til hins góða fyrir
íslenskt skáklíf. Spurningu sem
svara ber síðar.
Sigurskák Margeirs Péturssonar
gegn Tom Wedberg í fímmtu umferð
fer hér á eftir.
Hvítt: Tom Wedberg
Svart: Margeir Pétursson
Tískuvöm
I. e4 - g6 2. d4 - Bg7 3. Rc3 -
c6 4. Rf3 - d6 5. Be2 - Rd7 6.
0-0 - Dc7 7. a4 - Rgf6 8. a5 -
0-0 9. Be3 - He8 10. Bc4 - e6
II. Bb3 - a6 12. Rd2!
Taflmennskan hefur verið frekar'
óvenjuleg. Með síðasta leik sínumi
hindrar hvítur 12. — c5 sem gæfíi
svörtum kost á frekara rými.
12. - b5 13. axb6 - Rxb6 14.
Ra4?! — Rxa4 15. Bxa4 — a5 16..
Df3
Svarta staðan er afskaplega traust
og svo virðist sem Wedberg eigi er-
fitt að gera upp hug sinn í áfram-'
haldinu. Taflmennskan ráðleysisleg;
á meðan Margeir bætir markvisst.
stöðu sína.
16. - Ba6 17. Hfbl - Hec8 18..
Ha2 - Rd7 19. Hbal - Bb5 20. Bb3?'
Mistök. Hvítur gefur eftir mið--
borðið. Betra var leika 20. c3 eða íi
næsta leik þar á eftir.
20. - c5! 21. dxc5? - Rxc5 22..
Bxc5 - dxc5 23. Bc4 - Hd8!
Þvingar fram liðsuppskipti og í
framhaldinu er svartreita biskupí
svarts sterkari en kollegi hans hjá'
hvítum. Að auki eru hrókamin
ankannalega staðsettir og staða'
svarts því mun betri. 1
24. Bxb5 — Hxd2 25. c3 — c4 20.
Ha4 - Hxb2 27. Hxc4 - Db6 •
28. Ba4 - Bf8!
Lykilleikurinn. Biskupnum er æt-
luð staðsetning á a7-gl skálínunni-
og f2 peðið hjá hvítum verður ekki'
valdað með góðum hætti. Með mark-i
vissum leikjum þvingar svartur fram-
vinninginn í áframhaldinu. ‘
29. Hfl - Bc5 30. h4 - Hd8 31.
e5 - Hdd2 32. Kh2 - Hxf2 33..
Hxf2 - Hxf2 34. Dc6
Endataflið er tapað og slæm mis-
tök í 40. leik útkljá úrslitin fyrr en-
ella. 1
34. - Dxc6 35. Bxc6 - Bb6 36.
BÍ3 - h5 37. Kg3 - Ha2 38. Bc6-
- He2 39. Kf4 - Bgl 40. Kf3? -i
Hxe5
Hvítur gafst upp.