Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 36
JBTÆJJFÆ/VÆZ
Efstir á blaði
^ FLUGLEIDIRjmk
SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S
MORGUNBLADW, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRsETI 85
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Suðurland:
Aukið of-
næmi fyr-
ir gróðri
OFNÆMI fyrir gróðri gerði í
liðinni viku vart við sig fyrir al-
vöru á Suðurlandi að sögn Davíðs
Gíslasonar læknis. Ofiiæmissjúkl-
ingar norðanlands fúndu hins
vegar fyrir einkennum mun fyrr
í sumar, en venjulega er þessu
öfugt farið. Ástandið var verra í
fyrrasumar þar sem magn fijó-
korna í andrúmslofti mældist
mun meira þá en nú.
Ovenju lítið hefur
borið á gróður-
ofnæmi í sumar að
sögn Davíðs. Of-
næmi fyrir grasi er
langalgengast og
einkennin mun
seinna á ferð en
fyrri sumur. Oftast
hefur fyrst bólað á
Frjókorna-
gildra
þeim um mánaðamótin júní-júlí og
hámarkið verið kringum 20. júlí.
Mælingar á fijókornum í and-
rúmslofti hófust síðastliðið sumar
og þeim er fram haldið í ár. Eitt
af því sem kom á óvart í fyrra var
að hundasúrur fylgdu næst á eftir
grasi að fijókornamagni.
Lifián borg-
aði utan-
landsferð
''^SKIPSHÖFNIN á togaranum
Guðbjarti ÍS brá sér í utanlands-
ferð til Lúxemborgar og ná-
grennis um miðjan mánuðinn
ásamt eiginkonum.
Skipveijar fjármögnuðu ferðina
með því að halda til haga lifur
í vetur en lifrinni er að öllu jöfnu
hent. Útgerðin keypti lifrina á 25
krónur kílóið og skipshöfnin hafði
utanlandsferð fyrir nýtnina.
Álagningarseðlar:
- Borgar 7
krónur á 5
mánuðum
FYRSTU álagningarseðlarnir
voru sendir út á föstudaginn í
pósti en stærsti hlutinn fer í
póst á morgun, mánudag.
Eins og venjulega eru suniir
seðlar hinir spaugilegustu.
Morgunblaðið hafði spurnir af
manni einum, sem skuldaði 7
krónur umfram það sem hann
hefur þegar greitt í staðgreiðslu.
Þessa upphæð ber honum að
greiða í fimm hlutum, 3 krónur
hinn 1. ágúst og eina krónu í
september, október, nóvember og
- desember.
Morgunblaðið/RAX
Hjólfáni dreginn niður
íbúar Skagastrandar fagna hálfrar aldar afmæli að flagga snemma og gripið það sem hendi var
Höfðahrepps nú um helgina. Einhveijir voru næst. Eigandi hjólsins þurfti því upp í flaggstöng
komnir í hátíðaskap á dögunum, hafa ákveðið til að ná í farkost sinn.
Lang hag-
kvæmast að
staðgreiða
sólarferðina
SÓLARLANDAFERÐ á 60.000
krónur verður 22% dýrari ef
greitt er með afborgun og rað-
greiðslum efitir það, heldur en
ef ferðin er borguð út og 5% stað-
greiðsluafsláttur fenginn.
Fjögurra manna fjöl-
skylda gæti vænt-
anlega sparað sér ná-
lægt 50.000 krónum
með því að staðgreiða sólarferðina.
Hagkvæmast er að spara fyrir stað-
greiðslu sólafrísins, fá vexti og
staðgreiðsluafslátt. Slíkur afsláttur
gerir að verkum að ívið betra er
að taka bankalán til að borga ferð-
ina en að greiða hana með rað-
greiðslum sem fiestar ferðaskrif-
stofur bjóða upp á.
