Morgunblaðið - 17.08.1989, Qupperneq 27
08(!i T8U0Á .VI HUOAUUTMMra QIÖAJHMUOHOM 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1989 . 27
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hinrik Bragasyni tókst einum Islendinganna að láta hest sinn, Vaða
frá Hvassafelli, ligga. Armet Tuyn frá Hollandi hleypir hér undir
Hinrik á Fróða frá Rammesweiler.
Evrópumótið í hestaíþróttum:
Döpur útkoma Is-
lendinga í skeiðinu
Vilhelmsborg. Frá Valdimari Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Þjóðþrif:
Atak til eflingar æsku-
lýðs- o g björgunarstarfa
Stuðlað að endurnýting-u o g umhverfísvernd
Morgunblaðið/Bjami
Davíð Oddsson, borgarstjóri, vigði fyrstu Dósakúluna á Lækjartorgi
á mánudag að viðstöddum skátum.
ISLENSKU keppendununi, sem
þátt taka í 250 metra skeiðinu,
gekk heldur brösuglega í gær
þegar farnir voru tveir af Qórum
sprettum. Aðeins einum þeirra,
Hinrik Bragasyni, tókst að Iáta
hest sinn, Vafa frá Hvassafelli,
liggja heilan sprett.
Skeiðaði hann á 26,57 sekúndum
sem nægði honum í sjötta sætið,
en hann lá aðeins annan sprettinn.
Bestum tíma náði Vera Reber frá
Þýskalandi á Frosta frá Fáskrúðar-
bakka á 23,64 sek. Næstur kom
Claas Dutilh, Hollandi, á Trausta
frá Hall á 24,09 sek. og þriðji varð
Klaus Zwins, Austurríki, á Tvisti
frá Suðurfossi á 25,22 sek. Þeim
Íóni Pétri Ólafssyni á Glaumi, Ein-
ari Öder Magnússýni á Fjalari og
Atla Guðmundssyni á Fjalari mi-
stókst öllum að láta hesta sína
liggja og olli það miklum vonbrigð-
um íslensku áhorfendanna. Sér-
staklega voru menn vonsviknir yfir
að Jóni Pétri skyldi mistakast, en
hann er talinn eiga besta möguleika
íslendingana í skeiðinu. Seinni um-
ferð skeiðsins fer fram á sunnu-
dagsmorgun og má búast við að
þá taki Islendingarnir sig saman í
andlitinu og láti klárana liggja.
í gær fóru fram undanrásir í
hlýðnikeppninni og fara tíu efstu í
sérstaka úrslitakeppni. Efstur með
6,6 stig að loknum undanrásum var
Helmut Lange á Björt, en hann er
núverandi Evrópumeistari í þessari
grein. Næstir komu Karly Zings-
heim á Loftfara með 6,2 stig og í
þriðja sæti Sandra Schutzback á
Glampa með 5,8 stig. Öll eru þau
frá Þýskalandi og á þýsk-fæddum
hestum.
Um þrjúleytið í gær komu ríðandi
á mótsstaðinn unglingar frá aðild-
arlöndum FEIF, sem er samband
eigenda íslenskra hesta í Evrópu.
Þeirra á meðal voru krakkar frá
íslandi. Höfðu þau riðið frá landa-
mærum Þýskalands og Danmerkur
og var Kolbrún Kristjánsdóttir,
unglingafulltrúi LH, í fylgd með
krökkunum alla leiðina.
BANDALAG íslenskra skáta,
Landssamband hjálparsveita
skáta og Hjálparstofnun kirkj-
unnar hafa tekið höndum saman
um að stuðla að aukinni um-
hverfisvernd, endurnýtingu
verðmæta og öflugra æskulýðs-,
hjálpar- og björgunarstarfi. Sam-
starf þetta gengur undir heitinu
„Þjóðþrif ‘ og verður átakið rekið
undir kjörorðinu: „Við endurnýt-
um verðmæti".
