Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
31*c
BRÚÐHJÓN VIKUNNAR
Trúum á hjóna-
bandið og ástina
Brúðhjónin,
Ómar Þór
Eyjólfsson
og Þórey
Þórðar-
dóttir.
Brúðhjón vikunnar eru að
þessu sinni Ómar Þór Eyjólfs-
son og Þórey Þórðardóttir. Þau
voru gefin saman í Dómkirkjunni
22. júlí af séra Guðmundi Karli
Ágústssyni. Blaðamaður leit inn
til ungu hjónanna í vikunni.
„Við kynntumst gegnum
mömmu Þóreyjar sem er starfs-
félagi minn,“ segir Ómar. „Sam-
bandið þróaðist smám saman og
í vetur ákváðum við að hefja sam-
búð. í febrúar, skömmu eftir að
við fluttum saman, fórum við til
Bandaríkjanna. Það var í ferðinni
sem við ákváðum að gifta okkur.
Til sannindamerkis um ákvörðun-
ina keyptum við brúðhjónastyttu
sem trónaði efst á brúðkaupster-
tunni á laugardaginn.“
Ómar og Þórey eru fljót til
svars þegar blaðamaður forvitn-
ast um ástæðuna fyrir því að þau
ákváðu að gifta sig. „Við trúum
á hjónabandið," segir Þórey, „og
ástina,“ bætir Ómar við og brosir.
Nokkru fyrir athöfnina sótti
Ómar brúðina heim til móður
hennar. „Þó ég væri búinn að sjá
kjólinn átti ég ekki orð til að lýsa
hrifningu minni þegar ég sá Þór-
eyju,“ segir Ómar. „Fæturnir urðu
að brauðfótum sem gátu gefið sig
á hverri stundu.“
Eftir stutta viðkomu hjá ljós-
myndara var haldið í Dómkirkjuna
þar sem hjónin voru gefin saman.
Að athöfninni lokinni urðu margir
til að fagna brúðhjónunum. Sú
fyrsta var lítil frænka Ómars sem
gat ekki beðið eftir að kasta
hrísgrjónunum yfir brúðhjónin og
kallaði til þeirra þegar þau áttu
enn nokkur skref ófarin útúr
kirkjunni: „Á ég að henda í ykk-
ur?“
Eftir brúðkaupið var gestum
boðið til veislu. Þar tóku margir
til máls. Einn þeirra var mágur
Ómars sem flutti frumsamið ljóð
tileinkað brúðhjónunum. „Hann
gerði dálítið grín að okkur,“ segir
Þórey. „Sagði til dæmis að við
værum föst saman á gómunum
af því að við keluðum svo mikið.“
fjölskyldur hjónanna tóku mik-
inn þátt f undirbúningi brúðkaups-
ins. Sem dæmi um það má nefna
að systur Ómars og móðir bökuðu
allar kökurnar í veislunni. Þess
má einnig til gamans geta að
þegar Ómar og Þórey komu heim
til sín daginn eftir brúðkaupið
kom í ljós að íbúðin hafði verið
skreytt hátt og Iágt. „Það voru
slaufur, sprengjur og blöðrur út-
um allt,“ segir Þórey. „Ég fann
meira að segja blöðrur í ísskápn-
um og frystikistunni,“ bætir hún
við.
Þrátt fyrir að hjónin hafi haft
á orði að Bandaríkjaferðin hefði
verið hálfgerð brúðkaupsferð eru
þau nú á leið í aðra brúðkaups-
ferð, að þessu sinni innanlands. „
Að elta uppi sólina,“ eins og þau
orða það.
Þau giftu sig
■Þórey Þórðardóttir og
Ómar Þór Eyjólfsson,
Reykjavík
■Jónas Sen og Margrét
Björgólfsdóttir, Reylqavík
■Ámi Jensen og Karen
Kinchin, Reykjavík
■Drífa Guðjónsdóttir og
Joseph Plank, Þýskalandi
■Guðlaug Halla Birgisdóttir
og Kristinn Nikulásson, Flat-
ísunna Ólafsdóttir og
Magnús Ingi Erlingsson,
Reykjavík
■Helga Rut Guðmundsdótt-
ir og Halldór Bjömsson,
Reykjavík
Hljómsveitarmeð-
limir, Páll, Þor-
valdur og Margrét.
Lengst til vinstri
sést í dóttur Páls,
Agnesi.
Biblíuskólinn að
Eyjólfsstöðum
stendur við hring-
veginn 10 km
sunnan við Egils-
staði.
B2Z3S
Simi
77755
UNGT FÓLK MEÐ HLUTVERK
Kærleiki guðs
er án skilyrða
andsýn
Þú lætur ókkur
framkalla filmuna þína
og færð til baka
OKEYPIS
^GÆÐAFILMU
Ungt fólk með hlutverk er fé-
lagsskapur sem margir kann-
ast við. Samtökin vom stofnuð árið
1976 af ungu fólki sem vildi efla
kristna boðun hér á landi og erlend-
is og þjálfa fólk til starfa í kristnum
félögum og söfnuðum. Um helgina
hefst þriggja vikna átak á vegum
samtakanna. Á meðan á átakinu
þjóðkirkjunnar og starfar í nánum
tengslum við hana. Messurnar, sem
við leikum í, eru hefbundnar að
öðm leyti en því að þar er leikin
léttari tónlist en venja er. í gegnum
tónlistina viljum við koma til móts
við fólk og segja því frá skilyrðis-
lausum kærleika guðs öllum til
handa. Ég hef oft heyrt fólk segja:
Þorvaldur kemur með geisladisk
sem þremenningarnir, í samvinnu
við nokkra valinkunna tónlistar-
menn, gáfu út til fjáröflunar fyrir
biblíuskólann á síðasta ári. Á diskn-
um, sem nefnist „Þú ert hjá mér“
er létt og grípandi tónlist. Sem tón-
arnir deyja út kveður blaðamaður
tónlistarmennina og óskar þeim
góðs gengis á sunnudaginn.
