Morgunblaðið - 30.07.1989, Qupperneq 23
HétMBtífóÍSE ATVINNA/WSB/SMftWflafcfí
URI8aiJUHD.‘1980
w,
LÍPIYRItSJÓDUR
VK8TMANNIYINOA
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra hjá Lífeyrissjóði Vest-
manneyinga er laus til umsóknar. Æskilegt
er að viðkomandi sé viðskiptafræðingur eða
hafi góða reynslu í bókhalds- og skrifstofu-
störfum.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1989.
Umsóknir sendist Lífeyrissjóði Vestmanney-
inga, Skólavegi 2, 902 Vestmannaeyjum.
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga.
REYKJMIÍKURBORG
jþrótta- og tómstundaráð
íþróttakennari
íþróttakennara vantartil sundkennslu á nám-
skeiðum fyrir fullorðna í Sundhöll Reykjavík-
ur. Kennsla fer fram á tímabilinu frá kl.
17.00-19.00 mánudaga til fimmtudaga og
hefst í byrjun september og stendur til júní-
loka. Upplýsingar gefur forstöðumaður
Sundhallar í síma 14059 eða íþróttafulltrúi í
síma 622215.
Umsóknir um starfið skilist til starfsmanna-
halds Reykjavíkurborgar fyrir 4. ágúst nk.
Guelle
Við viljum ráða:
1. Sölu- og afgreiðslustjóra. Viðkomandi
þarf að vera drífandi, hafa góða fram-
komu, verslunar- eða viðskiptamenntun
æskileg. Þarf að geta hafið stöf um miðj-
an ágúst.
2. Starfsfólk til afgreiðslu- og léttra skrif-
stofustarfa. Þarf að geta hafið störf seinni
part ágúst. Hálfsdagsstörf koma til
greina.
Skriflegar umsóknir með greinargóðum upp-
lýsingum sendist til:
Quelle, Hjallahrauni 8, pósthólf 232, 220
Hafnarfjörður.
Guelle
Stærsta póstverslun Evrópu.
RIKISSPITALAR
Landspítalinn
- geðdeild
í áfengisskor eru eftirtaldar stöður lausar
til umsóknar:
Ein staða hjúkrunarfræðings og tvær stöður
sjúkraliða á deild 32|A afvötijiunardeild.
Ein staða hjúkrunarfræðings á deild 32E
göngudeild áfengis.
Ein staða hjúkrunarfræðings á deild 16
meðferðardeild á vistheimilinu Vífilsstöðum.
Um 80-100% stöður er að ræða.
í boði er góð vinþuaðstaða og góður starfs-
andi við skapandi störf.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Jóhanna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í síma 656570 eða 601750.
Reykjavík, 30.júlí 1989.
Hjúkrunarfræðingur
- Opin öldrunar-
þjónusta
Múlabær er þjónustuheimili fyrir aldraða og
öryrkja með aðsetur að Ármúla 34 í
Reykjavík. Starfsemin fer fram á tímabilinu
kl. 7.30-17.00 fimm daga vikunnar. Þjónusta
er veitt á félagslegu og heilbrigðissviði og
miðar að því að gera eldra fólki kleift að búa
heima svo lengi sem verða má við öryggi
og farsæld. Að jafnaði koma 48 einstaklingar
daglega til dvalar á heimilinu.
í Múlabæ starfar hjúkrunarfræðingur, iðju-
þjálfi, sjúkraliði, myndlistarkennari, leiðbein-
endur, hárgreiðslumeistari og annað starfs-
fólk með fjölþætta starfsreynslu víða að úr
öldrunarþjónustunni.
Við auglýsum nú eftir hjúkrunarfræðingi til
starfa í eitt ár vegna afleysinga. Um er að
ræða 60% starf. Vinnutími eftir samkomu-
lagi. Verkefnin eru fjölþætt, s.s. almenn
hjúkrunarstörf, heilsufarslegt eftirlit með
skjólstæðingum stofnunarinnar, tengsl við
endurhæfingar- og hjúkrunarstofnanir á
svæðinu ásamt nánu samstarfi við forstöðu-
mann og trúnaðarlækni.