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
vígði formlega fyrstu Dósakúluna
á Lækjartorgi á mánudag. Arnfinn-
ur U. Jónsson, varaformaður Þjóð-
þrifa, sagði við tækifærið að þjóð-
þrif gæfi almenningi kost á að losa
sig við einnota umbúðir á einfaldan
hátt í sérstaka gáma, sem gengu
undir nafninu „Dósakúlan" og í
Dósakassa, sem staðsettir yrðu í
ýmsum fyrirtækjum. Þjóðþrif koma
svo umbúðunum til Endurvinnsl-
unnar hf. og innheimta skilagjaldið.
„Þau verðmæti, sem þannig skap-
ast munu renna til styrktar æsku-
lýðs- og björgunarstarfi á vegum
skátanna og hjálparstarfi Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Auk þess
verður hluta af væntanlegum ágóða
varið til umhverfismála. Þjóðþrif
munu á hvetju ári gróðursetja eitt
tré fyrir hveijar þúsund dósir, sem
safnast í Dósakúlurnar og kassana.
Einnig munu Þjóðþrif standa fyrir
almennri fræðslu og kynningu á
umhverfismálum og um starfsemi
og markmið þeirra samtaka, sem
standa að átakinu," sagði Arnfinn-
ur.
í fyrstu verður yfir 50 Dósakúl-
um komið upp í Reykjavík, Seltjam-
arnesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafn-
arfirði og Mosfellsbæ. Dósakúluna
verður væntanlega að finna við all-
ar bensínstöðvar, helstu stórmark-
aði og ef til vill víðar. Síðar munu
Þjóðþrif setja upp dósakúlur um
land allt og leita samstarfs við
skátafélög, hjálparsveitir eða aðra
BJÖRGUNARSKÓLI Landssam-
bands hjálparsveita skáta heldur,
í samvinnu við Björgunarhunda-
sveit íslands, námstefiiu um notk-
un hunda við leitarstörf í húsar-
ústum og vatni 18. til 21. ágúst
næstkomandi. Námstefhan verð-
ur á Snorrabraut 60 í Reykjavík.
Hún byggist á fyrirlestrum, sýn-
ingu myndbanda, verklegri
kennslu og æfingum með völdum
hundum. Námstefnan er öllum
opin og annast skrifstofa LHS
skráningu þátttakenda, segir í
fréttatilkynningu.
Leiðbeinandi á námstefnunni
um losun og rekstur þeirra.
Þjóðþrif afhentu borgarstjóra
100 grenitré, sem skátar munu
næstu daga gróðursetja í sérstakan
lund innan borgarmarkanna. í máli
Benjamíns Axels Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Þjóðþrifa, kom fram
að Þjóðþrif vildu og myndu beita
sér fyrir umhverfisvernd og upp-
verður Caroline Hebard frá Banda-
ríkjunum. Námstefnan er haldin til
að gefa hundaþjálfurum og öðrum
áhugamönnum tækifæri til að
kynnast aðferðum Caroline við
þjálfun og störf. Kennt verður á
ensku en helstu
atriði verða túlkuð jafnóðum ef
nauðsyn krefur.
Á skrifstofu LHS er hægt að fá
starfsáætlun Björgunarskóla LHS
fyrir næsta vetur. Á dagskrá eru
51 námskeið og námstefnur en auk
þess eru haldin námskeið jafnóðum
og óskir berast.
græðslu eins og framst er kostur.
„Við væntum þess að gróðursetja
árlega þúsundir tijáplantna um land
allt. Hafandi í huga að mjór er
mikils vísir viljum við afhenda
Reykjavíkurborg fyrstu 100 trén,
sem skátar munu planta í lítinn
gróðurlund hér innan borgarmark-
anna einhvern næstu daga.“
Þýskur „gos-
pel“ kór í Hall-
grímskirkju
Unglingakór frá Kirkju Nat-
hans Söderbloms í Reinbek í
Þýskalandi mun halda tónleika
í Hallgrímskirkju í kvöld klukk-
an 20.30.
