Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIt) FIMMTUDÁÖUR 24. ÁGÚST 1989
Kristinn Pétursson alþingismaður:
Ráðherra svaraði ekki
bréfi um fláraukalög
KRISTINN Pétursson, alþingismaður hefur enn ekki fengið svar
við bréfi, sem hann sendi Ólafi Ragnari Grímssyni, Qármálaráð-
herra, þann 23. maí sl., þar sem hann fór þess á leit að ftumvarp
til fjáraukalaga fyrir árið 1989 yrði lagt fram strax og þing kem-
ur saman nk. haust. Fjármálaráðherra lýsti því hins vegar yfir í
þessari viku að hann hygðist leggja fram slíkt frumvarp. I sam-
tali við Morgunblaðið sagði Kristinn það embættismannahroka hjá
Qármálaráðherra að svara ekki bréfi frá þingmanni um jafii mikil-
vægt mál. Fór þingmaðurinn fram á það á sínum tíma að Qármála-
ráðherra svaraði erindi hans innan þijátíu daga.
Morgunblaðið/Ævar Hjartarson
Byggðaröskunin í hnotskum. Unnið við að flylja íbúðarhús undir Eyjafjöllum í burtu í þrennu lagi og
eftir stendur aðeins eldavél á grunni sem minnir á hús og íjölskyldu sem flutt er á braut.
Vestur-Eyjafjallahreppur:
Ibúðarhús sagað
Holti, Vestur-EyjaQallahreppi.
VEGNA minnkandi landbúnaðarframleiðslu verða húseignir nær
verðlausar víða úti á landi og nýleg hús standa auð og yfirgefin,
óseljanleg jaftivel fyrir brot úr verði.
í bréfi sínu gerði Kristinn einn-
ig formlega athugasemd vegna
þess að frumvarp til fjáraukalaga
fyrir árið 1988 hafi ekki verið lagt
fram á því þingi sem þá var að
Iðnaðarráðuneytið:
Viðræðum við
ATLANTAL
framhaldið
RÁÐGJAFARNEFND iðnaðar-
ráðuneytisins og fulltrúar fjög-
urra evrópskra álfyrirtækja,
sem mynda hinn svonefiida
ATLANTAL-hóp, munu eiga
fiind í Stokkhólmi á morgun.
Verður þá meðal annars kynnt
áfangaskýrsla sænska ráðgjaf-
arfyrirtækisins SIAB, sem
kannar nú hagkvæmni stækk-
unar álvers ÍSAL í Straumsvík.
Jóhannes Nordal, formaður ráð-
gjafarnefndar iðnaðarráðuneytis-
ins, segir að viðræðumar í Stokk-
hólmi verði fyrst og fremst tækni-
legs eðlis. Þarna verði farið yfir
ýmsa þætti málsins, kynntar
áfangaskýrslur, meðal annars frá
sænska ráðgjafarfyrirtækinu
SIAB, en hins vegar muni niður-
stöður hagkvæmnisathugana ekki
liggja fyrir fyrr en seint í septem-
ber.
ljúka. „Það að ráðherrann seg-
ist nú munu ætla að leggja fram
frumvarp til fjáraukalaga fyrir
árið 1989 er gott skref í átt til
þess að framkvæmdavaldið virði
stjómarskrá landsins eins og því
er skylt að gera,“ sagði Kristinn
Pétursson, þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann út af
þessu máli.
Taldi þingmaðurinn að næsta
skref ætti að vera að venja fram-
kvæmdavaldið á að taka ekki
meiri lán erlendis og innanlands
en lánsfjárlög heimiluðu en slíkt
væri skylt samkvæmt 40. grein
stjórnarskrárinnar. „Þegar fram-
kvæmdavaldið hættir að bijóta
stjómarskrána, þá er fyrst von til
þess að hagur atvinnuveganna og
þar með lífskjör í landinu geti far-
ið að batna aftur, því fram-
kvæmdavaldið sjálft veldur með
hegðun sinni hinum gífurlega fjár-
magnskostnaði með dæmalausri
óstjóm í ríkisfjármálum.“
STEINAR HF. hafa kært til um-
boðsmanns alþingis aðgerðir §ár-
Fyrir um 10 árum byggði verk-
stjóri bifreiðaverkstæðisins Faxa
undir Eyjafjöllum nýtt íbúðarhús
úr timbri við hlið verkstæðisins.