UMBOÐSMENN:
Reykjavík
Neskjör, Ægissíðu 123
Videobjörninn, l^tflgbraut 119b
Bókaverslun Isafoldar, Austurstræti 10
Gleraugnadeildin, Austurstræti 20
Sjónvarpsmiðstöoin, Laugavegi 80
Sportval, Laugavegi 116
Steinar, Rauðarárstíg 16
Vesturröst, Laugavegi 178
Donald, Hrísateigi 19
Allrabest, Stigahlíð 45
Nesco Kringlan, Kringlunni
Hugborg, Efstalandi 26
Lukku-Láki, Langholtsvegi 126
Innrömmun & hannyrðir, Leirubakka 36
Videosýn, Arnarbakka 2
Söluturninn, Seljabraut 54
Straumnes, Vesturbergi 76
Hólasport, Hólaaarði, Lóuhólum 2-6
Rökrás. Bíldshöfða 18
Ðitahöllin, Stórhöfða 15
Sportbær, Hraunbæ 102
Skalli, Hraunbæ 102
Versl. Nóatún, Rofabæ 39
Seltjarnarnes:
Nesval, Melabraut 57
Hugföng, Eiðistorgi
Kópavogur:
Tónborg, Hamraborg 7
Söluturninn, Engihjaila
Garðabær:
Sælgætis- og Videohöllin, Garðatorgi
Spesían, Iðnbúð 4
Hafnafjörður:
Hestasport, Bæjarhrauni 4
Skalli, Revkjavíkurvegi
Versl. Þ. Porðarsonar Suðurgötu
Söluturninn, Miðvangi
Steinar, Strandgötu 37
Mosfellssveit: Alnabúðin, Þverholti 5
Akranes: Bókaskemman,
Stekkjarholti 8-10 .
Borgarnes: Versl. ísbjörninn
Hellissandur: Virkið
Stykkishólmur: Versl. Húsið
Grundarfjörður: Versl. Fell
Hvammstangi: Vöruhúsið
Tálknafjörður: Versl. Tían
Bíldudalur: Veitingast. Vegamót
Bolungavík: Versl. B. Eiríksson
Sauðárkrökur: Versl. Hrund
Dalvík: Versl. Dröfn sf.
Akureyri: Radíónaust, Glerárgötu 26
Neskaupstaður: Nesbær
Hella: Videoleigan
Flúðir: Ferðamiðstöðin
Selfoss: Versl. Osp, Evrarvegi 1
Garður: Bensínstöð ESSO
Keflavík: Frístund, Hólmgarði 2
Njarðvík: Frístund, Holtsgötu 26
POSTSENDUM
HOOVER Compact Electronic 1100
stendur munu samtökin gangast
fyrir margs konar uppákomum,
bæði innan og utan veggja kirkj-
unnar. Þorvaldur Halldórsson,
söngvari, er einn þeirra sem vinnur
að undirbúningi átaksins. Blaða-
maður sótti Þorvald heim í vikunni.
Þrátt fyrir að Þorvaldur og
Margrét, eiginkona hans, séu í sum-
arfríi er mikið um að vera hjá þeim.
„Við erum á fullu að æfa fyrir
messuna á sunnudaginn," segir
Þorvaldur um leið og hann útskýrir
fyrir blaðamanni og ljósmyndara
hvernig hægt er að kalla fram hina
ýmsu hljóma gegnum rafmagns-
gítar. Þorvaldur er í þriggja manna
hljómsveit sem flytur tónlist af trú-
arlegum toga. Hinir meðlimir
hljómsveitarinnar eru Margrét
Scheving, eiginkona hans, og Páll
Magnússon.
„Við höfum áður leikið i guðsþjón-
ustum hjá Halldóri Gröndal í Grens-
áskirkju en á sunnudaginn verðum
við í Seltjarnarneskirkju,“ segir
Þorvaldur.
„Ungt fólk með hlutverk er innan
„Þetta er ekki fyrir mig. Guð er
löngu búinn að yfirgefa mig,“ en
það er ekki rétt guð er allra ekki
síst þeirra sem rata af leið.“
Við ræðum um þjóðkirkjuna og
Þorvaldur segir hana ekki hafa
fylgt þjóðfélagsbreytingum nægi-
lega vel eftir. „í kirkjunni er talað
við fólk á tungumáli sem það á
erfitt með að skilja. Við viljum
breyta þessu, koma til móts við
fólk og hjálpa því að leysa vanda
sem við þekkjum af eigin raun.“
Ungt fólk með hlutverk hefur
staðið fyrir byggingu biblíuskóla á
Eyjólfsstöðum á Héraði. „Hug-
myndin er sú,“ segir Þorvaldur, „að
þar verði boðið uppá fimm mánaða
biblíu- og boðunarnámskeið. Nám-
skeiðið skiptist í tvennt, þriggja
mánaða kennslu í skólanum og
tveggja mánuða starfsþjálfun.
Einnig verða í boði styttri námskeið
um ýmis sérefni.“
Nú er Páll Magnússon, þriðji
meðlimur hljómsveitarinnar, mætt-
ur og farinn að velta fyrir sér snúr-
um sem liggja í bendu á gólfinu.
Burt meö rykiö
fyrir ótrúlega
lágt verö!
Kr7.990,»9
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
ÞARABAKKI 3, SÍMI 670100