Kórinn hefur farið víða um
landið og haldið tónleika í kirkjum.
Kórinn syngur gamla og nýja
söngva, aðallega negrasálma.
Stjórnandi er Wolfgang Knuth,
einleikari á þverflautu er Martin
Gonschorek og á orgel Michael
Petermann.
Leiðrétting
I frétt Morgunblaðsins af væntan-
legutn fiutningi óperunnar „Mann
hef ég séð“ eftir Karólínu Eiríks-
dóttur í íslensku óperunni misrituð-
ust nöfn þriggja sænskralista-
manna sem taka þátt í flutningi
hennar. Þeir heita Lars Palerius,
Linnea Sallay og David Aler. Eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Leiðrétting
í frétt utn myndlistarsýningu á
Hlíðarenda á Hvolsvelli í blaðinu í
gær, misritaðist nafn Kalmans
deFontenay. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 16. ágúst
FISKMARKAÐUR hf í Hafnarfirði
. Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 64,00 55,50 57,30 34,480 1.975.569
Þorskur(smár) 39,50 39,50 39,50 2,77610-
9.663
Ýsa 107,00 35,00 94,22 6,274 591.141
Karfi 32,00 30,00 32,00 12,071 386.232
Ufsi 33,00 20,00 31,49 25,204 793.750
Steinbítur 58,00 51,00 56,99 2,977 169.671
Langa 37,00 20,00 32,26 0,404 13.042
Lúða 240,00 90,00 161,12 0,588 94.658
Koli 55,00 55,00 55,00 0,727 40.002
Samtals 48,75 85,759 4.180.916
Selt var úr Otri HF og Sturlaugi H. Böðvarssyni AK. I dag verð-
ur selt óákveðið magn úr bátum
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 60,50 51,00 59,16 64,912 3.840.142
Ýsa 89,00 74,00 85,03 6,594 560.635
Karfi 32,00 31,00 31,44 20,610 648.008
Ufsi 34,00 20,00 33,72 V-7,504 590.257
Hlýri+steinb. 52,00 52,00 52,00 0,402 20.350
Langa 36,00 36,00 36,00 0,381 13.716
Lúða 235,00 200,00 205,27 0,328 67.330
Skarkoli 53,00 53,00 53,00 0,950 50.350
Keila 17,00 17,00 17,00 0,041 697
Samtals 51,84 111.722 5.792.040
Selt var m.a. úr Engey RE. 1 dag verða m.a. seld 50 tonn af
þorski, 7 tonn afýsu, 110 tonn af karfa og 25 tonn af ufsa úr
Þorláki AR, Freyju RE, Asbirni RE, Skagaröst KE og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 63,00 36,00 57,97 1,360 78.837
Karfi 35,50 27,00 34,14 1,031 35.201
Ufsi 31,50 15,00 27,76 0,458 12.712
Steinbítur 57,50 41,50 52,90 0,417 22.058
Langa 34,00 30,00 33,87 0,180 6.096
Blálanga 30,00 30,00 30,00 0,050 1.500
Lúða 225,00 90,00 145,86 0,174 25.380
Öfugkjafta 19,00 19,00 19,00 0,066 1.254
Humar 555,00 555,00 555,00 0,070 38.850
Samtals 58,18 3,838 223.294
f dag verða m.a. seld 32 tonn af þorski, 27 tonn af ýsu, 1 tonn
af steinbit og 1 tonn af keilu úr Eldeyjar-Hjalta GK, 400 kg af
humri og óákveðið magn af blönduðum afla úr bátum.
Sólveig Smith, form. Björgunarhundasveitar íslands.
Björgunarskóli LHS:
Námstefna um notkun
hunda við leitarstörf