Vegna minni atvinnu, erfiðari skila
hjá viðskiptavinum og svo að auki
hás fjármagnskostnaðar, varð ekki
hjá uppgjöri komist og leiddi það
til þess að Lífeyrissjóður Rangæ-
inga eignaðist húsið fyrir um 1,2
málaráðuneytisins og innheimtu-
manna ríkissjóðs til innheimtu á
áætlaðri söluskattsskuld fyrirtæk-
isins í júnímánuði síðastliðnum.
Húsakynni fyrirtækisins eins og
ileiri voru þá innsigluð vegna
áætlaðrar söluskattsskuldar sem
var til meðferðar hjá ríkisskatta-
neftid. Úrskurður rikisskatta-
nefndar fól í sér um helmings
lækkun kröfú rikisins þar sem fellt
var niður álag og dráttarvextir
en skattstoftiinn staðfestur.
Hefur fyrirtækið, sem og aðrir
framleiðendur myndbanda, fengið
endurgreiddan án vaxta rúmlega
helming þeirrar fjárhæðar sem þau
þurftu að inna af hendi til að fá inn-
sigli á fyrirtækin aflétt. Alls er þar
um hátt á annan tug milljóna króna
að ræða, að sögn Steinars Berg
Isleifssonar forstjóra Steina. Hann
hyggst einnig stefna ríkinu fyrir
dómstóla til að fá endanlegan úr-
skurð um hvort skattskyldan sé til
staðar og kreíjast bóta úr ríkissjóði
fyrir íjárhagslegt tjón og mannorðs-
skerðingu vegna aðgerðanna.
„Við viljum í fyrsta lagi fá álit
umboðsmanns á aðferðinni sem beitt
var við þessa aðför og við munum
síðan stefna málinu, hvemig sem sá
úrskurður verður, og fara fram á
niðurfellingu söluskatts og greiðslu
skaðabóta vegna tjóns sem við höfum
orðið fyrir. Við teljum að það geti
ekki samræmst lögum að sami aðil-
inn leggi gjöld á fyrirtæki, hafi síðan
uppi innheimtuaðgerðir og loki fyrir-
tækinu ef honum fínnst ekki bera
árangur, jafnvel þótt að ljóst sé að
ágreiningurinn sé til úrskurðar hjá
hlutlausum aðila," sagði Steinar
Berg.
Hann sagði kæruna byggða á
þrennu. í fyrsta lagi hefði ríkið verið
með í gangi uppboðsmál á hendur
fyrirtækinu vegna þessarar sömu
skuldar og hefði uppboðið átt að
hefjast daginn eftir að lögregla inn-
siglaði húsnæði fyrirtækisins. Hann
hefði á þeim tíma talið að málið
væri komið í fastan farveg þar sem
hægt væri að fylgjast með framvindu
þess og koma að athugasemdum.
milljónir. Enginn í sveitinni treysti
sér til að kaupa húsið á því verði
og ganga inn í áhvílandi lán á hús-
inu.
Fyrir stuttu keyptu hjón úr
Keflavík húsið, söguðu það sundur
í þrennt til þess að það kæmist á
flutningabíla og yfír Þjórsárbrú.
Aðspurður sagðist eigandinn hafa
Við lokunaraðgerðimar hafi hins
vegar verið fallið fyrirvaralaust frá
uppboðsmálinu en krafist stað-
greiðslu í reiðufé vegna sömu kröfu
og jafnvel verið gengið svo langt að
neita að taka við ávísun sem greiðslu.
í öðru lagi hefði fyrirtækið sætt
mismunun þar sem því hefði verið
neitað um að leggja fram tryggingar
fyrir hinni áætluðu skuld uns endan-
legur úrskurður lægi fyrir. Þá af-
greiðslu hefðu mál annarra fyrir-
tækja fengið síðar. Steinar hefðu
hins vegar orðið fyrir strangari að-
gerðum en fjölmörg fyrirtæki í sömu
aðstöðu sem að geðþótta ráðherra
hefðu fengið að halda sinni starfsemi
ótruflaðri án þess að áætlaðar skuld-
ir hefðu verið greiddar þar sem þau
hefðu sótt um fyrirgreiðslu til At-
vinnutryggingasjóðs. í þriðja lagi
kveðst Steinar Berg vilja fá álit
umboðsmanns á því hvort réttar-
öryggi í landinu sé ekki skert með
því að sama stjómvald hafí lagt á
Selfossi
JÓNAS Halldórsson, formaður
Félags kjúklingabænda, var
felldur í stjórnarlqöri á aðalfundi
félagsins sem haldinn var á Sel-
fossi í gær. Á stjómarfundi strax
eftir aðalfund var Bjarni Ásgeir
Jónsson, sem var varaformaður
síðustu stjórnar, kosinn formað-
ur þegar stjórnin skipti með sér
verkum.