Áhersla er lögð á lipurð í umgengni og gott
samstarf á öllum sviðum starfseminnar á
heimilinu.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í
Múlabæ í síma 681330.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst nk.
RIKISSPITALAR
Endurhæfingadeild óskar eftir:
Aðstoðarmanni iðjuþjálfa í fullt starf frá 1.
september nk. Um er að ræða aðstoð við
endurhæfingu sjúklinga ásamt öðrum störf-
um. Skilyrði að umsækjandi hafi hæfileika til
að umgangast fólk.
Iðjuþjálfa í 50% starf frá 1. september nk.,
eða eftir samkomulagi, í almenn störf iðju-
þjálfa.
Upplýsingar um ofangreind störf störf gefur
Finnur Bárðarson, yfiriðjuþjálfi, í síma
601427 eða 601421
Aðstoðarmanni sjúkraþjálfara í fullt starf frá
1. september nk. Um er að ræða aðstoð við
endurhæfingu og umönnun sjúklinga auk
eftirlits með tækjum og búnaði deildarinnar.
Skilyrði að umsækjandi hafi ánægju og hæfi-
leika til að umgangast fólk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri sjúkra-
þjálfunar í síma 601423.
Reykjavík, 30.júlí 1989.
Afgreiðslustörf
Óskum að ráða afgreiðslufólk hjá eftir- töld-
um fyrirtækjum:
• íþróttavöruverslunum,
• bakaríi,
• sérverslun með matvæli,
•fataverslun.
Ýmist er um heils- eða hálfsdagsstörf (eftir
hádegi) að ræða, til kl. 18 eða 19 á kvöldin.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
afgreiðslustörfum.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og rádnmgaþjónusia
Liösauki hf.
Skólavördustig la — Wi Reykjavik - Sími 621355
Fóstrur - störf
Fóstrur og/eða annað uppeldismenntað
starfsfólk óskast til starfa á eftirtöldum heim-
ilum. Um er að ræða 50%-100% störf.
Leikskólinn Furugrund. Upplýsingar gefur
forstöðumaður í síma 41124.
Leikskólinn Kópasteinn við Hábraut. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41565.
Leikskólinn við Bjarnhólastíg. Upplýsingar
gefur forstöðumaður í síma 40120.
Leikskólinn Kópaseli. Upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 84285.
Hafið samband við forstöðumenn og kynnið
ykkur starfsemina. Einnig veitir umsjónar-
fóstra upplýsingar um störfin í síma 45700.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Ertu ívanda?
Ég er nemi á lokaári í markaðsfræði í Þýska-
landi og er að leita að tímabundinni vinnu.
Ég býð:
- Reynslu í bókhaldi,
- reynslu í stjórnun og skipulagningu,
- reynslu í markaðsráðgjöf,
- reynslu í verð-, kostnaðar og framlegðar-
útreikningum,
- þekkingu á erlendum mörkuðum og út-
flutningi.
Vanti þig mann til að sneiða af álagspunkta
eða til að taka að sér verkefni á ofangreindum
sviðum á næstu 6 vikum, þá hafðu samband!
Þórður Bachmann,
sími 91 -43702.
Framkvæmdastjóri
Fjölmiðlafyrirtæki í borginni vill ráða fram-
kvæmdastjóra til starfa. Starfið er laust fljót-
lega eða samkvæmt samkomulagi.
Leitað er að viðskiptafræðingi með góða
starfsreynslu í viðskiptalífinu, sérstaklega á
fjármálasviði. Launakjöreru samningsatriði.
Þeir, sem eiga nöfn sfn á skrá hjá skrif-
stofu okkar, geta haft samband símleiðis.
Umsóknir er tilgeini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst nk.
GijðntTónsson
RAÐCJÓF & RAÐN I NCARhjON LI5TA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Meistarar í
auglýsingasmíði!
Vegna síaukinna umsvifa og stórfram-
kvæmda vantar okkur þrælvana og eld-
snögga auglýsingasmiði.
Mikil vinna - indælir vinnufélagar.
Ath.: Einungis vanir og reyndir teiknarar
koma til greina.
Upplýsingar um allt sem skiptir máli sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. ágúst merktar:
„Meistari - 6565“.
FLJOTT • FLJOTT