Bandaríkin:
Fimm vilja
gefa út plötu
Risaeðlunnar
ÍSLENSKU hljómsveitirnar
Bless, Ham og Risaeðlan héldu
fyrir skemmstu ferna tónleika í
New York. I kjölfar einna tón-
leikanna bárust fyrirspurnir frá
ýmsum útgáfúfyrirtækjum og
fímm fyrirtæki, Rough Trade,
Important Records, Alternative
Tentacle, One Little Indian og
Enigma, lýstu áhuga á því að
gefa út plötu með Risaeðlunni.
Alternative Tentacle lýsti einnig
áhuga á að gefa út Ham og
Bless og óskaði eftir því að fá að
vera dreifingaraðili á ljóðasafninu
Kráarljóðin, sem Smekkleysa gaf
út fyrir nokkru á íslensku, ensku
og spænsku. Einnig samdi One
Little Indian um það við Smekk-
leysu að gefa út safnplötu með
Smekkleysuhljómsveitunum fimm.
Sjá grein bls. 11C.
Verð á búvörum hefur hækk-
að langt umfram verðbólgu
Samningar haftiir um nýjan búvörusamning
eftir Benedikt Stefánsson
ÓHAGKVÆMNI, oflramleiðsla og síhækkandi búvöruverð eru meðal
þeirra vandamála sem takast þarf á við í landbúnaði á Islandi. Undan-
farinn áratug hefúr verð á ýmsum hefðbundnum búvörum hækkað Iangt
umfram verðbólgu. Kartöflupoki er nær þrefalt dýrari á fostu verðlagi
en fyrir tíu árum, mjólkurlítri 50% dýrari og þá hefði mátt fá tvö lamba-
læri fyrir verð eins í dag.
Að mati margra
viðmælenda í
umfjöllun um land-
búnaðarmál í blaðinu
í dag er stórfelld
fækkun bænda og
vinnslustöðva óumflýjanleg ef lækka
á kostnað við framleiðsluna. En
hægara er um að tala en í að kom-
ast. Margir óttast að byggð í dreif-
býli líði undir lok ef bændum fækkar
meira en orðið er. Leiðin til aukinnar
hagkvæmni er víðtækari stjórn land-
búnaðarmála, ef marka má ummæli
forystumanna í bændastétt og land-
búnaðarráðherra. Aðeins hluti grein-
arinnar hefur lotið skipulagi en í
framtíðinni þarf það að ná til allra
þátta, að mati Hákons Sigurgríms-
sonar framkvæmdastjóra Stéttar-
sambandsins. Hann segir einnig að
finna þurfi leiðir til þess að fram-
leiðslan stjórnist meira af markaðsr
aðstæðum.
Þessi sjónarmið verða ráðandi við
gerð nýs búvörusamnings milli
bænda og ríkisvaldsins, en vinna við
hann er þegar hafin þótt núverandj
samningur gildi til ársins 1992. í
þessari viku hittast samninganefndir
ríkisins og bænda á tveggja daga
fundi á Hvanneyri. Þar verður rætt
um hugsanlegar breytingar á núver-
andi samningi til aðlögunar að nýjum
og nýjan samning sem Hákon segir
að þurfi að gilda til langs tíma, að
minnsta kosti til aldamóta. Rætt er
um að taka ýmis félagsleg atriði inn
í nýjan samning, meðal annars lækk-
un eftirlaunaaldurs bænda.
í sauðfjárrækt er ástandið slæmt.
Helmingur bænda býr með innan við
200 fjár og hafa því ekki tök á að
framfleyta sér með búskap einuin
saman. Þar sem markaður fyrir
dilkakjöt fer minnkandi er eina leiðin
til hagræðingar að deila framleiðsl-
unni á færri hendur. Talið er að 1.000
bændur gætu annað eftirspurn fyrir
dilkakjöt innanlands, en þeir sem
rétt hafa til framleiðslu eru um
4.200.
Sjá „Fyrr var oft í koti kátt“ á
bls. 10.