Auk Bjarna Ásgeirs voru kjörnir
í stjórn þeir Ásgeir Eiríksson, Logi
Jónsson, Jón M. Guðmundsson, og
Ólafur Guðjónsson. Aðalmál fund-
arins var skattlagning greinarinnar
og var stjórn félagsins falið að vinna
að því m.a. að skattar og gjöld yrðu
afnumin sem mest af landbúnaðar-
vömm og að virðisaukaskattur
verði ekki lagður á þær. Umræður
í þrennt
verið um hálfan mánuð að saga það
sundur og styrkja fyrir fiutninginn.
Sér hefði litist vel á þessi kaup og
þrátt fyrir kostnað við undirbúning
og flutning hefði þetta átt að ganga
upp. Hins vegar hefði reynst erfið-
ara að ná húsinu af grunninum en
hann hefði búist við. Það var ekki
aðeins boltað niður heldur einnig
steypt og því hefði ýmislegt orðið
að láta undan þegar húsið var híft
af grunni.
skattinn, úrskurðað um skattskyldu
og innheimt skattinn og að héraðs-
dómarinn í Kópavogi hafí einnig
komið fram sem fulltrúi fram-
kvæmdavaldsins við aðförina og
fengið fyrir það greiðslu. „Þar að
auki var farið í þessar aðgerðir vegna
óvissrar kröfu eins og fram hefur
komið með úrskurði ríkisskatta-
nefndar sem lækkaði kröfu ríkissjóðs
um meira en helming,“ segir hann.
Steinar Berg sagði að skattskyld-
an sjálf yrði síðan borin undir dóm-
stóla en beðið yrði álits umboðs-
manns áður en stefnt yrði. „Við un-
um því ekki að greiða beint úr okkar
sjóðum söluskatt sem við höfum aldr-
ei innheimt," sagði hann. Steinar
Berg sagði að einnig yrðu gerðar
bótakröfur meðal annars vegna þess
að endurgreiðsla hins ofgreidda fjár
hefði verið vaxtalaus, vegna sölu-
taps, mannorðshnekkis og ýmiss
kostnaðar sem fallið hefði á fyrirtæk-
ið vegna þessara aðgerða.
urðu einnig um kvótamál í kjúkl-
ingaframleiðslunni. Sig. Jóns.
Fiskiðjan Freyja:
Greiðslustöðv-
un framlengd
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja greiðslustöðvun hjá Fisk-
iðjunni Freyju hf. á Suðureyri
um tvo mánuði.
Fiskiðjan Freyja hf. fékk
greiðslustöðvun til þriggja mánuða
22. maí síðastliðinn. Greiðslustöðv-
unin hefur nú verið framlengd til
22. október næstkomandi.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson.
Helga Sif Sveinbjarnardóttir á Yztabæli með kvígunni og kálfun-
um tveimur.
Austur-Eyjaflallahreppur:
Fyrsta kálfs kvíga
með tveimur kálfiim
Holti.
SÁ EINSTÆÐI atburður gerð-
ist núna fyrir nokkrum dögum
á Yztabæli að fyrsta kálfs kvíga
bar tveimur stórum og myndar-
legum kálfum. Þeim fer vel
fram.
Helga Sif Sveinbjarnardóttir,
dóttir bóndans að Yztabæli sem
er núna heima við búskapinn,
sagðist vart hafa trúað sínum eig-
in augum þegar hún kom í hag-
ann að ná í kýmar að þá var
uppáhalds kvígan hennar, sem
heitir Góð, borin tveimur kálfum.
Eldri menn hér um slóðir muna
ekki eftir að hafa heyrt það fyrr
að fyrsta kálfs kvíga ætti tvo
kálfa.
- Fréttaritari
- Fréttaritari
Steinar kæra söluskattsinn-
heimtuna til umboðsmanns
Bjami Ásgeir formað-
ur kjúklingabænda